Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Gætuð þér ekki bara komið inn til barnanna bakdyramegin, kæri Jesús. VEÐUR Þingflokkur Vinstri grænnavirðist genginn í þjónustu LÍÚ ef marka má ummæli Atla Gísla- sonar, alþingismanns þess flokks, í samtali við RÚV í gærkvöldi. Atli Gíslason sagði að Vinstri grænir vildu fresta álagningu veiðigjalds í þrjú ár eða fram til ársins 2010. Hvað ætli hafi komið fyrir Vinstri græna? Hvers vegna hafa þeir gerzt mála- liðar LÍÚ?     Hvað er veiði-gjaldið? Veiðigjaldið er greiðsla útgerð- armanna fyrir að nýta auðlind- indina í hafinu í kringum landið. Samkvæmt lögum, sem Alþingi hefur sett, er þessi auðlind sam- eiginleg eign íslenzku þjóð- arinnar. Samkvæmt lögum, sem Alþingi hefur sett, ber þeim, sem vilja nýta þessa auðlind, að greiða eigendunum, þjóðinni allri, sér- stakt gjald fyrir nýtingarréttinn.     Þessi lög voru sett eftir að þjóð-in hafði staðið og horft á tug- milljarða, ef ekki hundruð millj- arða ganga á milli útgerðarmanna sjálfra, þegar þeir keyptu og seldu nýtingarréttinn að auðlind sem er í annarra eigu, þ.e. þjóð- arinnar. Þetta vita Vinstri grænir mæta vel. En það er ljóst að staðfesta þeirra er ekki meiri en þing- manna Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar sem hafa gefizt upp fyrir kröfugerð sérhagsmuna- hóps, útgerðarmanna.     Nú eru Vinstri grænir gengnirtil liðs við stjórnarflokkana í þessu grundvallarmáli. Er einhver von til þess að ein- hver þingmaður, þó ekki væri nema einn, taki upp hanzkann fyr- ir málstað og hagsmuni þjóð- arheildarinnar? Eða hafa þeir gefizt upp, allir sem einn? STAKSTEINAR Atli Gíslason Í þjónustu útgerðarmanna SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                          *(!  + ,- .  & / 0    + -      ! ! ! !      "   "     12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    # !   $ $ " %$ %           :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? &%    %&& %! #% &%!  %!   %!& %&! !%&# &% %&   !%                         *$BC $$                "         #       $%& ' ( (  )$     *  *! $$ B *! ' (  ) $ $( $    * <2 <! <2 <! <2 ')  $+  ,$- .  D -                  <    87  +     ,  -    &.        / 0 ! '   1  2  (  !   +  (    -    !'   2 3$    !')    * 6 2  +     ( *     $%&    !'   *   .& 4 4  *      !5%   6 *   *  /0 $ $ 11   $ $2   $+  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Stefán Friðrik Stefánsson | 16. des. Áhugavert einvígi Það var gaman að sjá Manchester United taka Liverpool áðan. Það er reyndar alltaf mjög sætt að sjá Unit- ed-menn vinna erki- fjendur sína í Liverpool. Baráttan milli þessara liða er orðin fræg og það er alltaf stórviðburður þegar að þau keppa. Það stefnir í áhugavert einvígi um meistaratitilinn á næstu vikum. Liver- pool hefur ekki unnið meistaratitil í um tvo áratugi. Meira: stebbifr.blog.is Marta B. Helgadóttir | 15. desember Snilld í leikhúsi Ég fór á mjög óvenju- lega sýningu í Borg- arleikhúsinu. Þarna var leikið af mikilli snilld og sýningin í heild var hreint frábær. Allur text- inn er bullmál. Leik- ararnir hafa einungis líkamstján- inguna og raddblæinn til að koma efninu til skila – en engin skiljanleg orð! Þetta er í verkinu Ræðismanns- skrifstofan eftir Jo Strömgren. Það er skemmtilegt og óvenjulegt að upplifa sýninguna á þennan hátt. Meira: martasmarta.blog.is Marinó G. Njálsson | 16. des. 2007 Hverju um að kenna? Ég hef lengi verið þeirr- ar skoðunar að hlýnunin ein og sér sé kannski ekki svo alvarlegur hlut- ur miðað við hitabreyt- ingar á jörðu undanfarin 10-20 þúsund ár og þó svo að við litum á skemmra tímabil. Við erum t.d. ekki einu sinni komin á það hitastig sem var um landnám. Mér fannst t.d. merkileg fréttin um ár- ið, þegar einhver skriðjökull á Suð- austurlandi hafði hopað svo mikið að hann hafði skilað mannvistarleifum sem hann gróf u.þ.b. 5-600 árum eftir landnám. Ég verð að viðurkenna að ég sá ekki hver fréttin var. Að jökullinn var að hörfa eða að fá staðfestingu á því að hitastig jarðar sveiflast. Það er viðurkennd staðreynd að á tímabilinu frá siðskiptum fram á nítjándu öld (og sérstaklega á sautjándu öld) var fremur kalt. Raun- ar svo kalt að það hefur verið kallað minni ísöld. Meira: marinogn.blog.is Jón Valur Jensson | 16. des. 2007 Habemus episcopum! Hjartanlega fagna ég til- komu nýs biskups kaþ- ólskra á Íslandi, Péturs Bürcher, en hann var settur inn í embætti í Kristskirkju á laug- ardag. Var athöfnin öll hin hátíðlegasta og naut þar m.a. fag- urs kórsöngs Karmelsystra í Hafn- arfirði. Kirkjan var skreytt fánaborðum Vatíkansins, Kaupmannahafn- arbiskup gegndi þar leiðandi hlut- verki, og einnig var okkar fráfarandi biskup, herra Jóhannes Geijsen, meðal þeirra helztu, sem töluðu, og þar voru fleiri biskupar viðstaddir (en ýmsir komust ekki vegna veðurs) og allnokkur fjöldi presta og reglufólks, þ.e. kaþólskra systra af ýmsum reglum og munka frá klaustrinu í Reyðarfirði. Ennfremur voru þar, auk fullrar kirkju leikmanna, biskup Ís- lands, herra Karl Sigurbjörnsson, herra Geir H. Haarde forsætisráð- herra og tveir aðrir meðlimir rík- isstjórnarinnar, það ég sá, og borg- arstjóri Reykjavíkur. En Reykjavíkurbiskup er hið opinbera starfsheiti herra Péturs Bürcher. Maðurinn sjálfur er afar ljúfmann- legur, laus við öll stíf formlegheit, það sást vel á hans brosmildu framgöngu í prócessíu um dómkirkjuna og t.d. þegar hann vék af leið sinni til að klappa á kollinn á litlu barni sem stóð þar hjá. Eftir messuna, sem stóð langt á aðra klukkustund, var fagnað í Odd- fellowhúsinu, þar sem borið var fram kaffi og kökur. Kaþólski söfnuðurinn gleðst yfir sínum nýfengna biskupi, og sjálfur fekk ég að þrýsta hönd hans, bjóða hann velkominn, óska honum velfarnaðar í starfi og þiggja af honum blessunarorð. Herra Pétur Bürcher var þegar vígð- ur biskupsvígslu í heimalandi sínu Sviss, en hann gegndi þar embætti aðstoðarbiskups. Meira: jonvalurjensson.blog.is BLOG.IS Enn betra golf 3 Enn betra golf Eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara og Úlfar Jónsson margfaldan Íslandsmeistara og golfkennara Eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara og Úlfar Jónsson margfaldan Íslandsmeistar a GOLF ENN BETRABETRA G O LF A rnar M ár Ó lafsson og Ú lfar Jónsson 11/20/07 11:46:42 PM Jólabók golfarans! Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson Fæst í helstu bókabúðum og víðar! Verð kr. 3.490,- m/vsk Salvör | 16. desember 2007 Sníkjulíf í Netheimum Á vefnum er mikið af ókeypis vefsvæðum sem bjóða upp á af- þreyingarefni til dæmis svona flashleiki eins og íslensku leikjavef- irnir bjóða upp á. Þessi svæði bjóða oft aðgang að leikjum ókeypis einungis í því augna- miði að ginna fákunnandi og óreynda netnotendur inn í gildrur, fá þá til að kaupa einhverjar vörur eða horfa á auglýsingar um vörur eða hlaða nið- ur einhverju vafasömu dóti sem njósnar um nethegðun eða lauma inn á tölvur þeirra einhverjum for- ritum. Meira: salvor.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.