Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 37
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin
kl. 9-16.30, viðtalstími hjúkr-
unarfræðings kl. 9-11, boccia kl.
10, hádegismatur kl. 12, fé-
lagsvist kl. 14, kaffi kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn
handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádeg-
isverður, bútasaumur, kaffi. Jóla-
ljósaferð um Reykjanesið, farið
frá Bólstaðarhlíð 19. des. kl.
15.30. Kaffiveitingar á Garðs-
skaga. Verð kr. 2.900. Skráning í
s. 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í
handmennt kl. 9-12, m/leiðb.
Leikfimi kl. 10, leiðb/ Guðný.
Myndlistarnámskeið kl. 13-16,
leib/ Hafdís, brids kl. 14.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofa FEBK Gullsmára 9 er
opin mánudaga og miðvikudaga
kl. 10-11.30, s. 554-1226. í Gjá-
bakka er opið á miðvikudögum
kl. 15-16, s. 554-3438. Fé-
lagsvist í Gullsmára á mánudög-
um kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki |
Handavinna kl. 9, leiðbeinandi
verður til hádegis, bossía kl.
9.30, gler- og postulínsmálun kl.
9.30 og kl. 13, lomber kl. 13, ca-
nasta kl. 13.15.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Postulínshópur kl. 9.05, ganga
kl. 10, kl. hádegisverður kl. 11.40,
handavinna, brids kl. 13, fé-
lagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara,
Garðabæ | Haustnámskeiðum er
lokið, vornámskeið hefjast í lok
janúarn nánar auglýst síðar. Há-
degismatur seldur í Jónshúsi frá
morgundegi. Opið í Jónshúsi
alla virka daga fram að áramót-
um kl. 10-16, heitt á könnunni.
Sími: 512-1501 / 617-1501 / 617-
1502.
Félagsstarf Gerðubergs |
Vinnustofur opnar kl. 9-16.30.
Sund og leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.50. Frá hádegi er
spilasalur opinn. Gerðubergskór
fer ,,ljósarúnt“ í Reykjanesbæ kl.
14.20, m.a. sungin jólalög o.fl. í
Duushúsi. Uppl. á staðnum, s.
575-7720 og wwwgerduberg.is.
Strætisvagnar S4, 12 og 17.
Hraunbær 105 | Handavinna og
útskurður kl. 9, bænastund kl.
10, hádegismatur kl. 12, myndlist
kl. 13, kaffi kl. 15. Hárgreiðslu-
stofan Blær opin alla daga sími
894-6856.
Hvassaleiti 56-58 | Opin
vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu,
skreyting á kerti, jólasokkar o.fl.,
frjáls spilamennska kl. 13-16, há-
degisverður kl. 11.30.
Hæðargarður 31 | Aðventuferð í
Listverkahúsið Englar og fólk á
Vallá á Kjalarnesi. Á eftir er
Hlaðborð í Draumakaffi. Far-
arstjóri er Laufey Jónsdóttir.
Lagt af stað kl. 12.45. Uppl.
568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morg-
un er sundleikfimi í Grafarvogs-
sundlaug kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð |
Morgunkaffi og spjall kl. 9.30,
sögustund kl. 10.30, handverks-
og bókastofa kl. 13, kaffiveit-
ingar kl. 14.30, söng og sam-
verustund kl. 15.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan op-
in vinnsutofa í handmennt er
opin kl. 9-16. Boccia
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl.
9-16, handavinna kl. 9.15-15.30,
boccia kl. 9, leikfimi kl. 11, hádeg-
isverður kl. 11.45, kóræfing kl. 13
og kaffi kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð |
Smiðja, bókband, morgunstund,
boccia, framhaldssaga kl. 12.30,
handavinnustofa opin eftir há-
degi, sungið með Sigríði kl.
13.30, frjáls spilamenska. Hár-
greiðslu og fótaaðgerðarstofur
opnar alla daga.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-
12 ára í Grafarvogskirkju og
Húsaskóla kl. 17-18. Æskulýðs-
félag fyrir unglinga í 8.-10. bekk
í Grafarvogskirkju kl. 20.
Morgunblaðið/Sverrir
Grafarvogskirkja.
dagbók
Í dag er mánudagur 17. desember, 351. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn.
(II Sam. 4, 1.-2.)
Í desember hafa ungmennin í fé-lagsmiðstöðinni Hólnum, íDigranesskóla, Kópavogi, stað-ið fyrir verkefni sem fengið
hefur yfirskriftina Jólagóðverk Hóls-
ins.
Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir er for-
stöðumaður félagsmiðstöðvarinnar,
og segir frá: „Verkefnið fer þannig
fram að unglingarnir koma með gjaf-
ir að heiman, sem ætlaðar eru börn-
um og unglingum, frá 0 til 16 ára,“
segir Íris Ösp. „Gjöfunum komum við
svo í hendur Mæðrastyrksnefndar
Kópavogs, sem síðan úthlutar þeim
til skjólstæðinga sinna. Einkum er
um að ræða ónotaða eða vel með
farna muni, leikföng, fatnað, bækur
eða annað nytsamlegt, og í mörgum
pökkum hefur einnig læðst með eitt-
hvert góðgæti.“
Félagsmiðstöðina Hólinn sækja um
280 unglingar í 6. til 10. bekk Digra-
nesskóla: „Jólaverkefnið hefur vakið
ungmennin til umhugsunar um þá að-
stöðu sem sumir búa við í þjóðfélag-
inu. Um leið fá þau að kynnast því að
sýna náunganum umhyggju og hlýju
í verki,“ segir Íris Ösp. „Mikil jóla-
stemning hefur einnig verið kringum
verkefnið, og boðið upp á heitt kakó,
vöfflur, piparkökur og mandarínur,
við kertaljós og jólagleði. Margir
unglinganna hafa tekið með sér yngri
systkini, sagt þeim frá verkefninu og
útskýrt fyrir þeim um leið og þau fá
að taka þátt í að gera góðverk.“
Verkefnið tengist kennslu í félags-
málafræði við Digranesskóla, þar
sem meðal annars var fjallað um
hamingjuna og gildi góðverka: „Voru
ýmis verkefni unnin bæði skriflega
og verklega. Ungmennin fengu það
verkefni eina vikuna að gera góð-
verk, og sýndu þau frábært frum-
kvæði. Einn nemandinn tók sig m.a.
til og las fyrir eldri borgara á dval-
arheimili,“ segir Íris. „Hugmyndin að
jólaverkefninu kviknaði í framhald-
inu, og langaði ungmennin að leggja
einhverjum lið í þeirra nánasta um-
hverfi. Jólagóðverk Hólsins hefur
gengið vonum framar, og hafa safn-
ast yfir hundrað gjafir. Ætlum við
framvegis að reyna að gera þetta
verkefni að árlegum viðburði.“
Í dag, mánudag, klukkan 17 verða
gjafirnar afhentar Mæðrastyrks-
nefnd Kópavogs.
Heimasíða félagsmiðstöðvarinnar
Hólsins er á hollinn.kopavogur.is.
Hátíð | Unglingarnir í Digranesskóla hjálpa bágstöddum börnum
Jólagóðverk Hólsins
Íris Ösp Svein-
björnsdóttir fædd-
ist á Akranesi
1981. Hún lauk
hönnunargráðu
frá Iðnskólanum í
Hafnarfirði 2004.
Hún hefur starfað
við umönnun og
umsjón barna og
unglinga um langt skeið, og hefur ver-
ið forstöðumaður Félagsmiðstöðv-
arinnar Hólsins frá 2006. Sambýlis-
maður Írisar Aspar er Friðrik
Arilíusson og eiga þau samanlagt
þrjár dætur.
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Kvíðahópur Geðhjálpar
kemur saman kl. 19.30-21. Allir sem
eiga við viðhlítandi vandamál að
stríða velkomnir.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-
samtakanna er 895-1050.
JESSICA Wilson heitir þessi snót á myndinni, en ekki auðnaðist blaða-
manni að grafa upp nafn risaeðlunnar sem Jessica er að bursta tennurnar
í, en latínumenn kalla hana þó Allosaurus. Þær stöllur búa í Toronto.
Í kjafti fornaldarskrímslis
Reuters
Átak í tannhirðu
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu sem þig
langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum
sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is,
og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt
að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Afmælistilkynningar
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111