Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF kt. 600390-2289, hefur birt lýsingar vegna skráningar skuldabréfa á OMX Nordic Exchange Iceland (OMX ICE) og gert þær aðgengilegar almenningi frá og með 17. desember 2007. Eftirfarandi skuldabréfaflokkar hafa verið gefnir út: • Skuldabréfaflokkur með heildarfjárhæð ISK 5.000.000.000 og voru bréf að fjárhæð ISK 3.300.000.000 gefin út þann 1. nóvember sl. Auðkenni flokksins á OMX ICE er ATOR 07 6. Bréfin verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 17. desember 2007. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 6 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 230bp álagi. Höfuðstóll skuldabréf- anna greiðist með einni afborgun þann 5. apríl 2010. • Skuldabréfaflokkur með heildarfjárhæð ISK 5.000.000.000 og voru bréf að fjárhæð ISK 2.100.000.000 gefin út þann 12. nóvember sl. Auðkenni flokksins á OMX ICE er ATOR 07 8. Bréfin verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 17. desember 2007. Skuldabréfin eru í ISK 5.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 6 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 230bp álagi. Höfuðstóll skuldabréf- anna greiðist með einni afborgun þann 12. maí 2009. Lýsingarnar er hægt að nálgast hjá útgefanda Atorku Group hf., Hlíðasmára 1, 201 Kópavogur, eða á vefsetri útgefanda, www.atorka.is, fram til lokadags skuldabréfaflokkanna. Umsjónaraðili skráningarinnar á OMX ICE er Landsbanki Íslands. 17. desember 2007 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 40 30 6 12 /0 7 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 40 30 6 12 /0 7 Atorka Group hf. Skráning skuldabréfa ÞETTA HELST ... ● ÞÝSKA flug- félagið Luft- hansa, annað stærsta félag Evr- ópu, hefur keypt 19% hlut í banda- ríska lággjalda- félaginu Jet Blue Airways. Í Fin- ancial Times seg- ir að þetta séu fyrstu slíku kaupin í Bandaríkjunum af evrópsku áætl- unarfélagi. Hluturinn er keyptur á 300 milljónir dollara, jafnvirði um 18,6 milljarða króna. Voru bréfin keypt á 16% hærra gengi en í banda- rísku kauphöllinni og mun Lufthansa fá einn fulltrúa inn í stjórn flugfélags- ins. Komu kaupin, sem eru háð sam- þykki bandarískra yfirvalda, á óvart þar sem Lufthansa hefur m.a. verið í samstarfi við United Airlines, keppi- naut Jet Blue á mörgum flugleiðum. Lufthansa kaupir 19% hlut í Jet Blue Airways ● ÞRÍR verðbréfamiðlarar í Banda- ríkjunum hafa aflað einhvers mesta gróða sem um getur í sögu Wall Street með því að veðja sem svarar 250 milljörðum króna á að áhættu- söm húsnæðislán myndu rýrna að verðgildi. Því fleiri slík lán sem gjald- féllu því meira græddu miðlararnir þrír, sem starfa hjá Goldman Sachs fjárfestingarbankanum. Heimildamenn The Wall Street Journal segja að hagnaður miðlar- anna hafi numið sem svarar rúmum 247 milljörðum króna og hafi bætt upp mikið tap sem orðið hafi í öðrum deildum bankans. Er nú reiknað með 670 milljarða króna árshagnaði Goldman Sachs sem er met. Græddu á húsnæðis- lánakreppunni VELTA í dagvöruverslun jókst um 12,2% í nóvember síðastliðnum mið- að við sama mánuð í fyrra á breyti- legu verðlagi, samkvæmt tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar á Bifröst. Á milli mánaðanna október og nóvember jókst velta dagvöruversl- unar um 0,3%. Mun meiri veltuaukn- ing varð í húsgagnaverslun í nóvem- ber miðað við mánuðinn á undan, eða sem nam um 19,2%. Að sögn Emils B. Karlssonar hjá rannsóknasetrinu virðist sem jóla- verslunin hafi byrjað fyrir alvöru í húsgagnaverslunum í nóvember. Bent er á að stöðugur vöxtur hafi verið í dagvörunni síðustu tvö ár, frá nóvember 2005 hafi veltan í dagvör- unni aukist um 26,7%, miðað við breytilegt verðlag. Á sama tíma hafi verðlag á dagvöru hækkað um tæp 6%. Íslenskir neytendur verji því rúmlega fjórðungi meira til kaupa á dagvöru nú en fyrir tveimur árum ef miðað er við verðlag hvers árs. Emil telur þetta lofa góðu fyrir jólaversl- unina og spá rannsóknasetursins um 9,4% veltuaukningu núna í desem- ber, miðað við jólin í fyrra. Tölur úr dagvörunni í nóvember sýna aukna sölu áfengis á ný, eftir að hafa dregist saman í tvo mánuði í röð. Áfengissalan í nóvember jókst um 10,1% frá fyrri mánuði. Miðað við breytilegt verðlag er aukningin 19,6% frá sama tíma í fyrra. Meiri föt - minna af skóm Velta í fataverslun jókst um 4,3% á milli október og nóvember en skó- verslun dróst hins vegar saman um 2,7% á sama tíma ef miðað er við breytilegt verðlag. Verð á fötum var nánast óbreytt milli mánaða en skór hækkuðu um 4,3%. Rannsóknasetrið telur að jóla- verslun með húsgögn hefjist að öllu jöfnu heldur fyrr en í dagvöru og fataverslun, samkvæmt upplýsing- um frá aðilum í verslun. Verð á hús- gögnum hafi haldist nokkuð jafnt undanfarna mánuði samkvæmt verð- mælingum Hagstofunnar. Saman- lögð velta í þeim flokkum smásölu- verslunar sem mælingar rannsókna- setursins ná til jókst um 3,9% á milli október og nóvember. Er það önnur þróun en undanfarin fjögur ár, þegar dagvöruveltan milli október og nóv- ember hefur yfirleitt dregist saman. Velta dagvöruversl- unar eykst um 12,2% Morgunblaðið/Golli Stöðugur vöxtur í dagvöruverslun síðustu tvö ár Í HNOTSKURN » Jólaverslun með húsgögnhefst að öllu jöfnu fyrr en með dagvöru og fatnað. » Í samræmi við það jókstvelta húsgagnaverslunar í nóvember um 19,2%. SKIPTAR skoðanir eru um hvort hlýnun jarðar sé vandamál eða ekki en víst er að margir hafa vaxandi áhyggjur af þeirri staðreynd að hita- stig fer hækkandi. Margir reyna að sporna gegn þessari þróun, m.a. með þróun nýrrar tækni sem dregur úr losun efna sem talin eru valda hlýn- un jarðar og ekki síst með því að leita nýrra orkugjafa og vinna þá. Straumur-Burðarás fjárfestingar- banki vinnur nú að þróun fjármála- afurðar sem gerir fjárfestum kleift að „veðja á“ fyrirtæki sem vinna gegn hlýnun jarðar. Fjárfestar geta fest fé í þessari afurð og fari svo að gengisþróun umræddra fyrirtækja á hlutabréfamarkaði sé hagstæðari en markaðanna í heild, ávaxtast fjár- festingin. Spyrnt á móti hlýnun jarðar SEÐLABANKINN mun hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig á fimmtudag gangi spá greiningar- deildar Landsbankans eftir. Segir í Vegvísi greiningardeildarinnar að verðbólga sé enn vel yfir verðbólgu- markmiði Seðlabankans og verð- bólguþróun síðustu mánuði hafi ver- ið meiri en Seðlabankinn hefur reiknað með. Ljóst sé að verðbólga á 4. ársfjórð- ungi verði 5,2% en ekki 4,8% eins og spá Seðlabankans gerði ráð fyrir. Horfur fyrir næsta ár séu óljósar en ljóst megi vera að töluvert langt sé í land til þess að markmið um 2,5% verðbólgu verði að veruleika. Í nýjustu tölum Hagstofunnar um landsframleiðslu á 3. ársfjórðungi kemur fram að hagvöxtur hafi verið um 4,3% á ársgrundvelli og hafi auk- ist jafnt og þétt það sem af sé ári. Aukning einkaneyslu sé enn meiri, eða 7,5% á þriðja ársfjórðungi, en einkaneysla hafi einnig vaxið með stígandi hraða það sem af sé árinu. Þá segir í Vegvísinum að tölur um kortaveltu síðustu 11. mánuði ársins bendi til þess að eitthvað kunni að draga úr vexti einkaneyslu á fjórða ársfjórðungi, en ljóst megi vera að í heild verði aukning einkaneyslunnar nokkuð umfram spá Seðlabankans frá nóvember sl. Þá bendi tölur um atvinnuleysi ekki til þess að slaki sé að myndast í hagkerfinu. Að mati Landsbankans er það fyrst og fremst óróinn á alþjóðlegum fjármálamörkuðum sem líklegastur er til að halda aftur af vaxtahækk- unum Seðlabankans við núverandi aðstæður, en óróleikinn hefur dregið úr útlánagetu fjármálafyrirtækja, þar með talið þeirra íslensku. Lækkun stýrivaxta í Bandaríkjun- um og í Bretlandi hafi í raun aukið aðhald peningastefnunnar vegna hækkandi vaxtamunar. Það sé einnig umhugsunarvert hversu ákveðið Seðlabankinn í Bandaríkjunum hafi framfylgt vaxtalækkunarstefnu þrátt fyrir að verðbólgan þar á bæ fari hratt vaxandi. Þrátt fyrir það er það mat grein- ingardeildarinnar að Seðlabankinn horfi fyrst og fremst til vaxandi verðbólgu og aukins hagvaxtar við ákvörðun stýrivaxta á fimmtudaginn og hækki vexti um 0,25 punkta. Spáir frekari hækkun stýrivaxta Vextir Frá vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í nóvember. SANDY Weill, fyrrverandi forstjóri Citigroup, hefur hvatt hinn nýja for- stjóra bankans, Vikram Pandit, til þess að halda bankanum saman sem einni heild í stað þess að búta hann niður eins og margir hluthafar og aðrir fjárfestar hafa lagt til. Weill, sem er maðurinn á bak við Citi- group, eins og bankinn er í dag seg- ist himinlifandi með ráðningu Pan- dit og að hugmyndin að baki Citigroup eigi enn frekar við en þeg- ar bankinn var settur saman á sín- um tíma. Ekki búta Citi niður ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.