Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 48
MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar  Nýtt dótturfélag Landsvirkjunar, Landsvirkjun Power, tekur til starfa um áramótin og er því m.a. ætlað að taka þátt í útrásarverkefnum. Frið- rik Sophusson, forstjóri Landsvirkj- unar, segir stofnun félagsins í sam- ræmi við sáttmála ríkisstjórnar- innar. Þar sé þess getið sérstaklega að orkufyrirtækin skuli eiga í sam- starfi við einkaaðila um útrás í orku- málum. » Forsíða Efla á göngudeildir  Efla á göngudeildir Landspítalans og nýskipaður starfshópur á að gera tillögur þar um. Hann á m.a. að gera tillögu um samninga um göngudeild- arstarfsemi sem flestra eininga spít- alans fyrir lok næsta árs. » 2 Útlit fyrir metjólaverslun  Útlit er fyrir að met verði slegið í jólaverslun í ár. Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir að aðsókn í versl- anamiðstöðina það sem af er desem- ber hafi verið meiri en á sama tíma í fyrra. Framkvæmdastjóri Smára- lindar tekur í sama streng. » 6 Heimilaði loftárásir  Yfirhershöfðingi Tyrklands sagði í gærkvöldi að stjórnvöld í Bandaríkj- unum hefðu heimilað loftárásir sem tyrkneski herinn gerði á Norður- Írak í fyrrinótt. » 15 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Geðillska á jólum Stakst.: Í þjónustu útgerðarmanna Forystugreinar: Byrjun á Balí | Ríkið í útrás? UMRÆÐAN» Brauðfætur siðferðisins Hvað er það besta sem þú átt? Fangaverjur Heilbrigðisþjón. á landsbyggðinni Brautryðjandi lætur af störfum Litríkt og heillandi handverk Hitastýrð blöndunartæki Minnisblað húsbyggjenda FASTEIGNIR» Heitast 10 °C | Kaldast 0 °C Vaxandi suðaustan- og austanátt, 8-15 m/s eftir hádegi. Rigning syðra en annars slydda eða snjókoma. » 10 Rökkurró gaf út plötu og dreifði henni til blaða- manna og tónlistar- mógúla á Hróars- keldu. » 45 TÓNLIST» Rökkurró kólnar KVIKMYNDIR» Er Hallgrímskirkja í hættu? » 41 Eyðileggur vöru- merkjatal og fram- leiðslugleði fyrir framrás listarinnar? Gagnrýnandi veltir vöngum. » 46 TÓNLIST» Frostrósir og tenórar TÓNLIST» Leðurblaka Hellvarar fær góða dóma. » 43 KVIKMYNDIR» Fituhlunkur hleypur ekki nógu vel. » 44 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Fáklæddar á leikjavef 2. Man.Utd. efst eftir sigur á Anfield 3. Schumacher sætir rannsókn 4. Hélt þetta væri mitt síðasta  Jólasveinar | 23 „ÉG og Ronald- inho erum miklir og góðir félagar. Hann hefur alltaf staðið með mér og vildi með þessu sýna hversu ánægður hann var fyrir mína hönd þegar mér tókst að skora,“ sagði Eið- ur Smári Guðjohnsen í samtali við Morgunblaðið í gær en hann skoraði sitt fyrsta mark með Barcelona í spænsku deildinni á keppnistíma- bilinu þegar liðið yfirspilaði Valencia á útivelli á laugardagkvöldið. At- hygli vakti að Brasilíumaðurinn Ronaldinho, sem var varamaður, kom út af hliðarlínunni og faðmaði Eið og óskaði honum til hamingju með markið. | Íþróttir Ronaldinho fagnaði Eiði Eiður Smári Guðjohnsen JÓLAGLEÐI Kramhússins er árlegur viðburður á að- ventunni. Uppskeruhátíð var haldin síðastliðið laug- ardagskvöld og lögðu bæði nemendur og kennarar Kramhússins sitt af mörkum til að framreiða fjölþjóð- legan menningarhristing að hætti hússins. Þarna stigu hversdagsstjörnur á svið og sýndu lík- amsmennt. Dansatriðin voru hin fjölbreyttustu og boð- ið upp á allt frá eldfornum afródansi og sígildum tangó til póstmódernísks skrykkdans úr Vesturheimi. Eftir andlegan glaðning var boðið upp á hollan saðning. | 47 Jólagleði yst sem innst Uppskeruhátíð nemenda og kennara Kramhússins Morgunblaðið/Jón Svavarsson STEINUNN Hildur Truesdale, lið- þjálfi í landgönguliði Bandaríkja- hers, bindur nú vonir við fyrirhug- aðar skurðaðgerðir vegna alvarlegra stríðsmeiðsla sem hún hlaut er hún gegndi herþjónustu í Írak árið 2004. Steinunn hefur verið í hernum frá 2001 og var í sinni annarri Íraksferð þegar hún særðist. Var hún í hert- rukk sem lenti á skriðdrekasprengju með þeim afleiðingum að bíllinn sprakk í loft upp. Hún hlaut heila- skaða og fjórir hálsliðir ásamt þrem- ur hryggjarliðum í mjóbaki eyðilögð- ust. Hún getur samt gengið þótt hún hafi ekki burði til að annast dætur sínar tvær upp á eigin spýtur. Hefur móðir hennar því flust til hennar í herstöðina þar sem Steinunn býr í Kaliforníu. „Ég hef enga tilfinningu í tám, iljum og ökklum, en get gengið nokkurn veginn. Ég fer í tvo upp- skurði í janúar og vona að þetta lag- ist með þeim.“ Steinunn fékk áfallastreituröskun og fékk síendurteknar martraðir eft- ir árásina og segir því andleg áhrif ekki síður þungbær en hin líkam- legu. Steinunn segir herinn ekki hafa not fyrir hana lengur og hann hafi ekki komið vel fram við hana sem særðan hermann af vígvelli, þótt mál hafi lagast upp á síðkastið. „Við höf- um öll fundið fyrir því,“ segir hún og vísar þar til annarra í hennar stöðu. Steinunn ætlaði að verða lögreglu- þjónn í Bandaríkjunum en ákveðin tilviljun réð því að hún fór í herinn. Segist hún hafa búist við að geta tek- ið til við fyrri iðju að lokinni herþjálf- un en það fór öðruvísi. Hún sér þó ekki eftir neinu og segir gífurlega lífsreynslu fylgja hermennskunni. Bíður læknisaðgerða Steinunn Hildur Truesdale, liðþjálfi í Bandaríkjaher, særðist illa í árás í Íraksstríðinu og fer í aðgerðir strax eftir áramót Orða Steinunn hlaut purpurahjarta fyrir framgöngu sína í hernum. Í HNOTSKURN »Steinunn Hildur Truesdaleer 31 árs að aldri og hefur meðal annars fengið purpura- hjartað fyrir framgöngu sína í Íraksstríðinu. Líf hennar tók miklum breytingum eftir árás- ina, en til viðbótar þeim meiðslum sem upp eru talin missti hún heyrn á öðru eyra. »Eftir sprenginguna var skot-ið á hana og félaga hennar þegar þau reyndu útgöngu úr brennandi bílflakinu. „ÉG er ákveðinn í því að einbeita mér áfram að baksundinu. Það verð- ur að óbreyttu mína aðalkeppnis- grein á Ólympíuleikunum í Peking á næsta sumri,“ sagði Örn Arnarson eftir að hann hafnaði í 5. sæti í 100 m baksundi á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug í Ungverjalandi í gær. Á föstudag varð hann sjötti í 50 m bak- sundi á sama móti og þríbætti Norð- urlandametið sama daginn. Eftir langt hlé frá þátttöku í baksundi á alþjóðlegum mótum mætti Örn sterkur til leiks á EM. Framganga hans vakti athygli þar sem margir innan sundheimsins höfðu afskrifað hann sem baksundsmann eftir lang- varandi meiðsli í öxl. | Íþróttir Baksund í Peking ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.