Morgunblaðið - 17.12.2007, Page 12
Í HNOTSKURN
»SnorriFreyr segir
að vilji sé til
þess úr ýmsum
áttum að vernda
gömul hús, en á
hinn bóginn
þurfti að losa
um ákveðna
skipulagsóvissu
sem ríkir í
Reykjavík að hans mati. Höf-
uðborgin megi ekki missa yf-
irbragð sitt úr gamla bænum.
Miðbær Reykjavíkur sé auk þess
það lítill að ekki megi við því að
skerða hann frekar með nið-
urrifi.
Á ÞEIM reitum, sem þegar hafa ver-
ið deiluskipulagðir, þýðir það mögu-
legt og jafnvel mjög líklegt niðurrif
að minnsta kosti hundrað húsa við
Barónsstíg, Laugaveg, Grettisgötu,
Njálsgötu og víðar,“ segir Snorri
Freyr Hilmarsson, formaður Torfu-
samtakanna, um yfirvofandi örlög
húsa í austurbæ Reykjavíkur.
Annað kvöld, þriðjudagskvöld,
verður haldinn fundur á veitingahús-
inu Boston sem undirbúningshópur
um miðborgina skipuleggur og er
ætlað að upplýsa fundargesti um
skipulagsmál.
Öflug fasteignafélög komin
Snorri Freyr, sem mun flytja er-
indi á fundinum, segist hafa áhuga á
að sýna fólki hversu víðfeðmt deili-
skipulagið sé orðið. „Við erum vön
því að skipulag sé sett í gang sem
síðan verður aldrei að veruleika, s.s.
skipulagið frá 1962, sem var mjög
stórkarlalegt á sína vísu. En nú eru
aðrar kringumstæður með því að það
eru miklu öflugri og faglegri fjár-
festingarfélög sem eru í kringum
húsageirann í heild. Menn líta nán-
ast á deiliskipulag sem óafturkræfan
byggingakvóta og þá er spurning
hvort borgin hafi skipulagsforræði
eða ekki.“
Snorri Freyr tekur fram að ekki
sé allt ómögulegt í þessum efnum,
því húsafriðunarnefnd hafi friðað tíu
hús á Laugavegi og þá hafi Samson
eignarhaldsfélag ákveðið að rífa ekki
tiltekin hús við Vatnsstíg, svo dæmi
séu tekin.
100 hús í austurbænum
undir skipulagshnífnum
Frá Laugavegi að Austurbæjarskóla eru hús sem húsavinir óttast að verði rifin
Snorri Freyr
Hilmarsson
12 MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur sektað ritstjóra tímaritsins Gest-
gjafans um 200 þúsund krónur fyrir
að láta birta auglýsingu um áfengi í
blaðinu árið 2005. Ritstjórinn var hins
vegar sýknaður af ákæru vegna um-
fjöllunar um þrjár bjórtegundir í
sama blaði.
Ákært var vegna heilsíðumyndar
af Amarula-líkjörsflösku, sem birtist í
Gestgjafanum. Ritstjórinn sagði að
myndin hefði átt að vera hluti af um-
fjöllun um Amarula-tréð og hefði um-
fjöllunin um tréð átt að vera á vinstri
síðunni en myndin á þeirri hægri.
Myndin hefði birst en ekki umfjöll-
unin. Ástæðan hefði verið sú að um
svipað leyti hefði tímaritið verið að
opna vefsíðu og af þeim sökum hefði
auglýsing um vefsíðuna birst þar sem
fjalla átti um tréð og birtast mynd af
því og fílum. Innflytjandi áfengisins
hefði ekki greitt fyrir þetta.
Dómurinn segir í niðurstöðu sinni
að myndin hafi verið áfengisauglýs-
ing sem brjóti í bága við áfengislög.
Einnig var ákært vegna mynda af
bjórtegundum. Með þeim myndum
fylgdi umfjöllun um bjórinn og sagði
ritstjórinn að ritstjórn blaðsins hefði
unnið þá umfjöllun upp úr upplýsing-
um um bjórinn og innflytjendur hefðu
ekki greitt fyrir.
Dómurinn taldi að þessi umfjöllun-
in væri ekki tilkynning til almennings
vegna markaðssetningar heldur um-
fjöllun um neysluvöru sem leyfileg
væri í landinu. Breytti engu um það
mat þótt mynd væri birt af bjórteg-
undunum. Var ritstjórinn því sýknað-
ur af þessum ákærulið.
Sekt fyrir
að auglýsa
áfengi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt 16 ára pilt í hálfs árs skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft
samræði við 13 ára stúlku og fyrir að
hafa samræði við aðra stúlku, sem
ekki gat spornað við verknaðinum
sökum ölvunar og svefndrunga.
Pilturinn var 15 ára þegar brotin
voru framin, á árunum 2005 og 2006.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða annarri stúlkunni 500 þúsund
krónur í bætur og hinni 100 þúsund
krónur. Í dómnum kemur fram, að
önnur stúlkan beri merki og ein-
kenni um áfallaröskun sem haldi
áfram að valda henni sálrænni van-
líðan.
Í niðurstöðu fjölskipaðs héraðs-
dóms kemur fram, að pilturinn búi
við væga þroskaskerðingu en undir
hana falli þeir sem hafa greindarvísi-
tölu á bilinu 50-69. Dómurinn ákvað
að binda refsinguna skilorði vegna
ungs aldurs piltsins.
Braut gegn
13 ára stúlku
♦♦♦
HÓPUR afkomenda Jóns Guðmundssonar, ritstjóra Þjóðólfs, kom saman í
kirkjugarðinum við Suðurgötu á laugardag og minntust þess að þann dag
voru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns. Jón hvílir við hlið konu sinnar Hólmfríðar
Þorvaldsdóttur og nokkurra afkomenda þeirra. Í tilefni af þessu létu afkom-
endurnir hreinsa legsteinana við leiðið.
Jón Guðmundsson fæddist í Melshúsum í Reykjavík 15. desember árið
1807. Hann var stúdent frá Bessastaðaskóla, nam lögfræði í Kaupmannahöfn
og var alþingismaður Skaftfellinga 1845-1867. Hann var í forystu, ásamt Jóni
Sigurðssyni, á Þjóðfundinum sumarið 1851, þar sem barist var fyrir lands-
réttindum Íslendinga, að því er fram kemur á vef Þjóðskjalasafns Íslands.
Jón var eigandi og ritstjóri fréttablaðsins Þjóðólfs 1852-1874. Hann átti til
æviloka, 31. maí 1875, bréfaskipti við Jón Sigurðsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
200 ár frá fæðingu Jóns Guðmundssonar
ÞRÁTT fyrir að áhugaleikfélögum
hafi fækkað nokkuð á liðnum árum
hefur uppfærslum leikverka lítið
fækkað milli ára. Flytjendum leik-
verka hjá áhugaleikfélögum hefur
hins vegar fækkað umtalsvert á
seinustu árum. Þannig voru t.d.
rúmlega 2.000 flytjendur þeirra
leikverka sem áhugaleikfélög
færðu upp á leikárinu 1998-99 en á
síðasta leikári voru flytjendurnir
1.453. Þessar upplýsingar koma
fram í Tölfræðiárbók Hagstof-
unnar, Landshagir 2007, sem er ný-
komin út.
30 þúsund áhorfendur
Á seinasta leikári starfaði 41
áhugaleikfélag í landinu, nokkru
fleiri en á árinu á undan en fyrir
réttum áratug voru áhugaleik-
félögin hins vegar 53 talsins.
Á síðasta leikári færðu áhuga-
leikfélög landsins upp alls 90 verk,
þar af 30 eftir íslenska höfunda.
Sýningar á seinasta leikári voru
alls 499 og fjöldi sýningargesta
30.113. Miklar sveiflur eru á milli
ára á fjölda þeirra sem sækja sýn-
ingar áhugaleikfélaga. Voru þeir
rúmlega 26 þúsund á leikárinu
2004-05 en 57.200 á leikárinu 2002-
03. Áhugaleikfélög færðu upp 12
leikverk fyrir börn á seinasta ári.
Um 500 sýningar
áhugaleikfélaga
en færri flytja
Morgunblaðið/Eggert
Mávurinn Frá uppfærslu leikfélagsins Sýna í Elliðaárdalnum.