Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.12.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 17 MENNING Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is MYNDIR á þili heitir nýútkomin plata Bryndísar Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara. Tit- ilverk útgáfunnar er eftir Jón Nor- dal og er platan jafnframt tileinkuð honum. Auk fyrrnefnds verks leika þær Bryndís og Steinunn sónötur fyrir píanó og selló, nánar tiltekið Ar- peggione eftir Schubert, Brahms- sónötu í e-moll, Nocturne eftir Chopin og loks Debussy-sónötu fyr- ir selló og píanó. Blaðamaður náði tali af Bryndísi Höllu og forvitn- aðist um verkið. Hvernig er íslenska verkið, „Myndir á þili“ eftir Jón Nordal? „Það er frábært verk í fjórum köflum sem við höfum alltaf mjög gaman af að spila. Verkið er mjög myndrænt með mjög ólíkum en sterkum stemningum, eins og stutt, áhrifaríkt ljóð.“ Skiptir það máli að íslensk verk heyrist í samhengi við erlend? „Það skiptir miklu máli að flytja íslenska tónlist með verkum er- lendra höfunda. Ekki eingöngu vegna þess að þau eru hluti af okk- ar menningu og tónsköpun heldur líka til að undirstrika gildi þeirra í stærra samhengi,“ svarar Bryndís Halla. Bryndís hefur hlotið ýmsar við- urkenningar fyrir sellóleik. Má þar nefna Tónvakaverðlaun Rík- isútvarpsins og Íslensku tónlist- arverðlaunin, sem hún hefur hlotið þrisvar sinnum. Steinunn Birna hefur einnig hlotið viðurkenningar fyrir leik sinn og lof gagnrýnenda. Hljómplata þeirra Bryndísar Höllu, Ljóð án orða, hlaut Íslensku tónlist- arverðlaunin í flokki klassískra hljómplatna 1998. Smekkleysa sér um útgáfu og dreifingu Mynda á þili. Morgunblaðið/Sverrir Á þili Bryndís Halla Gylfadóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Tileink- að Jóni Nordal HINIR árlegu jólatónleikar Gra- duale Nobili fóru fram á föstudags- kvöld. Að venju voru flutt verkin „Dancing Day“ eftir John Rutter og „A Ceremony of Carols“ eftir Ben- jamin Britten. Hvort tveggja fyrir samkynja raddir og hörpu og byggt á enskum jólahymnum eða þjóðlögum, sumum eldfornum. Afar heillandi verk; ýmist hugljúf, dularfull, æsku- spræk, angurvær eða ágeng. Það þarf í rauninni ekki að hafa mörg orð um flutninginn. Elísabet Waage lék af yfirvegaðri snilld, og hvað Graduale nobile kvennakór Jóns Stefánssonar Langholtskantors varð- ar eru allir lofrollulistar löngu tæmd- ir. Eftir stendur aðeins sú fróma ósk að álíka raddgæði, ögun og innlifun verði einhvern tíma ungum körlum nægilegt keppikefli til að rífa megi blandaða kóra landsins upp úr ára- tuga lægð. Heillandi jólaforneskja TÓNLIST Langholtskirkja Verk eftir Rutter og Britten. Graduale no- bile og Elísabet Waage harpa. Stjórn- andi: Jón Stefánsson. Laugardaginn 8. desember kl. 22. Kórtónleikar bbbbb Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Eggert Við hörpuna Elísabet Waage lék af yfirvegaðri snilld. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is SÆNSKA plötuútgáfan Bis sendi í ár frá sér hljómdisk með verkum tónskáldsins Hauks Tómassonar. Á diskn- um eru tveir flautukonsertar og konsert fyrir tvo kontrabassa, í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Haukur segir vissulega andstæður í því að hafa slík verk saman á diski en menn eigi ekki endilega að hlusta á diskinn frá upphafi til enda. „Ég held það sé í rauninni betra að hlusta á hvert verk fyrir sig, bara eitt á dag,“ segir Haukur. Þetta sé ákveðið varðveisluform, diskurinn sé ekki hugsaður sem eitt konsept. Honum hafi þótt það skemmtilegar andstæður að hafa diskantinn og bassann saman. Bis hefur áður gefið út verk Hauks, óperuna Fjórða söng Guðrúnar (sem hann hlaut Tónlistarverðlaun Norð- urlandaráðs fyrir árið 2004) og svo disk með fiðlukons- ert og öðrum kammerhljómsveitarverkum. Haukur seg- ist mjög ánægður með samstarfið við útgáfufyrirtækið. „Þeir hafa góða dreifingu út um allan heim, gefa út alls konar tónlist. Það var nú bara í einhverju bríaríi sem ég og forsprakkar Caput-hópsins sendum forstjóranum fax á sínum tíma, það er svo langt síðan að þetta var á tímum faxins. Sendum honum upptöku og honum leist svona vel á þetta,“ segir Haukur. Er ekki óalgengt að tónskáld fái nýleg hljómsveit- arverk gefin út? „Jú, það er nú ekkert mjög algengt. Þetta er nátt- úrlega meiriháttar framkvæmd,“ svarar Haukur, að vonum ánægður með diskinn og fína gagnrýni í erlend- um fjölmiðlum. Best að hlusta á eitt verk á dag Morgunblaðið/Kristinn Tónskáld Haukur Tómasson gefur út disk í Svíþjóð. HINIR árlegu aðventutónleikar Skálholtskórs voru haldnir í tví- gang sl. laugardag fyrir fullri kirkju. Á efnisskrá leyndust m. a. gullfallegar perlur sem áður voru ókunnugar undirritaðri, m. a. „Ave María“ eftir Sigurð Bragason og „Finnast mun ljós“ eftir Ragnar Kristin Kristjánsson. Að auki var frumflutt árlegt jólalag kórsins, að þessu sinni lagið „Rökkurstundir“ eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, heil- steypt hátíðarverk sem vitnar í þjóðlagaarfinn og stóð sennilega hlustendum næst með kunnuglegu tónmáli sínu. Einsöngvarar voru Egill Árni Pálsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir sem heiðruðu gesti fyrst og fremst með notalegri nærveru. Söngur þeirra hljómaði þó allajafna best með Skálholtskórnum sem söng af miklu öryggi. Karladeild kórsins var sérstaklega sannfærandi í hljómarúmi kirkjunnar en hlýr söngur tenórs og bassa var yfirleitt í góðu jafnvægi við kvenraddir. Þrátt fyrir sáran skort á söng- textum í efnisskrá á meðan á tón- leikum stóð var ekki hægt annað en dást að því góða tónlistarstarfi sem ríkir í Skálholtskirkju. Ljóst er að Hilmar Örn á mikið lof skilið fyrir það uppeldis- og hvatning- arstarf sem hann vinnur þar að. Ofursæt innkoma barna- og kamm- erkórs yfir laufléttum djassund- irleik við upphaf tónleika var loks meira en nóg til að festa hátíð- arskapið kirfilega í meðvitund und- irritaðrar, en ég var örugglega ekki ein um það. Morgunblaðið/Kristinn Jólaleg Sigrún Hjálmtýsdóttir. Ánægjuleg aðventustund Alexandra Kjeld TÓNLIST Skálholtskirkja Skálholtskórinn og Barna- og kammerkór Biskupstungna fluttu jólatónlist. Ein- söngvarar: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill Árni Pálsson og Henríetta Ósk Gunn- arsdóttir. Stjórnandi: Hilmar Örn Agn- arsson. Laugardaginn 8. desember kl. 15. Kórtónleikar bbbnn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.