Morgunblaðið - 17.12.2007, Page 28
28 MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurjón Krist-insson fæddist í
Vestmannaeyjum
18. júlí 1922. Hann
lést á Landspítal-
anum í Fossvogi 8.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Ágústa
Arnbjörnsdóttir úr
Vestmanneyjum og
Kristinn Jónsson
frá Steig í Mýrdal.
Bræður Sigurjóns
eru: Magnús,
kvæntur Grétu
Bachmann og Arnbjörn, kvæntur
Ragnhildi Björnsson.
Sigurjón kvæntist 3. október
1953 Jónínu Ingólfsdóttur. For-
eldrar Jónínu voru Ingólfur Matt-
híasson, stöðvarstjóri loftskeyta-
stöðvarinnar í Gufunesi, og Unnur
S. Einarsdóttir húsmóðir í
Reykjavík. Börn Sigurjóns og
Jónínu eru: 1) Kristinn Ingi,
kvæntur Sigrúnu Magnúsdóttur,
skólann og Iðnskólann í Eyjum.
Árið 1948 hóf hann aftur nám við
Verzlunarskólann í Reykjavík og
lauk þaðan stúdentsprófi 1950.
Hann lauk prófi í forspjallsvís-
indum frá Háskóla Íslands 1952
og BA prófi í uppeldisfræði, sögu
og landafræði árið 1955. Hann
stundaði kennslu við Kvennaskól-
ann í Reykjavík frá 1951 og einnig
stundakennslu við Gagnfræða-
skóla verknáms. Sigurjón var
skátaforingi í Vestmannaeyjum í
10 ár. Hann ásamt hópi íslenskra
skáta sótti heimsmót (Jamboree) í
Frakklandi 1947 sem var fyrsta
heimsmót skáta eftir seinni
heimsstyrjöldina. Árið 1942 var
hann var ásamt félögum og vinum
úr Vestmannaeyjum einn af stofn-
endum Skátaflokksins Útlagar í
Reykjavík og var virkur félagi
alla tíð. Árið 1961 tók hann við
rekstri mánaðarritsins Eldhús-
bókin og rak hana til ársins 1985.
Eftir það starfaði hann hjá Arn-
birni bróður sínum við bókaútgáf-
una Setberg í Reykjavík.
Sigurjón verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
börn þeirra eru a)
Jónína Kristrún,
sambýlismaður Hall-
dór Óskar Magn-
ússon, synir þeirra
eru Alexander Ingi
Kristjánsson og
Magnús Ingi Hall-
dórsson, og b) Krist-
inn Sigurjón, sam-
býliskona Guðrún
Lísa Einarsdóttir. 2)
Unnur Ágústa, gift
Ragnari Sæ Ragn-
arssyni, börn þeirra
eru Katrín og Gunn-
ar Freyr.
Sigurjón lauk prófi frá gagn-
fræðaskólanum í Vestmanna-
eyjum árið 1940. Sat í 1. bekk
Kennaraskólans árið1940-41. Þá
hóf hann nám við Verzlunarskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
verzlunarskólaprófi 1943. Hann
fór aftur til Vestmannaeyja og
stundaði þar skrifstofustörf ásamt
stundakennslu við Gagnfræða-
Ekki vissi ég þegar ég kom á heim-
ili Sigurjóns og Jónínu haustið 1984
að þar væri ég að hitta tilvonandi
tengdaforeldra mína í fyrsta sinn.
Mér var vel tekið frá fyrsta degi enda
hafði dóttir þeirra, Unnur Ágústa,
lagt þeim línurnar um að taka strákn-
um vel. Ég fann mig því velkominn og
leið fljótt vel á heimili þeirra hjóna og
tókst strax með okkur Sigurjóni vin-
átta sem hefur haldist æ síðan. Til
þeirra hef ég meira sótt en mér hefur
auðnast að gefa, þau þekktu lífið og
tilveruna af langri reynslu og eigin
raun.
Sigurjón hafði á löngum vinnu-
stundum byggt húsið að Fornuströnd
15 á Seltjarnarnesi enda handlaginn
og snjall við lausnir flestra verka.
Þegar við Unnur Ágústa höfðum tek-
ið þá ákvörðun að hefja sambúð stóð
ekki á Sigurjóni að leggja okkur lið.
Hann lagði panil í risíbúð okkar í
Garðastræti og kom færandi hendi
með handriðið fyrir svalirnar. Sigur-
jón gat stundum verið sérstakur og
hafði sína tækni við að framkvæma
hluti. Aðstoðin við uppbyggingu
heimilis okkar á þessum tíma verður
aldrei fullþökkuð.
Bræðurnir þrír frá Vestmannaeyj-
um, Sigurjón, Magnús og Arnbjörn
voru tengdir sterkum böndum sem
aldrei rofna. Í marga áratugi fóru þeir
Magnús í sína vikulegu sunnudags-
göngu sem veitti þeim nýjan innblást-
ur og heilbrigði og hollir lifnaðarhætt-
ir voru Sigurjóni ávallt hugleiknir.
Eitt sinn skáti, ávallt skáti voru líka
orð sem áttu vel við Sigurjón.
Tengdapabbi hélt jafnan góðum
tengslum við gömlu félagana úr
skátafélaginu Faxa í Vestmannaeyj-
um sem flutt höfðu upp á meginlandið
til frekara náms eða starfa. Í meira en
sextíu ár hafa þeir haldið hópinn og
hittast enn.
Sigurjón aflaði sér menntunar með
því að fara í Verslunarskólann og síð-
an í Háskóla Íslands þótt slík mennt-
un þætti ekki sjálfsögð á þeim árum.
Bækur og bókaútgáfa varð starfsemi
sem tengdist Sigurjóni nær alla hans
starfstíð. Hann gaf út Eldhúsbókina í
fjölda ára og vann síðan við bókaút-
gáfuna Setberg langt fram á áttræð-
isaldur. Samskipti og samvera við
Arnbjörn bróður hans að bókaútgáf-
unni tengdi þá saman í vináttu og
starfi.
Við Sigurjón áttum margar stundir
saman jafnt á hátíðum og í gagn-
kvæmum matarboðum sem alltaf
hafa verið tíð á milli heimila okkar.
Margt var skrafað, rætt um menn og
málefni og pólitíkin krufin til mergj-
ar. Afi Sigurjón, eins og mér er nú
tamara að kalla hann eins og börnin
mín, var alltaf athugull í samræðum
og gætti þess í samskiptum að þekk-
ing og hæfni hvers og eins sæti í fyr-
irrúmi. Þannig minnast barnabörnin
afa síns og upplifa í dag söknuð sem
eftir er að vinna úr.
Það var ánægjulegt að fá tækifæri
til þess að vera með tengdapabba á 85
ára afmælisdegi hans síðastliðið sum-
ar þar sem vinir og ættingjar komu
saman og glöddust. Jónína, eða amma
Ninna, eins og hún er kölluð var hans
dyggi lífsförunautur í hartnær sextíu
ár. Ég votta þér, elsku tengda-
mamma, mína dýpstu samúð.
Elsku tengdapabbi, vinir þínir og
fjölskylda að Dalhúsum söknum þín
og Gunnar Freyr hugsar til þín og
veit að nú ert þú hjá guði.
Ragnar Sær.
Afi Sigurjón og amma Ninna hafa
alltaf verið mínir bestu vinir. Ég
heimsótti þau oft, fyrst í Espigerði og
svo í Trönuhjallann í Kópavogi. Ég
var mjög heppin að afi vann við bóka-
útgáfu því að þannig eignaðist ég
margar bækur sem hafa verið lesnar
aftur og aftur.
Afi hafði líka ánægju af því að horfa
á barnaefni m.a. á Kermit frosk og
Prúðuleikarana í sjónvarpinu. Við
fórum einnig oft saman í bíó en ein-
staka sinnum sofnaði hann þó yfir
myndunum. Afi var stundum tilbúinn
í að spila við mig 21. Það var uppá-
haldsspilið okkar. Afi var oft til staðar
og alltaf nálægur. Þegar afi var að
gefa mér hnetusmjör þegar ég var
yngri kallaði hann það afamysing og
það geri ég enn.
Á 85 ára afmælinu hans sem var
haldið heima hjá mér tók ég myndir
af afa sem nú er gott að eiga og skoða
þegar ég hugsa til góðu og skemmti-
legu stundanna sem við áttum saman.
Nú held ég að amma Ninna verði ein-
mana og vona að við getum hist ennþá
oftar vegna þess að ég á bestu og
skemmtilegustu ömmu í heimi. Elsku
amma, ég er svo leið að afi er farinn
en honum líður vel á nýjum stað.
Draumaskýin eru til taks og mig
dreymir allar góðu stundirnar með
þér og afa.
Katrín.
Kær og traustur frændi hefur kvatt
þennan heim. Sigurjón föðurbróðir
okkar var einn af þeim mönnum sem
hafa verið okkur systrum fyrirmynd
allt frá barnæsku. Hann var góður
sonur, eiginmaður, faðir og afi,
traustur bróðir og vinur, rómaður
kennari og ritstjóri; í orðsins fyllstu
merkingu drengur góður.
Sigurjón var elstur þriggja bræðra
sem með samheldni og vinskap hafa
sýnt þeim sem til þekkja hvað
bræðraþel er. Eyjapeyjarnir þrír,
Sigurjón, Magnús, pabbi okkar, og
Arnbjörn hafa alla tíð staðið saman
eins og klettar; sannir heimaklettar
sem skýldu bæði móður sinni og fjöl-
skyldum fyrir veðrum og brotsjó. Að
alast upp við slíka fyrirmynd verður
veisla í farangrinum um ókomna tíð.
Við systur vorum alltaf afar stoltar
af þessum myndarlega, víðlesna
frænda okkar sem hafði áhuga á öllu
því sem við tókum okkur fyrir hend-
ur. Minningar sækja á því þær eigum
við margar og ljúfar um Sigurjón
frænda og Ninnu, lífsförunaut hans.
Fjölmargar tengjast heimsóknum á
hlýlegt heimili þeirra hjóna þar sem
gagnkvæm virðing og samheldni
ríkti. Á Nýlendugötu og Kaplaskjóls-
vegi kynntumst við frænda okkar sem
traustum eiginmanni og umhyggju-
sömum föður. Hjá honum lærðum við
ungar að meta gráfíkjur, döðlur, rad-
ísur og rauðrófur því áhugi hans á
hollu mataræði byrjaði snemma. Um
árabil gaf hann út Eldhúsbókina sem
virtist til á hverju heimili á þeim tíma.
Sú bók hefur einnig nýst okkur betur
en margar aðrar góðar bækur – enda
hafa mataruppskriftir úr þeirri bók
aflað okkur töluverðra vinsælda. Af
Nesinu eigum við einnig ljúfar minn-
ingar um stoltan föður og afa þegar
fjölskyldan hittist þar í höfðinglegum
veislum þeirra hjóna og gladdist með
börnum þeirra og barnabörnum.
Við minnumst einnig skátastráks-
ins Sigurjóns, eins af Útlögunum frá
Vestmannaeyjum sem hafa fundað
saman í rúm sextíu ár. Það voru dýr-
mætar kvöldstundir sem við máttum
ekki missa af þegar fundur var hald-
inn heima hjá okkur. Allir þessir vinir
samankomnir og þótt dyrnar inn í
stofu væru lokaðar heyrðist ómur af
spjalli, hlátrasköll, söngur og oft og
tíðum háværar rökræður um þjóð-
mál. Því hefur verið hvíslað að okkur
að Sigurjón, 105% fjármálastjóri
flokksins, hafi oftar en ekki lægt öldu-
rót og það voru broshýrir menn sem
kvöddust þau kvöld. Þeir sem eiga
slíka vini eru ríkir.
Minningin um hve Sigurjón var
tryggur bræðrum sínum er einnig of-
arlega í huga. Hann vann með öðrum
þeirra um árabil og með hinum fór
hann í gönguferðir hvern sunnudag
þar sem nýjar slóðir voru kannaðar,
málefni rædd og bræðraböndin
styrkt. Þannig var Sigurjón náinn
yngri bræðrum sínum, hann var þeim
fyrirmynd og sannur vinur. Hann
ruddi veginn, fór fyrstur upp á fasta-
land og kveður þaðan fyrstur.
Við systur, eiginmenn okkar og
niðjar þökkum þær stundir sem við
höfum átt saman og síðasta samveru-
stund okkar á 85 ára afmæli Sigur-
jóns frænda er okkur dýrmæt minn-
ing. Við vottum Ninnu, Didda, Unni
Ágústu og fjölskyldum þeirra okkar
dýpstu samúð. Minning um góðan
dreng lifir.
Ágústa Kristín og Soffía.
Kveðja frá Útlögum
Félagi okkar og vinur, Sigurjón
Kristinsson frá Hvíld í Vestmanna-
eyjum er farinn heim eins og skátar
segja. Hann lést að morgni 8. desem-
ber eftir langvarandi veikindi.
Ungur að aldri gekk Sigurjón til
liðs við skátahreyfinguna. Var í hópi
skólabræðra sinna í Gagnfræðaskól-
anum í Vestmannaeyjum, sem stofn-
uðu skátafélagið Faxa, 22. febrúar
1938. Í 10 ár starfaði hann innan fé-
lagsins, gekk þar í öll störf og kleif
metorðastigann á enda. Varð flokks-,
sveitar-, deildar- og félagsforingi.
Hann var öflugur leiðtogi og gerði
ekki síðri kröfur til sjálfs sín en ann-
arra.
Eftir gagnfræðapróf í Eyjum hélt
Sigurjón til Reykjavíkur og settist
einn vetur í Kennaraskólann, en lauk
svo prófi frá Verslunarskóla Íslands
1943. Á þessum árum voru allmargir
piltar úr skátafélaginu Faxa komnir
til Reykjavíkur. Þar stofnuðu þeir
skátaflokk 27. október 1942 og nefndu
Útlaga. Sigurjón var í hópi 8 stofn-
félaga.
Að lokinni skólagöngu í Reykjavík
hélt Sigurjón aftur til Eyja og starfaði
þar næstu ár við ýmis störf, m.a.
kennslu. Á þessum árum naut Faxi
starfskrafta hans ríkulega.
En hugur hans stóð til frekara
náms. Hann hélt því aftur til Reykja-
víkur. Lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskólanum 1950 og BA-prófi í
uppeldisfræði, sögu og landafræði frá
Háskóla Íslands 1955.
Útlagar eru án efa elsti starfandi
skátaflokkur á Íslandi. Menn hafa
skipst á að stjórna flokknum þau 65
ár, sem hann hefur starfað. Sigurjón
lá aldrei á liði sínu.
Piltarnir úr Eyjum voru svo lán-
samir að eiginkonur þeirra stóðu vakt
um velferð flokksins sem traustir
bakhjarlar. Í áratugi voru fundir
haldnir á heimili flokksmanna. Þar
tók húsfreyjan á móti hópnum. Þau
Sigurjón og Ninna voru jafnan sam-
hent á slíkum stundum.
Auk funda iðkuðu félagarnir úr
Eyjum útivist. Fóru í gönguferðir og
veiðiferðir og voru náttúruskoðendur.
Þeir nutu þess að vera saman og var
þá oft glatt á hjalla. Í fjölskylduferð-
um var Sigurjón sérstakur vinur
barnanna, útdeildi poka með sælgæti
til hvers og eins á heimleiðinni. Sá
einnig um að hita kakó að skátasið.
Hann var næmur á að koma mönnum
á óvart.
Sá sem hér heldur á penna á Sig-
urjóni margt gott upp að unna. Við
urðum fljótt vinir, eftir að ég gekk í
skátafélagið, náðum vel saman þótt
aldursmunur væri nokkur. Og þegar
að því kom að ég færi líka til Reykja-
víkur átti ég þar góðan hauk í horni.
Hann hjálpaði mér að finna leiguher-
bergi og koma mér fyrir á nýjum stað.
Ég minnist þess, þegar hann bauð
mér með sér á Útlagafund í gamla
skátaheimilið við Snorrabraut. Þar
komu þeir saman, skátabræðurnir úr
Eyjum, til funda hálfsmánaðarlega.
Eftir áratugi er viðmótið enn hið
sama. Hópurinn hittist mánaðarlega
á fundi í Norræna húsinu. En nú er
skarð fyrir skildi.
Við leiðarlok vil ég fyrir hönd Út-
laga flytja Ninnu og fjölskyldunni og
öðrum aðstandendum, dýpstu samúð
okkar Útlaga. Megi minningin um
góðan dreng milda tregann á skiln-
aðarstund.
Óskar Þór Sigurðsson.
Sigurjón Kristinsson
Elsku pabbi.
Nú þegar komið er
að kveðjustund sit ég hér ein inni í
myrkrinu og get ekki sofið, hef frá
svo mörgu að segja, þú pabbi minn,
höfuð fjölskyldunnar, mín stoð og
stytta og besti vinur. Þegar ég fer til
baka í huganum þá eru mínar fyrstu
minningar um þig þegar þú klæddir
þig í frímúrarafötin og stóðst á stofu-
gólfinu í Hlaðbrekkunni svo glæsileg-
ur að ég gat ekki haft augun af þér,
enginn gat átt fallegri pabba, stoltið
var svo mikið. Ófáar veiðiferðirnar
fórum við systkinin með þér. Það var
alveg sama í hvaða vatn eða á þú
renndir, alltaf mokveiddir þú. Þegar
heim var komið þurfti að gera að afl-
anum og hlaupa með í soðið handa ná-
grönnunum. Þú varst mikið jólabarn
og útbjóst alltaf greniskreytingar
þínar sjálfur, útbjóst heimsins besta
jólaís og ananasfrómasinn hennar
ömmu sem ég laga enn í dag fyrir
mína fjölskyldu. Síðan fórum við í öl-
gerðina og létum fylla jólaöl á brús-
ana okkar, við stóðum alltaf hljóð hjá,
vissum að jólin væru í vændum. Þeg-
ar ég var 10 ára gömul þá ákváðuð þið
mamma að flytja til Húsavíkur, ekki
Gústav Axel
Guðmundsson
✝ Gústav AxelGuðmundsson
matreiðslumeistari
fæddist í Reykjavík
15. september 1937.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Þingeyinga á Húsa-
vík 12. nóvember
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju 17.
nóvember.
vorum við öll sátt við
þá ákvörðun.
Enn hér höfum við
verið í 30 ár. Takk fyr-
ir, pabbi, að hafa komið
með mig til Húsavíkur
því hér eignaðist ég
góðan mann, fjöl-
skyldu og góða vini.
Þú varst mikill
dellukall, gerðir allt
svo vel og skipulagt,
vandað og vildir bara
eiga það besta, hvort
sem það voru veiði-
stangir eða myndar-
vélar. Þú þoldir ekki fúsk og fljót-
færni. Þú hnýttir mikið af flugum í
frístundum og gafst vinum og sonum
þínum. Þú varst mjög greindur og
listhneigður maður og jafnframt
skapmikill og ákveðinn. Þú varst
unnandi góðra bóka og áttir frábært
bókasafn, gluggaðir oft í þær. Það var
ávallt bók á þínu náttborði. Þú klippt-
ir úr blöðum og safnaðir heimildum.
Þú varst mikill unnandi klassískar
tónlistar og hafðir nánast áhuga á
flestu sem var í kringum þig. Eftir að
heilsu þinni fór að hraka fyrir u.þ.b. 5
árum þurftir þú oft að fara á sjúkra-
hús og hafa aðstoð heima fyrir. Við
áttum margar góðar stundir pabbi
minn undir lokin og náðum að halda
upp á 70. afmælið þitt, þrátt fyrir að
þú værir alveg úrvinda, og gullbrúð-
kaup þitt og mömmu. Nafni þinn hélt
þér glæsilega veislu sem þú varst svo
stoltur af og hann af þér. Þú elskaðir
fjölskyldu þína mikið og varst stoltur
af þínum barnabörnum.
Kvöldið sem þú kvaddir þennan
heim þá baðst þú mig að taka
mömmu með mér í brúðkaupið hans
Halldórs í Álaborg og ég ætla að
sjálfsögðu að standa við það.
Elsku pabbi, þú ert búinn að vera
til staðar fyrir mig og mína allt mitt
líf og mér þykir ofboðslega vænt um
þig og ég lofa að líta eftir öllu sem við
töluðum um. Hvíldu þig nú pabbi
minn, nú þarftu ekki lengur að þjást.
Og ég vona að þú sért búinn að finna
þér góða veiðiá þar sem þú ert núna.
Ég hélt í höndina þína stuttu áður en
þú fórst, vilt þú lofa taka í mína þegar
við sjáumst á ný? Guð geymi þig og
minningu þína.
Þín dóttir,
Hjördís Gústavsdóttir.
Mér finnst alveg ótrúlega skrítið
að þú sért farinn afi minn.
Enginn afi Gústi sem hringir 100
sinnum á dag eða sem hægt er að fara
alltaf til eftir skóla og bíða eftir
ömmu. Ég á aldrei eftir að gleyma
tímanum í sumar þegar amma og
mamma fóru til Kaupmannahafnar
og ég þurfti að líta eftir þér en í rest-
ina vorum við orðin alveg ótrúlega
hænd að hvort öðru. Mikið ótrúlega
vildi ég að þú hefðir getað verið leng-
ur hjá okkur, þá myndi síminn minn
allavega hringja oftar.
Elsku afi minn, ég sakna þín ótrú-
lega mikið, og hefði viljað geta sagt
þér miklu meira. Ég vildi líka að þú
hefðir getað verið hér þegar ég fengi
bílprófið því ég var búin að lofa þér að
taka þig í bíltúra og leyfa þér að taka
myndir, því það var það sem þú elsk-
aðir. Þú verður ávallt í huga mínum
elsku afi, þín er sárt saknað.
Við burtför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þín,
Anna Margrét.