Morgunblaðið - 17.12.2007, Side 42
42 MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum
frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr
Die Hard 4.0 í fantaformi.
Sími 564 0000Sími 462 3500
Sími 551 9000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
Alvin og íkornarnir m/ísl. tali kl. 8
Run fatboy run kl. 8 - 10
Saw IV kl. 10 B.i. 16 ára
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Run fat boy run kl. 5:50 - 8 - 10:10
Saw IV kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Butterfly on a Wheel kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 14 ára
Dan in real life kl. 5:45
La vie en Rose kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Alvin og íkornarnir m/ísl. tali kl. 4 - 6 - 8
Alvin and the Chipmunks m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 -10
Alvin and the Chipmunks m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 -10 LÚXUS
Bee Movie m/ísl. tali kl. 4 - 6
Duggholufólkið kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Hitman kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Dan in real life kl. 10
MYND SEM ENGIN
ÆTTI AÐ MISSA AF!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
ÚR BÝFLUGNABÚINU
Í BULLANDI VANDRÆÐI
NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND EFTIR ARA KRISTINSSON SEM GERÐI M.A. STIKKFRÍ. KALLI ER SENDUR
Á AFSKEKKTAN SVEITABÆ TIL AÐ EYÐA JÓLUNUM MEÐ PABBA SÍNUM ÞAR SEM HANN VILLIST, LENDIR Í SNJÓBYL
OG HITTIR FYRIR BÆÐI ÍSBJÖRN OG DULARFULLAR VERUR OFL!
JÓLAMYNDIN
2007
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR SLÁ Í GEGN SEM SYNGJANDI TRÍÓ!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA OG JÓLAMYNDIN Í ÁR.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
Þetta er frumleg, úthugsuð,
vönduð og spennandi barna-
og fjölskyldumynd, besta
íslenska myndin af sínu tagi.
eee
- S.V., MBL
„Duggholufólkið bætir
úr brýnni þörf fyrir
barnaefni”
eeee
- B.S., FBL
„...ein besta fjölskyldu-
afþreyingin sem í boði
er á aðventunni”
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM OG HÁSKÓLABÍÓI
Hvað myndir þú gera til að
vernda fjölskyldu þína?
Pierce Brosnan heldur
hjónunum
Gerard Butler (úr 300)
og Mariu Bello í heljar-
greipum!
En ekki er allt sem sýnist
í þessari mögnuðu
spennumynd!
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíó, Smárabíó og Regnboganum ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
TÖLVULEIKIR»
ÉG er mikill Silent Hill
aðdáandi og það er
ansi langt síðan leikur
hefur komið út í þeirri
seríu. Fáir leikir hafa
framkallað jafn mikinn
óhug og þessir og
skáka þeir Resident
Evil seríunni í sönnum
hryllingi.
Síðasti Silent Hill
leikur, The Room,
breytti um staðsetn-
ingu og reyndi að
hrista upp í formúlunni
en sá nýjasti (sem
kemur bara út á Pla-
ystation Portable) fer
aftur á gamlar slóðir
enda snýst sagan um
það hvernig öll vand-
ræðin byrjuðu í þess-
um litla bæ.
Þú spilar sem Travis
Grady, sendibílastjóri
sem ætlar að stytta sér
leið í gegnum Silent
Hill. Á leiðinni þykknar allt upp og
hann er næstum búinn að keyra á
litla stúlku sem hleypur á brott inn í
þokuna. Af einhverjum ástæðum elt-
ir Travis stúlkuna á tveimur jafn-
fljótum og þá fyrst byrja vandræðin.
Þeir sem hafa spilað leikina vita
alveg við hverju þeir eiga að búast,
ekki hefur verið mikið gert til þess
að breyta stjórnun eða uppbygg-
ingu. Það er svolítill galli því að mað-
ur hefði búist við því að þetta myndi
þróast í tímanna rás. Meira að segja
bardagakerfið er eins stirt og það
hefur alltaf verið. Því það eina sem
hefur verið bætt við er möguleikinn
að forðast stærri árásir óvina með
því að ýta á takka í ákveðinni röð
þegar þeir ná taki á manni. Ekkert
nýtt, en þó nýtt í þessum leik. Það
sem þessir leikir hafa í tonnatali er
andrúmsloft og þrátt fyrir að þú
spilir leikinn á lófatölvu er nóg af
hryllingi til staðar. Grafíkin er
drungaleg og sérstaklega er hljóð-
hönnunin vel úr garði gerð. Fram-
leiðendur leiksins mæla með að mað-
ur slökkvi ljós og noti heyrnartól við
spilun leiksins til þess að ná há-
markshryllingi. Því get ég tvímæla-
laust mælt með. Þetta er leikur sem
ætti að halda manni við efnið þangað
til Silent Hill 5 kemur út á PS3, en
hann er einmitt í vinnslu núna.
Handfylli af hryllingi
TÖLVULEIKIR
PSP
Þöglahlíð Nóg af hryllingi er til staðar.
Ómar Örn Hauksson
Silent Hill: Origins
Konami
ÞEGAR leikir eru byggðir á ann-
aðhvort kvikmyndum eða sjónvarps-
þáttum er oftar en ekki um fljót-
færnislega framleiðslu að ræða sem
hent er út á markaðinn. Samt hefur
þátttaka leikara og framleiðenda
farið vaxandi í gerð leikja, þannig að
neytandanum finnst að það sé meira
varið í vöruna en áður.
Sjaldan eða aldrei hefur verið lagt
eins mikið í leik byggðan á sjón-
varpsþætti og í Simpsons-leikinn.
Allir leikarar eru til staðar og hand-
ritshöfundar þáttanna koma einnig
að gerð leiksins. Útlitið er af-
skaplega vel gert og atriði á milli
borða, sem eru teiknuð eins og þætt-
irnir, lyfta leiknum upp á nýjar út-
litslegar hæðir. Samt væri óskandi
að þeir hefðu lagt eins mikla vinnu í
leikinn sjálfan og allt ytra útlit.
Leikurinn er, þegar öllu er botn-
inn hvolft, einfaldur „platform“ leik-
ur sem býður ekki upp á neitt sér-
staklega frumlegt.
Sagan snýst um það þegar fjöl-
skyldan fær ofurkrafta, en það ger-
ist þegar Bart finnur reglubók um
tölvuleik - sem er einmitt um Simp-
sons-fjölskylduna. Hún fellur af
himnum ofan og þau berjast á móti
illum öflum í alls kyns myndum.
Hver fjölskyldumeðlimur er með
sína einstöku krafta. Homer getur
breytt sér í bolta, Marge getur feng-
ið hvern sem er í lið með sér til að
mótmæla einhverju, Lisa notar mátt
Búdda til þess að berjast á móti hinu
illa og Bart fer í gervi Bartmans sem
getur svifið um á skikkjunni og
sveiflað sér á upp og niður bygg-
ingar.
Leikurinn er ekki ósvipað upp-
byggður og Grand Theft Auto leik-
irnir, sem hann gerir óspart grín að,
þar sem persónurnar geta ráfað um
Springfield og tekið að sér ýmis
verkefni sem opna fyrir nýjum verk-
efnum og hæfileikum.
Þessi borð eru frekar einföld og
hefðbundin og sjálfsagt hefði þetta
getað verið hvaða leikur sem er,
nema hvað handritshöfundarnir gefa
leiknum meira líf og húmor en mað-
ur á að venjast. Þeir gera óspart
grín að tölvuleikjum yfirhöfuð og
mikið er um litla brandara hér og
þar fyrir harða leikjaaðdáendur.
Stærsti galli leiksins er stjórnunin
og myndavélin, sem er oft til trafala
og skemmir ansi oft fyrir manni og
dregur mikið úr ánægjunni sem
maður myndi annars hafa af þessum
leik.
Grafíkin er mjög flott og nær að
líkja mjög vel eftir útliti þáttanna.
Leiklestur er á sama plani og þætt-
irnir, og það er gaman að sjá alla
leikarana koma saman fyrir þessa
útgáfu.
Þetta er leikur sem Simpsons-
aðdáendur ættu ekki að láta fram
hjá sér fara en þeir sem hafa meiri
áhuga á góðum leikjum ættu ef til
vill að líta annað.
Kjarn-
orku-fjöl-
skyldan
TÖLVULEIKIR
PS3
EA Games
The Simpson Game Ómar Örn Hauksson
Tvíhöfða þurs Homer öðlast ofurkrafta til þess að berjast við tvíhöfða
þursinn, tengdasystur sínar Patty og Selmu.