Morgunblaðið - 17.12.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 45
/ AKUREYRI/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
„BEOWULF ER
EINFALDLEGA
GULLFALLEG...“
ENTERTAINMENT WEEKLY
2 VIKUR Á TOPPNUM Á ÍSLANDI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Leiðinlegu
skóla stelpurnar
- sæta stelpan
og 7 lúðar!
Amanda Bynes úr She‘s The Man er
komin aftur í bráðskemmtilegri mynd
eeee
„American gangster er
vönduð og tilþrifamikil“
- S.V., MBL
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd
í anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
„Óskarsakademían mun standa á
öndinni... toppmynd í alla staði.“
Dóri DNA - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
JÓLAMYNDIN Í ÁR
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
FRED CLAUS kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
HITMAN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA
JÓLAMYNDIN 2007
SÝND Í ÁLFABAKKA
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR
SLÁ Í GEGN SEM SYNGJANDI TRÍÓ!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA OG JÓLAMYNDIN Í ÁR.
FRED CLAUS kl. 3:303D - 83D - 10:303D LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 3:303D - 6D LEYFÐ DIGITAL
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 8:30 LEYFÐ DIGITAL
BEOWULF kl. 5:303D - 83D - 10:303D B.i. 12 ára 3D-DIGITAL
AMERICAN GANGSTER kl. 10:30 B.i. 16 ára
FRED CLAUS kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ
DAN IN REAL LIFE kl. 10 LEYFÐ
FRED CLAUS kl. 6 - 8 - 10:20 LEYFÐ
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 10 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SIDNEY WHITE kl. 8 LEYFÐ
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HLJÓMSVEITIN er tiltölulega ný-
komin aftur til Íslands eftir að hafa
leikið á íslensku menningarhátíðinni
Reykjavík to Rotterdam sem fram
fór dagana 21. til 24. nóvember. Þar
hitaði hún upp fyrir múm.
„Það var frábært,“ segir Árni Þór
Árnason, einn fimm meðlima Rökk-
urróar, en auk hans skipa sveitina
þau Arnór Gunnarsson, Björn Pálmi
Pálmason, Hildur Kristín Stef-
ánsdóttir og Ingibjörg Elsa Turchi.
Öll eru þau í menntaskóla, flest í MR
en Björn er í Kvennó.
„Þetta voru fyrstu tónleikar okkar
utan Reykjavíkur og mikill heiður að
fá að leika á undan múm. Okkur var
gríðarlega vel tekið og salurinn var
troðfullur.“
Harðhausar
Hljómsveitin var sett saman í árs-
byrjun 2006 að sögn Árna. Hann,
Arnór og Björn fóru að dútla á háa-
lofti þess síðastnefnda en aðstæður
voru slíkar að þeir voru tilneyddir til
að spila lágt. Þeir kynntust svo
stelpunum og leist vel á að blanda
hljóðfærunum þeirra saman við sín.
Lög fóru að verða til og auðveldasta
leiðin til að fá gigg – eins og svo oft
með ungar og óreyndar sveitir – er
að taka þátt í Músíktilraunum.
„Það gekk nú ekki vel þar en þetta
var svo skemmtilegt að við héldum
bara áfram og tókum svo upp fjög-
urra laga plötu um sumarið.“ Spila-
mennskan hélt einnig áfram og Árni
nefnir að fyrstu tónleikar sveit-
arinnar eftir Músíktilraunir hafi ver-
ið á Andspyrnuhátíð ásamt grúanum
af harðkjarnasveitum.
„Það er einkennilegt að við höfum
spilað mikið með þannig sveitum og
það hefur fallið vel í kramið. Harð-
hausarnir eru alltaf einstaklega ljúf-
ir.“
Plötuna tóku meðlimir hins vegar
með sér til Hróarskeldu, en þangað
fóru þau sem vinahópur, ekki sem
hljómsveit. Plötunni var stungið að
blaðamönnum og útgáfumógúlum og
svo dreift á vini og vandamenn hér
heima.
„Við gerðum plötuna aðallega til
að eiga fyrir okkur. En svo fór allt úr
böndunum um haustið, og þá sér-
staklega í kjölfarið á tónleikum sem
við héldum í 12 Tónum. Við end-
uðum á að framleiða yfir 300 stykki,
en allt var þetta gert í höndunum.“
Meðbyr
12 Tónar voru um þetta leyti orðn-
ir það hrifnir af sveitinni að þeir
lögðu að henni að gera plötu í fullri
lengd.
„Við byrjuðum svo á henni í
jólafríinu, svona þegar um hægðist
eftir prófin,“ útskýrir Árni. „Hún
var svo tekin upp á þessu ári í
nokkrum skorpum, og það var frem-
ur langt á milli þeirra. Þetta var
mikil reynsla fyrir okkur, enda öll
sem eitt hundblaut á bak við eyrun í
þessum efnum. Við fundum fljótlega
að við gátum ekki verið að taka upp
hvert í sínu lagi. Þá glataðist eitt-
hvað. Við fórum því að leita að hljóð-
veri þar sem væri hægt að taka okk-
ur öll upp í einu, eða „live“, og við
enduðum í Heita pottinum hjá hon-
um Finni Hákonarsyni.“
Árni lítur björtum augum fram á
veginn, segir að hljómsveitin hafi
fengið mikil viðbrögð, bæði á tón-
leikum og svo í gegnum myspace-
svæði sitt.
„Það er ýmislegt í farvatninu á
næsta ári. Við erum að fara að búa
til tónlist fyrir Herranótt og svo ætl-
um við að spila eins og við getum á
erlendri grundu. Við finnum fyrir
góðum meðbyr og það er hugur í
mannskapnum!“
… en hitnar á morgun
Ungsveitin Rökkurró gaf fyrir stuttu út plötuna Það kólnar í
kvöld … en öfugt við titilinn er allt sjóðandi, bubblandi og
snarkandi undir hjá sveitinni ungu
Morgunblaðið/Eggert
Rökkurró Fóru með plötu til Hróarskeldu þar sem henni var stungið að blaðamönnum og útgáfumógúlum.
myspace.com/rokkurro
Á plötu sinni Kona á mínum aldri
syngur Íris Edda Jónsdóttir lög
eftir Hörð Torfason, Halla Reynis
og Orra Harð-
arson, auk þess
sem þeir Bjarni
Tryggva og
Ingimundur
Óskarsson eiga
titillagið.
Lögin eru
ágæt og þá sérstaklega upp-
hafslag plötunnar sem nefnist
„Vegurinn“, sem er eftir Hörð
Torfa. Lagið er skemmtilega mel-
ódískur sveita-slagari sem hlýtur
að vera stórkostlegt að dansa
línudans við. Söngur Írisar er frá-
bær í því, hún hefur sérlega gott
vald á laginu og gerir það hressi-
legum slagara. Því miður er „Veg-
urinn“ hápunktur plötunnar. Hin
lögin eru ágæt til síns brúks, sér-
staklega framan af plötunni, en
því miður eru þau rislág og út-
setningarnar ekki jafn kraftmikl-
ar og í þessu umrædda fyrsta
lagi.
Styrkleiki Írisar felst í því hve
þýða og fallega rödd hún hefur –
auk þess sem hún er gædd þeim
góða kosti að vera laus við tildur
og tilgerð. Þær eru margar sem
vildu geta sungið eins og Ellý, Ír-
is er ein af fáum sem tekst það.
Sterk söngkona
– veik plata
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Íris – Kona á mínum aldri Helga Þórey Jónsdóttir
ÞAÐ er ekki hlaupið að því að
skilgreina hljóðverk á borð við
Radium. Á samnefndri plötu
Ghostigital og Finnboga Péturs-
sonar má
finna verkið í
tveimur út-
gáfum. Sú
fyrri var tekin
upp í Lista-
safni Reykja-
víkur hinn 10.
maí síðastliðinn en sú síðari á
Vatnsenda 15. maí.
„Radium I“ var flutt á setningu
Listahátíðar Reykjavíkur. Efnivið-
urinn er spunnin úr umhverf-
ishljóðum frá setningarathöfninni,
en þau eru hnýtt saman við hljóð-
heim Finnboga og Ghostigital.
„Radium II“ er unnið úr umhverf-
ishljóðum frá Vatnsenda sem
einnig er blandað saman við hljóð
úr hljóðsarpi listamannanna.
Verkin eiga það því sameiginlegt
að vera sköpuð bæði úr og í því
umhverfi sem þau voru flutt. Gho-
stigital og Finnboga hefur tekist
að gera þetta á mjög vandaðan
hátt, hljóðin vinna vel saman og
verða aldrei yfirþyrmandi.
Þrátt fyrir að Radium innihaldi
sama verkið tvisvar er hvorki um
sama né sitthvort verkið að ræða.
Það er að segja; verkið sjálf er
flutt í mismunandi útgáfum og
skyldi önnur þeirra ekki vera tek-
in fram yfir hina sem frumútgáfa
– það er að minnsta kosti minn
skilningur. Hljóðheimur verkanna
er ansi fjölbreyttur – í „Radium
I“ má heyra skvaldur úr sölum
Listasafnsins í bland við dáleið-
andi tónlist á meðan „Radium II“
einbeitir sér frekar að náttúrunni
og þeim fjölbreyttu röddum sem
úr henni heyrast í bland við mel-
ódískar laglínur.
Fyrra verkið er gefið út í hefð-
bundinni mynd, á geisladiski, en
það síðara á mynddiski. Ástæða
þess er sú að „Radium II“ er
hljóðblönduð í fjórhljómi, en
þeirra gæða er ekki hægt að njóta
í venjulegum græjum heima í
stofu. Þess í stað er diskurinn
settur í DVD-spilara sem tengdur
er við heimabíó og er þannig hægt
að njóta verksins í þeim gæðum
sem því var ætlað. DVD-diskurinn
er því hljóð-DVD en ekki til þess
að horfa á. Hugmyndaauðgi lista-
mannanna sem koma hér við sögu
leyfir hlustandanum því að nálg-
ast tónlistarsköpun á sérlega
áhugaverða vegu.
Radium má njóta saman eða
hvoru um sig. Þau eru bæði frek-
ar lágstemmd og ekki mjög lík
þeim ofsa sem hlustendur eiga að
venjast frá Ghostigital. Þau eru
mjög þægileg án þess að vera
leiðinleg og það er skemmtilegt að
heyra frjótt ímyndunarafl Ghost-
digital og Finnboga Péturssonar
njóta sín. Radium er afskaplega
vandað verk sem býður upp á
frumlegan frið í skammdeginu.
Hljóðveisla
Helga Þórey Jónsdóttir
TÓNLIST
Geisladiskur og mynddiskur
Ghostigital & Finnbogi Pétursson –
Radium