Morgunblaðið - 22.12.2007, Qupperneq 6
6 SATURDAY 22. DECEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
M
ikið hefur verið rætt og
ritað um mál Erlu Ósk-
ar Arnardóttur Lillien-
dahl.
Erla Ósk var á leið til
Bandaríkjanna þegar í ljós kom að hún
hafði mörgum árum áður dvalið 3 vikum
lengur í landinu en vegabréfsáritun
leyfði. Erla Ósk hafði eftir þetta aftur
komið til Bandaríkjanna án vandkvæða
en nú árið 2007 voru engin vettlingatök:
það var farið með hana eins og forhertan
glæpamann án nokkurra réttinda. Hún
var látin dúsa í yfirheyrsluherbergjum
án matar og drykkjar og flutt í hlekkj-
um milli áfangastaða án þess að vita
hvert för væri heitið eða hvers vegna.
Meðferðin var svívirðileg.
Erla Ósk vann sigur með því að skrifa
um þetta og vekja athygli á málinu, en
það er ekki á hverjum degi sem heima-
varnarráðuneyti Bandaríkjanna segir
sig tilbúið til að endurskoða eigin starfs-
reglur og harmar meðferð sína á fólki,
eins og það hefur nú gert í þessu tilfelli.
„Þetta fullkomnar tilgang minn sem var
alltaf sá að vekja athygli á þessum
vinnubrögðum,“ var haft eftir Erlu Ósk
eftir að þetta var ljóst.
Í svona málum þegar reiðin blossar
upp – bloggheimar, fjölmiðlar og al-
menningur logaði af réttlátri reiði og
hneykslan – er um leið mikilvægt að við
notum tækifærið til að líta í eigin barm,
spyrja okkur heiðarlega hvort allt sé
eins og það á að vera í þessum efnum
hér hjá okkur. Það er auðvelt að verða
reið út í Ameríku, það er mun erfiðara
að horfast í augu við eigin grimmd og
galla.
Miriam Rose, meðlimur í Saving Ice-
land, hefur t.d. sagt frá því hvernig
henni var neitað um vatnsglas þegar
hún var í haldi lögreglu hér á Íslandi.
Henni var sagt að hún hefði fyrirgert
rétti sínum á að fá vatnsglas. Hvað
finnst okkur um það? Hvaða harmur
hefur verið staðfestur og hvaða starfs-
reglur endurskoðaðar?
Hér er snarpur bloggpistill Stefáns
Pálssonar:
„Bandarískir embættismenn léku ís-
lenska konu grátt á dögunum. Mogginn
er fjúríös, bloggheimar úthrópa Banda-
ríkin sem fasistaríki og utanríkisráð-
herra kallaði sendiherrann á sinn fund.
Ef ég hefði verið bandaríski sendi-
herrann hefði ég gefið þá skýringu að
Kaninn hafi óvart talið að konan væri sí-
gauni eða í vélhjólaklúbbi – það virðist
nefnilega ríkja nokkuð almenn sátt um
það hér heima að þeir hópar séu rétt-
lausir.“
Sígauni, töffari í vélhjólaklúbbi, með-
limur í Falun Gong kannski, eða… hver
þarf manneskja að vera og hvað þarf
hún að hafa gert til að fá ekki vatnsglas
á Íslandi, vera rekin af landi brott?
„Hví sérðu flísina í auga bróður þíns
en ekki bjálkann í þínu eigin?“ spurði
góður maður og sonur Guðs sem bráð-
um á afmæli.
Það er einmitt þetta sem á ef til vill að
vera okkar helsta verkefni: að snúa for-
dæmingum í garð annarra líka inn á
okkur sjálf. Staðreyndin er nefnilega sú
að svo margt í okkar eigin gildismati hér
á Íslandi stendur á haus og þarf á nýrri
hugsun að halda, endurhæfingu, betr-
umbót.
Okkar dómur yfir öðrum á oft rétt á
sér – eins og t.d. í máli Erlu Óskar – og
er hluti af því að vera þjóð með sam-
visku sem lætur í sér heyra og mótmæl-
ir órétti hvar sem er í heiminum. En
þegar við fyllumst réttlátri reiði yfir við-
urstyggilegum dómum í Sádi-Arabíu,
þar sem fórnarlamb nauðgunar er dæmt
til refsingar fyrir að vera nauðgað, þá
eigum við ekki bara að fordæma þann
gjörning heldur horfa um leið inn á við.
Spyrja okkur sjálf: getur verið að hér
hjá okkur eimi eitthvað eftir af þessum
hugsanagangi?
Flísin í okkar eigin auga er sú flís sem
við getum hvað hæglegast losað heiminn
undan. Þrif í skúmaskotum eigin bjálka
er okkar greiðasta leið til að gera heim-
inn örlítið betri. Það hefði í það minnsta
sá sem á bráðum afmæli ef til vill sagt.
Gleðileg jól.
Flísin í auganu
» Flísin í okkar eiginauga er sú flís sem við
getum hvað hæglegast
losað heiminn undan. Þrif
í skúmaskotum eigin
bjálka er okkar greiðasta
leið til að gera heiminn ör-
lítið betri.
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
PISTILL
Hljóðpistlar Morgunblaðsins,
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
les pistilinn
HLJÓÐVARP MBL.IS
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Fæst í helstu bókabúðum og víðar!
Verð kr. 3.490,- m/vsk
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
AKURNESINGAR, sem eiga hlut í
Orkuveitu Reykjavíkur, eru óhressir
með að ákveðið hafi verið að gera
stjórnsýsluúttekt á OR, án þess að
bæjarfélagið hafi verið látið vita af
fyrirætlununum. Gunnar Sigurðs-
son, fulltrúi Akraneskaupstaðar í
stjórn fyrirtækisins, lagði á stjórn-
arfundi í gær fram spurningar varð-
andi úttektina sem óskað hefur verið
eftir að forstjóri og stjórnarformað-
ur OR svari.
Borgarráð ákvað í byrjun nóvem-
ber að láta gera stjórnsýsluúttekt á
OR. Útektin á m.a. að beinast að
verkaskiptingu stjórnenda, stjórnar
og eigenda fyrirtækisins, að því er
fram hefur komið hjá Orkuveitunni.
Gunnar segir að hvorki Akranes,
sem á um 5,6% hlut í OR né Borg-
arbyggð, sem á rúmt 1% í fyrirtæk-
inu, hafi vitað um hina fyrirhuguðu
útttekt. Akraneskaupstaður meti
eign sína í OR á um 15-17 milljarða.
„Okkur er því ekki sama hvernig er
farið með þetta fyrirtæki,“ segir
hann. Það sé almenn kurteisi að
ræða mál sem þessi við eigiendur
fyrirtækisins.
Borgin greiði kostnaðinn
Meðal þess sem Akraneskaup-
staður hefur óskað eftir að fá upplýs-
ingar um er hver hafi tekið ákvörðun
um að stjórnsýsluúttektin skyldi
fara fram. Spurt er hverjir hafi kosið
nefndina sem hafi umsjón með út-
tektinni, hvort öllum eignaraðilum
hafi verið boðin aðild að henni og
hvort heimild allra eignaraðila liggi
fyrir. Einnig er spurt hverjir hafi
verið fengnir til að vinna úttektina,
hverjir hafi ákveðið að fá þá úttekt-
araðila til verksins, hvaða gögn og
skjöl hafi verið beðið um, hvaða laga-
ákvæði sé stuðst við og hver muni
greiða kostnað af henni.
Spurður hvort honum finnist að
borgin eigi ein að bera kostnað
vegna úttektarinnar segir Gunnar að
sér finnist það eðlilegt. Stjórnar-
menn viti á þessu stigi ekki hvað út-
tektin kosti eða hversu víðtæk hún
eigi að vera, enda hafi ekki verið
fjallað um málið í stjórn fyrirtæk-
isins. „Við höfum heyrt að það séu
menn að koma inn í fyrirtækið og
spyrja spurninga en við vitum ekki
hvað er að gerast,“ segir hann.
Bryndís Hlöðversdóttir, formaður
stjórnar OR, var fjarverandi á
stjórnarfundinum í gær vegna veik-
inda. Gunnar segir að erindi Akra-
ness hafi ekki verið rætt á fundinum.
Hann væntir svara við spurningum
Akraness á næstunni.
Ósáttir að hafa ekki verið
látnir vita af úttekt á OR
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
MEIRIHLUTI stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur samþykkti á stjórnar-
fundi í gær að falla frá ákvörðun um
að leita eftir tilboðum í hlutafé
Gagnaveitu Reykjavíkur.
Kjartan Magnússon og Júlíus Víf-
ill Ingvarsson, fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í stjórn OR, greiddu at-
kvæði gegn tillögunni og lögðu
jafnframt fram bókun hennar
vegna. Í henni kemur fram að þeir
telji Gagnaveituna í óeðlilegri sam-
keppni við önnur fjarskiptafyrirtæki
og að skynsamlegt væri að losa
hana úr eigu hins opinbera.
„Ég minni á að við stofnun Lín-
u.nets, forvera Gagnaveitunnar,
stóð til að leggja að hámarki 200
milljónir króna í fyrirtækið. Nú
nemur kostnaður OR vegna Gagna-
veitunnar og tengdra fyrirtækja
hins vegar rúmum 7.000 milljónum
króna,“ segir Kjartan Magnússon.
Bryndís Hlöðversdóttir stjórnar-
formaður OR segir meirihluta
stjórnarinnar halda fast í þá skoðun
að óskynsamlegt væri að selja
Gagnaveituna. „Þetta er fyrirtæki
sem hefur gengið mjög vel og hefur
verið farsæl fjárfesting fyrir okkur,
það hefur sýnt arðsemi og við vilj-
um að það sé áfram í eigu Orkuveit-
unnar,“ segir Bryndís.
Kjartan Magnússon og Júlíus Víf-
ill gagnrýndu einnig á fundinum
hversu litlar upplýsingar stjórn OR
fengi um málefni Reykjavík Energy
Invest. Afar litlar upplýsingar hefðu
fengist um gang viðræðna þrátt fyr-
ir ítrekaðar óskir. „Um leið og eitt-
hvað skýrist í þeim viðræðum verð-
ur það lagt fyrir stjórn OR, ég tel
hins vegar ekki rétt að ræða þau
mál á meðan samningaviðræður
standa yfir,“ segir Bryndís. Hún
vildi engu spá um hvenær viðræð-
unum lyki. „Það er ekkert sem kall-
ar á mikinn hraða í þessu máli enda
hangir það saman við mál Hitaveitu
Suðurnesja. Forsenda góðra samn-
inga er að unnið sé í trúnaði, en að
sjálfsögðu verður lendingin lögð
fyrir stjórn OR um leið og hún ligg-
ur fyrir.“
Gagnaveita Reykjavíkur verður
áfram í eigu Orkuveitunnar
Morgunblaðið/ÞÖK
Orkuveita Reykjavíkur Á stjórnarfundi OR var deilt um eignarhald OR á
Gagnaveitu Reykjavíkur, upplýsingaflæði var einnig til umræðu.
Sjálfstæðismenn
tala um óeðlilega
samkeppni
Í HNOTSKURN
»Ekki verður leitað tilboða íhlutafé Gagnaveitu Reykja-
víkur skv. niðurstöðum stjórn-
arfundar OR í gær.
»Borgarfulltrúar Sjálfstæð-isflokks telja Gagnaveituna í
óeðlilegri samkeppni á fjar-
skiptamarkaði.
»Stjórnarformaður OR telurrétt að viðræður um málefni
REI fari fram í trúnaði.
„AÐ varpa ábyrgð yfir á hafnsögu-
mann þegar um vítavert gáleysi
skipstjórans er að ræða er merki
um ábyrgðarleysi,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu frá hafnarstjórn
Hornafjarðarhafnar. Þar er fjallað
um ummæli sem komu fram við sjó-
próf á Akureyri vegna strands
flutningaskipsins Axels nýlega. Til-
kynning hafnarstjórnar fer hér á
eftir:
„Í ljósi umræðu í fjölmiðlun und-
anfarna daga um þær staðhæfingar
skipstjóra Axels að hafnsögumaður
hafi gefið honum ranga stefnu frá
Hornafjarðarósi vill hafnarstjórn
benda á að öll gögn og upplýsingar
um málið benda til þess að hafn-
sögumaður hafi veitt skipstjóra all-
ar þær leiðbeiningar sem þurfti til
að sigla Axel rétta leið frá Horna-
fjarðarósi. Auk þess blasti við skip-
stjóranum á siglingakortum að
hann hafði villst af leið. Ennfremur
er greinilegt að skipstjórinn hefur
algjörlega gleymt að fylgjast með
ljósum frá Hvanneyjarvita. Hafn-
arstjórn undirstrikar því að
ábyrgðin er eingöngu og alfarið á
herðum skipstjóra Axels. Að varpa
ábyrgð yfir á hafnsögumann þegar
um vítavert gáleysi skipstjórans er
að ræða er merki um ábyrgð-
arleysi.“
Ábyrgðin
skipstjórans