Morgunblaðið - 22.12.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SATURDAY 22. DECEMBER 2007 17
ÞÝSKA fyrirtækið Exorka
GmbH og Hekla Energy GmbH, ný-
stofnað dótturfélag Jarðborana í
Þýskalandi, hafa gengið til sam-
starfs um borframkvæmdir ytra og
var samningur þess efnis nýverið
undirritaður í München.
Verðmæti samningsins er um 1,5
milljarðar króna sem hækkar í þrjá
milljarða nýti verkkaupi ákvæði
þess efnis að framlengja verkefnið
um sex holur til viðbótar.
Um er að ræða borun á sex djúp-
um jarðhitaholum í S-Þýskalandi.
Áætlað er að dýpt hverrar holu
verði allt að fimm kílómetrar og er
það mesta dýpt sem íslenskt fyr-
irtæki hefur nokkru sinni borað, að
því er segir í fréttatilkynningu.
Flutningi á hinum nýja há-
tæknibor Hekla Energy á borsvæði
Exorku er að mestu lokið, en vinnu
við tengingar og frágang verður
lokið fyrir jól. Reiknað er með að
sjálfar borframkvæmdirnar hefjist
að fullu strax eftir áramót og verð-
ur beitt svonefndri stefnubor-
unartækni. Hekla Energy var stofn-
að í sumar í framhaldi af kaupum á
stórum borum í Þýskalandi.
Dótturfélag Jarðborana
borar djúpt í Þýskalandi
Boranir Skrifað undir samning, í neðri röð f.v. Phil Hutchings frá Exorka
International og Thor Növig, framkvæmdastjóri Hekla Energy. Fyrir aft-
an þá eru Ásgeir Margeirsson og Bent Einarsson frá Jarðborunum.
DÓMNEFND
á vegum tímarits-
ins Frjálsrar
verslunar hefur
valið Andra Má
Ingólfsson, for-
stjóra og eiganda
Primera Travel
Group, mann árs-
ins í íslensku at-
vinnulífi árið
2007. Hlýtur
hann heiðurinn fyrir framúrskarandi
árangur og dugnað við að stækka
fyrirtækið en með yfirtökum er það
orðið þriðja stærsta ferðaskrifstofa á
Norðurlöndunum með um 60 millj-
arða króna veltu á þessu ári.
Andri Már er eini eigandi Primera
Travel Group. Á þessu ári flytja tólf
fyrirtæki í eigu Andra í sjö löndum
yfir eina milljón farþega til um fimm-
tíu staða í heiminum.
Andri Már
maður ársins
Andri Már
Ingólfsson
SKIPT hefur verið um nafn á fé-
laginu Perla Investments ehf. og
nefnist það nú Salt properties ehf. og
er orðið hluti af félagasamstæðu Ró-
berts Wessman. Starfsemin hefur
jafnframt verið flutt og er nú til húsa
á annarri hæð í Bergstaðastræti 6.
Þær breytingar urðu líka að hjónin
Orri Ingvason og Auður Hansen
seldu sinn hlut í félaginu Perla In-
vestments en verða fyrst um sinn
áfram með stjórnartaumana í Fast-
eignasölunni Perla Investments SL
á Spáni. Þá hafa þau hjónin sett á
stofn nýtt fjárfestingarfyrirtæki,
Rex Capital, sem starfa mun á inn-
lendum sem erlendum vettvangi.
Eftir áramót verður starfsemi fast-
eignasölunnar á Íslandi flutt í annað
húsnæði, en skrifstofur hennar á
Spáni eru á sama stað og áður. Meg-
inviðfangsefni Salt Properties verða
fasteignaþróun og fjárfestingar á því
sviði, segir í fréttatilkynningu.
Perla verður
Salt Properties
EIGENDUR glugga- og glerfyr-
irtækisins PGV í Hafnarfirði hafa
keypt Glerborg, eitt elsta og
rótgrónasta glerframleiðslufyrir-
tæki landsins. Dótturfélag Glerborg-
ar, Gler og speglar – Speglabúðin,
fylgir með í kaupunum. Saga Capital
Fjárfestingarbanki hafði milligöngu
um eigendaskiptin.
Í tilkynningu kemur fram að sam-
einað fyrirtæki Glerborgar og PGV
muni starfa undir merkjum Gler-
borgar og verða starfsmenn fyrir-
tækisins um 45 eftir sameiningu.
Engar breytingar eru fyrirhugaðar
á starfsmannahaldi vegna samein-
ingarinnar. Þorsteinn Jóhannesson,
núverandi framkvæmdastjóri PGV,
verður framkvæmdastjóri hins nýja
fyrirtækis. Glerborg, sem var að
stærstum hluta í eigu Antons
Bjarnasonar og Hafsteins Þórðar-
sonar, hefur sérhæft sig í framleiðslu
á glerrúðum og sérframleiðslu úr
gleri eins og til dæmis skurði, slípun
og sandblæstri. PGV var stofnað árið
2002 og er stærsta fyrirtæki landsins
í framleiðslu á viðhaldsfríum glugg-
um og hurðum úr harðplastsefni.
Glerborg
skiptir um
eigendur
Morgunblaðið/Golli
Sameining Þorsteinn Jóhannesson
stýrir sameinuðu fyrirtæki.
◆
◆
-hágæðaheimilistæki
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
GJAFAKORT
KAFFIVÉLAR - MATVINNSLUVÉLAR - POTTAR & PÖNNUR - SAFAPRESSUR - ELDHÚSÁHÖLD
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
fást í Eirvík
JÓLAGJAFIRNAR
EIRVÍK REYKJAVÍK:
Laugardag 22. des kl. 11-18
Sunnudag, Þorláksmessu kl. 13-17
Aðfangadag 24. des kl. 10-12
Þriðja í jólum, 27. des LOKAÐ
OPNUNARTÍMAR UM JÓLIN:
EIRVÍK AKUREYRI:
Laugardag 22. des kl. 11-15
Sunnudag, Þorláksmessu LOKAÐ
Aðfangadag 24. des LOKAÐ
Þriðja í jólum, 27. des 10-18