Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 2008næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Kristinn Snarfarahöfn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði svæðinu í kringum Snarfarahöfn í gærkvöldi á meðan á vinnu rannsóknarlögreglunnar stóð. Eftir Andra Karl andri@mbl.is UMFANGSMIKILLI leit að 19 ára pilti lauk í gærkvöldi en hún hafði staðið yfir síðan um kvöld- matarleytið á þriðjudag. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins fannst lík piltsins í Elliðavogi, rétt við smábátahöfn Snarfara. Piltur- inn hét Jakob Hrafn Höskuldsson, til heimilis að Bröndukvísl 14 í Reykjavík. Jakob Hrafn var nítján ára, fæddur 1. desember 1988. Tilkynnt var um hvarf piltsins síðdegis á þriðjudag en þá hafði hann ekki sést síðan kl. 5.30 á ný- ársdagsmorgun, skammt frá skemmtistaðnum Broadway í Ár- múla. Umfangsmikil leit var þegar sett af stað og að sögn björgunar- sveitar var talið að pilturinn hefði ætlað að ganga til síns heima í Ár- túnsholti. Leitað í kringum Elliðaár Á annað hundrað björgunar- sveitarmenn tóku þátt í leitinni sem beindist einna helst að svæð- inu í kringum Elliðaár og hverfum þar í kring. Fjörur voru gengnar, bátar notaðir og leitarhundar auk þess sem kafarar frá Slysavarna- félaginu Landsbjörg tóku þátt. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- GNA, var einnig notuð á meðan birta leyfði. Á níunda tímanum bárust svo fregnir af því að pilturinn hefði fundist í Elliðavogi. Upplýsingar um málið fengust hins vegar ekki hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Heimildir Morgunblaðsins herma að rannsókn lögreglu sé á byrjunarstigi og líkast til þurfi að bíða krufningar til að ákvarða í hvaða farveg hún fari. Pilturinn fannst látinn                                                       !    "                   Á annað hundrað björgunarsveitar- manna tók þátt í leit að 19 ára pilti STOFNAÐ 1913 2. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is ÁFENG OG ELEGANT SUMIR ERU LÉTT FORDÓMAFULLIR GAGNVART VÍNARTÓNLIST EN AÐRIR FÁ ALDREI NÓG >> 14 FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „NÚ verður snúið í gang og haldið áfram þar til samningar nást,“ segir forystumaður á vinnumarkaði um framhald kjara- viðræðna eftir jólahléið. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar segjast bíða eftir svörum ríkisstjórnarinnar við áherslum hreyfingarinnar, sem geti haft úrslitaáhrif á niðurstöðuna. Einhver óformleg sam- skipti hafa þó átt sér stað að undanförnu á milli fulltrúa launþegahreyfingarinnar, Samtaka atvinnulífs og ríkisins um mögu- legt innlegg ríkisins en engin svör hafa enn borist frá ríkisstjórninni við þeim áherslum sem verkalýðshreyfingin kynnti ráðherrum 12. desember sl. Einnig hafa einstakir vinnuhópar komið saman þó viðræður um launalið hafi legið niðri. Fundað verður fram að helgi í und- irhópum en ekki hefur enn verið boðað til formlegs samningafundar viðsemjenda. ,,Við erum að bíða eftir því að heyra í rík- isstjórninni,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins. „Framhaldið ræðst mjög mikið af því hver aðkoma hennar verður. Við þurfum að fá einhverjar undirtektir og þá snúum við okkur að atvinnurekendum. Það er ágætur samhljómur á milli landssambandanna,“ segir Kristján. „Við viljum sjá meira á spil- in. Það er það mikil óvissa í kringum þetta. Við núverandi aðstæður er erfitt að sjá að viðræður við atvinnurekendur um launalið- inn nái þroska, fyrr en við sjáum hvað stjórnvöld eru til í að gera,“ segir forystu- maður í launþegahreyfingunni. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, sér ekki að það þjóni miklum tilgangi að ríkið komi með útspil á þessu stigi málsins. ,,Það þarf að liggja fyrir hvað verið er að semja um og það eru ýmis atriði, sem við eigum eftir að ljúka.“ Mörg mál og ólík eru undir í viðræðun- um. Boðað hefur verið til fundar ASÍ og SA á morgun um sameiginlegar áherslur sem ASÍ hefur kynnt atvinnurekendum. Boðað hefur verið til formannafundar í Starfs- greinasambandinu eftir helgina og eru flestir á þeirri skoðun að fljótlega upp úr því fari kjaraviðræðurnar á flug. Flestir eru enn bjartsýnir á að ná megi skynsamlegri lendingu kjaraviðræðna. Beðið eft- ir útspili ríkisins Kjaraviðræður gætu farið á flug eftir helgi Morgunblaðið/Golli Spilin lögð ASÍ kynnti ráðherrum áherslur vegna kjarasamninga 12. des. Eftir Andra Karl andri@mbl.is BREYTINGA er þörf á rekstri fiskverkunar- fyrirtækisins Krækis á Dalvík vegna rekstr- arerfiðleika. Ákveðið hefur verið að segja öllu starfsfólki upp, en þar voru alls 32 stöðugildi. Breytt rekstrarform og aðkoma annarra fyr- irtækja er til skoðunar. Bæjarstjóri Dalvíkur segir ávallt slæmt þegar störf hverfa úr sveitar- félaginu en merkir ekki uppgjafartón í íbúum. Krækir var stofnað árið 2006 og sérhæfði fyr- irtækið sig í framleiðslu á ferskum, frosnum og söltuðum fiski til útflutnings. Að sögn Hennings Jóhannessonar, stjórnarformanns og eiganda fyrirtækisins, gekk reksturinn vel framan af en breytt rekstrarskilyrði undanfarið ár hafi sett strik í reikninginn. Hann segir að rekja megi ákvörðunina til slæmrar stöðu krónunnar, fisk- verðs og hráefnisskorts. Þá hafi mikill niður- skurður á kvóta ennfremur bitnað harkalega á fyrirtækinu. Ekki hafi því verið rekstrargrund- völlur fyrir starfseminni, en ákvörðun um fram- haldið verður tekin að lokinni gaumgæfilegri skoðun á ýmsum möguleikum. Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri Dal- víkur, segir menn hafa haft ákveðnar áhyggjur af rekstrarumhverfi fiskvinnslunnar, sér í lagi þar sem sveitarfélagið byggi allt sitt á fisk- vinnslu. „Við erum hins vegar svo heppin að hér eru nokkur önnur fiskvinnslufyrirtæki, sem standa á gömlum merg og eru að gera mjög góða hluti.“ Öllu starfsfólki hjá Kræki fiskverkun sagt upp vegna mikilla erfiðleika í rekstri Enginn uppgjafartónn á Dalvík Höll ævintýranna >> 37 Magnaðar stundir í leihúsinu Leikhúsin í landinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 2. tölublað (03.01.2008)
https://timarit.is/issue/286198

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

2. tölublað (03.01.2008)

Aðgerðir: