Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 19
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620 frá kl. 12-17
Kennsla hefst
14. janúar
www.schballett.is
Gleðilegt ár!
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, er skarpari en
skólakrakki. Það er orðið opinbert!
Þorsteinn var í þætti sem ber þetta
nafn, á sjónvarpsstöðinni Skjá ein-
um á dögunum, svaraði öllum spurn-
ingunum rétt og vann þar með 2
milljónir króna. Um var að ræða
góðgerðarþátt og peningarnir runnu
til Geðhjálpar. Og ekki nóg með að
milljónirnar hans Þorsteins renni til
þess merkilega félagsskapar, heldur
tvöfaldaði Byr Sparisjóður þá upp-
hæð þannig að Geðhjálp fær alls 4
milljónir.
Athygli vakti á dögunum, á árlegri
samkomu Íþróttaráðs Akureyrar, að
fjárstyrkir voru veittir vegna Ís-
landsmeistaratitla, sem er hið besta
mál. Jafnréttissinnar spyrja sig þó
hvort rétt hafi verið staðið að mál-
um; KA fékk 150 þúsund kr. vegna 3.
flokks karla en Þór 100 þúsund
vegna 5. flokks kvenna. Skiptir ald-
urinn máli eða hvernig var þetta
ákveðið? Ég veit að margir – úr báð-
um félögum, og víðar – bíða spenntir
eftir útskýringu yfirvalda …
Edda Bolladóttir, hverfisstjóri í
heimaþjónustu Akureyrarbæjar, lét
nýlega af störfum eftir 32 ár í starfi
sem stjórnandi heimaþjónustu bæj-
arins. „Edda hefur á starfsferlinum
tekið þátt í að aðlaga þjónustuna að
síbreytilegum þörfum og kröfum og
móta hér þjónustu sem talin er til
fyrirmyndar,“ segir á heimasíðu
bæjarins.
Starfsfólk heimaþjónustunnar
gegnir mikilvægu hlutverki í því að
gera fólki kleift að búa áfram á eigin
heimili þrátt fyrir skerðingu á færni,
segir á heimasíðu bæjarins, og
óhætt er að taka undir það. Svo virð-
ist sem starfsfólkið sé ánægt í starfi
því á heimasíðunni segir: „Á Ak-
ureyri eigum við því láni að fagna að
hafa mjög öflugan og stöðugan
starfsmannahóp í þessari þjónustu.
Starfsmenn eru um 35 talsins og er
samanlagður starfsaldur á fjórða
hundrað ár.“
Atli Rúnar Halldórsson, fyrrverandi
fréttamaður á Útvarpinu, er greini-
lega liðtækur með myndavélina;
hann hlaut aðalverðlaun í ljós-
myndasamkeppni Fiskidagsins
mikla á nýliðnu ári en þau voru veitt
í Pedromyndum á Akureyri rétt fyr-
ir áramót. Keppt var í nokkrum
flokkum og átti Atli raunar tvær
verðlaunamyndir. Gamall útvarps-
maður sagði fyrir mörgum árum að
draumastarf sitt væri að verða ljós-
myndari útvarpsins! Spurning hvort
Atli sækir ekki um ef það starf verð-
ur sett á laggirnar …
Norðlendingur ársins 2007 að mati
hlustenda Útvarps Norðurlands er
Jóna Berta Jónsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar í Eyjafirði.
Kosning fór fram 27. og 28. desem-
ber.
Inga Dís Árnadóttir flaug frá Ak-
ureyri til Reykjavíkur um hádegisbil
á gamlársdag. Það er varla frétt-
næmt, nema fyrir þær sakir að hún
varð þar með 200 þúsundasti farþegi
Flugfélags Íslands á þessari flugleið
á árinu og þar með var slegið met í
farþegafjölda á leiðinni.
Fleiri met voru slegin á Akureyr-
arflugvelli á nýliðnu ári: Heild-
arfjöldi farþega um völlinn jókst um
10% er var um 220.000, en milli-
landafarþegar voru tæp 13.000, að-
eins færri en árið 2006 sem var al-
gjört metár í millilandaflugi um
Akureyrarflugvöll. Ástæða þessarar
fækkunar er að áætlunarflug Ice-
land Express stóð aðeins í þrjá mán-
uði árið 2007 og haustflug á vegum
félagsins var lítið. Nýting flugsæta
þessa þrjá mánuði var samt sem áð-
ur mun betri en árið 2006.
Snurða hljóp á þráðinn í sam-
skiptum flugeldasala á Akureyri að
morgni gamlársdags. Björg-
unarsveitin Súlur seldi flugelda í
húsakynnum sveitarinnar við Hjalt-
eyrargötu, en nokkru norðar, við
gamla Sanavöllinn, var önnur flug-
eldasala í gámi. Á fréttavef Viku-
dags segir að Súlur hafi verið með
auglýsingaskilti við norðurenda lóð-
arinnar og þegar þangað var líka
kominn merktur bíll frá björg-
unarsveitinni, þótti hinum flug-
eldasalanum nóg komið „og lagði
hann sendiferðabíl fyrir skilti björg-
unarsveitarmanna,“ segir á vef
Vikudags.
Þar segir ennfremur: „Eftir að
lögreglan kom á staðinn og ræddi
við aðila, varð niðurstaðan sú að báð-
ir bílarnir voru fjarlægðir af vett-
vangi en auglýsingaskilti Súlna stóð
eftir.“
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd/Kristján
200.000 Fulltrúar Flugfélags Íslands Ari Fossdal og Friðrik Adólfsson,
Inga Dís Árnadóttir ásamt börnum sínum Konráði, Bárði og Kristjönu
Hólmgeirsbörnum, og Sigurður Hermannsson umdæmisstjóri Flugstoða.
Pétur Stefánsson yrkir um
áramótaskaupið – og var fljótur að
komast að niðurstöðu:
Þó ég sé í huga hress,
– hættur drykkjuraupinu,
gramur vil ég geta þess
að gafst ég upp á skaupinu.
Þá Friðrik Steingrímsson:
Skaupið ofbauð skapgerð minni
skreið ég frá því hljóðandi,
það var ekki einu sinni
útúrdrukknum bjóðandi.
Sigurður Hlynur Snæbjörnsson
er ósammála:
Bullað geta bullur tvær,
bull með lítil gæði.
Skilja ekki skepnur þær,
skaupið það var æði.
Hjálmar Freysteinsson veltir
sjónvarpsdagskránni fyrir sér:
Árið gamla burtu hratt er hlaupið,
Haardes ræða spakleg var um flest,
afbragð fannst mér áramótaskaupið,
auglýsingahléð þó sýnu best.
Loks yrkir Björn Ingólfsson:
Glóandi á himni
um gleðileg jól
gullstjörnur lýsa.
Svo rumskar við okkur
með rísandi sól
rukkun frá VISA.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af áramótum
- kemur þér við
Forsetaembættið 142%
dýrara á 12 árum
Skaupið fær 7,5 hjá
álitsgjöfum 24 stunda
9.000 kílómetrar
af ryki og drullu
Teddy Owolabi söng
fyrir Nelson Mandela
Að hætta að reykja
er eins og að losna
við flensu
Jóhannes í Bónus
í sjálfboðavinnu
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?