Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 3. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Fannst látinn
Umfangsmikilli leit að 19 ára
pilti lauk í gærkvöldi, en hún hafði
staðið yfir frá því um kvöldmatar-
leytið á þriðjudag. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins fannst
lík piltsins í Elliðavogi, rétt við
smábátahöfn Snarfara. » Forsíða
Ósátt við ráðninguna
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir
aðstoðarorkumálastjóri hefur ósk-
að eftir því við Össur Skarphéð-
insson iðnaðarráðherra að hann
rökstyðji ráðningu nýs orku-
málastjóra. Ragnheiður var einn
níu umsækjenda um stöðuna og
telur sig hafa meiri menntun og
reynslu á sviði stjórnsýslu og orku-
mála en sá sem ráðinn var í stöð-
una. » 2
Varasamar sprungur
Sprungur sem eru skammt frá
göngustígnum á Þingvöllum geta
verið varasamar, sérstaklega þeg-
ar þær eru hálfhuldar snjó. Þetta
segir Jón Arnarson, sem hefur sent
starfsmanni þjóðgarðsins ábend-
ingu þessa efnis. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Össur í vandræðum?
Forystugreinar: Skynsamlegar
hugmyndir | Björgum fjársjóði
Nýlistasafnsins
Ljósvaki: Tímakorn Ragnheiðar Gyðu
UMRÆÐAN»
Stutt frá steikinni í rauðvínið
Tryggingastofnun og tilgangur …
Hlutverk neyðarbíls í bráðaþjónustu
Allt á fleygiferð – um óveður og …
Skráaþjónn til heimilisbrúks
Gefur á bátinn og gustar um sigluna
Frá tvísköttun til skattasamkeppni
Hlutabréfavelta jókst um 41%
VIÐSKIPTI »
4((
4((
4(
4 (4 4(
( (4(
5 # 6%)0 %-
7
%%'%
#0% 4 4 4
4
(4 4
(4(
( (4(( / 8"2 )
4 4
4 4 (4 4
( (4
9:;;<=>
)?@=;>A7)BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA)8%8=EA<
A:=)8%8=EA<
)FA)8%8=EA<
)3>))A'%G=<A8>
H<B<A)8?%H@A
)9=
@3=<
7@A7>)3-)>?<;<
Heitast 7°C | Kaldast 2°C
SA-átt, víða 10-15
m/s við suðvestur- og
vesturströndina. Rign-
ing með köflum, en úr-
komulítið N- og NA-lands. » 10
Á Íslandi var skotið
upp flugeldum fyrir
milljónir á mínútu á
meðan verið var að
skjóta tugi manna í
Kenía. » 38
AF LISTUM»
Sprengingar
og friðarljós
TÓN- OG LAGALISTINN»
Álftagerðisbræður og
Sprengjuhöllin. » 40
Áramótaskaupið fær
fjórar stjörnur af
fimm mögulegum.
Besti húmorinn þyk-
ir sá sem er með
broddi. » 43
SJÓNVARP»
Að sýnast
eða vera
FÓLK»
Björk hellir ekki í sig
lítra af vodka. » 38
TÓNLIST»
Bermuda með áramóta-
plötuna Nýr dagur. » 38
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Leit hefur ekki borið árangur
2. 100 björgunarsveitarmenn leita …
3. Líkir sér við Tom Cruise
4. Lögregla lýsir eftir pilti
3.128 BÖRN fæddust á kvennadeild
Landspítala á nýliðnu ári. Er það að-
eins einu barni færra en þegar mest
var árið 1993. Að auki fæddust hér
um 60 börn í heimahúsum, flest í
Reykjavík, sem er um 30% aukning
milli ára.
4,2% barna sem fæddust hér á
landi árið 2006 voru getin með
tæknifrjóvgun. Er það nokkuð
hærra hlutfall en árin á undan þegar
það var um 2,3%. Skýringin felst í
aukinni eftirspurn og starfsemi. Um
7% danskra barna eru getin með
tæknifrjóvgun og hafa Danir viðrað
áhyggjur sínar af því að slíkar að-
gerðir séu nú 50% fleiri en fyrir
rúmum áratug. Kenna menn m.a.
hækkandi aldri mæðra um sem og
aukinni offitu.
„Of feitar konur eiga við meiri
ófrjósemi að stríða, því hjá þeim
verða frekar hormónabreytingar
sem trufla egglos,“ segir Reynir
Tómas Geirsson prófessor og yfir-
læknir á kvennadeild Landspítala.
„Þegar mjög feitum konum hefur
fjölgað um helming hefur það auð-
vitað áhrif á frjósemina.“ | 4
Munar bara
einu barni
NÆRRI hálfur annar áratugur er
síðan ung telpa með bjarta söng-
rödd varð þekkt andlit í eftir-
minnilegum sjónvarpsauglýsingum
Mjólkursamsölunnar þar sem hún
söng lag Atla Heimis Sveinssonar
við texta Þórarins Eldjárns. Aug-
lýsingunum var ætlað að vekja al-
menning til umhugsunar um mikil-
vægi þess að varðveita tunguna og
upphaflega stóð til að auglýsing-
arnar yrðu sýndar í fáeinar vikur.
Hvorki söngkonuna né aðra grun-
aði að þær yrðu sýndar árum sam-
an. En sú varð raunin og á meðan
fullorðnaðist telpan, varð móðir og
býr nú í Danmörku ásamt fjöl-
skyldu. Nafnið er Alexandra Gunn-
laugsdóttir og verður hún þrítug í
vor. Hún starfar á alþjóðlegum
leikskóla í Kaupmannahöfn og er
jafnframt langt komin með fjarnám
í Kennaraháskóla Íslands. Í Dan-
mörku hefur hún búið síðan árið
2000 og hyggst flytja til Íslands á
næstu árum.
Á sínum tíma var hún í Skólakór
Kársness undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur kórstjóra og var valin
úr hópi allmargra stúlkna til að
koma fram í títtnefndri auglýsingu.
Í áranna rás hefur MS endurnýj-
að samninga við hana um áfram-
haldandi birtingar og segist Alex-
andra kunna því ágætlega að sjá
sjálfa sig í sjónvarpi alltaf sem
sama unglinginn.
„Maður er farinn að venjast því
að auglýsingin sé leikin yfir hátíð-
irnar og það er gaman að því,“ seg-
ir hún. „Ég hef alltaf haft gaman af
þessu – þótt ég hafi verið kölluð
kókómjólkurstelpan og eitthvað í
þeim dúr. Einu sinni söng ég lagið
við jarðarför manns sem hafði séð
auglýsinguna og bað um að lagið
yrði sungið í útförinni hans.“
Alexandra var í Skólakór Kárs-
ness til 16 ára aldurs og síðan í
Hamrahlíðarkórnum fram yfir tví-
tugt. Notar hún tónlist talsvert í
kennslu á leikskólanum sínum.
Sonur hennar, Benjamín Kári
Atlason, þriggja ára, er enn of ung-
ur til að átta sig á að mamma hans
kemur reglulega fram í sjónvarpi
en Alexandra segir kímin að for-
vitnilegt geti orðið að sjá viðbrögð
hans þegar á unglingsárin kemur.
Morgunblaðið/Kristinn
„Alltaf haft gaman af þessu“
Bráðum þrítug Alexandra Gunnlaugsdóttir ásamt syni sínum, Benjamín Kára.
Eftir Jón Sigurðsson
KRISTMUNDUR Ingþórsson, bóndi
í Enniskoti í Víðidal, má kallast hepp-
inn að hafa sloppið lifandi þegar hann
rakst á byggðalínu með 30.000 volta
rafmagnsstraumi þar sem hann var á
ferð skammt frá heimili sínu rétt eftir
hádegið á nýársdag.
Kristmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði verið að
gefa hrossum sínum; flytja til þeirra
heyrúllur aftan og framan á dráttar-
vél. Hann mætti hrossahópnum, á
milli 30 og 40 hestum, á svokölluðum
Refsteinsstaðavegi og ákvað að lyfta
ámoksturstækjunum svo að hrossin
gætu ekki gætt sér á heyinu fyrir
framan vélina á meðan hann væri á
ferð. Á sama augnabliki gekk yfir él.
„Skyggni var ekki mikið en þó nóg til
þess að ég sá hrossin sem voru fyrir
framan vélina nánast skjögra um og
sum voru komin niður á hnén.“ Þegar
hann leit aftur fyrir sig sá hann að tvö
hross lágu hreyfingarlaus fyrir aftan
vélina og reyndust þau dauð við nán-
ari athugun.
Loft fór úr að minnsta kosti þrem-
ur dekkjum á dráttarvélinni og þá átt-
aði Kristmundur sig á því að heyrúll-
an á ámoksturstækjunum hafði lent í
byggðalínunni og strekkst þó nokkuð
á henni. „Ég setti vélina umsvifalaust
í bakkgír en fékk þá mikið rafmagns-
högg,“ sagði Kristmundur, en drátt-
arvélin hefði til allrar hamingju losn-
að frá rafmagnslínunni.
Línan losnaði úr festingum
Kristmundur náði að gera vart við
sig í gegnum gsm-síma eftir nokkrar
tilraunir og skömmu seinna var raf-
magn tekið af byggðalínunni. Við nán-
ari skoðun kom í ljós að rafmagns-
línan hafði losnað úr festingunum á
staurnum, líklega í veðurofsanum
sem gekk yfir 30. desember og við það
færst nær jörðu og þannig skapast
þessi slysahætta.
„Ég hefði nú haldið að áhrif veð-
urofsans næstsíðasta dag ársins væru
að baki. Þá fauk þak af vélageymsl-
unni hjá mér nánast í einu lagi. Svo
var þó alls ekki,“ sagði Kristmundur.
Tvö hross drápust þegar
dráttarvél lenti á raflínu
Kristmundur í Enniskoti fékk að kenna á veðurofsanum
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Reynsla Kristmundur Ingþórsson
var heppinn að komast lifandi frá
kynnum sínum af rafmagnslínunni.