Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 33
60ára afmæli. Sextug verður 6.janúar næstkomandi Hólm-
fríður Kjartansdóttir þjónustufulltrúi
í Selfossveitum, Grashaga 17, Selfossi.
Eiginmaður hennar er Björn Ingi
Gíslason. Af því tilefni býður fjöl-
skyldan ættingum og vinum og sam-
starfsfólki að gleðjast með henni í
Hvíta Húsinu á Selfossi laugardaginn
5. janúar frá kl. 19.30.
Orð dagsins: Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. (I.Kor. 12, 4.)
Tónlist
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun,
morgunkaffi/dagblöð, hádegisverður,
handavinna, kaffi. Námskeið fé-
lagsstarfsins hefjast aftur mánudaginn 7.
jan. Ný námskeið í glerlist verða fyrir og
eftir hádegið á miðvikud. Skráning í s. 535-
2760. Jóga-leikfimitímar verða tvisvar í
viku á mánud. og fimmtud. kl. 9-9.45.
Mannfagnaður
Heimilisiðnaðarfélag Íslands | Prjónakaffi
kl. 20 í Amokka, Hlíðarsmára 3, Kópavogi.
Bjargey Ingólfsdóttir kynnir vörur sínar
bara123. Allt áhugafólk er velkomið með
prjónana sína eða aðra handavinnu.
www.heimilisidnadur.is
Fyrirlestrar og fundir
Maður lifandi | Fyrsti opni hláturjógatími
Hláturkætiklúbbsins á árinu verður 5. jan.
kl. 10.30. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er
1.000 kr. Ásta Valdimarsdóttir og Kristján
Helgason leiðbeina.
FRÉTTIR
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
dagbók
Í dag er fimmtudagur 3. janúar, 3. dagur ársins 2008
Vefsíðan Dýraheimur fagnarnú árs afmæli. Á síðunni erað finna fjölbreyttar upp-lýsingar um allt sem við
kemur gæludýrum.
Andri Ómarsson er umsjónar-
maður vefjarins: „Dýraheimur er
þjónustu- og afþreyingarvefur fyrir
dýraeigendur og áhugafólk um gælu-
dýrahald,“ segir Andri. „Þær við-
tökur sem vefurinn hefur fengið á
liðnu ári hafa verið vonum framar, og
heimsækja hátt í 8.000 notendur vef-
inn í hverjum mánuði.“
Á forsíðu Dýraheims eru reglulega
birtar fréttir af dýrum hérlendis og
erlendis: „Einnig er að finna á síðunni
fróðleiksgreinar um margt sem við
kemur gæludýraeign, og var m.a. í
desember birt grein um hvernig huga
má að gæludýrum sem hræðast hvell-
ina af flugeldum,“ segir Andri. „Fróð-
leikurinn á síðunni getur hjálpað fólki
sem er að velta fyrir sér hvers konar
gæludýr getur hentað þeim og svarað
þeim fjölmörgu spurningum sem
vakna þegar gæludýr er komið inn á
heimilið. Ef greinarnar á síðunni veita
ekki þær upplýsingar sem leitað er að
má senda fyrirspurn til dýralæknis
gegnum síðuna, og sömuleiðis er gott
spjallborð á vefnum þar sem not-
endur geta skipst á upplýsingum.“
Á Dýraheimsvefnum má einnig
finna lista yfir fyrirtæki sem bjóða
upp á vörur og þjónustu fyrir gælu-
dýr, og stendur til að bæta við svæði
með vefleikjum og öðru afþreying-
arefni: „Ljósmyndasamkeppni Dýra-
heims hefur verið mjög vinsæl, en á
liðnu ári héldum við þrjár slíkar. Bár-
ust hátt á 6.000 ljósmyndir og voru
veitt verðlaun fyrir andvirði nærri
300.000 kr. á árinu,“ segir Andri. „Á
vefnum er einnig bloggsvæði, og all-
stór hópur notenda með virkar blogg-
síður um sig eða gæludýrið sitt, og
margir sem nota bloggið til að færa
ættingjum og vinum fréttir af uppá-
tækjum minnsta fjölskyldumeðlims-
ins.“
Eitt af skemmtilegum sérkennum
síðunnar er undirvefur fyrir upprenn-
andi dýra-fyrirsætur og fjórfætta
leikara: „Ókeypis er fyrir eigendur að
setja þar inn myndir af dýrinu sínu og
upplýsingar. Framleiðendur auglýs-
inga eða kvikmynda geta svo leitað í
myndagrunninum að rétta dýrinu ef
vantar hund af ákveðnu kyni, kon-
unglegan kött eða sposkan páfagauk í
verkefni.“
Slóðin er www.dyraheimur.is
Gæludýr | Vefsíða með gagnlegar upplýsingar og fréttir um dýrahald
Heimur dýranna á netinu
Andri Ómars-
son fæddist í
Vestmannaeyjum
1985 og ólst upp í
Reykjavík. Hann
stundaði nám við
MH, er nú nemi
við Mennta-
skólann Hrað-
braut. Andri hef-
ur starfað sem pródúsent og
tæknistjóri í kvimyndagerð, m.a.
hjá Saga Film, auk þess að vinna
sjálfstætt starfandi að grafískum
hönnunarverkefnum og vefsíðu-
gerð. Kærasta Andra er Greta Sal-
óme Stefansdóttir nemi.
TÓNLISTARKONAN Sasha Frolova sést hér skemmta með dönsurum sín-
um í næturklúbbinum Solyanka í Moskvu en öll eru þau klædd afar for-
vitnilegum búningum. Solyanka er talinn einn besti klúbbur borgarinnar.
Skrautlegt næturlíf í Moskvu
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, jóga,
boccia, útskurður, myndlist, vid-
eóstund.
Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl.
8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30,
boccia kl. 9.45, leikfimi kl. 11, helgi-
stund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður kl. 9.15, hádegisverður kl.
11.40. Kynning á fyrirhuguðri starf-
semi í Gjábakka jan. - maí. verður
kynnt kl. 14. skráning á námskeið á
sama tíma.
Hvassaleiti 56-58 | Boccia kl. 10.
Böðun fyrir hádegi, hádegisverður kl.
11.30, félagsvist kl. 13.30, 1. og 2.
verðlaun og kaffiveitingar í hléi.
Hæðargarður 31 | Gleðilegt ár.
Skráning í ný námskeið á mánudag.
Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16.
Lumar þú á góðri hugmynd? Morg-
unkaffi, hádegisverður og síðdeg-
iskaffi alla virka daga. Allir velkomnir.
Uppl. 568-3132.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin kl.
20-22. Bænastundir kl. 20.30 og
21.30. Prestur á staðnum og hægt er
að kveikja á bænarkerti.
Langholtskirkja | Hátíðaguðsþjón-
usta á vegum Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma og Langholtskirkju
verður kl. 14. Söngfuglar syngja undir
stjórn Margrétar Sigurðardóttur.
Prestur er sr Jón Helgi Þórarinsson,
organisti Jón Stefánsson. Kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu á eftir.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 21. Tekið er við
bænarefnum af prestum og djákna.
Kaffi í lok stundarinnar.
Röng mynd
Þau mistök urðu á gamlársdag að
röng mynd birtist með viðtali við
Hermann Guðmundsson, forstjóra
N1. Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum og birtir hér
mynd af Hermanni Guðmundssyni,
forstjóra N1.
Röng mynd
Í blaðinu laugardaginn 29. des. sl.
var grein um fordóma eftir Guðjón
E. Jónsson fv. kennara. Svo óhönd-
uglega tókst til að birt var mynd af
nafna höfundarins sem einnig er
fyrrverandi kennari. Við birtum hér
mynd af höfundinum og biðjum
nafnana sem og lesendur velvirð-
ingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Hermann
Guðmundsson
Guðjón E.
Jónsson
SAMFÉLAGSSJÓÐUR Alcan var
stofnaður vorið 2005 og úr honum
eru veittir styrkir tvisvar á ári. Að
þessu sinni bárust 25 umsóknir úr
ýmsum áttum til Samfélagssjóðsins.
Þar af hlutu 15 styrk úr sjóðnum.
Úthlutun að þessu sinni eru rúmar
fimm milljónir króna. Heildar-
úthlutun úr sjóðnum á árinu er því
komin í rúmar ellefu milljónir
króna. Alcan leggur sitt að mörkum
til samfélagsins svo metnaðarfullt
og fjölbreytt starf á ýmsum sviðum
geti blómstrað. Fyrirtækið hefur á
undanförnum árum átt í samstarfi
við fjölda aðila, fyrirtækja og stofn-
ana.
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á
Íslandi, afhenti eftirtöldum aðilum
styrk úr Samfélagssjóði Alcan á Ís-
landi, hinn 20. desember árið 2007:
1.000.000 kr.: Hjörleifur Valsson
fiðluleikari.
Víkin – Sjóminjasafn Reykjavík-
ur.
500.000 kr.: Veiðimálastofnun.
Stofnunin ásamt doktorsnemum
rannsakar áhrif skógræktar og
landgræðslu á vistkerfið. Verkefnið
nefnist SkógVatn.
Björgunarsveitin Sigurvon í
Sandgerði. Björgunarsveitin vinnur
að kaupum á nýju björgunarskipi.
Þristavinafélagið DC-3. Félagið
sér um rekstur og starfrækslu land-
græðsluflugvélarinnar Páls Sveins-
sonar.
250.000 kr.: Sundsamband Ís-
lands. Sambandið undirbýr nú
sundmenn sína til þátttöku á Ól-
ympíuleikunum í Peking árið 2008.
Unglingasmiðjan Tröð, sem vinn-
ur að forvörnum fyrir unglinga með
verkefninu „forvarnir í hesta-
mennsku“.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur,
sem árlega aðstoðar fjölmargar
fjölskyldur um jólin.
Hringsjá, náms- og starfsendur-
hæfing fyrir fullorðna einstaklinga
sem orðið hafa fyrir slysum, áföll-
um, fötlun eða búa við slæmar
heilsufarslegar og félagslegar að-
stæður.
200.000 kr.: Landsbyggðarvinir í
Reykjavík. Styrkurinn verður not-
aður til verkefnis sem ætlað er að
vekja áhuga 13-17 ára unglinga á
heimabyggð sinni.
150.000 kr.: Drama Nova-leik-
félagið. Leikfélagið notar sviðs-
mynd úr áli við uppsetningu leik-
verksins Fool for Love eftir Sam
Shepard.
100.000 kr.: Skákdeild Hauka
sem nýtir styrkinn til kaupa á
kennsluefni og tækjum.
Skólahljómsveit Kópavogs sem
vinnur að því að setja upp tónlistar-
hugbúnað í tölvur hljómsveit-
arinnar.
Kór Flensborgarskólans sem
heldur aukatónleika um jólin.
Landssamtök foreldra / Heimili
og skóli. Samtökin munu nota
styrkinn til að hrinda í framkvæmd
vakningarátaki um netnotkun
barna.
Samfélagssjóður
Alcan á Íslandi úthlutar
Úthlutun úr Samfélagssjóði Alcan.
Innritun í kvöldskóla Iðnskólans í Reykjavík stendur yfir á netinu,
www.ir.is (Námsframboð – Kvöldnám)
Aðstoð við innritun verður í matsal skólans,
miðvikudaginn 2. og fimmtudaginn 3. janúar frá kl. 17:00–18:30.
Allar nánari upplýsingar á www.ir.is
Kennsla hefst miðvikudaginn 9. janúar.
Kvöldskóli Iðnskólans í Reykjavík – vorönn 2008