Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 27
✝ Jónína KristínVilhjálmsdóttir
fæddist á Stóru-
Heiði í Mýrdal 29.
mars 1929. Hún lést
á Landsspítalanum
Fossvogi að kvöldi
jóladags, 25. desem-
ber síðastliðins.
Foreldrar hennar
voru þau Vilhjámur
Ásgrímur Magnús-
son, f. 11. maí 1889,
d. 7. nóvember 1970
og Arndís Kristjáns-
dóttir, f. 25. júlí
1897, d. 19. júní 1973. Börn þeirra
eru, Magnús, f. 9.12. 1927, d.
27.10. 1987 Jónína Kristín, f. 29.3.
1929, d. 25.12. 2007, Kristján, f.
14.7. 1930, d. 10.4. 1997, Guðlaug
Guðrún, 22.9. 1932, d. 11.5. 1997,
Bára Gerður, f. 31.8. 1935, Hjör-
dís Vilborg, f. 9.6. 1938, Áslaug
Halla, f. 3.5. 1940, og Alda, f. 12.4.
1942.
Árið 1954 giftist Jónína Sveini
Ingva Þorsteinssyni húsasmíða-
meistara, f. 22. febrúar 1931, d.
26. október 2007. Foreldrar hans
voru þau Þorsteinn Stefánsson, f.
4. nóvember 1902, d. 28. október
1964 og Óla Guðný Sigríður
Sveinsdóttir, f. 27. ágúst 1906, d.
9. júní 1994. Systkini hans eru:
Stefán, Erna, Ingi-
björg og Jón sem
eru látin, Þráinn,
Eggert og Bergþóra
sem lifa bróður
sinn.
Jónína Kristín
eignaðist fimm
börn. Þau eru: Vil-
hjálmur Örn Hall-
dórsson, f. 8.8. 1951,
maki Svanfríður Ás-
geirsdóttir, f. 24.9.
1955, þau eiga 3
börn og 4 barna-
börn. Þröstur
Sveinsson, f. 3.11. 1954, maki
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, f.
16.2. 1954, hún á 5 dætur. Óla
Laufey Sveinsdóttir, f. 30.1. 1962,
hún á eina dóttur. Þorsteinn
Sveinsson, f. 18.1. 1965, maki Kee-
lie Walker, hann á einn son og tvö
fósturbörn. Jóna Denny Sveins-
dóttir, f. 11.2. 1972, hún á 5 börn.
1965 fluttu Jónína og Sveinn
ásamt börnum til Bandaríkjanna
og dvöldu þar í 26 ár eða til ársins
1991 er þau fluttu aftur heim til
Íslands. 1996 tóku þau að sér 3
barnabörn og ólu þau upp á með-
an kraftar entust.
Útför Jónínu Kristínar fer fram
frá Árbæjarkirku í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Mig langar að minnast Jónu syst-
ur minnar.
Jóna var alltaf styrka stoðin sem
aldrei brást. Við systkinin frá Stóru-
Heiði vorum alltaf mjög náin, og
okkur systrunum fannst langt ef við
heyrðum ekki hvor í annarri í hverri
viku, og þá spurðum við oft, hefurðu
heyrt í hinum systrunum. Það var
alltaf svo gott að koma til Jónu og
Denna, við vorum svo innilega vel-
komin og það var ekki spurt hvort
við vildum kaffi, heldur var dekkað
borð og svo gjarnan sagt þið verðið í
kvöldmat, og þeim þótti miður ef við
máttum ekki vera að því. Fyrir
nokkrum árum lenti ég nokkrum
sinnum á spítölum og alltaf var Jóna
fyrst til að kíkja í heimsókn til mín
og ekki einu sinni, heldur oft á dag,
og alltaf beið pláss heima hjá henni
þegar ég komst út af spítalanum.
Þegar ég varð fimmtíu ára fórum
við Þórður, Kristján sonur minn og
Kristján bróðir minn í heimsókn til
Jónu og Denna til Kaliforníu þar sem
þau áttu heima í 26 ár. Við vorum hjá
þeim í mánuð og hvílíkar móttökur
sem við fengum, þau voru óþreyt-
andi að sýna okkur sem mest af lysti-
semdum Ameríku og meðal annars
fóru þau með okkur til Las Vegas
þar sem ég hélt upp á fimmtugsaf-
mælið mitt. Svo var farið til San
Francisco og þar gistum við hjá vina-
fólki þeirra, einnig var farið í Uni-
versal kvikmyndaverið og í Disney-
land svo fátt eitt sé nefnt, og þeim
þótti þetta svo sjálfsagt af því að við
vorum í heimsókn hjá þeim.
Eftir að Jóna og Denni fluttu heim
mæltum við systurnar okkur oft mót
hjá Jónu og þá hringdi Jóna gjarnan
til Báru og spurði hvort þau kæmu
ekki í kaffi þar sem við hinar værum
komnar. Jóna var dugleg og kraft-
mikil kona og hraust þar til fyrir 7
árum að hún var skorin hjartaskurði,
og svo þremur árum eftir það fékk
hún krabbamein og er hún búin að
berjast við það síðan, en alltaf var
hún svo bjartsýn og dugleg í veik-
indum sínum, og alltaf þegar við
spurðum hana hvernig hún hefði það
var svarað: „Það er ekkert að mér.“
Mig langar aðeins að minnast á
frænkuhelgarnar, en fyrir 15 árum
fórum við systurnar að hittast með
dætrum og dótturdætrum, fyrst var
hist eina kvöldstund, en svo fyrir 10
árum breyttist það í frænkuhelgar,
og lét Jóna sig aldrei vanta þar, og
það var okkur mikils virði í haust að
hún gat verið með okkur, þrátt fyrir
veikindi sín. Það var alltaf gaman að
vera nálægt þegar Jóna og Kristján
sonur minn hittust því að Jóna
spurði hann alltaf hvernig kvenna-
málin gengju hjá honum og urðu oft
skemmtilegar umræður þeirra á
milli og ekki var langt í húmorinn hjá
Jónu.
Við Þórður viljum að endingu
þakka Jónu samfylgdina og votta
börnum, tengdabörnum og
barnabörnum innilega samúð okk-
ar.
Þín systir
Áslaug.
Til þín
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný Kristjánsdóttir í Ferjunesi)
Jóna frænka er dáin og það svona
stuttu á eftir Denna, rétt um 2 mán-
uðir á milli þeirra.
Alltof stutt var á milli þeirra. Ég
minnist þeirra hjóna fyrir hlýleika,
þeirra fallega heimili og miklu og
góðu gestrisni, því þegar þurfti að
fara til Reykjavíkur í erindum þá
vissi maður alltaf að það var nokkuð
öruggt að þú eða þið bæði væruð
heima og það yrði nú lítið mál að fá
að kíkja inn og gefa brjóst eða aðra
fæðu þegar ferðast var með lítið
barn, alltaf var tekið vel á móti
manni og er það ómetanlegt, alltaf
var ég velkomin með fjölskyldu mína
og þá var nú strax drifið í að finna
kaffi og meðlæti sem alltaf var nóg
til af, en Denni var mjög iðinn við að
baka og það ekkert smá góðar og fín-
ar kökur, og svo var spjallað saman
um daginn og veginn, og alltaf var
nóg umræðuefni.
Að koma heim til þeirra í desem-
ber, þá tók á móti okkur jólaveröld,
mikið og fallegt jólaskraut og mikið
spilandi, og mikið urðu börnin oft
stóreyg í þessum heimsóknum. Eldri
börnin mín minntust á að þau áttu
svo mikið af barnaspólum að við fór-
um bara ekki nógu oft í heimsókn til
að þau gætu notið þeirra. Okkar ár-
lega frænkuhelgi er einnig ofarlega í
minni, þar hittumst við flestar
frænkurnar í móðurætt og áttum
góðar stundir saman og kynntumst
vel, og ekki má gleyma öllum hlátr-
inum sem oft á tíðum varð ansi há-
vær, eða það er okkur sagt. Mikið á
ég eftir að sakna þín, elsku Jóna.
Elsku Örn, Þröstur, Óla Laufey,
Steini, Jóna Denný, George, Justin,
Jónína og fjölskyldur, mikill er miss-
ir ykkar og ekki er hægt að setja sig í
ykkar erfiðu spor þessa dagana.
Megi góður Guð vaka yfir ykkur og
veita ykkur styrk.
Sólveig Þórðardóttir.
Elsku Jóna, nú ert þú komin til
hans Denna þíns. Það var ekki langt
á milli þeirra hjónanna, Sveins og
Jónínu, tæpir tveir mánuðir.
Svenni frændi eins og hann var
kallaður eftir að við komumst að því
að vorum skyld og Jóna voru vinir
okkar í tæp 40 ár eða frá því að við
hjónin fluttumst frá Sacramento í
Kaliforníu í San Fernando dalinn og
eins eftir að þau fluttu aftur heim til
Íslands. Ekki getur maður óskað sér
betri vina. Jóna var alltaf til staðar
með kaffið og til í að hlusta. Aldrei
dæmdi hún, og sjaldan gaf hún ráð,
en eftir að búið var að tala við hana
var eins og að hlutirnir hefðu breyst.
Það sem áður voru óyfirstíganlegir
erfiðleikar urðu bara smá þúfur.
Sveinn var alltaf boðinn og búinn
að hjálpa vinum sínum. Svenna þótti
afar gaman að heimsækja Ástu
mömmu og keyra hana út um allan
bæ í innkaup og fleira. Eins fóru þau
tvö í hringferð eitt sumarið og heim-
sóttu gamlar slóðir fyrir austan og
norðan og eins var stoppað hjá
mörgum ættingjum og vinum. Ekki
veit ég hvort við Þórir værum í hús-
næði okkar hér í Reykjavík ef Sveins
hefði ekki notið við varðandi íbúðar-
kaupin. Hann sá um leiguna og gekk
úr skugga um að allir reikningar
væru greiddir á gjalddaga því ekkert
var honum eins illa við og dráttar-
vexti.
Enn tek ég upp símann og ætla að
hringja til ykkar eða er komin út í bíl
á leið í Deildarásinn. Ykkar er sárt
saknað.
Við vottum börnum, barnabörnum
og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Guð veri með ykkur.
Ásthildur og Þórir.
Jónína Kristín
Vilhjálmsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLDÓRA F. ÞORVALDSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlévangi,
Keflavík,
áður til heimilis í Landakoti
Sandgerði,
andaðist sunnudaginn 30. desember sl.
Útförin fer fram frá Hvalsneskirkju föstudaginn 4.
janúar kl. 15.00
Hrefna Magnúsdóttir, Viðar Markússon,
Sigríður Á. Árnadóttir,
Þorvaldur Árnason, Auður Harðardóttir,
Magnea Árnadóttir,
Katrín H. Árnadóttir, Helgi Laxdal,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HALLDÓRA KR. BJÖRNSDÓTTIR,
Nónvörðu 2,
Keflavík,
lést sunnudaginn 30. desember að Garðvangi,
Garði.
Útförin auglýst síðar.
Loftur Hlöðver Jónsson,
Kristján Már Jónsson,
Ragnhildur Jónsdótttir, Kristmundur Árnason,
Ásta Margrét Jónsdóttir, Sigurður H. Jónsson,
Dóra Birna Jónsdóttir, Hermann Waldorff,
barnabörn, barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja á
Eyri við Fáskrúðsfjörð,
lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum 29. desember.
Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugar-
daginn 5. janúar kl. 14:00.
Jarðsett verður á Kolfreyjustað.
Ingigerður Jónsdóttir, Baldur Guðlaugsson,
Elísa Jónsdóttir, Hrollaugur Marteinsson,
Úlfar Jónsson, Kristbjörg Halldórsdóttir,
Elínbjörg Jónsdóttir,
Þóra Jóna Jónsdóttir, Sigfús Harðarson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN EINARSDÓTTIR
frá Borg,
Tunguvegi 4,
Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 28. desember.
Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 11. janúar kl. 14.00.
Friðrik Pétur Valdimarsson,
Ólafía Sigríður Friðriksdóttir, Birgir Vilhjálmsson,
Þórunn Friðriksdóttir, Ragnar Halldórsson,
Oddbjörg Friðriksdóttir, Erlendur Borgþórsson,
Anna Hulda Friðriksdóttir, Árni Eiðsson,
Sigrún Alda Jensdóttir, Snorri Snorrason,
Hafdís Friðriksdóttir, Árni Hjaltason,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HARALDUR M. GUÐJÓNSSON,
Búagrund 2,
Kjalarnesi,
lést laugardaginn 29. desember á Landspítalanum.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Jóhanna Bjarnadóttir.
✝
Systir okkar,
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR
frá Kleppustöðum,
sem lést 26. desember sl.,
verður jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 5. janúar kl. 14:00.
Jarðsett verður að Stað í Steingrímsfirði.
Guðmundur Björnsson og systkini. ✝
Elskuleg móðir okkar og amma,
HÓLMFRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR,
Aðalgötu 3,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks aðfararnótt
nýársdags.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
5. janúar kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Ásgrímsdóttir,
Hólmfríður Drífa Jónsdóttir,
Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,
Reynir Ásgrímsson,
Salómon V. Reynisson,
Ásgrímur V. Reynisson.