Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 31
✝ Helga Ívars-dóttir fæddist í
Vestur-Meðal-
holtum í Flóa 4.
janúar 1934. Hún
lést í Reykjavík 21.
desember síðastlið-
inn.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ívar
Helgason, bóndi í
Vestur-Meðal-
holtum, f. 9.2.
1889, d. 28.12.
1962, og Guðríður
Jónsdóttir hús-
freyja, f. 18.8. 1896, d. 14.5.
1974. Systkini Helgu eru Jón,
bóndi í Vestur-Meðalholtum, f.
17.2. 1924; Helgi bóndi í Vestur-
Ingimarsdóttir húsmóðir, f. 14.6.
1905, d. 6.8. 1987.
Börn Helgu og Erlendar eru:
Björn, f. 2.11. 1956, kvæntur
Þórunni Brandsdóttur, barn
þeirra er Ellen Ágústa og fóstur-
börn Björns; Kolbrún Petrea,
Brandur og Loftur; Ívar, f.
28.11. 1958, kvæntur Joönnu
Marcinkowsku, barn þeirra er
Stefan Erlendur. Fyrrverandi
sambýliskona hans er Þóra Ingv-
arsdóttir, þeirra dætur eru
Tinna og Alexandra Helga;
Magnús, f. 24.6. 1963, og Sigríð-
ur, f. 20.12.1965, gift Jóni Vík-
ingi Hálfdánarsyni, þeirra börn
eru: Þórkatla Eva og Þórir
Björn.
Sambýlismaður Helgu er
Sverrir Guðjónsson.
Útför Helgu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Meðalholtum, f.
31.1. 1926, d. 21.6.
2002; Sigurður f.
8.2. 1927, d. 26.1.
1964; Sigríður f.
23.3. 1928, d. 22.4.
1951; Helgi bóndi í
Hólum, f. 2.6. 1929,
og Guðmundur bíl-
stjóri á Selfossi, f.
18.6. 1930.
Hinn 12.10. 1957
giftist Helga Er-
lendi Hilmari
Björnssyni, f. 1.4.
1931, d. 24.2. 2000.
Foreldrar hans voru Björn Ólsen
Björnsson, verkamaður á Siglu-
firði, f. 11.9. 1903, d. 27.5. 1976,
og eiginkona hans Konkordía
Þótt dauðinn sé það eina sem við
eigum víst í þessum heimi þá erum
við alltaf jafnóviðbúin honum.
Þannig var það er við fréttum lát
Helgu Ívarsdóttur.
Helga hafði verið félagi í Kven-
félagi Bústaðasóknar um árabil og
starfað með okkur í stjórn kven-
félagsins sl. þrjú ár. Hún var afar
félagslynd kona, alltaf tilbúin að
gera hvað sem var og taka þátt í
öllu. Hún var glaðlynd og deildi
þeirri gleði með öðrum. Á síðasta
jólafundi Kvenfélagsins naut hún
sín vel. Hún tók alltaf þátt í öllu
glensi og gamni og gerði oft grín
að sjálfri sér, miklu frekar en að
öðrum. Konur eins og hún skapa
þann góða félagsanda sem við vilj-
um hafa í félagsstarfi. Hún var ein-
stök kona og við í Kvenfélaginu
munum sakna hennar. Að leiðar-
lokum viljum við þakka henni
ómetanlegt starf fyrir Kvenfélag
Bústaðasóknar.
Við vottum öllum hennar að-
standendum okkar dýpstu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Stjórn Kvenfélags
Bústaðasóknar.
Elsku amma. Það er svo skrítið
að þú skulir vera farin svona fljótt
frá okkur. Þú varst alltaf svo hress
og full af lífsorku. Tókst þátt í öllu
því félagsstarfi sem þú komst í og
hafðir svo gaman af, þú hreinlega
ljómaðir þegar þú sagðir frá því
sem þú gerðir þar. Postulínsmál-
unin og prjónaskapurinn er hluti af
því og sýnir hve myndarleg þú
varst. Snilli þína í eldhúsinu verður
erfitt að leika eftir, maður fór aldr-
ei svangur frá þér. Við eigum mikið
af yndislegum minningum með þér
en efst í huga er Póllandsferðin
sem við fórum saman í sumar. Við
skemmtum okkur frábærlega með
þér og sú ferð verður okkur ætíð
minnisstæð.
Það var alltaf svo gott að koma
til þín, faðmur þinn var alltaf fullur
af ást.
Takk fyrir allt, þú varst yndisleg
amma sem kenndir okkur margt.
Þín er sárt saknað og við munum
ávallt geyma minningarnar um þig
í hjarta okkar. Við segjum litla
bróður frá þér og hversu montin
þú varst af honum.
Hvíl í friði.
Þínar
Tinna og Alexandra Helga.
Erfitt er að horfast í augu við að
kær vinkona okkar, Helga Ívars-
dóttir, sé horfin sjónum. Helga
fæddist að Vestur-Meðalholti. Hún
var há og glæsileg kona sem hafði
einstaklega hlýtt viðmót. Hún gift-
ist ung Erlendi Björnssyni, hús-
gagnasmið frá Siglufirði. Eigin-
menn okkar voru frændur og
gegnum árin ríkti ávallt traust vin-
átta meðal fjölskyldna okkar sem
aldrei bar skugga á. Minnumst við
sérstaklega jólaboðanna í Loga-
landi þar sem oft var fjölmennt og
glatt á hjalla.
Við ferðuðumst ásamt Helgu og
Ella til gömlu Júgóslavíu og var
það ógleymanleg ferð enda þau
bæði glaðlynd og góðir félagar.
Þau hjón voru alla tíð virk í Skíða-
félagi Reykjavíkur og höfðu stálp-
uð börn sín fjögur með, þau Björn,
Ívar, Magnús og Sigríði, þá var
gengið á Hellisheiði eða í Bláfjöll-
um. Helga var einnig í Kvenfélagi
Bústaðakirkju og vann þar ásamt
félagskonum gegnum árin mikið og
fórnfúst sjálfboðastarf t.d. í kring-
um fermingar og starf aldraðra.
Það er fengur að slíkum konum
sem láta lítið yfir sér en vinna af
hógværð sín kærleiksverk að hlúa
að öðrum auk fjölskyldna og
barnabarna.
Við Helga fórum oft í langar
gönguferðir og bar þá margt á
góma. Eitt sinn skráðum við okkur
í Endurmenntun Háskóla Íslands,
á námskeið um „Hálendi Íslands“.
Nutum við leiðsagnar, Guðmundar
Páls Ólafssonar. Við Helga vildum
kynna okkur hvað væri að gerast á
öræfum landsins. Kennarinn
fræddi okkur um ýmsar náttúru-
perlur sem væru í hættu. Tvö
virkjunarlón væru ráðgerð fyrir of-
an Goðafoss og Aldeyjarfoss. Einn-
ig væri í athugun virkjunarlón ofan
við Gullfoss. Okkur ofbauð, – „Nei!
ekki Gullfoss!“ hrópaði Helga upp.
Hún unni íslenskri náttúru og sam-
an sóttum við útifundi til verndar
Þjórsárverum og fossunum í neðri
hluta Þjórsár.
Fyrir nokkrum árum veiktist
Elli alvarlega og studdi Helga
mann sinn í þeim veikindum þar til
yfir lauk. Helga bjó í Hæðargarði
29 síðustu árin. Hún hafði alltaf
nóg fyrir stafni því eljan var óbug-
uð. Helga tók þátt í félagsstarfi
aldraðra svo sem leikfimi, söng,
línudansi, málaði og fleira. Þá brá
hún sér oft í sund. Hennar verður
sárt saknað. Helga var myndarleg í
hverju sem hún tók sér fyrir hend-
ur. Nýlega saumaði hún dýrindis
dúka með harðangri og klaustur-
saumi sem fóru á sýningu á lista-
verkum aldraðra.
Ég heimsótti Helgu nú rétt fyrir
jól. Þá var hún búin að öllu tím-
anlega eins og hún hafi vitað að
hverju dró. Helga bauð alltaf af sér
góðan þokka og fólk laðaðist að
henni. Hún var vinur í raun. Sú
minning lifir.
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir og
fjölskylda.
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir
Helga Ívarsdóttir
Heilsa
Við erum á toppnum - hvar ert þú?
Hópeinkaþjálfun í fjallgöngum og
hlaupum. Metnaðarfull dagskrá og
persónuleg eftirfylgni. Heilsurækt
með áherzlu á hreyfingu og útiveru
allt árið um kring. www.fjallgongur.is
www.hadegisskokk.is
Lr - kúrinn er tær snilld.
Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuð-
um. Stuðningur, vigtun og gönguhóp-
ur hefst 3.1. 2008. www.dietkur.is
Dóra, sími 869-2024.
Lr- kúrinn er tær snilld
Léttist um 22 kg á 6 mán. Þú kemst í
jafnvægi, sefur betur, aukin orka og
grennist í leiðinni.
www.dietkur.is/Dóra 869-2024
Atvinnuhúsnæði
Til leigu í Hafnarfirði.
Atvinnuhúsnæði við Lónsbraut, 75 m²
+ 25 m² milliloft. Innkeyrsluhurð, 3ja
fasa rafmagn, góð kaffiaðstaða og
salerni. Nýlegt hús. Sími 864 4589.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Bókhald
Bókhaldsþjónusta
Öll almenn bókhaldsþjónusta fyrir
einstaklinga og fyrirtæki í rekstri.
Mikil reynsla - fljót afgreiðsla -
vönduð vinnubrögð. Arnarsetur ehf.
Uppl. í síma 899-8185.
Viðskipti
Notaðu skynsemina og skoðaðu
möguleikann. Viltu vera með í að
byggja upp öflugt og vel rekið fyrir-
tæki sem getur skilað þér góðum og
vaxandi arði um ókomin ár? Skoðaðu
þá http://www.Netis.is í dag!
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
ÚSALA – ÚTSA.LA
Úsalan hefst 3.janúar kl. 10.00
Sími 588 8050
Bílar
Til sölu Toy Hilux 3L sjálfsk., árg.
03/07, ekinn 20 þ. Klæðning í palli,
krókur, húdd og gluggahlífar.
Klassabíll, verð 3.250 þús. Uppl. í s.
894 6562, Gunnar.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu vinartryggð
vegna andláts Finnu okkar,
GUÐFINNU GUÐVARÐARDÓTTUR,
Borgarsíðu 17,
Akureyri,
f. 2. maí 1948 – d. 17. des 2007.
Sérstakar þakkir til Olgu og samstarfsmanna í
félagsstarfi aldraðra, Snorra og Karlakórs Akur-
eyrar-Geysis.
Vinir okkar, hafið kærar þakkir fyrir allt.
Valgarður Stefánsson,
Ragnheiður Valgarðsdóttir, Haraldur Þór Guðmundsson,
Rut Valgarðsdóttir, Sergio Polselli,
Kristbjörg Rán Valgarðsdóttir,
barnabörn og Lotta litla sem Finnu þótti svo vænt um.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
GUÐRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Heiðargerði 17,
Vogum,
Vatnsleysuströnd.
Sérstakar þakkir færum við heimahjúkrunarfræð-
ingum, læknum og starfsfólki Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og umhyggju.
Guðmundur Í. Ágústsson,
börn og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRNI FRIÐRIK SCHEVING
hljómlistarmaður,
Mávahlíð 5,
Reykjavík,
sem varð bráðkvaddur laugardaginn 22. desember,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn
4. janúar kl. 13.00.
Kl. 12.00-13.00 verður flutt tónlist í kirkjunni.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á sjóð stofnaður verður í minningu Árna.
Sigríður Friðjónsdóttir,
Ragnar Þór Árnason, María Sigmundsdóttir,
Bryndís Scheving, Haraldur Ólafsson,
Guðni Þór Scheving, Helga Rós Reynisdóttir,
Einar Valur Scheving, Vigdís Rún Jónsdóttir,
Arnaldur Haukur Ólafsson, Louisa Stefanía Djermoun,
barnabörn og barnabarnabarn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Minningargreinar