Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 2008næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 18
ferðalög 18 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ H anna Borg fór til Suð- ur-Afríku í byrjun september til að vinna á munaðarleysingja- heimili. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn að hún lagði land undir fót í sjálfboðavinnu því hún hafði áður farið til Frakklands í sama tilgangi, þá á vegum Stúdentaferða Exit og lá því beinast við að hafa samband við fyrirtækið aftur. Ferða- skrifstofan er í samvinnu við staði víðsvegar í heiminum þangað sem hægt er að fara og vinna í sjálfboða- vinnu. Að lokinni nokkurra vikna vinnu gefst sjálfboðaliðunum síðan kostur á að að ferðast um á safarí- jeppum í litlum hópi með fararstjóra. Afríka heillar „Ég hafði áhuga á að fara til Afr- íku og Höfðaborg í Suður-Afríku var eini staðurinn sem boðið var upp á,“ útskýrir Hanna. Á heimilinu þar sem hún starfaði voru 43 börn á aldrinum 0 til 5 ára. Hanna hafði umsjón með hópi barna á aldrinum tveggja til þriggja ára en tveir sjálfboðaliðar störfuðu í hverjum hópi. „Flest börn- in sem bjuggu á heimilinu voru mun- aðarlaus. Það var mikil upplifun fyrir þau að fara í dagsferð með okkur út fyrir veggi heimilisins einn daginn. Flest þeirra voru að uppgötva að heimurinn væri stærri en bara heim- ilið.“ Lífið í Höfðaborg var frekar ein- angrað því mikið var búið að vara Hönnu við öllum þeim hættum sem þar væri að finna enda er glæpatíðni í Suður-Afríku með því hæsta sem gerist í heiminum. „Eftir á að hyggja hefði ég getað notið borgarinnar betur ef ég hefði ekki verið sífellt að hugsa um það að passa mig. Það kom ekkert fyrir mig allan þann tíma sem ég var í Afríku og eiginlega skondið að segja frá því að sama dag og ég kom heim til Ís- lands var ég rænd,“ segir Hanna og kímir. Eftir átta vikna vinnu á heimilinu fór Hanna í þriggja vikna ferðalag með hópi ungs fólks á vegum ferða- skrifstofunnar Nomad og ferðuðust þau á stórum jeppa frá Suður-Afríku til Namibíu, Bótsvana og Simbabve. Namibía í uppáhaldi „Ég var hrifnust af Namibíu,“ seg- ir hún dreymin. „Alls staðar þar sem við komum var ótrúlega fallegt og öðruvísi en við eigum að venjast í Evrópu. Eyðimörkin og sandöld- urnar voru einstakar. Þar prófaði ég fallhlífarstökk og get ekki beðið eftir því að komast aftur í síkt. Öll aðstaða við tjaldstæði þar sem við gistum var mjög góð. Í Namibíu fórum við einn- ig og heimsóttum Himbana sem er nokkuð frumstæð hirðingjaþjóð og fórum í Etosha-þjóðgarðinn þar sem getur að líta öll dýr merkurinnar.“ Hún segir að dýrin hafi staðið upp úr í huga ferðafélaga sinna, en hvað hana sjálfa varðar var það upplifunin sjálf, náttúran og fólkið. „Mér fannst líka ótrúlega skemmtilegt þegar við vorum í Bótsvana á svæði sem heiti Oka- vagno Delta, sem er eins konar vatna- eða síkjasvæði. Þar skildum við bílinn eftir í þrjá daga og fórum á báti um vötnin, m.a. á eintrjáningum. Áður fyrr voru þessir bátar búnir til úr sausage tree-viðnum en vegna skorts á þeirri viðartegund hafa menn nú tekið í notkun míkrófíber- efni við gerð bátanna,“ útskýrir Hanna. „Við enduðum síðan við Viktoríu- fossa í Simbabve. Alla ferðina var bú- ið að byggja upp ákveðna spennu í kringum þann stað og fararstjórinn sagði oft „við gerum þetta bara þegar við komum að Viktoríufossum“, en vonbrigðin urðu mikil þegar við loks- ins komum þangað. Það var eiginlega bara hræðilegt ástand í Simbabve; ekkert fékkst til neins og það sem þó var til sölu kostaði margar milljónir Simbabvedollara. Fólk var mjög ágengt í sölu varnings og óskaði t.d. eftir fötunum sem við vorum í og þess háttar sem greiðslu en vildi enga peninga þar sem verðbólgan át þá jafnóðum.“ Hamingjan felst í að vera – ekki eiga En hvað er það helsta sem stendur upp úr eftir svona reynslu? „Ég lærði einna mest um sjálfa mig enda fór ég ein út. Þar fyrir utan kemst maður að því að við þurfum ekki eins mikið og við höldum. Það var ótrúlegt hvað fólkið þarna úti var nægjusamt, brosmilt og glatt. Lífið þarna er heldur ekki eins hræðilegt og margir halda.“ Hanna telur að þessi reynsla eigi eftir að nýtast henni í framtíðinni því hugurinn stendur til náms í mann- réttindum, jafnvel í þágu barna. Hún segist ekki myndu hika við að grípa tækifærið aftur ef aðstæður byðu upp á að fara aftur út í heim og vinna í þágu bágstaddra barna. Ljósmynd/Hanna Borg Jónsdóttir Blóðrautt sólarlag Hanna sá mörg falleg sólsetur í Afríkuferðinni, meðal annars þar sem hún var í bátsferð með ferðafélögum sínum á landamærum Namibíu og Angólu. Rænd á Íslandi eftir ellefu vikur í Afríku Margt ungt fólk dreymir um að ferðast á fram- andi slóðir og jafnvel að vinna sjálfboðavinnu í fá- tækum ríkjum heims. Halldóra Traustadóttir hitti Hönnu Borg Jónsdóttur, 22 ára lögfræði- nema, sem lét drauminn rætast. Í heimsókn Himba-ættbálkurinn sem býr í miðri Namibíu tók á móti hópn- um og fannst skrýtið að hitta fyrir svo ljóshærða og bláeyga stúlku. Knús Á munaðarleysingaheimilinu ásamt litlu vinum sínum, Justin, Beverly og Mauricia. Í lausu lofti Hanna reyndi fyrir sér í fallhlífarstökki og stökk úr 10 þúsund feta hæð yfir eyðimerkursandinum með aðstoð kennara. Útsýni Hanna fagnaði 22 ára afmæli sínu við Fish River Canyon í Namibíu sem er næststærsta gljúfur heims. www.blog.central.is/hannaiafriku exit.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 2. tölublað (03.01.2008)
https://timarit.is/issue/286198

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

2. tölublað (03.01.2008)

Aðgerðir: