Morgunblaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 35 mennskunnar í Mosfellsbæ. Við hjónin og börnin okkar þökk- um samfylgdina. Loucky og systk- inum Friðþjófs sendum við sam- úðarkveðjur. Sigurður R. Ragnarsson og Ragnheiður Hall. Það streyma fram margar góðar minningar frá samveru okkar Frið- þjófs í hesthúsi okkar í Mosfellsbæ. Fyrir rúmlega tuttugu árum keyptum við hjónin helmingshlut í hesthúsi því sem Friðþjófur og fað- ir hans höfðu byggt. Friðþjófur vildi allt fyrir okkur gera og var umhugað um að vel færi um okkur og hestana í húsinu og á milli okkar ríkti alla tíð góður andi og gagn- kvæmt traust. Mörg handtökin unnum við saman og margt spjöll- uðum við í hesthústestofunni í gegnum árin, gjarnan yfir bolla af bragðbættu tei sem var drykkur hússins. Friðþjófur var glaðlyndur og spaugsamur og ríkti jafnan glað- værð í testofunni, þar sem oft var gestkvæmt enda maðurinn vin- margur. Ótal skemmtilega útreiðar- túra fórum við saman, og sérstak- lega er minnisstætt hve Friðþjófur var duglegur að hóa saman kunn- ingjum og skipuleggja útreiðar með uppákomu á áfangastað. Var hann þá gjarnan búinn að koma þar fyrir bálkesti eða undirbúa grillveislu fyrir hópinn. Taldi hann aldrei eftir sér framlög af þessu tagi. Af ein- stakri gestrisni naut Friðþjófur þess að veita vel hvort sem var í te- stofunni, í útreiðartúrum eða heima. Minningar um ljúfar stundir í yndislegum garði þeirra hjóna, þar sem hrossin hvíldust í rétt, munu seint gleymast. Með söknuði kveðjum við Frið- þjóf, þennan góða dreng, þakklát fyrir árin sem við vorum honum samferða. Líf sitt helgaði hann hestum og margþættum verkefnum þeim tengdum og vonum við að vistaskiptin færi honum endurfundi við hans föllnu gæðinga þar sem taktföst hófaslög dynja á grænum grundum er hann tekur þá til kost- anna. Við vottum Loekie og öðrum að- standendum innilega samúð. Þorleikur og Áslaug. Nú þegar Friðþjófur vinur minn er látinn hvarflar hugurinn aftur til ársins 1984 þegar við Helga fluttum austan af fjörðum í Mosfellssveit- ina. Sigurður Ragnarsson, sem nú er prestur í Neskaupstað, var með mér í hesthúsi og hann var góður vinur Friðþjófs. Þannig kynntist ég honum og tókst með okkur vinátta, sem hefur haldist alla tíð síðan. Hann var góður vinur vina sinna og hafði gott lag á því að láta þá njóta vináttunnar. Friðþjófur var mikill persónuleiki og mér varð snemma ljóst, að hann bjó yfir mikilli þekk- ingu um allt sem laut að hesta- mennsku og hrossarækt, enda óspart leitað í smiðju til hans þegar þess þurfti með. Mér er í minni þegar á fyrstu ár- um hestamennsku minnar hann sagði mér rækilega til syndanna, þegar honum líkaði ekki er ég í fyrstu ferð minni eftir að ég tók hesta á hús reið í kringum Helga- fell. Oft söfnuðust vinirnir saman í litlu kaffistofunni hans í tesopa, þar sem hann var í essinu sínu og oft glatt á hjalla, og á ég eftir að sakna mjög þessara stunda. Friðþjófur var upphafsmaður að Leirugleðinni og varðeldum og stóð fyrir ýmsum minnisstæðum uppákomum bæði innan vinahópsins og hestamanna- félagsins. Hestamenn á Varmár- bökkum og víðar sjá á eftir góðum dreng sem setti svip sinn á sam- félagið. Friðþjófur hafði fastmótað- ar skoðanir á lífinu og tilverunni og hafði mörg áhugamál sem hann fylgdi eftir af mikilli þrautseigju. Má í því sambandi nefna hesta- myndir, plaköt og útgáfu bóka um hestaliti og mun allt þetta halda minningu hans á lofti. Við Helga sendum eiginkonu hans og ástvinum innilegar sam- úðarkveðjur. Ólafur Gunnarsson. ✝ Guðleif Ólafs-dóttir fæddist í Reykjavík 16. júlí 1926. Hún lést á Borgarspítalanum að morgni 7. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ólafur Þor- leifsson, af- greiðslumaður hjá Pípuverksmiðjunni hf. í Reykjavík, f. 22.3. 1877, d. 3.8. 1947, og Hreiðars- ína Hreiðarsdóttir húsmóðir, f. 23.10. 1879, d. 13.1. 1973. Guðleif var yngst 7 systk- ina, þeirra Ástu, f. 1921, Hreiðars, f. 1917, d. 1979, Ólafs, f. 1912, d. 1930, Sigurbjargar, f. 1909, d. 1930, Ágústs, f. 1907, d. 1961, og Guðjóns, f. 1903, d. 1985. Guðleif giftist 1.12. 1950 Katli Jenssyni, söngvara og fiskmatsmanni, Rvk. f. 24.9. 1925, d. 12.6. 1994. Þau skipstjóra í Reykjavík, f. 4. feb. 1923. Synir þeirra eru: 1) Guð- mundur, f. 1960, sonur hans er Ragnar, f. 1989, 2) Ágúst, f. 1961, 3) Ólafur, f. 1964, sambýliskona Sólveig Róshildur Erlendsdóttir, dætur þeirra eru Guðrún Hólm- fríður, f. 1986, og Elín Rós, f. 1991, 3) Thelma Lind, f. 1995, og 4) Guðjón Óli, f. 1997. Guðleif stundaði nám í gagnfræðaskóla veturinn 1939-1940 og var í Hand- íðaskólanum í 2 vetur. Hún lauk námi úr Hjúkrunarskóla Íslands vorið 1949. Hún var hjúkr- unarkona á Landspítala, röntgen- deild, á Kleppsspítala og Land- spítala, fæðingardeild., slysavarðstofu, Rvk, og Landspít- ala, barnadeild. Hún var yf- irhjúkrunarkona við Hrafnistu vorið 1957 til hausts 1959, hjúkr- unarkona á Landspítala, kven- sjúkdómadeild, á Borgarspítala ýmsum deildum og lauk starfs- ferlinum á Hrafnistu, sjúkradeild, liðlega 70 ára að aldri. Útför Guðleifar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. skildu. Dætur þeirra eru: 1) Ásthildur, f. 1951, maður hennar er Kristinn Björns- son, f. 1952, d. 2006, dætur þeirra eru: a) Elísabet, f. 1973, sambýlismaður Jón Valgeir Björnsson, dætur þeirra eru Gabríela Ýr, f. 1992, Hekla Sól, f. 2001, Emilía Mjöll, f. 2003, Kría Rán, f. 2004. b) Ásta Sigríður Kort, f. 1975, sonur henn- ar: Benedikt Már, f. 1995. 2) Sig- ríður, f. 1955, fyrrverandi maður hennar John B. Quirk, dætur þeirra eru E. Jane Yvonne, f. 1975, og Sigríður Júlía, f. 1976, sambýlismaður Steingrímur Birg- isson, dætur þeirra eru Júlía Nótt, f. 2004, og Indíana Líf, f. 2006. Guðleif giftist öðru sinni 29. okt. 1960 Júlíusi Helga Helgasyni, Elsku Gulla mín, í dag kveðjum við þig í hinsta sinn. Þó svo að þú haf- ir farið svona snögglega fengum samt tækifæri til að kveðja þig, og ekki vantaði eftirtektina og húmor- inn þessa síðustu daga á spítalanum. Þú dáðist að barnabörnunum þínum, sagðir þeim hvað þau væru sæt, vild- ir láta passa langömmubarnið fyrir snúrum og tækjum sem þú varst tengd í og dáðist að góðum rakspíra- ilmi af sonum þínum, glottir út í ann- að og vildir fara heim. Ég kynntist ykkur Júlla fyrir 26 árum, þegar ég fór að vera með syni ykkar, honum Óla. Það var strax eins og ég hefði alltaf þekkt ykkur, svo vel tókuð þið á móti mér í fjölskyldu ykkar. Mér fannst þú, Gulla mín, al- veg einstök, á heimilinu bjuggu 3 synir á aldrinum 18-22 ára og hlust- aðir þú á þeirra tónlist og hafðir gaman af, horfðir á boltann með þeim og vinum þeirra og þekktir meira að segja nöfnin á leikmönnum. Þetta fannst mér sérstakt. Gulla var hreinskilin og eftirtekt- arsöm, dáðist að því sem henni fannst vel fara, en sagðir líka stund- um: Í hverju ertu eiginlega mann- eskja eða ertu nokkuð að fitna? og kímdir svo. Gulla var listakona og málaði margar fallegar myndir og erum við stolt af að sýna þær á veggjum heim- ila okkar. Þú varst fagurkeri og mjög smekkleg kona. Það voru ófáar ferð- irnar farnar í leit að fallegum slæð- um, töskum, kápum og höttum. Þú kenndir okkur Óla svo margt um blóm og garðrækt enda var garður- inn ykkar Júlla á Sogaveginum fal- legur, og hvað þú varst stolt þegar gullregnið var í blóma. Gulla mín, þú varst snillingur í að búa til hreiður fyrir fjölskylduna, enda fannst barnabörnunum svo notalegt að fara til ömmu Gullu og afa Júlla í pössun og hjúfra sig í hlýj- unni, og ef þau voru veik var enginn betri en amma Gulla, því hún var besta hjúkrunarkonan, plástraði, batt um og gaf svo rjúkandi bolla- súpu sem var allra meina bót. Og það sem börnin höfðu gaman af að ræða við ömmu Gullu. Hún ræddi við þau sem jafnoka og hlustaði á þau og sýndi öllu því sem þau höfðu áhuga á mikinn áhuga. Gulla var ekki bara mamma, amma og tengdamamma, hún var líka góð vinkona sem dæmdi engan. Gulla mín, ég þakka þér alla hjálp- ina og góðvildina í gegnum árin og kveð þig í bili í þeirri trú að leiðir okkar muni liggja saman síðar. Þín tengdadóttir, Rósa. Elsku amma. Það er svo margs að minnast núna þegar við kveðjum þig í síðasta sinn. Söknuðurinn er yfirþyrmandi og erf- itt að trúa því að við sjáum þig aldrei aftur. Þú varst besta amma í heimi. Ef mamma var ekki heima vildum við alltaf vera hjá þér. Þú gættir okkar þegar við vorum lasnar og einu sinni lágum við fjórar frænkurnar veikar í rúminu þínu. Við máttum alltaf koma til þín, jafnvel þegar þú varst að fara að vinna, þú tókst okkur bara með. Hvað það var gaman að spjalla við þig, amma, þú vissir svo margt. Og kunnir svo margt. Þú áttir líka fullt af fallegum fötum og hlutum sem við máttum máta, skoða og leika okkur með. Þú leyfðir okkur alltaf að hjálpa til og vera með í öllu, þótt við værum klaufalegar. Þú áttir yndislegan garð, amma, sem þú ræktaðir upp og þar var einhvern veginn alltaf besta veðrið, sól og logn og dýrlegt að vera í sólbaði og leika sér. Öll fjölskyldan kom saman í garðinum á sólardögum og þá var nú gaman. Fallega góða amma! Það sem þú lést eftir okkur. Við þökkum þér umburðarlyndið og þolinmæðina sem þú ætíð sýndir okkur. Við erum líka þakklátar fyrir allar gleðistundirnar sem við áttum saman. Við þökkum þér, amma, fyrir að hugga okkur og hughreysta þegar við þurftum á að halda. Þú kenndir okkur að gefast ekki upp, alveg sama hvað á gekk. Langömmustelpurnar þínar báru gæfu til að kynnast þér og þér fannst þær svo duglegar og skemmtilegar. Við biðjum góðan Guð að taka vel á móti þér í eilífð- arlandinu. Við eigum dásamlegar minningar um þig, amma, sem við geymum í hjörtum okkar um alla framtíð. Guð geymi þig, englarnir vaki yfir þér. Jane og Sigríður Júlía. Við viljum kveðja þig, amma, með ljúfri bæn: Í faðmi hennar ömmu þar bestan fékk ég blund, sem blóm und skógarrunni um hljóða næturstund. Við hennar söng ég undi, sem ljúfrar lindar klið, er líður hægt um grundu, og blómin sofna við. Og söknuður mig sækir og sorgarblandin þrá. Hvort á ég ættarlandið aftur fá að sjá? Því þar er elsku amma í aftanroðans glóð, og þar er mér hver minning svo mæt og hlý og góð. (Eva Hjálmarsdóttir) Þín barnabörn Elín Rós, Thelma Lind og Guðjón Óli Ólafsbörn. Elsku amma mín. Þetta gerðist svo hratt, ekki óraði okkur fyrir því að þú værir að fara frá okkur. Þú varst svo spennt að koma í bollukaffi til okkar á sunnu- deginum og við spennt að fá þig. Við fengum þó smátíma með þér á spít- alanum þar sem við spjölluðum við þig og þú gantaðist og gerðir grín, þú vildir bara fá húfuna þína og komast heim sem fyrst og á tímabili var ég alveg viss um að þú mundir rífa þig upp úr þessu, þú varst svo sterk og ákveðin, en að lokum var líkaminn þinn orðinn of þreyttur til að berjast lengur. Nú stendur stóllinn þinn á Sogaveginum auður en minningarn- ar um þig munum við alltaf geyma. Hún amma var alltaf hreinskilin og sagði það sem henni fannst, ég fékk iðulega hrós frá henni hvað ég væri með fínt hár, hún var þó ekki al- veg jafnánægð með mig þegar ég tók upp á því að lita á mér hárið dökkt, það fannst henni ekki nógu gott, stelpan hennar átti að vera ljóshærð. Það seinasta sem amma sagði svo við mig var þegar ég og Jane vorum hjá henni uppi á spítala, þá horfði hún á okkur og sagði: „Mikið eruð þið sæt- ar og fínar,“ – svo fengum við fallegt bros. Í veikindum og skólafríum fórum við systkinin oft í pössun til ömmu og afa, þar var gott að kúra í sófanum og horfa á sjónvarpið, við fengum alltaf að taka með okkur teiknimynd eða þá að afi labbaði með okkur í Kúluna þar sem við fengum að velja mynd og amma horfði alltaf með okkur og var jafnspennt og við yfir þeim, svo seinnipartinn horfðum við saman á Glæstar vonir og Nágranna. Það skipti engu máli hvort amma ætlaði bara að vera heima yfir dag- inn eða væri að fara eitthvað út, hún var alltaf vel puntuð, hún setti í sig rúllur, varalit og ilmvatn þegar hún vaknaði og það var alltaf svo gaman að fylgjast með henni. Amma átti líka svo mikið af skemmtilegum hlut- um sem hægt var að skoða, alls kon- ar slæður, skartgripi og snyrtidót. Þegar ég var yngri fannst mér alltaf stórskrítið hvernig hún amma nennti eiginlega að horfa á fótbolta með strákunum, en nú finnst mér það ekkert skrítið. Amma var alltaf til í að gera hvað sem er, hún tók þátt í áhugamálum annarra og naut þess bara að vera samvistum við þá sem henni þótti vænt um, alveg eins og þegar hún horfði á teiknimyndir með mér. Einn skemmtilegasti dagur sem ég átti með henni ömmu var þegar ég fór með henni í vinnuna á Hrafn- istu, þar fékk ég að hjálpa ömmu með ýmis verkefni og mér fannst ég agalega heppin að eiga svona ömmu sem ég gæti farið með í vinnuna. Í hádeginu fórum við svo inn í matsal þar sem amma sýndi öllum mig, ég var ekkert smástolt. Ég gæti skrifað margar blaðsíður um allar minningarnar sem ég á um þig og með þér en ég þarf þess ekki, ég geymi þær í hjartanu og ég veit að þú gerir það sama svo við skulum bara eiga þær fyrir okkur. Elsku amma mín nú ertu komin á annan stað, ég veit að þú og amma Munda mín eruð saman og passið okkur hin. Ég kveð þig nú í bili, við hittumst í draumi. Þín Guðrún Hólmfríður. Látin er í Reykjavík föðursystir mín Guðleif Ólafsdóttir. Hún var yngst sjö systkina, barna afa míns, Ólafs Þorleifssonar og ömmu, Hreið- arsínu Hreiðarsdóttur. Er nú aðeins Ásta, ein systkinanna sjö, eftirlif- andi. Því miður voru fjölskyldutengsl okkar alltof skammvinn. Það helg- aðist af skilnaði foreldra minna árið 1953. Á þeim árum voru hjónaskiln- aðir ekki eins algengir og auðveldir og nú tíðkast. Var konum oft gert erfitt fyrir þegar þær vildu losa sig úr óbærilegri lífskreppu. Kostuðu slíkar ákvarðanir gjarnan reiði og ásökun í hópi aðstandenda beggja aðila og skildu eftir sár sem seint eða aldrei greru. Guðleif, eða Gulla frænka, var allt- af í huga mínum glæsileg og elskuleg kona. Í kringum hana unga leiftraði lífsgleði og heimsborgarabragur. Á árunum sem hún var gift Katli Jens- syni óperusöngvara var eins og Ítalía væri komin inn á hæðina á Grettisgötu 61. Þá gall við hlátur og gleði og samtöl krydduð með ítölsk- um orðum og setningum. Talað var um heimsfræga einsöngvara eins og þeir ættu heima í næsta húsi og óp- erur og söngafrek þeirra rædd yfir kaffi og kleinum. Og við börnin horfðum á fullorðna fólkið og hlust- uðum á það með takmarkalausri að- dáun. Þegar fjölskyldan á Grettis- götu 61 kom í heimsókn til foreldra minna að Bjargi, sungu þeir gjarnan einn eða tvo takta úr Hamraborginni og Áfram veginn í vagninum ek ég, Ketill og pabbi. Þá fannst mér að enginn í heim- inum stæði þeim á sporði í söng og glæsileika. Og Gulla hló og trúði á líf- ið eins og ungt fólk gerir og fannst eins og hamingjan væri bjargföst og óhagganleg. Ég minnist þess hvað hún var góð við mig, lagði hönd mína í lófa sinn og strauk blíðlega yfir og sagði: „Þú hefur píanófingur.“ Svo tók hún grip á gítar og mér fannst hún svo flott. Þannig er hún í minn- ingu minni. Gulla frænka. En það urðu vinslit eins og fyrr getur og það er sorglegt þegar þann- ig fer. Fjölskyldutengsl rofna, til- finningar vináttu, frændsemi og reiði blandast í huga fólks og til verður vík sem erfitt er að brúa. En þrátt fyrir víkina býr í hjartanu hlý endurminn- ing um elsku og söknuður. Kveð ég frænku mína með þessum fátæklegu minningarorðum og votta eftirlifandi eiginmanni hennar, börn- um og öðrum ástvinum, einlæga samúð og hluttekningu við fráfall hennar. Óli Ágústsson. Guðleif Ólafsdóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, LEIFUR SVEINBJÖRNSSON frá Hnausum, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 22. febrúar. Útförin verður föstudaginn 29. febrúar frá Þingeyrarkirkju kl. 14.00. Elna Thomsen, Tómas Ólafsson, Kristrún Þórisdóttir, Anna Kristín Thomsen, Gunnar Helgi Emilsson, Andrés Ingiberg Leifsson, Margrét Arndís Kjartansdóttir, Kristín Björk Leifsdóttir, Ragnar Haukur Högnason, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.