Morgunblaðið - 23.03.2008, Side 14

Morgunblaðið - 23.03.2008, Side 14
14 SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ TÖLVULEIKIR fyrir utan hvað gerist þegar búið er að hanna leikinn. Ef við hefðum ráðið allt starfsfólkið á Íslandi, byggt upp stóra starfsstöð, þá værum við í vand- ræðum með að finna aðra vinnu fyrir þetta fólk. Svo er það starfs- mannastefna að ráða sérfræðinga í sérfræðistörf, en úthýsa handa- vinnu.“ 4-5 ár í framleiðslu Sá fjölspilunarleikur sem er í þró- un hjá White Wolf í Atlanta, sem sameinaðist CCP fyrir nokkrum misserum, byggist á World of Dark- ness, heimi sem búinn var til hjá White Wolf. Ekkert er gefið út varð- andi dagsetningar og fram- leiðsluáætlanir, en almennt taka svona leikir fjögur til fimm ár í fram- leiðslu og kostnaður er á bilinu 50 til 100 milljónir dollara. „Leikurinn gerist í nútímanum, stórborgum um allan heim,“ segir Halldór Fannar. „Vampírur og var- úlfar blanda sér í samfélagið og fara huldu höfði. Framtíðin er því sögu- sviðið í EVE Online og þarna verður það nútíminn. Það er að mörgu leyti erfiðari glíma, fólk þekkir það um- hverfi og veit hvernig hlutirnir líta út. Það er auðveldara að búa til leik sem gerist í geimnum, þar sem hann er fyrst og fremst tómarúm og hug- myndir eru sóttar í bíómyndir og vís- indaskáldsögur. Nú þurfum við að búa til borgir sem eru sannfærandi á annan hátt.“ – Verða staðarheiti raunveruleg? „Það á eftir að svara því. Enn er á umræðustigi hvort þetta verði Lond- on, París og New York. En ég held ekki. Við munum búa til borgir sem eru innblásnar af borgum sem við þekkjum. En við erum með arkitekta og skipulagsfræðinga í því að búa til borgirnar fyrir okkur. Það er nauð- synlegt að kalla til fagmenn, þannig að þetta líti sannfærandi út.“ Krafa um hið áþreifanlega Það stendur ekki aðeins til að búa til föt úr leiknum EVE Online í raun- veruleikanum heldur er einnig seldur ýmis varningur tengdur leiknum. „Það er til dæmis krafa leikmanna að fá að kaupa eftirlíkingar af geimskip- unum og vonandi getum við bráðum haft þær á boðstólum,“ segir Halldór Fannar. „Þetta gerist gjarnan í svona hugverkasmíði að til verða óáþreif- anleg verk, sem fólk vill eignast með áþreifanlegum hætti. Hönnunin er það góð að hún höfðar til fólks. Þetta tengist viðbót sem við erum að vinna fyrir EVE Online þar sem boðið er upp á alls konar búninga og fatnað. Sterkar raddir eru hér innanhúss um að fólk eigi að geta keypt og gengið í þeim, enda eru fötin það flott að skilin eru að sumu leyti óljós. Og raunar mæta fleiri og fleiri í búningum á „fanfest“ sem þeir hafa setið heima og saumað. Og það fyndna er að kostnaðurinn við að láta sníða svona búning í sýndarveruleikanum er eig- inlega nákvæmlega sá sami og að sauma raunverulegan búning úr al- vöru efni. Við sæjum fyrir okkur að það væri sniðugt að framleiða bún- inga, halda tískusýningu og gera skilin enn óljósari. – Nú gildir það um sumar vinsæl- ar kvikmyndir, til dæmis Stjörnu- stríð, að helsti ágóðinn er af leik- fangasölu? Eru ekki mikil tækifæri í svona framleiðslu? „Jú, ef hugverk nær vinsældum, þá opnast markaður sem getur verið töluverður hagnaður af. Við höfum verið að leika okkur með það hjá EVE Online að búa til ýmsan varn- ing, en markmiðið hefur alltaf verið að auglýsa EVE-leikinn, svo sem með því að bjóða EVE-lyklakippur, -boli og -penna. Við höfum litið svo á að við værum að breiða út hugverkið, þann- ig að fólk fari að spila leikinn. En það hefur alltaf verið ágætis hagnaður af þessu markaðsfikti, sem átti að vera auglýsing umfram annað. Og með því að renna saman við White Wolf, þar sem er fyrir hendi mjög víðtæk þekk- ing á þessu sviði, þá myndast ákveðið tækifæri. – Hvað er það sem fær fólk til að spila tölvuleiki af þessum toga – fara í annan heim? „Þetta er afþreying sem felst í að upplifa annað en hversdagsleikann í kringum okkur. Og það merkilega er að fólk gerir meiri og meiri kröfur um að upplifa veruleika, sem er líkur þess eigin veruleika, en þar sem eng- ar afleiðingar eru af gjörðum þess. Ef vatn sést renna, þá á það að líta út eins og alvöru vatn, og eðlilegt sam- band á að vera milli orsakar og afleið- ingar. Þetta er merkileg þróun, en ég hef oft sagt að ekki megi ganga of langt, því þá verði leikurinn jafnleið- inlegur og raunveruleikinn. Það á ekki að neyða leikmenn til að taka til í herberginu sínu, því það nennir því enginn. Ég vann að Sims-leikjunum hjá Electronic Arts, sem ganga út á daglegt líf. Þar fer karlinn reglulega á klósettið til að gera þarfir sínar og fara í sturtu. Við reyndum að gera góðlátlegt grín að því ferli, en fólki fannst það samt leiðinlegt, og við leystum það þannig að þetta gerðist á leifturhraða. Það verður að gæta þess að íþyngja fólki ekki of mikið.“ Sumir smíða glæsilega sandkastala á meðan aðrir sparka þá niður F jölbreyttur bakgrunnur Íslendinga er ein af lykilástæðum fyrir því að CCP náði fótfestu með EVE Online, að mati starfsmannastjórans Helga Más Þórðarsonar. „Við höfum skilgreint okkur þannig að við séum ekki í samkeppni við aðra tölvuleiki heldur afþreyingariðnaðinn í heild,“ segir hann. „Ástæðan er sú að við höfum skapað nýjan heim, þar sem spilarar byrja með hreint borð og möguleikarnir eru óendanlegir. Til þess að skapa heilan heim sem gengur upp þarf að hafa innsýn í ólík svið mannlífsins. Og það hjálpar Íslendingum hversu víðtæka reynslu þeir hafa af atvinnulífinu, flestir hafa af- greitt í verslunum eða flakað fisk. Ef við lít- um til Bandaríkjanna, þá hafa margir sem eru að ljúka langskólanámi jafnvel aldrei verið í vinnu eða aðeins verið í einu starfi.“ Af 330 starfsmönnum CCP vinna um 200 á Íslandi, þar af koma um 60 frá öðrum lönd- um. Það tekur allt að sex mánuði að fá fólk til landsins, að sögn Helga Más. „Eins og staðan er núna fáum við erlenda sérfræðinga til landsins sem eiga maka og börn. Börnin fá inngöngu í skóla, en makarnir mega ekki búa hér lengur en í þrjá mánuði í senn! Eig- um við að stía fjölskyldum í sundur af því að snillingur fær stöðu á Íslandi? Þó að hann sé kominn með atvinnuleyfi, þá eru makarnir flokkaðir með ferðamönnum. Hvernig má það vera?“ Helgi tekur undir að starfsumhverfið í CCP sé óhefðbundið miðað við það sem geng- ur og gerist. „Við erum að búa til ákveðna af- þreyingu og skemmtun. Ef það er skemmti- legt í vinnunni er líklegra að fólk geri skemmtilega hluti, sem þýðir að við- skiptavinir verða ánægðir og greiða fúslega fyrir þjónustuna. Þetta snýst bara um virð- ingu fyrir fólki. Liður í því er að létta áhyggjum af því með því að veita helstu þjón- ustu í vinnunni, til dæmis bjóða starfsfólki upp á að koma með föt hingað á mánudags- morgni, sem send eru í fatahreinsun, fá bíla- verkstæði í Vesturbænum til að sjá um olíu- smurningu og dekkjaskiptingu, og fá nuddara, lækni eða hjúkr- unarfólk til að mæta reglu- lega. Það getur verið ómet- anlegt fyrir erlendu sérfræðingana, sem eru nýkomnir og ekki komnir með heimilislækni, að fá öruggan aðgang að lækn- isþjónustu. Svo fær starfs- fólk bólusetningu sem er á leið til Kína. Loks er gaman að geta þess að Hólmfríður í bókhaldinu er lærð hár- greiðslukona og klippir okkur einu sinni í viku. Það er í anda þessarar stefnu, að und- irbúningur stendur yfir að stofnun leikskóla fyrir börn starfsmanna á aldrinum sex mán- aða til tveggja ára. „Foreldrar eru í vand- ræðum með að fá pláss fyrir greyin á leik- skólum,“ segir Helgi Már. „Við erum með leikskólakennara í þeirri vinnu núna að kanna hvort þetta sé raunhæfur möguleiki. Meðalaldur starfsmanna er lágur og margir eiga því ung börn. Það hefur reynst erfitt að fá dagmömmu fyrir börn starfsmanna, ekki síst þá sem koma að utan.“ Og svo er það félagsmiðstöðin! „Við erum að vinna í því að koma félagsmiðstöð í gagn- ið fyrir starfsmenn. Hún verður 80 fermetr- ar með borðtennisborði, ballskákarborði, trommusetti, þythokkíi og tölvuleikjum.“ – Þú ert púlari! „Ég mæti alltaf í þessari Liverpool-peysu daginn eftir sigurleiki, ekki í deildinni, en Evrópukeppninni,“ segir Helgi kampakátur. – Er það ekki langt frá veruleikanum á Vopnafirði að hafa lifibrauð sitt af tölvu- leikjum? „Ég hugsa það. Fólk fyrir austan áttar sig ekki alltaf á því í hverju starf mitt felst þeg- ar ég segist vinna hjá CCP. En ótrúlega margir sem vinna hjá CCP hafa hins vegar unnið í fiski, þannig að tengslin eru kannski meiri en margur áttar sig á í fljótu bragði.“ BÚUM TIL AFÞREYINGU OG SKEMMTUN Helgi Már Þórðarson Þ að spila nú ekki allir Eve Online inn- an fyrirtækisins,“ segir Kristján Val- ur Jónsson sem er í kjarnaforritun hjá CCP. „Ég prófaði leikinn fyrir fimm árum og sá fyrir mér að það tæki svo langan tíma að verða góður. Svo er þetta ekki eins spennandi þegar maður er hinu- megin við borðið líka, þekkir töfrabrögðin á bak við leikinn og veit á hverju er von.“ Kristján lýsir starfi sínu þannig, að ef CCP væri gufuskip, þá væri hann í vélarrúminu að moka kolum. „Ég þyrfti ekkert að vita hvert við værum að fara, aðeins hvort við ættum að sigla aftur á bak eða áfram. Ég er í hugbúnaði, því sem kallað er kerfishönnun, einn tíu forritara sem þróa gangverkið í leiknum á meðan aðrir ákveða hvað gert er við það. Það er til dæmis leikur í þróun núna í Atlanta sem mun notast við sama gangverk og Eve en er allt annars eðlis.“ Kristján flutti til landsins árið 2003 frá Berlín, þar sem hann hafði unnið í fimm ár hjá tölvufyrirtæki. „Ég tilheyri gamla hópn- um úr Oz, vann þar nánast frá upphafi. Þeg- ar það færði út kvíarnar árið 1998, fór að vinna að farsímum fyrir Ericsson og réð fleiri hundruð manns, hætti ég ásamt stofn- endum CCP.“ – Er CCP ólíkt Oz sem vinnustaður? „Já og nei, þetta er eiginlega Oz sem er orðið fullorðið. Unggæðingshátturinn er ekki jafn mikill, þó að við höfum gaman af starfinu og skipulagið sé ekki hefðbundið, flatur strúktúr þar sem menn valsa inn og út af skrifstofum hvers annars. Vissulega eru haldin partí og fólk fær sér bjór eftir vinnu. En það er ekki sama geðveikin og einkenndi netbóluna, þar sem allir voru með fulla vasa fjár og áttu helst að eyða því í vitleysu. Nú erum við agaðri í okkar störfum, í stað þess að stökkva sífellt á eftir nýjum tækifærum, þá vinnum við að sama tölvuleiknum ár eftir ár og það er aldrei leiðinlegt. Eitt af því sem fór úrskeiðis hjá Oz var að enginn vissi leng- ur hvað fyrirtækið var – við vitum nákvæm- lega hvað CCP er.“ Kristján segir fólk ekkert hissa á því að hann hafi lífsviðurværi sitt af tölvuleik, jafn- vel ekki eldra fólk. „Heimurinn er orðinn svo skrítinn og margt sem eldra fólk skilur ekki. Þróunin er svo hröð að mér líður stundum eins og gömlum karli. Ekki akkúrat í þeim bransa sem ég hrærist í, því þar fylg- ist ég með, en margt af því sem krakkarnir fást við á netinu er ofvaxið mínum skiln- ingi.“ Hann verður íbygginn á svip. „Afi minn Kristján og nafni hefði reyndar áreiðanlega fussað og sveiað og spurt hvort þetta væri ekki leikaraskapur. Þegar ég var 12 ára var ég hjá þeim fyrir páska, foreldrar mínir voru erlendis, og ég tók tölvuna mína með mér. Þá áttu ekki margir tölvur og það mætti ekki miklum skilningi þegar ég hékk inni í herbergi að forrita og leika mér í tölvuleikjum.“ – Þau hafa ekki skilið að þú værir að búa þig undir framtíðina? „Ég vissi það náttúrlega ekki sjálfur!“ – Hversu öflugur er tölvubúnaðurinn? „Það hefur verið takmark hjá Hilmari að koma Eve á lista yfir 100 öflugustu tölvu- klasa í heimi en alltaf þegar við uppfærum okkur, þá gera hinir það líka. Hver og ein tölva er á stærð við venjulega heimilistölvu, en þegar hundruð koma saman eru þær nátt- úrlega margfalt öflugri.“ TÖFRABRÖGÐIN Á BAK VIÐ LEIKINN Kjarnaforritun Kristján Valur Jónsson segist vera sá sem mokar kolum í vélarrúminu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.