Morgunblaðið - 23.03.2008, Blaðsíða 50
HANN Ísak ýtti þessari heimatilbúnu kerru um Seltjarnarnesið. Hann er í
páskafríi í skólanum og hjálpar til sem „aðstoðardagmamma“ á meðan og
ferst starfið vel úr hendi.
Morgunblaðið/Golli
Heimatilbúin kerra
50 SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
MAÐUR VEIT
ALDREI... EINN
DAGINN ER MAÐUR
BARA FARINN
ER VERIÐ AÐ FÆRA
ÞIG TIL Í STARFI?
ÉG ER AÐ TALA
UM LÍFIÐ! ÉG ER
AÐ TALA UM
HIÐ ÓÞEKKTA
ER VERIÐ
AÐ SENDA
ÞIG TIL
ALASKA?
ÞÚ VEIST AÐ
ÞÚ ERT KOMINN
Á MIÐJAN ALDUR
ÞEGAR ÞÉR FER
AÐ VAXA HÁR
Á ÓVIÐEIGANDI
STÖÐUM
VARÚÐ!
BROT-
HÆTT
RÉTTU
MÉR KYLFU
NÚMER
SEX...
ÉG SAGÐI ALDREI AÐ
ÞETTA VÆRI SLÆM
HUGMYND...
ÉG VEIT BARA EKKI
HVERNIG ÞÚ ÆTLAR AÐ
FARA AÐ ÞVÍ AÐ SELJA
FÓLKI LÓÐIR HÉRNA
TENNISOLNBOGINN
HANS DAVÍÐS
KOM Í VEG
FYRIR AÐ HANN
YRÐI GÓÐUR
Í KRIKKET
dagbók|velvakandi
Kærumál í íþróttum
HSÍ hefur nú vísað frá kæru Hauka
vegna úrslita deildarbikarsins þar
sem Fram sigraði Hauka naumlega
og eitt mark var ofskráð á Fram. En
Frammarar skoruðu þó einu marki
meira en Haukar. HSÍ kemst að
þeirri niðurstöðu að þarna hafi verið
um dómaramistök að ræða en ekki
er hægt að breyta úrslitum leikja
vegna þess. Nú er ég ekki nógu vel
að mér í dómgæslunni og get því
ekki dregið niðurstöðu HSÍ í efa. En
Haukar telja að þarna hafi orðið
mistök á framkvæmd leiksins og það
séu starfsmenn framkvæmdaaðila
sem beri ábyrgð á þeim hluta ásamt
eftirlitsdómara. Aron Kristjánsson
þjálfari Hauka segir í Fréttablaðinu
í fyrir skömmu að leikurinn sé orð-
inn svo hraður að dómarar eigi orðið
í erfiðleikum með að fylgjast með.
Það þurfi því hlutlausa aðila á ritara-
borðið til að gæta jafnræðis. Það
getur nokkuð verið til í þessu hjá
Aroni en það gæti þó orðið erfitt að
finna þessa „hlutlausu“ aðila. Hugs-
anlegt er að Haukar fari áfram með
málið. Sjálfum finnst mér að Haukar
eigi að láta kyrrt liggja. Frammarar
voru bara betri en við í þessum leik
og áttu sigurinn skilið. Mér finnst
líka nóg komið af hremmingum hjá
Frömmurum: sviknir um bikar fyrir
tíu árum síðan í úrslitaleik gegn Val
þar sem Valur skoraði ólöglegt
mark, og Íslandsbikarnum „stolið“
af þeim í úrslitarimmu gegn Hauk-
um árið 2000 þar sem Fram átti
heimaleikjarétt og vann fyrsta leik-
inn með 10 marka mun í Safamýr-
inni, en tapaði svo næstu þremur.
Haukar! Sýnið reisn. Hættið þessu
þrasi. Haukamaður af lífi og sál.
Hermann Þórðarson
.
Olíustöð á Vestfjörðum?
Það er merkilegt hvað hugmyndin
um olíuhreinsunarstöð á Vest-
fjörðum hefur gengið langt, því Ís-
land hlýtur að vera einn allra versti
staður í heimi fyrir slíka stöð.
Válynd veður og stríðir haf-
straumar kalla beinlínis á meng-
unarslys.
Ef hingað eiga að koma 160 olíu-
drekar á hverju ári, hljóta einhverjir
þeirra að stranda í íslenskum ill-
viðrum, og þarf reyndar ekki illviðri
til. Frekar ættum við að gera allt til
að halda olíudrekunum sem lengst
frá landinu, en ekki að laða þá upp
að ströndum.
Talað hefur verið um 600 störf
sem þessi olíuhreinsunarstöð myndi
kalla eftir. Trúlega yrðu þau mun
fleiri, því heilan her þyrfti til að
hreinsa fjörurnar eftir að olían hefði
gossað þar niður.
Íslendingar eru fiskveiðiþjóð, og
eiga að einbeita sér að því sem þeir
gera öðrum þjóðum betur, veiða og
verka fisk, en ekki að sulla í olíu.
Jóhann Sigurjónsson
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÁRBORG - LAND VIÐ SELFOSS
44 ha land við núverandi íbúðabyggð á Selfossi. Landið liggur að Björk, sem
er í eigu Árborgar og er framtíðar byggingarland Selfoss. Þetta land er í
landbúnaðarnotkun og er hægt að sækja um lögbýlisrétt eða skipuleggja
hluta eða allt til íbúðabyggðar. Land sem eykur verðgildi sitt. Allar nánari
upplýsingar gefur Andri Sig., sölustjóri DP FASTEIGNA í síma 561 7765
eða andri@dp.is. ATH. Grunnskóli og leikskóli innan um 1 km fjarlægðar.
Flugvöllur er í um 1,5 km fjarlægð.