Morgunblaðið - 23.03.2008, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 57
NORDISK HØJSKOLE
Fuldtidskurser på 5 - 9 måneder
Halve fripladser tilbydes elever fra Island.
• Journalistik • Nordisk Horisont
• Teater • Viselinjen
Adgangskrav: studenter-, HF-eksamen eller lign.
NORDISKA FOLKHÖGSKOLAN
Olof Palmes väg 1, 44231 Kungälv, Sverige
+46 303 20 62 00 • info@nordiska.fhsk.se
www.nordiska.fhsk.se
Gísli Jónsson, dr.med., sérfræðingur í hjartalækningum
og lyflækningum hefur opnað læknastofu
í húsi Lækningar að Lágmúla 5, Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga milli kl. 9-16
í síma 590 9200.
Netfang: gisli.jonsson@laekning.is
www. laekning.is
FRUMRAUN Celestine lofar góðu
fyrir íslenskt þungarokk og harð-
kjarna því At The Borders Of
Arcadia er kröftug, frjó og fanta-
góð. Þó er platan ekki löng og best
að flokka sem stuttskífu en á henni
eru aðeins sex lög leikin á tuttugu
og fimm mínútum. Lengd plötunnar
kemur hins vegar ekki að sök held-
ur þvert á móti eflir hana, þéttir og
herðir. Hér eru engir útidúrar eða
uppfyllingarlög heldur kjarn-
orkukraftur og markviss festa, full
af myrkri og skuggum sem ein-
kennir gjarnan hljóma síðmálmsins.
Celestine-menn eru villtir og
trylltir og eflaust engin leið að
hemja þá enda hið besta mál, hér er
mottóið: Öfgar göfga! Áhrifavaldar
og samferðamenn Celestine eru
sveitir á borð við Isis og Mes-
huggah sem hafa markað djúp spor
í sögu síðþungarokksins. Tilrauna-
kenndir sveimandi gítarkaflar laga
sig að kröftugum hljómagangi og
naumhyggjulegum stíganda lag-
anna. Kraftur og kyrrð eru þau
andstæðu öfl sem Celestine byggir
tónlist sína á og gerir vel. Rymjandi
öskur í ætt við hið klassískan harð-
kjarna- og dauðarokk er lýsandi
fyrir gríðarleganöflugan söng Axels
sem er trúverðugur og ekta í allri
sinni angist ogörvæntingu. Lögin
sex sem prýða skífuna mynda
ákveðna heild, eru samhangandi óð-
ur eyðileggingar og vonleysis, enda
mynda lagatitlarnir setninguna
„Despair and Witness the Ruins of
God and Me“ (næstsíðasta lagið er
þó án titils). Þegar öllu er á botninn
hvolft eru herlegheitin trúverðug
og sönn. Ekkert er gefið eftir og
hljómur plötunnar, kraftur og
áræðni nær að koma þeim tilfinn-
ingum og tónum sem á henni búa
vel til skila.
Ég staðfesti það hér með að Cel-
estine hefur tekist að senda frá sér
fábæra plötu sem aðdáendur fram-
sækins þungamálms ættu ekki að
láta framhjá sér fara.
Kjarnorkukraftur
TÓNLIST
Geisladiskur
Celestine – At The Borders Of Arcadia
bbbbn
Morgunblaðið/Golli
Celestine Ein þyngsta dauðarokksveit sem fram hefur komið á Íslandi í
langan tíma og afbragðsgóð að mati gagnrýnanda.
Jóhann Ágúst Jóhannsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ORIT Greenberg hefur höfðað mál
á hendur fyrirtækinu sem fram-
leiðir spjallþætti Opruh Winfrey,
Harpo, vegna meiðsla sem hún seg-
ist hafa hlotið við það að reyna að
fá sér sæti í sjónvarpssal fyrir upp-
töku á einum þátta Winfrey árið
2006. Mikið óðagot mun hafa verið
á gestum og þeir troðið hver öðrum
um tær.
Greenberg fer fram á 50.000 doll-
ara skaðabætur og segir að sér hafi
verið hrint niður tröppur í látunum.
Harpo hafi átt að hafa hemil á gest-
unum og koma í veg fyrir slys.
Oprah Mikið gengur á fyrir tökur.
Kært vegna
óðagots
NÝJASTA kvik-
myndin um
James Bond,
Quantum of Sol-
ace, verður
frumsýnd fyrr en
áætlað var eða
31. október.
Framleiðendur
myndarinnar
greindu frá
þessu í liðinni
viku en myndin er sú 22. um njósn-
ara hennar hátignar og önnur
myndin með Daniel Craig í hlut-
verki naglans. Fyrri frumsýning-
ardagur var 7. nóvember en nú hef-
ur frumsýningu verið flýtt um viku.
Þetta hljóta að vera gleðifréttir fyr-
ir Bond-aðdáendur og spurning
hvort frumsýning myndarinnar hér
á landi verður fyrr en ætlað var
einnig. Handrit myndarinnar er
unnið upp úr smásögu Ians Flem-
ings sem ber sama nafn og myndin.
Tökum á myndinni er lokið í Pan-
ama og Bandaríkjunum en tökur
hófust í janúar sl. Einnig verður
tekið upp í Chile, Austurríki og á
Ítalíu. Að þessu sinni leitar Bond
mannsins sem bar ábyrgð á dauða
unnustu hans í síðustu mynd.
Frumsýnd
í október
Olga Kurylenko
Bond-stúlka.