Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 0 8 Eftir Andra Karl og Ásgeir Ingvarsson KARLMAÐUR á sjötugsaldri beið bana í umferðarslysi á Suðurlands- vegi í Ölfusi, á móts við Hvammsveg við Gljúfurárholt, á áttunda tímanum í gærmorgun. Á rétt rúmu ári hafa orðið þrjú banaslys á vegarkaflanum milli Hveragerðis og Selfoss. Í öllum tilvikum var um framanákeyrslu að ræða. Svæðisstjóri Vegagerðarinnar telur raunhæft að ætla að tvöföldun vegarkaflans hefjist í fyrsta lagi eftir tvö ár. Slysið varð með þeim hætti að pall- bifreið sem ekið var vestur Suður- landsveg fór yfir á rangan vegarhelm- ing og framan á vinstra horn vöru- bifreiðar sem kom á móti. Ökumanni vörubílsins tókst að beygja frá og lenti pallbifreiðin á litlum sendibíl sem ekið var á eftir vörubifreiðinni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- Biður Lögreglan á Selfossi alla þá sem vitni urðu að slysinu að hafa sam- band í síma 480-1010. Hættulegur vegarkafli Frá árinu 2002 hafa þrír látist í um- ferðarslysum á veginum milli Hvera- gerðis og Selfoss og sjö slasast alvar- lega. Lengi hefur verið kallað eftir tvöföldun vegarins en einhver bið verður á því. Fyrsti áfangi tvöföldun- ar er nefnilega frá Litlu kaffistofunni að Hveragerði. Þykir mörgum það skjóta skökku við, þar sem fleiri slys verða á vegarkaflanum frá Rauða- vatni og upp að Litlu kaffistofunni sem og á milli Hveragerðis og Selfoss. Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur þá mælst til þess að aksturs- stefnur verði aðskildar en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er vegurinn of mjór til þess, auk þess sem vegtengingar eru of margar. Engin tvöföldun í bráð  Karlmaður lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi, milli Hveragerðis og Selfoss  Þrír hafa látist og sjö slasast alvarlega í slysum á vegarkaflanum frá árinu 2002                  ! "# "   $"# %"   & &  !                            '        !   "               (        !    ))         '  "#   &   ( " ) *     !      "  #        $  % &  "  ' (   "     %      %% #          $    !   ) *  $% +      ,  (-    .' /%        $     +"" &  01 )        ) (  !% (  2  &' () ' &' (&' &'  ' ins er grunur um að ökumaður pall- bílsins hafi sofnað undir stýri. Áreksturinn var mjög harður og kastaðist sendibifreiðin út fyrir veg. Ökumaður hennar var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysa- deild Landspítalans þar sem hann var úrskurðaður látinn. ANDRÉS Magn- ússon hefur ákveð- ið að láta af störf- um sem fram- kvæmdastjóri FÍS, Félags íslenskra stórkaupmanna. Tilkynning þess efnis hefur verið send félagsmönn- um. Andrés segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi alltaf legið fyrir af hans hálfu að hann myndi láta af störfum eftir að aðalfundur FÍS ákvað að samþykkja ekki að ganga til sameiningarvið- ræna við Samtök verslunar og þjón- ustu. Hann segir breytinguna vera gerða í friði og sátt og að hann muni láta af störfum í lok maí. Andrés segist munu hafa starfað hjá FÍS í 61⁄2 ár þegar hann lætur af störfum. Andrés hættir hjá FÍS Andrés Magnússon „Breytingin var gerð í friði og sátt“ Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is FÆREYSKUR dómstóll dæmdi Birgi Pál Marteinsson í gærkvöldi til sjö ára fangelsisvistar fyrir vörslu fíkniefna. Jafnframt verður honum vísað úr landi að lokinni afplánun og bannað að snúa aftur til Færeyja. Birgir Páll var dæmdur fyrir aðild sína að Pólstjörnumálinu sem fólst í smygli á um 40 kg af sterkum fíkni- efnum til Íslands með viðkomu í Fær- eyjum. Einnig var hann dæmdur fyr- ir vörslu fíkniefna en við húsleit hjá honum höfðu fundist 782 grömm af amfetamíni og 982 grömm af e-töflum, en fíkniefnin voru hluti af farmi skútunnar, að sögn Dimma- lætting. Birgir Páll hefur setið í gæsluvarð- haldi í rúma 200 daga, þar af 170 daga í einangrun. Uni Birgir Páll ekki niðurstöðu færeyska dómstólsins getur hann áfrýjað til Hæstaréttar í Kaup- mannahöfn. Höfðu aðstandendur Birgis Páls búist við mun vægari dómi. Í Færeyjum eru ströng viður- lög við fíkniefnabrotum og þykja dómar í sambærilegum málum iðu- lega vægari í Danmörku. Birgir Páll hefur verið látinn hefja afplánun án tafar. Harðast að yfirgefa eyjarnar Eftir dómsúrskurðinn sagði Birgir Páll við blaðamenn að sér þætti harð- asta refsingin að þurfa að yfirgefa Færeyjar þar sem honum þætti hann eiga heima og ætti sitt skyldfólk. Sá sem þyngstan dóm hlaut í Pól- stjörnumálinu á Íslandi hlaut 9½ árs fangelsisdóm, fyrir að skipuleggja flutninginn og skipta verkum með sökunautum sínum sem hlutu 7 og 7½ árs dóma. Hlýtur sjö ára fang- elsi í Færeyjum „ÉG HEF sagt það í fjöldamörg ár, að löngu tíma- bært sé að leggja fjórar akreinar á milli Selfoss og Hveragerðis. Að hluta til er veg- urinn að verða eins og Mikla- braut á góðum degi,“ segir Ólaf- ur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi. Hann telur að skoða eigi al- varlega að grípa til bráðabirgða- aðgerða á vegarkaflanum. Ólafur segir brýnast að byrja að laga vegarkaflann á milli Hvera- gerðis og Selfoss og því næst frá Rauðavatni og upp að Litlu kaffi- stofunni. Að endingu má svo laga veginn þar á milli. „Mín skoðun hef- ur ekki breyst við þetta slys og ef vandamálið er að leysa þurfi skipu- lagsmál, þá setur þetta slys og tvö alvarleg slys á síðasta ári vonandi aukinn þrýsting á sveitarstjórnir og skipulagsyfirvöld.“ Löngu orðið tímabært Ólafur Helgi Kjartansson VÖRUBÍLSTJÓRAR hafa rætt um að loka höfuðborgarsvæðið af, fái þeir ekki skýr svör á fundi sínum með fulltrúum fjármálaráðherra næstkomandi þriðjudag. Aðgerðin gengur undir nafninu „stóra stopp“ og felst m.a. í því að loka aðalsam- gönguæðum til og frá höfuðborg- arsvæðinu, auk einhverra gatna- móta. Er þá ekki rætt um tíma- bundna lokun, líkt og áður. Aðgerðir fara eftir svörum Spurður um aðgerðina segir Sturla Jónsson, talsmaður vörubíl- stjóra, að hún hafi vissulega verið rædd innan hópsins en engin tíma- setning eða eiginleg útfærsla hafi verið ákveðin. „Menn vilja fá svör og svo verður séð til hvað verður gert. Það fer eftir því hvernig svör- in verða,“ segir Sturla sem vill fá tímasetningar á aðgerðir stjórn- valda. Bílstjórar ræða um „stórt stopp“ SLÖKKVILIÐSMENN í Flóahreppi þurftu í gær að fást við erfiðan sinubruna. Eldurinn hafði verið kveiktur á bænum Gerðum síðdegis og fengin til þess tilskilin leyfi. Vindátt var hins vegar sterk svo eldurinn barst yfir skurði og breiddi úr sér. Um tíma var hætta á að eldur bærist í íbúðarhús í nágrenni Lækjarbakka og var eldurinn í aðeins 30 metra fjarlægð. Bændur aðstoðuðu með mykjuvélum við slökkvistörf en hægt gekk að ráða niðurlögum eldsins þar sem svæðið er illa aðgengilegt. Morgunblaðið/Guðmundur Karl Mátti litlu muna TALIÐ er að um þúsund lítrar af dísilolíu hafi farið í sjóinn í Sunda- höfn í gær. Olían kom úr flutninga- skipinu Laxfossi og myndaðist um 800 fermetra olíuflekkur. Sérstakir gámar með mengunar- varnabúnaði voru færðir á staðinn og dælur notaðar, auk bíla frá Hreinsi- tækni, til að ná upp olíumenguðum sjó. Þá var báti hafnsögumanns siglt um svæðið og dreift úr honum nið- urbrotsefnum á smærri olíuflekki. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu virðist sem fuglalíf á svæðinu hafi ekki orðið fyrir skaða af lekanum. Olíulekinn mun hafa stafað af bil- un í búnaði og hafði tekist að stöðva lekann þegar slökkvilið kom á vett- vang en tilkynning barst kl. 14.34. Þúsund lítrar af olíu láku í Sundahöfn Hreinsunarstörf gengu fljótt og vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.