Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 17 ERLENT Aðalfundur Dagskrá: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári 4. Ákvörðun um lækkun hlutafjár með niðurfellingu eigin bréfa 5. Ákvörðun um hækkun hlutafjár með útgáfu jöfnunarhlutabréfa 6. Kosning bankaráðs 7. Kosning endurskoðenda 8. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði allt að 10% af eigin bréfum 9. Tillögur um breytingar á samþykktum 10. Tillaga um Starfskjarastefnu Landsbanka Íslands hf. lögð fram til endurstaðfestingar 11. Tillaga bankaráðs um framlag í Menningarsjóð Landsbanka Íslands hf. fyrir árið 2008 og um breytta skipulagsskrá Menningarsjóðs Landsbanka Íslands hf. lögð fram til samþykktar 12. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil 13. Önnur mál, löglega fram borin Landsbanka Íslands hf. verður haldinn á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 23. apríl 2008 kl. 16.00 ÍS L E N S K A S IA .I S L B I 41 97 5 04 /0 8 Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal skriflega um framboð til bankaráðs eigi síðar föstudaginn 18. apríl kl. 16. Dagskrá, endanlegar tillögur, skýrsla bankaráðs, ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endur- skoðenda liggja frammi í Aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hlut- höfum til sýnis viku fyrir aðalfund. Á sama stað munu upplýsingar um framboð til bankaráðs liggja frammi tveimur dögum fyrir aðalfund. Einnig er hægt að nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is Gerð er tillaga um að aðalfundur samþykki lækkun hlutafjár Landsbankans um kr. 300.000.000.- að nafnvirði með niðurfellingu á eigin hlutum Landsbankans. Jafnframt er gerð tillaga um að aðalfundur samþykki hækkun hlutafjár með útgáfu jöfnunar- hluta um kr. 300.000.000.- að nafnvirði. Gerðar eru eftirfarandi tillögur um breyt- ingar á samþykktum félagsins; að aðalfundur samþykki heimild til hækkunar hlutafjár Landsbankans um allt að kr. 1.200.000.000, með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum vegna nýju hlutanna, skv. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Gerð er tillaga um orðalagsbreytingu í 2. máls. 4. mgr. 7. gr. samþykktanna, að arður skuli greiddur þeim sem skráðir verða í hlutaskrá eftir að uppgjör viðskipta við lok aðalfundardags hefur farið fram. Þá er gerð tillaga um að aðalfundur samþykki heimild til útgáfu breytanlegra skuldabréfa um allt að kr. 60.000.000.000.- og jafnframt hækk- un hlutafjár um allt að kr. 1.500.000.000.- að nafnverði í tengslum við slíka útgáfu. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til nýrra hluta vegna breytanlegra skuldabréfa, skv. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Loks er gerð tillaga um að ný málsgrein bæt- ist við 11. gr. samþykktanna um heimild til rafrænna samskipta við hluthafa. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við inngang í upphafi fundar. Hluthöfum er gefinn kostur á að greiða atkvæði um tillögur á dagskrá aðalfundar með rafrænum hætti, sjá nánar á heimasíðu Landsbankans, www.landsbanki.is Hluthöfum er bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn. Nánari upplýsingar gefur Gunnar Viðar, forstöðumaður Lögfræðiráðgjafar, í síma 410-7740. HÆTTA er á, að fæðuframboð hundraða milljóna manna víða um heim sé í voða vegna mikillar ofveiði, loftslagsbreytinga og mengunar. Kom það fram á ráðstefnu um þá vá, sem steðjar að heimshöfunum, en í sjóinn sækja menn fimmtung alls próteins, sem þeir þurfa. Á ráðstefnunni, sem lauk í gær í Hanoi í Víetnam, kom fram, að 75% allra fiskstofna væru ýmist ofveiddir eða hefðu orðið fyrir rányrkju. „Sóknin í fiskinn er mikil og mis- kunnarlaus en heimsaflinn getur ekki aukist meira,“ sagði Steven Murawski hjá bandarísku haffræði- og loftslagsstofnuninni en heimsafl- inn hefur nú um nokkurt skeið verið óbreyttur eða um 100 milljónir tonna á ári. Fiskinum sópað upp Fram kom, að fjöldi fiskiskipa væri alltof mikill en vegna þess, að 64% heimshafanna eru utan lögsögu einstakra ríkja, væri erfitt að ná alþjóðlegu sam- komulagi um að stöðva ólöglegar veiðar. „Þetta er eins og í villta vestr- inu. Þótt fjöldi þessara „sjóræn- ingjaskipa“ sé ekki mjög mikill, þá geta þau í krafti tækninnar sópað upp fiskinum,“ sagði einn þátttak- endanna. „Aðeins verðmætasti fisk- urinn er hirtur, öðru kastað aftur í sjóinn. Sóunin er óskapleg.“ Það er ekki aðeins ofveiði, sem ógnar sjónum, heldur einnig gífurleg mengun, sem berst í hann með ám og fljótum. Eru margir svartsýnir á framtíðina og telja, að fátt geti kom- ið í veg fyrir, að heimshöfin „deyi“. Það muni síðan kippa fótunum und- an okkar eigin tilveru. Framtíð heims- hafanna í óvissu Fimmtungur pró- teinsins er fiskur. Hætta á að fæðuframboð stórminnki YFIRVÖLD á Norður-Indlandi hafa bannað sölu á ódýrum hárlit- unarvökva vegna þess, að mörg dæmi eru um, að skuldugir bændur hafi stytt sér aldur með því að drekka hann. Á Indlandi býr 1,1 milljarður manna og tveir þriðju þeirra lifa af landbúnaði. Hafa þeir fæstir notið góðs af uppganginum í efnahagslíf- inu og síðan hafa bæst við nátt- úruhamfarir, til dæmis miklir þurrk- ar í ríkinu Uttar Pradesh. Þar hafa monsúnrigningarnar brugðist að mestu í fjögur ár samfleytt. Í ör- væntingu sinni hafa ófáir bændur fyrirfarið sér með áðurnefndum hár- litunarvökva. Ef hann er drukkinn veldur hann bráðri nýrnabilun og dauða. „Landið er eins og eyðimörk yfir að líta. Fólk er farið að flýja héðan í stórum stíl, einkum unga fólkið en eftir sitja börn, konur og gam- almenni,“ sagði Rajiv Agarwal, háttsettur embættismaður í Uttar Pradesh. Banvænn hárlitur FUNDIST hefur á Borneó í Indó- nesíu áður óþekkt froskategund og það, sem mesta athygli vekur, er, að hún er lungnalaus. Lungun þróuðust eftir að sjáv- ardýrin skriðu á land en talið er, að froskurinn nýfundni hafi snúið þró- uninni við vegna þess, að hann lifir í köldum ám og lækjum. Kalt vatn er súrefnisríkara en heitt og í því er auðveldara að anda með húðinni. AP Nýlundan Froskurinn er lungna- laus og líka flatur eins og smákaka. Lungnalausi froskurinn SABEEL Ahmed, indverskur lækn- ir sem starfaði í Bretlandi, var í gær dæmdur i 18 mánaða fangelsi fyrir að hylma yfir samsæri sem endaði með misheppnaðri sjálfsvígsárás á Glasgow-flugvelli í fyrra, að sögn The Guardian. Ahmed fékk rétt fyrir árásina sms-skeyti frá bróður sínum, Kafeel Ahmed, sem sagðist ætla að fórna lífi sínu í sjálfsvígsárás en bað Sabeel að þegja um málið. Hann ætti að segja öllum að Kafeel væri „á Íslandi þar sem hann ynni að verkefni er snerti hlýnun loftslagsins“. Einnig vissi Sabeel Ahmed hverjir myndu taka þátt í árásinni en skýrði ekki yfir- völdum frá vitneskju sinni. Kafeel Ahmed ók bíl með sprengiefni inn í flugstöðina en sprengjan sprakk ekki. Bíllinn brann og lést Kafeel Ahmed síðar af völdum brunasára. Reuters Hylmdi yfir hryðju- verki í Glasgow Rannsókn Breskir lögreglumenn með brunnið flak Cherokee-jeppa Kafeels Ahmeds eftir tilræðið misheppnaða í Glasgow í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.