Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 18
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Hönnuðurinn Chuck Mack. ÍSLENSK-bandaríski trélistamað- urinn og hönnuðurinn Chuck Mack hlýtur hin alþjóðlegu Red Dot- hönnunarverðlaun að þessu sinni fyrir borð sem hann kallar Table 29. Borðið mun vera umhverfisvæn hönnun og tæknileg nýjung í hús- gagnasmíðinni. Nánari upplýsingar um borðið má finna á heimasíðunni chuckmackdesign.com. Red Dot-verðlaunin hafa verið veitt á hverju ári frá 1955, en að þessu sinni bárust 3.203 hugmyndir frá 51 landi í keppnina. Verðlaunin verða veitt í Essen í Þýskalandi hinn 23. júní í sumar. Hönnunar- verðlaun til Íslands Chuck Mack hlýtur Red Dot-verðlaunin 18 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING PÓLSK menning verður í öndvegi í Reykjanesbæ í dag. Kl. 11 hefst dagskrá í Heið- arskóla, en það er hópur pólskra íbúa í bænum sem sér um hana. Í frétt um menningarhátíð- ina segir: „Pólland hefur vakið athygli fyrir fallegt landslag, ríka menningu og spennandi matarhefð,“ og matur og drykkur er einmitt það sem í boði verður. Þetta er sjötta kynningin á vegum Fjölmenningarnefndar Reykjanesbæjar og önnur kynningin á tilteknu landi. Gert er ráð fyrir að dagskráin standi frá kl. 11 til 13 og allir eru velkomnir. Menning Pólland í máli, mat og myndum Frá Reykjanesbæ. JÓHANNES Dagsson opnar myndlistarsýninguna Stöðu- myndir í DaLí galleríinu á Akureyri í dag kl. 17. Efnivið sinn sækir Jóhannes í tvö af fyrirferðarmeiri menningar- fyrirbærum liðinnar aldar, módernisma og fótbolta. Stöðumyndir er ellefta einka- sýning Jóhannesar og á hann einnig að baki þátttöku í fjöl- mörgum samsýningum. Jóhannes lauk myndlistarnámi frá Myndlistaskólanum á Ak- ureyri 1997 og námi í heimspeki og bókmenntum frá Háskóla Íslands 2000. Hann lauk myndlistar- prófi frá Edinburgh College of Art árið 2002. Myndlist Heimspekilegur fótbolti á striga Jóhannes Dagsson: Miðjuspil. ÞJÓÐLEGU heimstón- listarmennirnir og slagverks- kóngarnir Steingrímur Guð- mundsson og Sigtryggur Baldursson mynda saman hljómskrímslið Steintrygg. Steintryggur verður í versl- unum Eymundssonar í dag, með trumbur og gjöll, og bregður á leik fyrir gesti og gangandi. Steintryggur var að gefa út nýja plötu, Tröppu, sem skartar að sögn Steintryggs „skrýtnasta plötuumslagi samtím- ans“. Uppákomur Steintryggs steinliggja sem hér segir: kl. 15 í Austurstræti, kl. 16 í Kringlu og kl. 17 í Holtagörðum. Tónlist Hljómskrímslið Steintryggur ýlfrar Steintryggur Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÉG hef eilífðina fyrir mér,“ segir Jón Stef- ánsson kórstjóri hróðugur þegar blaðamaður hringir til að forvitnast um tónleika og nýja plötu eins af mörgum kórum Langholtskirkju, Graduale Nobili. „Ég sit uppi á Stíflisdalsvatni í glampandi sól og er að dorga gegnum ís. Ég er kominn með í soðið – þriggja punda urriða. Þetta er góð útivist og fer mjög vel með kór- stjórn,“ segir Jón. „Hér getur maður setið og íhugað, þetta er paradís í svona góðu veðri.“ Og Paradís er einmitt það sem við vildum ræða við Jón; nánar tiltekið nýja platan sem heitir In Paradisum. Þar er að vísu ekki átt við fegurðina við Stíflisdalsvatn heldur heitir plat- an eftir síðasta verkinu; lokaþætti Sálumessu eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson. „Nafnið gefur svolítið tóninn; þetta eru mestmegnis andleg verk,“ segir hinn íhugandi veiðimaður. „Til Paradísar leiði þig kór englanna.“ Miklar tónlistarkonur í kórnum Englakór sá sem syngur í Langholtskirkju á morgun, Graduale Nobili, var stofnaður haustið 2000. Hann er skipaður ungum stúlkum, völdum úr hópi þeirra sem sungið hafa með Gradualekór Langholtskirkju. Flestar þessara stúlkna eru og hafa verið í öðru tónlistarnámi. Þær eru farnar að sjást víðar í tónlistarlífinu, með fiðlu við vanga; og jafnvel á sviði Íslensku óperunnar, vaxnar upp úr kórstarfinu. „Ég man ekki hve margar af stelpunum eru nú í tónlistarnámi erlendis, en þar af eru fimm eða sex í söngnámi.“ Öll verkin á Paradísarplötunni eru íslensk, og sum þeirra samin fyrir kórinn. Eitt er sam- ið sérstaklega fyrir þetta tilefni. „Við frum- flytjum verk eftir Mamiko Dís Ragnarsdóttur, en það er jafnframt lokaverkefni hennar úr tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands. Þetta er spennandi og skemmtilegt verk, Japönsk sálu- messa, sem hún semur við texta afa síns, og þar leikur tíu manna hljómsveit með okkur,“ segir Jón. Verkin sem ekki eru kirkjuleg eru Barnagæla eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Vókalísa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. „Það hefur margt verið samið fyrir okkur, en við er- um ekkert að drukkna í nýjum verkum. Þetta kemur reglulega, og stundum berum við okkur eftir björginni. Stærsta verkið núna er Vesper eftir Tryggva M. Baldvinsson og tekur næstum 40 mínútur í flutningi.“ Jón segir að efni plötunnar og tónleikanna gefi góðan þverskurð af því sem Graduale no- bili hafi sungið á síðustu árum. Á tónleikunum verði þó ekki allt sungið sem á plötunni er. Graduale nobili var tilnefndur til Íslensku tón- listarverðlaunanna fyrr á árinu. Graduale Nobili syngur í Langholtskirkju á morgun kl. 17 í tilefni af plötuútgáfu Kórstjóri á ís býður til Paradísar Graduale Nobili Með verki Mamiko Dísar Ragnarsdóttur leikur tíu manna hljómsveit. Morgunblaðið/Ómar BÚIST er við því að metfé muni fást fyrir málverk eftir breska lista- manninn Lucian Freud á uppboði í New York í maí. Talið er að á bilinu 25 til 35 milljónir dollara muni fást fyrir verkið, sem nemur frá 1,8 til 2,6 milljarða íslenskra króna, en það yrði hæsta verð sem nokkurn tímann hefur verið greitt fyrir verk eftir núlifandi listamann. Verkið er frá árinu 1995 og nefnist Benefits Supervisor Sleeping. Fyrra metið í þessum „flokki“ á verkið Hanging Heart eftir Jeff Koons sem seldist á 23,6 milljónir dollara í fyrra. Metfé fyrir mynd Freuds? ÓLAFUR Lárusson myndlistar- maður opnar í dag sýningu í Reykjavík Art Gallery. Þar sýnir hann verk unnin með akrýl- og vatnslitum á pappír sem hann flokkar sem abstrakt expressjón- isma. „Ég get kannski orðað það þann- ig að þetta séu djass- eða blúsmel- ódíur. Ég hlusta mikið á tónlist á meðan ég vinn,“ segir Ólafur. Þetta er fyrsta stóra sýning hans í þó nokkurn tíma, en á sýningunni verða myndir sem hann hefur unnið síðustu tvö árin. Hefur komið víða við Ólafur lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1974 og Atelier ’63 í Hollandi tveimur árum síðar. Hann kenndi við Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands á ár- unum 1976 til 1980 og starfaði mik- ið að félagsmálum listamanna og var til dæmis einn af stofnfélögum Nýlistasafnsins. Sýningin verður opnuð klukkan tvö í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 28 og eru allir boðnir velkomnir. Ólafur Lárusson sýnir í Reykjavík Art Gallery Djass og blús á pappír Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Músíkalskur „Ég hlusta mikið á tónlist á meðan ég vinn,“ segir Ólafur. EINAR Hákonarson listmálari opn- ar málverkasýninguna Vegferð í Sætúni 8, þar sem kaffibrennslan Ó. Johnson og Kaaber var áður til húsa, kl. 14 í dag. Löngum hefur verið sagt að lista- menn spegli tíma sinn með einum eða öðrum hætti og atburðir í þjóð- lífinu, samferðafólk og ekki síst náttúran í sinni margbreytilegu mynd er efniviður sýningar Einars sem verður opin daglega frá kl. 12.00 – 18.00 til 28. apríl næstkom- andi. Aðgangur er ókeypis. Málsvari málverksins „Einar Hákonarson hefur verið einn af okkar fremstu listmálurum í yfir 40 ár,“ segir í fréttatilkynn- ingu. „Líf hans og list eru samofin íslenskri listasögu. Hann hefur ávallt verið kraftmikill málsvari málverksins í menningarmálum á Íslandi. Nægir að nefna störf hans sem skólastjóra MHÍ, listráðunauts Kjarvalsstaða og einkaframtakið með Listaskálanum í Hveragerði, sem var hvatinn að menningar- húsum á landsbyggðinni. List Einars hefur ávallt verið fígúratíf og hlaðin tilfinningu (ex- pressjónisma). Teikning og mynd- bygging, eitt aðalsmerki lista- mannsins, kallast á við lausari form og litagleði í verkum hans,“ segir ennfremur. Frekari upplýsingar um lista- manninn má finna á heimasíðu hans á netinu: www.einarhakonar- son.com. Vegferð málara Einar Hákonarson opnar sýningu í húsi Ó. Johnson og Kaaber í Sætúni Fundurinn Eitt verka Einars. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.