Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 37 Árni gat verið kröfuharður en aldrei ætlaðist hann til meira af öðrum en hann var sjálfur tilbúinn að leggja á sig. Hann var hrein- skiptinn og ekki vorum við alltaf sammála, skárra væri það, en far- sælt var samstarf okkar alla tíð. Eljusemi Árna var viðbrugðið og fyrir slíka einstaklinga er nauðsyn- legt að eiga góðan stuðning. Þann stuðning fékk hann hjá sínum trausta lífsförunaut, sem alltaf var til staðar eins og fjölskyldan öll sem hann sýndi gagnkvæma ræktar- semi. Til þeirra leitar nú hugurinn í bæn um guðsblessun á kveðju- stundu. Árni er af vandalausum mesti áhrifavaldur á lífsbraut minni. Við Ásta kveðjum vin okkar með þakklæti en söknuði. Albert Eymundsson. Kæri Árni, mágur, samstarfs- maður og vinur! Nú er leiðir skilur og komin er kveðjustund þá er efst í huga inni- legt þakklæti fyrir gott samstarf og vináttu þau 50 ár sem fjölskyldur okkar hafa átt samleið og aldrei orðið sá misskilningur sem ekki var hægt að leysa. Því segi ég: Far vel vinur. „Fljúgðu á vængjum morgunroð- ans, meira að starfa guðs um geim.“ Með innilegum kveðjum Ólöf Sverrisdóttir og börn. Okkur langar að minnast Árna Stefánssonar í fáeinum orðum. Fyrst kynntumst við Árna þegar við gengum í barnaskólann. Þar tók Árni skólastjóri á móti okkur, hlýr, brosleitur og hjálpaði til við að hengja upp yfirhafnir af unga fólk- inu sem var að stíga sín fyrstu skref á skólagöngunni. Árin með Árna sem skólastjóra og kennara var yndislegur tími og fór hann yfirleitt með okkur út í frí- mínútur og stjórnaði leiknum. Hann hafði gaman af söng og stjórnaði hann fjöldasöng á morgn- ana og voru allir látnir syngja eitt til tvö lög úr skólaljóðunum. Það var eftir Árna tekið þar sem hann fór, röggsamur og fasmikill, hann var jú foringi þar sem hann var. Við vorum svo heppnar að fá vinnu á hótelinu hjá þeim Árna, Svövu og Ólöfu á unglingsárum okkar. Þau voru okkur góðir vinnuveit- endur og eigum við þaðan margar góðar og ógleymanlegar minningar. Mikil vinna og mikið hlegið. Einnig urðum við þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að hafa hann Gauta litla mikið í kringum okkur á hans fyrstu árum. Það var stórt skarð höggvið í barnahópinn þegar Árni Stefán féll frá í ágúst 2006. Það er með mikilli þökk og virð- ingu sem við kveðjum Árna. Svöfu, börnum, tengdabörnum, barnabörnum, barnabarnabarni og öðrum ástvinum er vottuð einlæg samúð. Guðný og Laufey Helgadætur. Við kveðjum nú Árna Stefánsson, fyrrverandi hótelstjóra, ferðamála- frömuð og frumkvöðul í ferðaþjón- ustu á Íslandi. Ég kynntist Árna fljótlega eftir að ég flutti til Hornafjarðar síðla árs 1978. Í fyrstu voru samskipti okkar á sviði sveitarstjórnarmála en Árni var þá í hreppsnefnd Hafnar og ég nýráðinn sveitarstjóri Nesja- hrepps. Það var svo í ársbyrjun 1982 að ég kom að máli við Árna og spurði hvort hann sæi einhvern flöt á að halda 4 daga 350-400 manna þing á Höfn því að ég hafði hug á að bjóðast til að halda Landsþing Junior Chamber á Íslandi á Horna- firði í maí 1983 en þá var ég forseti félagsins á Höfn. Hann svaraði því til að það yrði bara að ganga upp enda kjörið tækifæri til að koma Höfn á kortið sem funda- og ráð- stefnustað. Þessi jákvæða afstaða Árna um að halda svona stórt þing segir allt sem segja þarf um áræði hans og kjark. Flestum þótti þetta ógjörningur á þessum tíma þar sem hvorki var til gisting, fundarað- staða, veitingaaðstaða eða annað sem þurfti fyrir slíkan fjölda á Hornafirði. Hann hófst þegar handa við undirbúninginn. Breyta þurfti fyrstu hæð hótelsins og gera þar veitingasal.Útvega þurfti aukið gistirými fyrir ca. 200 manns. Einn- ig ráðstefnusal og sal fyrir um 400 manna lokahóf ásamt fjölmörgu öðru. Við allan þennan undirbúning og framkvæmd Landsþingsins sem stóð yfir í um eitt og hálft ár var Árna ekkert ómögulegt og metn- aður hans var ótrúlegur. Allt var gert af mikilli fagmensku og vand- virkni og enn þann dag í dag minn- ast gamlir JC félagar Landsþings- ins á Höfn sem besta þings sem þeir hafa verið á og lofa Árna og starfsfólks hótelsins fyrir frammi- stöðuna. Með þessu hófst 15 ára ná- ið samstarf okkar í ferðaþjónustu. Árin 1985-1996 voru miklir upp- gangstímar í ferðaþjónustunni í Austur-Skaftafellssýslu sem urðu að stórum hluta fyrir frumkvæði og tilstuðlan Árna. Þar má nefna stofnun Ferða- málafélags A-Skaftafellssýslu og Ferðamálasamtaka Austurlands. Stofnun hlutafélags um rekstur Jöklaferða og uppbygginguna á Vatnajökli. Uppbygging á nýju tjaldstæði og þjónustumiðstöð á Höfn. Þátttaka í Vestnorden ferða- kaupstefnunum svo fátt eitt sé talið. Ég lærði margt af Árna enda ráða- góður, rökfastur, ákveðinn, hug- myndaríkur og jákvæður. Við vor- um ekki alltaf sammála en það risti ekki djúpt og og spillti aldrei vinátt- unni. Hann var einn besti sam- starfsmaður og vinur sem ég hef átt. Það var ekki einungis að Árni væri áhrifavaldur varðandi störf mín í ferðaþjónustu heldur einnig í einkalífinu en konuna mína Elvu hitti ég fyrst á Hótel Höfn síðla sumars 1985. Hún var þá að heim- sækja vinkonu sína, kennaraskóla- nema sem Árni hafði ráðið í sum- arvinnu á hótelið. Það er sannarlega dýrmætt að hafa átt vináttu Árna og Svövu sem svo oft var sýnd í verki eins og þeg- ar við fjölskyldan vorum að byggja á Höfn og urðum húsnæðislaus í nokkrar vikur og ekki var annað tekið í mál en að við gistum á svít- unni á Hótel Höfn á meðan. Við Elva þökkum Árna samfylgd- ina og sendum Svövu og fjölskyld- unni okkar dýpstu samúðarkveðjur. Tryggvi Árnason. Bekkjarbróðir okkar Árni Stef- ánsson hefur kvatt þessa jarðvist. Þeim fækkar sem útskrifuðust kennarar frá Kennarskóla Íslands vorið 1951. Árni var einn í þeim glaðværa hópi. Bekkurinn sem í voru 32 nemendur var saman settur af nemendum á misjöfnum aldri eins og þá var algengt í Kenn- araskólanum. Tíu ára aldursmunur var á þeim elsta og yngsta. En þrátt fyrir það stóð hópurinn þétt saman. Flestir nemendurnir voru utan af landi. Árni kom austan úr Breiðdal. Það var fljótt augljóst hve auðvelt hann átti með að samlagast öðrum því hann var svo félagslyndur. Í svona stórum hópi myndast alltaf einhver kjarni sem heldur meira saman en heildin. Árni var í þeim kjarna. Hann var alltaf tilbúinn til þátttöku, var góður íþróttamaður, einkum leikfimimaður og flinkur dansari. Slíkt er oftast til vinsælda fallið. Honum sóttist námið vel enda í eðli sínu harðduglegur. Hann var skemmtilegur félagi sem hlakkaði til að láta til sín taka á nýjum vett- vangi. Að kennaranámi loknu flutt- ist hann heim í sitt hérað og hóf þar kennslu. Hann kenndi bæði í Breið- dal svo og á Höfn þar sem hann var skólastjóri til margra ára. Síðan gerðist hann frumkvöðull í upp- byggingu ferðaþjónustu í Austur- Skaftafellssýslu og hótelhaldari til margra ára. Það var okkur bekkj- arsystkinunum mikið ánægjuefni að fylgjast með Árna, þeim krafti sem frá honum geislaði. Síðustu árin höfum við bekkjarsystkinin hist ár- lega ásamt mökum. Árni og Svava voru dugleg að taka þátt í því. En á síðasta ári treysti Árni sér ekki vegna sjúkleika að koma þegar við hittumst í Stykkishólmi. Við munum sakna hans þegar við hittumst á komandi vori en við þökkum kynnin, samveruna við góð- an dreng sem vann sínu héraði vel. Við minnumst með ánægju gömlu góðu skóladaganna. Svövu og börn- um þeirra og öðrum afkomendum sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Árna. Fyrir hönd bekkjarsystkina, Kári Arnórsson. Þegar ég flutti til Danmerkur haustið 2005 gerði ég mér grein fyrir því að ég væri að kveðja suma samferðamenn mína í hinsta sinn. Einn af þessum samferðamönnum mínum er kær vinur minn Árni Stefánsson. Mín fyrstu kynni af Árna voru þegar ég fékk vinnu hjá honum á Hótel Höfn sumarið 1980 en þá var ég bara 16 ára. Ég fékk vinnu við að þrífa herbergin og var þar í góðu uppeldi hjá þeim systrum Svövu, konu Árna, og Ólöfu. Þetta var mín fyrsta vinna fyrir utan að hafa verið í vinnu hjá Kaupfélaginu í fisk- vinnslu. Betra start út í lífið hefði ég ekki getað hugsað mér þegar ég lít til baka. Þarna fékk ég undistöðu í kennslu sem jafnast á við góðan heimavistarskóla því að verkefnin á hótelinu eru jú eins og að halda stórt heimili. Þær voru góðar og þolinmóðar við mig, systurnar, og Árni var frábær kennari. Ég tengd- ist fjölskyldunni þarna á þessum tímum því að þarna voru tvær af til- vonandi tengdadætrum þeirra hjóna í sumarvinnu ásamt fleira góðu fólki. Sigurbjörg var í mót- tökunni, Árni Stefán í eldhúsinu og Gauti snattaðist um húsið eins og stormsveipur um allt. Þetta sumar var góður tími. Þegar ég kvaddi um haustið fékk ég að vita það að ég væri velkomin aftur ef ég á þyrfti að halda. Mörgum árum seinna þegar ég var búin að vera heima- vinnandi húsmóðir og langaði til að komast aðeins út á vinnumarkaðinn fór ég til Árna og innti hann eftir því hvort hann vantaði fólk því að mig langaði til að komast aðeins út af heimilinu en bara svona hálfan daginn. Jú, það var ekki vanda- málið. „Við hljótum að finna eitt- hvað handa þér að gera, Svava mín.“ Það tímabil er mér dýrmætt. Þau hjónin og Ólöf reyndar komin yfir miðjan aldur en krafturinn og eljan ennþá sá sami. Árni sýndi mér ótrúlegt traust og mikla virðingu þegar hann bað mig um að hjálpa þeim systrum við að baka fyrir ýmsar uppákomur á hótelinu og það var með stolti að ég þáði það boð því að það er ekki öllum gefið að gera eins og þær systur. Það er mér ofarlega í huga þegar Árni kom til mín eitt sinn og bað mig um að sjá um bakkelsi fyrir stóra brúð- kaupsveislu. Þegar Árni ákvað að selja Hótel Höfn fannst mér eins og fjölskyldu- vinur hefði dáið. Hvað gerist og hver getur haldið þessu áfram? kom upp í hugann því að einhvern veg- inn gat ég ekki hugsað mér neitt annað en að tríóið Árni, Svava og Ólöf stjórnuðu þessu. Þau héldu vel utan um starfsfólkið sitt og voru vinir okkar. Árni og Svava settust í helgan stein, það er að segja hættu á hótelinu en maður eins og Árni gat ekki látið vera að halda áfram að vinna, en hann var ötull í fé- lagsmálum og stjórnum og lét ekki sitt eftir liggja í þeim málum. Horn- firðingar eiga Árna mikið að þakka fyrir dugnað og elju í öllu sem að hann tók sér fyrir hendur. Síðustu minningar mínar um Árna vin minn eru þegar við í Lóninu tókum okkur saman sumarbústaðaeigendurnir eina verslunarmannahelgina og hreinsuðum meðfram veginum inn- úr. Þar kom Árni með fjölskylduna með sér og allir tóku þátt í því að safna rusli og gömlum rústum sem síðar var sett á hina árlegu brennu okkar í Stafafellsfjöllum. Þarna sem og áður gaf hann ekkert eftir þó að hann væri aldursforsetinn í hópn- um. Það með miklum trega og söknuði sem að ég kveð minn góða vin með þökk fyrir allt í gegnum tíðina. Minningin lifir. Svava Bjarnadóttir. Minn góði vinur Jó- hannes Sævar Jó- hannesson er fallinn frá okkur langt fyrir aldur fram. Mér brá þegar ég opnaði Morgunblaðið og sá að hann væri látinn, ég varð dofinn og sat um stund og horfði á myndina af þér. Þá hugsaði ég um gömlu og góðu stund- irnar þegar við skiptumst á skoð- unum um öryggismál sjómanna, hvað væri hægt að gera betur í þeim málum. Ekki stóð á honum að koma með tillögur í þeim málum enda ein- stakur persónuleiki og mjög fær á þessu sviði, hafði Jóhannes mikla þekkingu og reynslu hvernig ætti að nota hlutina og bregðast við hætt- um. Hann var sá persónuleiki sem hafði kjark og þor að gagnrýna eft- irlitsstofnanir fyrir slóðahátt og van- kunnáttu í öryggismálum sjómanna. Það var viðtal við hann í Ægi, riti Fiskifélags Íslands árið 1996, þar segir Jóhannes falskt öryggi verra en ekkert. Þetta viðtal var mjög áhugavert að lesa og kom talsverð- um umræðum af stað í kjölfarið. Margar stofnanir þoldu illa gagn- rýni hans. Fyrirtækið Prófun var fjölskyldufyrirtæki sem var með innflutning á reykköfunartækjum Interspiro, sá um skoðanir á öryggisbúnaði fyrir kafara og skip, þar á meðal á reykköfunartækjum og hylkjum fyrir gúmmíbáta. Þetta er dæmi um það sem Jóhannes starfaði við ásamt fjölskyldu sinni og vini sínum Sverri Birni Björnssyni sem starfaði með honum í sínum frí- stundum. Okkar kynni hófust fyrir 36 árum þegar við vorum hásetar á m/s Dettifossi, skipi Eimskipa- félagsins árið 1972. Þar kom vanur maður frá Slökkviliði Reykjavíkur með sína reynslu og þekkingu og ekki stóð á honum að fræða okkur um hættur ef eldur kæmi upp. Þetta var mjög skemmtileg ferð sem hann fór í því hans beið sitt starf sem slökkviliðsmaður því hann var í sum- arfríi og langaði að fræðast betur um farmennsku, hvernig lífið og til- veran væri í Hamborg. Fyrirtækið Prófun var fyrst til húsa úti á Granda og síðan frá 1994 á horninu á Ægisgötu og Geirsgötu. Þar áttum við saman mikið spjall yfir kaffibolla um daginn og veginn og oft spunn- ust upp fjörugar umræður um hvernig hlutir eiga ekki að vera. Ég man líka hvað þú varst akkúrat þeg- ar þú hengdir á skáphurðina alla skoðunarmiða en þér líkaði ekki hvernig eigendur öryggisbúnaðar stóðu að hlutunum. Sem sýndi í raun og veru að þú varst fagmaður í þínu starfi. Ég man líka þegar ég kom af sjón- um og þú sagðir að þú værir búinn Jóhannes Sævar Jóhannesson ✝ Jóhannes SævarJóhannesson fæddist í Vest- mannaeyjum 15. júlí 1941. Hann lést 20. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Háteigskirkju 3. apríl. að selja og fyrirtækið væri að fara í Kópa- voginn og þú myndir hjálpa nýjum eigend- um að koma fyrirtæk- inu af stað. Það ríkti ekki gleði yfir því en þú bentir mér á að heilsan væri númer eitt. En þetta eru stað- reyndir mála. Það er eins og máltækið seg- ir: Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Ég held að þessi orð eigi við þig kæri vinur, Jóhannes Sævar Jóhannesson. Minning þín mun lifa um ókomna tíð. Elsku Ágústa og fjölskylda, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi guð vera með ykkur öllum. Jóhann Páll Símonarson. Jóhannes Sævar Jóhannesson Jóhannes Sævar Jóhannesson fæddist í Vestmannaeyjum 15. júlí 1941. Hann lést 20. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Háteigs- kirkju 3. apríl. Elsku afi minn! Ég reyndi að skrifa minningagrein um þig en hún varð alltof löng til þess að ég gæti birt hana og ég gat ekki stytt hana þannig ég gerði bara aðra og ég ætla bara að eiga hina fyrir mig. Ég vil bara nota þessa til að þakka þér fyr- ir allt. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig sem afa og að hafa verið svona náin þér og ég vona að þú vitir að þú og Alda Lára eruð pabbi minn, besti pabbi í heimi. Þú varst alltaf svo góður við mig og ég veit eiginlega ekkert hvað ég geri án þín. Þú fórst alltof snemma og það er svo hræðilega ósanngjarnt að þú sért farinn. Ég gæfi allt fyrir að geta farið aftur í tímann og bjarg- að þér eða allvega geta sagt þér allt sem ég þarf svo mikið að segja þér núna. En ég ætla að trúa því að við hittumst aftur hinum megin þegar minn tími er kominn og þó að það verði líklega langt þangað til þá veit ég að þú tekur á móti mér þegar ég fer. Og þá verður sko gaman hjá okkur. En þangað til verð ég bara að eiga minningarnar um okkur og allt sem við gerðum saman. Ég kveð þig með laginu þínu, Bæn slökkviliðs- mannsins. Ó heyr mig Guð mitt ákall er ef eldur verður laus að megi bæn mín þóknast þér og þjónsstarf er ég kaus. Ó mæti ég lífi blessaðs barns til bjargar finna ráð og einnig sérhvers eldri manns frá eldsins voða bráð. En sé þinn vilji góði Guð að ég gisti brátt þinn fund ég bið þig konu og börnin mín að blessa alla stund. Ég sakna þín svo mikið og ég elska þig alveg ólýsanlega mikið. Þín, Jóhanna María. ✝ Við þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur vinarhug og samúð vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HREFNU MAGNÚSDÓTTUR frá Litladal, sem jarðsungin var frá Munkaþverárkirkju, laugar- daginn 5. apríl. Snæbjörg Bjartmarsdóttir, Ólafur Ragnarsson, Kristján Bjartmarsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Jónína Bjartmarsdóttir, Benjamín Bjartmarsson, Ólöf Steingrímsdóttir, Fanney Bjartmarsdóttir, Bert Sjögren, Hrefna Bjartmarsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.