Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 24
Þessi efsta hæð hér í húsinuvar ekki íbúðarhúsnæðiupphaflega. Um 1980 varannað hvort prentsmiðja
hérna eða bókaforlag,“ segir Kol-
brún Silja Ásgeirsdóttir sem keypti
sér sérlega bjarta og fallega íbúð
fyrir þremur árum í Vesturbænum.
„Mér fannst húsnæðið mjög
óspennandi utan frá séð en um leið
og ég kom hingað inn þá vissi ég að
þetta var það sem ég vildi. Þá var
þegar komið kauptilboð svo ég
hafði snarar hendur og yfirbauð til
að fá hana og sé ekki eftir því. Hún
var í mjög góðu ástandi og ég
þurfti ekki að gera mikið eða
breyta. Reyndar var engin eldhús-
innrétting heldur lausir skápar, svo
ég skellti mér í þær framkvæmdir
og eins setti ég parket á svefn-
herbergið og loftlista. Ég ætlaði að
kaupa mér stærri íbúð en ég kolféll
bara fyrir þessari. Hún er ynd-
islega opin og björt og útsýnið héð-
an er stórkostlegt. Ekki nóg með
að ég sjái Snæfellsjökul, Akrafjall
og Skarðsheiðina heldur sé ég líka
til hafs á þremur stöðum, yfir Sel-
tjarnarnesið og til fjalla í suðri.“
Ætlar til Asíu og Suður-Afríku
Kolla bjó áður í Teigahverfinu á
jarðhæð og fannst það hið besta
mál, þar til hún fór til náms í Hol-
landi þar sem hún bjó á 17. og síð-
ar á fjórðu hæð. „Þá fann ég hvað
það átti rosalega vel við mig að
vera svona hátt uppi og þegar ég
kom heim seldi ég íbúðina í Teig-
unum og leitaði eingöngu að íbúð-
um sem voru ofarlega í húsum,
helst yfir fjórðu hæð.“ Kolla er
heilluð af Hollandi og hefur búið
þar tvisvar, í bæði skiptin í námi en
hún er líka flakkari. „Mér finnst
gaman að koma á nýja staði og nú
þegar ég hef farið víða um Evrópu
þá er Japan og Suður-Afríka næst
á dagskránni. Mér fannst mjög
gaman að koma til Kúbu þegar ég
fór þangað, þar er mikil litadýrð og
fjölbreytt mannlíf,“ segir Kolla sem
kann vel við sig í Vesturbænum.
khk@mbl.is
Jöklar og fjöll Kolla sér til hafs á þremur stöðum og til Snæfellsjökuls og
margra fjalla af svölunum sínum sem og út um stofu- og eldhúsgluggana.
Brjálað útsýni
á Bræðró
Hún vildi búa hátt uppi eftir að hún kynntist því í
Hollandi. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti
unga konu á fjórðu hæð með glugga sem færa
henni himin og haf í fangið.
Kúbustemning Málverkið frá Havana sem Kolla keypti í heimsókn sinni þar setur svip á eldhúsið. Rauða rusla-
fatan og kaffikannan minna á laumu-kommann sem býr í Kollu. Hún er sérlega hrifin af stóra eldhúsborðinu sínu.
Mömmur og ömmur Móðir Kollu málaði blómamyndirnar en amma hennar saumaði út stólinn og skemilinn.
„Um leið og ég kom hing-
að inn þá vissi ég að þetta
var það sem ég vildi.“
lifun
24 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Meistaranám í haf- og
strandsvæðastjórnun
Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun
býr nemendur undir að takast á við eitt af mest
knýjandi viðfangsefnum framtíðarinnar, nýtingu
og stjórnun auðlinda.
Kennsla fer fram á Ísafirði við Háskólasetur
Vestfjarða en námsleiðin er í samstarfi við
Háskólann á Akureyri.
Nánari upplýsingar: www.hsvest.is
Umsóknarfrestur: 5. júní 2008
Í samstarfi við:
Lj
ós
m
yn
d:
Á
gú
st
G
. A
tl
as
on
dvalizt fyrir skömmu.
Það hlýtur að vera
erfitt að halda uppi
þessu þjónustustigi í
slíkri einangrun sem
hótelið er starfrækt í.
Það tekur töluverðan
tíma að aka frá
Reykjavík til Hótel
Búða enda er Snæ-
fellsnesið mikið land-
svæði og yfir því meiri
reisn en fyrirfram má
ætla. Það er því ekki
átakalaust að keyra
vestur að Búðum.
Í ljósi fjarlægðar frá
helztu þéttbýlisstöðum
hljóta umsvifin við að-
drætti til hótelrekstursins að vera
töluverð og þess vegna þeim mun
merkilegra hversu hátt þjónustu-
stigið er.
Það er ekki ódýrt að gista á Búð-
um en ef taka á mið af húsnæðinu
annars vegar og almennri þjónustu
hins vegar væri hægt að færa rök
fyrir meiri verðmun en er á Búðum
og ýmsum öðrum gististöðum á
landsbyggðinni.
Ekki þarf að lýsa umhverfi Búða
fyrir þeim sem ferðast hafa um
Snæfellsnes en að mörgu leyti er
þetta landsvæði býsna ósnortið af
„menningunni“ og í sjálfu sér um-
hugsunarvert hvers vegna það er.
Fólk virðist sækja meira á norð-
anvert Snæfellsnesið og þess vegna
hefur sunnanvert Snæfellsnesið
ekki orðið illa úti af ágangi ferða-
manna, þótt umferð á Jökulinn sé
auðvitað töluverð.
Það er ástæða til að óska þeim
sem standa að rekstri Hótel Búða
til hamingju með þann árangur sem
þar hefur náðst. Hann er til fyrir-
myndar og aðrir geta margt af því
lært sem þar er gert.
Það hefur tekiztótrúlega vel til
um uppbyggingu Hót-
el Búða á Snæfellsnesi
eftir brunann þar fyrir
nokkrum árum og
endurbyggingu hótels-
ins. Í raun og veru má
segja að þetta hótel sé
til fyrirmyndar, þegar
horft er til slíkra staða
á landsbyggðinni, og
raunar stenzt hótelið
samanburð við flest af
því bezta sem finna
má á höfuðborgar-
svæðinu.
Hönnun hótelsins
hefur tekizt einstak-
lega vel. Það er nútímalegt en um
leið hlýlegt sem ekki fer alltaf sam-
an. Þjónustan er góð og Víkverji
gat ekki betur séð en hótelið væri
nánast fullt þá helgi sem þar var
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is