Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÁHYGGJUR ALMENNINGS Almenningur á Íslandi hefurskyndilega fengið miklaráhyggjur af efnahagslegri framtíð sinni. Umræður um stöðu bankanna og einstakra stórfyrirtækja í kjölfarið á falli hlutabréfamarkaðar- ins á undanförnum mánuðum hafa vissulega orðið til þess að fólk hefur staldrað við. En sennilega hefur fátt ef nokkuð orðið til þess að skapa raunverulegar áhyggjur hjá fólki í jafn ríkum mæli og spá Seðlabankans um 30% lækkun íbúðaverðs að raun- virði til ársloka 2010. Ekki má gleyma því að þetta er spá og hún er ekki orðin að veruleika og spádómar opinberra aðila bæði hér og annars staðar verða ekki alltaf að veruleika. Hins vegar er ekkert að því að fólk átti sig rækilega á því að veizlan mikla, sem staðið hefur í nokkur undanfarin ár, er búin. Henni hlaut að ljúka. Við Íslendingar höfum oft áður staðið frammi fyrir vandamálum í efnahagsmálum okkar og alltaf náð okkur upp úr þeim. Í lok níunda ára- tugarins skall á samdráttur í efna- hagsmálum sem stóð fram á miðjan tíunda áratuginn. Í kjölfar þess sam- dráttarskeiðs gekk í garð tímabil mikillar velgengni sem er að ljúka nú rúmum áratug síðar. Upp úr miðjum Viðreisnaráratugn- um skall á alvarleg kreppa sem stóð í um þrjú ár en ástæður hennar voru aflabrestur og verðfall á afurðum okkar á erlendum mörkuðum. Við náðum okkur upp úr þeirri kreppu. Þess vegna er engin ástæða til að láta svartsýni ná tökum á sér. Hins vegar er mikilvægt að fólk átti sig á því að uppsveiflunni miklu er lokið bæði hér og annars staðar. Þótt einhver verðlækkun verði á fasteignum um skeið má ekki gleyma því að gífurleg verðhækkun hefur orðið á þeim eignum undanfarin ár og kannski ekki við öðru að búast en eitthvað af þeirri verðhækkun gangi til baka. Grundvallarþættir íslenzks þjóð- arbúskapar eru í góðu lagi. Þótt mik- ill samdráttur hafi orðið í þorskafla ganga sjávarútvegsfyrirtækin vel enda hefur mikil hagræðing orðið í sjávarútvegi á mörgum undanförn- um árum. Áliðnaðurinn er orðinn mjög öflugur og mun skila þjóðar- búinu miklum tekjum á þessu ári. Allir helztu atvinnuvegir þjóðarinnar standa vel. Undirstöðurnar eru í lagi og það skiptir mestu máli. Velmegunin er svo mikil á Íslandi að það skaðar engan þótt einhver samdráttur verði í neyzlu hér. Var hún ekki orðin of mikil? Er ekki bara heilbrigt að hún dragizt eitthvað saman? Höfum við ekki verið að segja hvert við annað á undanförnum misserum að neyzlu- æðið væri komið úr böndum? Það er allt í lagi að fólk hrökkvi við en það er engin ástæða til að ætla að einhver stórfelld ógn steðji að íslenzkum þjóðarbúskap. Efna- hagur okkar stendur traustum fót- um. LÍFSGÆÐI OG LEIKGLEÐI Í MIÐBORG Raskið í götumynd Laugavegar hef-ur ekki farið framhjá neinum undanfarin misseri. Umræðan um nið- urrifið og uppbygginguna sem á að koma í kjölfarið ekki heldur. Á und- anförnum dögum hafa birst í fjölmiðl- um myndir af fyrirhugaðri uppbygg- ingu bæði við Lækjartorg og á Vegamótastíg sem vakið hafa umtal – þær fyrrnefndu m.a. vegna þess að þar kemur Nýja bíó aftur fram á sjónar- sviðið eins og fólk man það frá því fyrir bruna þess en þær síðarnefndu vegna þess að þar er annars konar vísun í gamla tímann: gömlu húsi er lyft upp á þak á nýbyggingu. Myndir af reitnum á horni Lauga- vegar og Klapparstígs vekja ekki síður umtal. Þar er lítið og lágreist timbur- hús sem margir þekkja undir heiti kaffihússins Hljómalindar, í faðmi nýrrar byggingar er teygir sig út í ystu mörk lóðanna, bæði við Laugaveg og Klapparstíg. Gamla húsið og stóra fal- lega tréð við hlið þess eru smættuð í þessu þrönga faðmlagi svo myndir kalla óneitanlega fram þá spurningu hvort hámörkun byggingarmassa þurfi ætíð að vera raunin. Í allri umræðunni um endurnýjun miðborgarinnar hafa húsbyggingar verið þungamiðjan. Aldrei hefur verið minnst á það að við þessa aðalversl- unargötu miðborgarinnar er ekki einn einasti leikvöllur fyrir börn verslandi fólks. Þaðan af síður sérhannað úti- kaffihús. Samt hefur reynslan sýnt að veitingaborð úti, bæði við Austurvöll og Vegamótastíg eru þéttsetin mun oftar en flestir telja veður leyfa. Þarf að fylla alla verðmæta reiti miðborg- arinnar af húsbyggingum? Má ekki nota einhverja þeirra reita sem losnar um í allri þessari uppbyggingu til að gleðja sjálfa borgarbúana – stóra sem smáa – með því að skapa þeim um- hverfi þar sem hægt er að gera eitt- hvað annað en að versla? Svo sem með kaffihúsi þar sem fullorðnir njóta veit- inga á meðan börnin leika sér eins og vinsæl fordæmi eru fyrir erlendis. Reiturinn í kringum Hljómalind þar sem nú á að fara að byggja er sólríkur og þar var alltaf fólk að sjá. Stundum var flóamarkaður í portinu á bak við húsið eða götusala í jaðri lóðarinnar. Þarna sat líka fólk og spjallaði, eða spilaði á hljóðfæri líkt og gerist á göngugötum í erlendum borgum. Það er eftirsjá að þessu götulífi og áleitin spurning hvort ekki eigi að gera mark- visst átak í því að minnka bygginga- massa og auka möguleika á fjölbreyti- leika í nýtingu lóðanna í miðborginni áður en það er orðið of seint. Slíkt kann að kosta borgina eitthvað svo sem ef nauðsynlegt er að kaupa lóðir í þessum tilgangi en auðvitað færi best á stefnu- mótandi aðhaldi er leiddi til samstarfs við lóðareigendur um þá nýtingu sem kemur til greina á hverjum reit fyrir sig. Ef fjárfesting af þessu tagi reynist ekki nýtast almenningi nægilega vel er aldrei of seint að byggja. Tap yrði því aldrei á svona stefnumótun en hugs- anlega mikill gróði í lífsgæðum. Eftirfarandi spádóm má lesa íPeningamálum Seðlabanka Ís-lands frá apríl 2008: „Kólnun áhúsnæðismarkaði hefur þegar komið fram í því að verðhækkun íbúðar- húsnæðis hefur u.þ.b. stöðvast, þrátt fyrir umtalsverða hækkun byggingarkostn- aðar, og velta hefur minnkað hratt. Horf- ur eru á að lækkun ráðstöfunartekna, þrengingar á lánamörkuðum og aukið framboð íbúðarhúsnæðis leiði til umtals- verðrar verðlækkunar. Gert er ráð fyrir að húsnæðisverð lækki um u.þ.b. 30% að raunvirði á spátímabilinu. Gangi það eftir mun hækkun íbúðaverðs umfram al- mennt verðlag undanfarin fimm ár ganga að mestu leyti til baka. Verðið yrði eftir sem áður ekki lágt í sögulegu samhengi. Gríðarleg óvissa er um þessa þróun, m.a. vegna þess að hún kann að hafa umtals- verð áhrif á útlánagetu fjármálakerfisins. Ekki er því hægt að útiloka enn meiri samdrátt á fasteignamarkaði.“ Hræðsluáróður Seðlabanka Íslands Á mannamáli þýðir þetta: Aleiga al- mennings er að stærstum hluta bundin í fasteignum þeim, sem menn búa í og telj- ast að stórum hluta til þjóðarauðs okkar. Ekki er raunhæft að gera sömu kröfur til ávöxtunar slíkra eigna eins og um væri að ræða fé sem hægt er að senda úr landi þar sem skjól er að finna frá þeim helj- ardýfum sem krónan okkar hefur verið að steypast í að undanförnu. Þetta eru ekki gamanmál, um heill og öryggi heimilanna í landinu er að ræða. Með slíkri óábyrgri framsetningu Seðlabanka Íslands er verið að vega að einum af hornsteinum þjóð- félagsins, þ.e. húsnæðismálunum. Er það virkilega ætlan þeirra, er halda um stjórnartaumana hér á landi, og þeirra er stýra peningamálastefnunni að húsnæðismál þjóðarinnar lendi í þeim öldudal sem spáin telur? Hvers vegna er ekki búið svo um hnúta að húsnæðislán séu með þeim hætti að almenningur geti eignast og átt þak yfir höfuðið, án þess að eiga allt sitt undir því að spákaup- mennska innlendra og erlendra aðila kippi undan þeim fótunum án þess að fólk fái rönd við reist? næðis e.t.v. í eig banka? Þarf þjó strit þess og spa bólgu og spákau þessum þar sem peningamálunu gegn íslensku k hefur lækkað um sl. haust, þá er v hagnist í þessum málanna. Almenningur þegar hann geri um 40 ár fram í hafa gert við sín ur efnahagsmál en svo að hann b við fyrstu ágjöf Hvað veldur svo óábyrgu svartagallsrausi? Við sem þekkjum húsnæðismarkaðinn vitum betur og teljum að gjalda beri var- hug við slíkum spádómum sem virðast settir fram til stykrtar verðbólgu- og vaxtastefnumarkmiðum Seðlabanka Ís- lands. Við fasteignasalar þekkjum það að almenningur hefur barist í sveita sín and- litis fyrir húsnæði sínu og svik og prettir sem náð hafa inn á lánamarkaðinn hafa komið aftan að þessu fólki. Guð hjálpi þjóðinni ef afturhvarf til fortíðar er það sem forystumenn hennar sjá fyrir sér án þess að rönd verði við reist. Er það fram- tíð þorra Íslendinga að verða bón- bjargafólk sem hrekst á milli leiguhús- Sparifé almenning spádómar Seðlaba » Almenningur verður að geta treyst því, þegar hann gerir ráðstaf- anir með lántökum 40 ár fram í tímann, að grunnur efnahagsmála þjóðarinnar sé traustari en svo að hann byrji ekki að molna niður við fyrstu ágjöf á þjóðarskútuna. Eftir Ingibjörgu Þórðardóttur og Höllu Unni Helgadóttur Ingibjörg Þórðardóttir Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is Er hægt að læra að vera forsætis-ráðherra?“ var titill ráðstefnusem haldin var í gær á vegumfélagsvísindadeildar Háskól- ans á Bifröst. Háskólar leggja í auknum mæli áherslu á stjórnunar- og leiðtoganám og á ráð- stefnunni var rætt hvort háskólar geti í raun og veru búið leiðtoga fyrir verkefni þeirra eða hvort slíkir hæfileikar séu með- fæddir, það er ef slíkir hæfileikar eru til yfirleitt. Erindi fluttu Jón Baldvin Hannibals- son, fyrrverandi utanríkisráðherra, Þór- anna Jónsdóttir sem starfar hjá Auði Capital og Magnús Árni Magnússon frá Capacent og fyrrum aðstoðarrektor Há- skólans á Bifröst. Lýðræðið gerir kröfur „Hvernig verða menn forsætisráðherrar fyrst starfið er ekki auglýst og ekki er hægt að sækja um?“ spurði Jón Baldvin Hannibalsson í erindi sínu. Hann sagði vissulega mikilvægt að „vinna sig upp í flokknum“ en lýðræðið gerði kröfur og til- vonandi leiðtogar yrðu að ná til fólksins. „Þá skiptir minna máli hvað viðkomandi hefur lært. Vill fólk leggja í hann með þér? Hefurðu vit á verkinu? Veistu hvert þú vilt halda? Viltu halda kyrru fyrir frekar en að sækja á brattann? Er hægt að læra til for- sætisráðherra? Ég held varla. En stund- um lýsir þjóðfélagið eftir þeim leiðtoga sem kall tímans krefst og spyr þá ekki um prófgráður,“ sagði Jón Baldvin Hann talaði um reynslu sína af ólíkum háskólum á námsárum sínum og hvernig veganesti þeirra hefði verið mismunandi. „Góður“ háskóli eins og Harvard hefði gefið honum minna en háskólinn í Ed- inborg, þar hefði verið „meira andlegt líf, eilífar rökræður og andleg gróska á með- an dekurbörn á færibandi grúfðu sig yfir bækurnar á bók Jón Baldvin, vir skiluðu því ekki inu. Hjálpar til að Magnús Árni M fangsefni háskó stofnana svo og einkamarkaði „a leika í fólki því v hæfileikum ef ve Geta háskólar b Jón Baldvin Hannibalsson Í HNOTSKURN »Boðið er upp á stjórnunar- og leiðtoganám í sífellt mmæli í íslenskum háskólum. »Háskólinn á Bifröst býður upp BA-gráðu í heimspekihagfræði og stjórnmálafræði (HHS) sem er leiðtogan með áherslu á klassískar undirstöður háskólamenntunar Magnús Árni Magnússon Þóranna Jónsdóttir  Leiðtogamenntun var til umræðu á ráðstefnu sem H rætt um hvort allir gætu orðið leiðtogar  Eru leiðtog
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.