Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
KÍNVERSKIR ráðamenn lýstu í
gær yfir vanþóknun sinni á sam-
þykkt fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings á miðvikudag þar sem stjórn-
völd í Beijing voru hvött til að
stöðva ofsóknir gegn Tíbetum.
Í samþykktinni er rætt um „frið-
sama mótmælendur“ í Tíbet sem
sæti árásum kínverskra stjórnvalda
er einnig beiti Tíbeta kúgun varð-
andi menningu, trú, efnahag og
notkun tungumálsins. Óeðlilegri
hörku hafi verið beitt og hundruð
manna látið lífið. Hvatt er til þess
að Kínverjar hefji þegar viðræður
við Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta í
stjórnmálum og trúarefnum. Ekki
eigi að setja nein skilyrði fyrir þeim
viðræðum.
Jiang Yu, talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, sagði að í
samþykkt fulltrúadeildarinnar
væri „saga Tíbets og raunveruleg
nútímavæðing afskræmd … með
þessu eru tilfinningar kínversku
þjóðarinnar særðar djúpt“.
„Tilfinningar kínversku þjóð-
arinnar særðar djúpt“
Reuters
Reiði Stuðningsmenn Kínastjórnar
mæta tíbeskum mótmælendum í
Buenos Aires, Argentínu, í gær.
FYRIRTÆKIÐ Lappland Goldminers AB segist hafa
fundið „mjög spennandi“ gullæðar með borunum ná-
lægt þorpinu Tjålmträsk við Helsingjabotn milli Norð-
ur-Svíþjóðar og Finnlands. Hafnar voru rannsóknir á
sínum tíma þegar verulegt magn af gulli fannst í stór-
grýti á svæðinu og nú gera menn sér vonir um arðbæra
vinnslu.
Forstjóri fyrirtækisins, Karl-Åke Johansson, segir í
yfirlýsingu í kauphöllinni í Ósló, en þar er fyrirtækið
skráð, að mikið hafi fundist af gulliblönduðu grjóti á
svæðinu. Gullið fannst á 35–43 metra dýpi.
Forstjórinn segir í viðtali við norska blaðið Dagens Industri að um
óvenjulegan fund sé að ræða en leitað hefur verið um langt skeið á svæði
sem nefnt er Gold Line við Helsingjabotn. Ekki er þó enn hægt að full-
yrða að magnið sé nógu mikið til að vinnsla geti borið sig, fyrst þarf að
gera frekari rannsóknir. Verðið á hlutabréfum í Lappland Goldminers
AB hækkaði um 5% á verðbréfamörkuðum við tíðindin af gullfundinum.
Gullfundur á svæði við Hels-
ingjabotn talinn lofa góðu
Indianapolis. AP. | Barack Obama,
sem keppir að því að verða forseta-
efni bandarískra demókrata, vill að
hluthafar geti haft hönd í bagga um
launakjör stjórnenda hlutafélaga.
Hann vill að þingið skyldi hluta-
félög til að láta fara fram atkvæða-
greiðslu um kaupauka en hún skuli
þó ekki vera bindandi.
„Þetta snýst ekki bara um að láta
í ljós reiði sína,“ sagði Obama.
„Þetta snýst um að breyta kerfi þar
sem slæm hegðun er verðlaunuð, að
við getum látið stjórnendur standa
reikningsskap gerða sinna og
tryggt að þeir vinni með hag fyr-
irtækisins að leiðarljósi, hafi efna-
hag okkar í huga, hag Bandaríkj-
anna en ekki bara eiginhagsmuni.“
Reuters
Fagnað Barack Obama á kosn-
ingafundi í ríkinu Indiana.
Hluthafarnir
ráði meira
ÁHRIFAMIKILL sheikh í Persaflóaríkinu Katar,
Yusuf al-Qaradawi, hefur valdið ringulreið og reiði
með því að gefa út trúarlega yfirlýsingu, fatwa, um að
múslímar megi drekka áfengi – en bara í algeru hófi,
segir í danska blaðinu Jyllandsposten. Yfirlýsingin
birtist í blaðinu Al-Arab í Katar. Al-Qaradawi segir að
í lagi sé að drekka dálítið af mjög veiku áfengi sem bú-
ið sé til „með náttúrulegum hætti við gerjun“ og
alkóhólstyrkleikinn sé ekki yfir 0,5%. Það stríði ekki
gegn siðareglum íslams sem leggja annars bann við
allri áfengisnotkun.
Ritstjóri Al-Arab, Abdullatif al-Mahmud, segir að yfirlýsingin, sem var
svar við fyrirspurn um orkudrykk á markaði í Katar, hafi vissulega ruglað
marga í ríminu. Al-Qaradawi hefur síðar sagt að menn hafi misskilið sig.
Bara örlítið og ekkert sterkt
ÞRÝSTINGUR eykst nú á bresku
stjórnina um að hefja aftur rann-
sókn á því hvort lög hafi verið brot-
in þegar vopnaverksmiðjurnar
BAE greiddu ráðamönnum í Sádi-
Arabíu mútur til að liðka fyrir
vopnasölusamningum, að sögn
blaðsins The Guardian. Niðurstaða
lávarðadeildarinnar, sem gegnir
hlutverki hæstaréttar Breta, var að
ekki hefði átt að stöðva glæparann-
sókn sem hafin var á málinu.
Stjórn Tonys Blairs, þáverandi
forsætisráðherra, fullyrti á sínum
tíma að mannslíf væru í hættu ef
rannsókninni yrði haldið áfram.
Sádi-Arabar voru í gögnum frá
stjórn Blairs sagðir beita hótunum
til að koma í veg fyrir að ljóstrað
yrði upp um mútuþægnina.
„Við óttumst um orðspor emb-
ætta dómsmála í landinu ef hægt er
að kveða þau í kútinn með ógn-
unum … Enginn, hvort sem hann
býr í þessu landi eða utan þess, hef-
ur rétt til þess að skipta sér af rétt-
arfari okkar. Réttarríkið er einskis
virði ef það hefur ekki hemil á mis-
beitingu valds,“ sögðu lávarðarnir.
Þeir bentu á að ramakvein hefði
heyrst ef Bretar hefðu skipt sér af
réttarfari Sádi-Araba með svip-
uðum hótunum.
Um var að ræða sölusamning upp
á milljarða punda en hátæknirisinn
BAE er eitt af öflugustu fyrir-
tækjum heims á sínu sviði.
Rannsaki
mútuþægni
STUTT
Harare. AP, AFP. | Robert Mugabe, for-
seti Zimbabwe, hætti í gær við þátt-
töku í fyrirhuguðu þingi nokkurra
Afríkuríkja í Sambíu, þar sem til
stendur að ræða þá stöðu sem komin
er upp í Zimbabwe eftir forsetakosn-
ingarnar fyrr í mánuðinum.
Mugabe hefur jafnframt bannað öll
mótmæli og pólitískar samkomur og
fyrirskipað óeirðalögreglu að vakta
göturnar í höfuðborginni Harare.
Engin skýring hefur verið gefin á
banninu sem lagt var á tveimur dög-
um áður en boðað hafði verið til fjöl-
mennra mótmæla í Harare á morgun
og er uppi orðrómur um að skýringin
sé mannekla lögreglunnar.
Fylgismenn Lýðræðishreyfingar-
innar, flokks Morgans Tsvangirais,
höfuðandstæðings Mugabes, hvöttu í
gær landsmenn til að efna til verkfalls
í höfuðborginni á þriðjudag og fella
niður störf þar til greint verður frá
úrslitum kosninganna.
Samhliða því að kosið var um for-
seta var efnt til þingkosninga, en sam-
kvæmt opinberum kjörtölum fékk
stjórnarandstaðan alls 109 sæti í
neðri deildinni, stjórnarflokkurinn 97.
Stuðningsmenn Tsvangirais úti-
loka þátttöku frambjóðandans í ann-
arri umferð forsetakosninga, með
þeim orðum að Mugabe hafi hafið
herferð til að hafa áhrif á útkomuna.
Hafa sumir gengið svo langt að lýsa
slíkum hugmyndum sem ígildi valda-
ráns, enda hafi Tsvangirai hlotið yfir
helming atkvæða í fyrstu umferðinni.
Niðurstöður eftirlitsaðila benda
hins vegar til að Tsvangirai hafi ekki
fengið yfir 50% atkvæðanna.
Ganga fram af hörku
Óeirðalögregla hefur gengið hart
fram gegn andstæðingum forsetans
og borið eld að heimilum bænda.
„Mugabe hefur sent herinn í hér-
uðin […] Fólkið er beitt barsmíðum,“
sagði Tsvangirai í samtali við breska
ríkisútvarpið, BBC, í gær.
Þá er forsetinn sakaður um að hafa
fyrirskipað handtökur á starfsfólki
kjörstjórnar landsins, en á mánudag
er þess vænst að hæstiréttur landsins
muni greina frá úrslitum forsetakosn-
inganna, eftir málarekstur af hálfu
andstæðinga Mugabes.
Tsvangirai hefur verið á ferð um
nágrannaríki Zimbabwe á undanförn-
um dögum og í gær lýsti hann því yfir
í heimsókn sinni til Botsvana að hann
óttaðist að snúa heim sökum þess að
hann væri aðalskotmark öryggis-
sveita landsins.
AP
Á vaktinni Óeirðalögregla tekur vegfarendur tali við verslun í Harare í gær. Öll mótmæli hafa verið bönnuð.
Mugabe herðir tökin
Í HNOTSKURN
»Í dag munu fulltrúar 14 S-Afríkuríkja (SADC) hittast
í Lusaka, Sambíu, til að ræða
framhaldið í Zimbabwe.
»Samkvæmt ríkisútvarpinu íZimbabwe hyggst Robert
Mugabe forseti sniðganga þing-
ið, en í staðinn senda þrjá ráð-
herra sína.
»Fylgismenn Mugabes telja aðefna þurfi til annarrar um-
ferðar forsetakosninganna til að
skera úr um sigurvegarann, fyrri
umferðin fór fram 29. mars sl.
»Stuðningsmenn forseta-frambjóðandans Morgans
Tsvangirais telja hann hafa náð
nauðsynlegum fjölda atkvæða.
Mótmæli bönnuð Óeirðalögreglan sögð ganga fram af
hörku Andstæðingar forsetans boða verkfall á þriðjudag
ERLENT