Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
»Um kaffileytið í gær höfðu
1.890 manns skrifað undir,
þar af ríflega 1.300 einstaklingar
búsettir í eyjunum.
»Samkvæmt vef hagstofunnareru íbúar í Vestmanneyjum
4.036 talsins.
»Söfnunin stendur fram á mið-vikudaginn næstkomandi og
segir Magnús að skrifi 2.000 íbú-
ar í Eyjum undir sé það stórkost-
legur stuðningur við málstað
hópsins.
»Hann segir nýjan Herjólf semsigli milli Þorlákshafnar og
stórskipahafnar utan Eiðsins
vera framtíðarlausn á sam-
göngum til Eyja.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„VIÐ undirrituð skorum á ríkis-
stjórnina að hætta við fyrirhugaðar
framkvæmdir í Bakkafjöru og hefja
þegar undirbúning að byggingu á
öflugri og hraðskreiðri Vest-
mannaeyjaferju auk stórskipahafn-
ar við Eiðið.“ Svo hljóðar yfirlýsing
hóps Eyjamanna, með Magnús
Kristinsson í farabroddi, sem safnar
nú undirskriftum á netinu. Söfnunin
hófst á miðvikudag og höfðu 2.000
manns skrifað undir í gær.
Hugur fólksins aldrei kannaður
„Ef fleiri en 2.000 íbúar í Vest-
manneyjum skrifa undir, þá þarf hið
opinbera að hlusta. Hugur fólks hef-
ur aldrei verið kannaður í þessu
máli. Lagt var til við bæjarstjórn
síðasta haust að við fengjum að
kjósa um þetta,
en hún hafnaði
því,“ segir Magn-
ús. Þetta sé loka-
tilraun til að
kanna hug fólks.
Hann kveðst hafa
fengið margar
orðsendingar þar
sem fólk taki sér-
staklega undir
kröfurnar, auk
þess sem roskið fólk hafi hringt inn
og beðið um skráningu.
„Það er spennandi kostur að sigla
á hálftíma til Bakka, en bara í 7-8
mánuði á ári. Svo tekur veturinn við
og því kvíði ég verulega. Miðað við
veðráttuna eins og hún var í vetur
hefði æðioft orðið ófært upp í
Bakka,“ segir hann og kveður mæl-
ingar á ölduhæð fyrir utan fyrirhug-
aða brimvarnargarða ekki fullnægj-
andi, auk þess sem könnunarferð
Lóðsins á síðasta ári hafi staðreynt
að stórar öldur brotni þar langt fyrir
utan. Hann spyr hvort setja eigi tugi
milljarða í að stækka og lengja brim-
varnargarðana, ef í ljós kemur að
þeir dugi engan veginn til.
Áfram til Þorlákshafnar
„Það eru 38 mílur til Þorláks-
hafnar. Fallist menn á að hætta við
þessa dellu gæti ný ferja siglt þetta
á 21-23 mílna hraða yfir sumartím-
ann, eða á tveimur tímum. Yfir vetr-
artímann gæti hún siglt á 17-18
mílna hraða, eða kortéri til hálftíma
lengur. Þá mætti leikandi fara 3-4
ferðir á sólarhring á sumrin, og 2-3
sinnum alla daga vikunnar á vet-
urna,“ segir Magnús. Fengju Vest-
mannaeyingar brot af því sem verja
eigi til Landeyjahafnar mætti gera
stórskipahöfn í Eyjum fyrir tvo
milljarða króna. Þá styttist siglingin
til Þorlákshafnar um kortér. „Það
yrði líka mikil lyftistöng fyrir eyj-
arnar, því þá gætum við fengið hing-
að stór skemmtiferðaskip á sumrin,
sem yrði eflaust eftirsótt þegar
fuglalíf er mikið og sumrin falleg.“
Þá sé útboð ferjunnar til Bakka til
15 ára. Stórt skipafélag hafi þegar
dregið sig út úr samkeppninni og
talið allt of flókið að bjóða í verkið til
svo langs tíma. „Ég sé fyrir mér að
tilboðin sem berist fái menn til að
klóra sér í höfðinu þegar þeir þurfa
að taka ákvörðun,“ segir Magnús.
Einnig bendir Magnús á skýrslu
verkfræðistofunnar Vatnaskila, sem
sýni að hafnarstæðið við Bakka sé á
hættusvæði fyrir Kötluhlaup, komi
það úr Entujökli í Markarfljót.
Almenningur mótmælir höfninni
Magnús
Kristinsson
Undirskriftum gegn Landeyjahöfn rignir inn á vefsíðu „Hið opinbera þarf að hlusta á okkur“
TENGLAR
..............................................
http://strondumekki.is
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra hefur sýknað karlmann um
fimmtugt af ákæru um nauðgun.
Fjölskipaður héraðsdómur klofnaði í
málinu og skilaði Sveinn Sigurkarls-
son héraðsdómari sératkvæði. Taldi
hann sakfellingu réttlætanlega og
vísaði m.a. til framburðar mannsins.
Í niðurstöðu meirihluta dómenda
kemur hins vegar fram að maðurinn
hafi mátt ætla að konan hafi verið
meðvituð um atlot hans og ekki verið
þeim mótfallin. Dómnum verður
áfrýjað til Hæstaréttar.
Maðurinn játaði fyrir dómi verkn-
aðinn, sem átti sér stað á heimili
fórnarlambsins, konu á þrítugsaldri,
snemma morguns 26. ágúst á sl. ári,
en þrætti staðfastlega fyrir að hafa
nýtt sér ölvunarástand hennar til að
koma fram vilja sínum. Fólkið hittist
í samkvæmi um nóttina og hélt
áfram drykkju, ásamt bróður kon-
unnar, heima hjá henni. Konan fór
að sofa á undan mönnunum, en eftir
að bróðir hennar lagðist einnig til
hvílu hélt maðurinn til herbergis
konunnar.
Með augun lokuð allan tímann
Fyrir dómi bar maðurinn því við
að konan hefði verið vakandi, t.a.m.
klætt sig sjálf úr bol og brjóstahald-
ara. Þegar maðurinn var spurður
hvort konan hefði tekið þátt í kyn-
mökunum sagði hann: „Nei, það var
bara eins og þetta væri eitthvert
feimnismál.“ Hann viðurkenndi jafn-
framt að hún hefði ekki snert sig sér-
staklega og hefði að öllum líkindum
verið með augun lokuð allan tímann.
Dómurinn taldi framburð konunn-
ar trúverðugan, en það vann gegn
henni að hún var með nokkurri með-
vitund á meðan maðurinn leitaði á
hana. Konan sagðist fyrir dómi hafa
vaknað þegar maðurinn klæddi hana
úr peysunni en þá var hún ber að
neðan. Hún hefði hins vegar ekki
getað spornað við atlotunum sökum
ölvunar. Dóminum þótti hins vegar
ölvunarástand hennar og svefndr-
ungi ekki geta skýrt það hvers vegna
hún brást ekki við atlotunum eða
kallaði eftir hjálp, en bróðir hennar
var í næsta herbergi. Sjálf bar konan
við hræðslu við ákærða – án þess þó
að hann hefði verið ógnandi, að
hennar sögn.
Óumdeilt var í málinu að konan
hafði drukkið töluvert magn af
sterku víni um kvöldið og fram eftir
nóttu. Vitnum bar hins vegar ekki
saman um hversu drukkin konan
var. Þá var blóðsýni ekki tekið fyrr
en síðdegis daginn sem meint brot
átti sér stað og því erfitt að segja til
um hver áfengisáhrif konunnar voru
þá um morguninn. Einnig var litið til
þess að lögregluvarðstjóri sem tók á
móti kæru konunnar sagði hana ekki
hafa komið sér þannig fyrir sjónir, að
hún hefði neytt áfengis nóttina áður.
Konan kom á lögreglustöðina um
tveimur klukkustundum eftir að hún
vaknaði.
Héraðsdómararnir Halldór Hall-
dórsson og Arnfríður Einarsdóttir
kváðu upp dóminn, en Sveinn Sig-
urkarlsson skilaði sératkvæði.
Talið óskýrt hvers vegna
konan brást ekki við
Karlmaður sýknaður af ákæru um nauðgun í Héraðsdómi Norðurlands vestra
ÓUMDEILT er að konan hafði ekki
með neinum hætti gefið manninum til
kynna að hún hefði áhuga á kynferð-
islegu samneyti áður en hún fór að
sofa, né í annan tíma. Er því ósannað
að maðurinn hafi haft nokkurt rétt-
lætanlegt tilefni til að fara á eftir kon-
unni sem farin var að sofa. Þetta
kemur fram í sératkvæði Sveins Sig-
urkarlssonar héraðsdómara sem vildi
sakfella manninn fyrir nauðgun.
Sveinn segist þeirrar skoðunar, að
þrátt fyrir að konan hafi komist til
meðvitundar á meðan maðurinn
braut á henni leysi það hann ekki
undan ábyrgð á framkomu sinni.
„Ákærði hefur sjálfur sagt fyrir dóm-
inum að eftir að hann lagðist upp í
rúm [konunnar] hafi hún hvorki opn-
að augun né heyrst frá henni hósti
eða stuna svo hann muni. Hann hafi
ekkert sagt við hana og hún ekki látið
vel að honum eða snert hann að eigin
frumkvæði.“
Hvorki
hósti né
stuna
„ÉG er ekki búinn að fá grásleppuna
frá Grímsey enn. En mér datt fyrst í
hug kjarnorkukafbátur, þegar sé sá
myndina af henni í Morgunblaðinu í
morgun,“ segir Jónbjörn Pálsson,
fiskifræðingur á Hafrannsókna-
stofnuninni.
Jónbjörn er þarna að tala um af-
myndaða grásleppu, sem veiddist
við Grímsey og sagt var frá í blaðinu
í gær. Hann sagði að þarna gæti til
dæmis tvennt verið að, annaðhvort
sýking eða vansköpun. Það komi
væntanlega í ljós, þegar hann fái
fiskinn. Hann segir að á gráslepp-
unni sé mikil hvelja og þykkildið
virðist koma upp úr henni. Þetta er
önnur óvenjulega grásleppan sem
þeir á Hafró fá. Í fyrra fengu þeir
eina hvíta, albínóa, úr Eyjafirðinum.
Jónbjörn segir sjaldgæft að fá grá-
sleppur sem skera sig svona úr en
alltaf sé eitthvað um furðufiska.
Sýking eða
vansköpun
Morgunblaðið/Helga Mattína
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„ÉG RÆDDI við hana um varnarsamstarfið og
ekki síst fund sem halda á hér í Washington 30.
apríl með íslenskum og bandarískum embætt-
ismönnum. Þar á að ræða hvernig málum verði
hagað með uppfærslu og viðhald ratsjárkerf-
isins,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra, en hún fundaði í gær í Wash-
ington með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Íslendingar tóku við rekstri kerfisins af
Bandaríkjamönnum þegar varnarliðið fór héð-
an. „Það var talað um það þegar við tókum við
kerfinu að Bandaríkin myndu með einhverjum
hætti koma að því máli. En það hefur ekki enn
fengist niðurstaða í það hvernig það verði,“
sagði Ingibjörg Sólrún. Hún hafi á fundinum
með Rice lagt áherslu á að mikilvægt væri fyrir
Íslendinga að fá niðurstöðu í málið sem fyrst,
enda fylgi þessu heilmikill kostnaður.
Konur og friðaruppbygging
„Við ræddum þó ekkert síður önnur mál. Þar
má nefna ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Við
ræddum möguleika kvenna til þess að koma að
friðarviðræðum, friðaruppbyggingu og frið-
argæslu í heiminum. Ég tel að það skipti miklu
máli,“ sagði Ingibjörg.
Í gangi er óformlegt samstarf kvenutanrík-
isráðherra sem hist hafa nokkrum sinnum til
þess að ræða þessi mál. Hún hafi rætt um að
festa þetta samstarf betur í sessi „og að taka
þessa ályktun öryggisráðsins upp á okkar arma
þannig að hún sé ekki aðeins orðin tóm,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Hún sagði Rice hafa tekið vel í þetta. „Hún
sýndi því mikinn áhuga. Við erum nokkrar sem
höfum áhuga á að Líbería komi sterkt inn í
þetta. Konur þar í landi hafa náð miklum ár-
angri í friðarferlinu sem þar hefur staðið yfir.“
Á fundinum ræddu Rice og Ingibjörg Sólrún
jafnframt samstarf á sviði vegabréfamála. Það
lýtur að sérstakri vegabréfsáritun fyrir fyrir-
tækjastjórnendur og fólk úr viðskiptalífinu. Hún
gerir þessum hópi auðveldara að ferðast ört á
milli landanna. Nú hafa um 80 ríki slíkan samn-
ing við Bandaríkin „en við höfum það ekki. Mér
finnst það skjóta dálítið skökku við miðað við
söguleg tengsl ríkjanna,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún. Margir í viðskiptalífinu hafi sagt að skortur
á þessari vegabréfsáritun sé ein helsta hindrunin
í vegi fyrir auknum viðskiptum Bandaríkjanna
og Íslands.
Þá var á fundi ráðherranna rætt um stöðu
mála í Mið-Austurlöndum og Afganistan, auk
málefna norðurslóða.
Ráðherrar
ræddu ratsjár-
kerfi og mál-
efni kvenna
Fundur Utanríkisráðherrarnir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Condoleezza Rice í Washington í gær.