Morgunblaðið - 12.04.2008, Page 8
8 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HIN árvissa vorhreinsun í Reykja-
vík hefst laugardaginn 26. apríl og
stendur til laugardagsins 3. maí, en
þá leggja starfsmenn hverfastöðva
Framkvæmda- og eignasviðs garð-
eigendum lið og fjarlægja garðaúr-
gang sem settur hefur verið út fyrir
lóðamörk.
Garðeigendur eru beðnir að hafa
eftirfarandi í huga:
– Setja garðúrgang í poka.
– Ekki blanda við jarðúrgang
lausum jarðvegi og öðru rusli.
– Ágætt er að binda greinaaf-
klippur í knippi.
Vakin er athygli á að ekki verða
fjarlægð stór tré eða trjástofnar.
Eingöngu verður fjarlægður garða-
úrgangur, ekki annað rusl.
Morgunblaðið/Eyþór
Rusl Brátt fer fram vorhreinsun í
borginni – og ekki veitir af.
Vorhreinsun
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt fimmtuga konu í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir fíkniefna-
brot. Fullnustu refsingarinnar var
frestað, haldi konan skilorð. Henni
var að auki gert að greiða rúmar
112 þúsund kr. í málskostnað og
þóknun til skipaðs verjanda.
Konan var ákærð fyrir að hafa í
vörslum sínum 457 g af hassi og 35
g af amfetamíni, sem að hluta til
var ætlað til sölu. Lögregla lagði
einnig hald á 300 þúsund kr. í
reiðufé, sem talið er vera gróði af
fíkniefnasölu.
Konan, sem játaði brot sín ský-
laust, hefur ekki áður gerst sek um
refsiverða háttsemi.
Fimmtug í
fíkniefnasölu
Í DAG, laugardag, kl. 14 mun
klúbburinn Geysir kynna starfsemi
sína fyrir félögum og gestum Geð-
hjálpar í húsi Geðhjálpar að Tún-
götu 7 í Reykjavík.
Geysir er stuðningshópur fyrir
fólk sem á eða hefur átt við geðræn
vandamál að stríða.
Félagar úr Geysi munu segja frá
reynslu sinni af starfi klúbbsins,
batanum og endurhæfingunni sem
fylgir hugmyndafræði starfsins.
Starfsmaður Geysis segir frá tilurð
klúbbsins og uppbyggingu,
tengslum við atvinnulífið og samn-
ingum við valda vinnustaði.
Fundurinn er öllum opinn.
Kynning hjá Geysi
ÓLAFUR F.
Magnússon borg-
arstjóri efnir til
samráðsfunda
með íbúum í öll-
um hverfum
Reykjavíkur í
apríl og maí. Á
hverjum fundi
býðst íbúum að
kynna sér og
ræða forgangs-
röðun innsendra hugmynda og
kynna sér framkvæmdir og við-
haldsverkefni í hverfunum. Fyrstu
þrír fundirnir verða í dag, laug-
ardag. Klukkan 12 í Árbæjarskóla
fyrir Árbæjarhverfi, klukkan 13 í
Rimaskóla fyrir Grafarvogshverfi
og klukkan 14 í Seljaskóla fyrir
Breiðholtshverfi. Boðið verður upp
á skemmtiatriði fyrir íbúana.
Samráðsfund-
ir í borginni
Ólafur F.
Magnússon
STUTT
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
ÍBÚÐAEIGENDUR sem hafa ný-
lega fest kaup á íbúðarhúsnæði
munu tapa umtalsverðum fjármun-
um ef spá Seðlabankans um hugs-
anlega þróun íbúðaverðs og spá
hans um verðbólgu gengur eftir. Þá
má vænta þess að margir sem hafa
tekið u.þ.b. 80% lán til íbúðakaupa
verði í stórri skuld í lok ársins 2010,
jafnvel þótt þeir hafi getað greitt
20% af kaupverðinu með eigin fé við
kaup.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir því
að húsnæðisverð lækki um u.þ.b.
30% að raunvirði til ársloka 2010.
Til að skoða hvað þetta þýðir í raun
skal hér tekið dæmi af íbúðakaup-
anda, sem keypti nýlega íbúð fyrir
25 milljónir króna og tók íbúðalán
að fjárhæð 20 milljónir, þ.e. fyrir
80% af kaupverðinu. Ef verðbólgu-
spá Seðlabankans gengur eftir
verður verðbólgan á þessu ári um
9,3%, um 5,9% á næsta ári og um
2,8% á árinu 2010.
Flest íbúðalán eru í íslenskum
krónum og verðtryggð, svonefnd
jafngreiðslulán. Þau eru þannig að á
fyrstu árunum eru vextir og verð-
bætur af þeim langstærsti hlutinn
af árlegum greiðslum lántakandans.
Afborgunarþátturinn er þá lítill og
því greiðist lánið mjög hægt niður
fyrstu árin. Verðbætur af höfuð-
stólnum leggjast við hann og hækk-
ar höfuðstóllinn því með verðbólg-
unni, eins og flestir lántakendur
þekkja vel.
Verðið lækkar um 7,5 milljónir
Ef verðbólguspá Seðlabankans
gengur eftir verður framangreint
20 milljóna króna íbúðalán komið í
um 23 milljónir í árslok 2010. Og ef
spá Seðlabankans um u.þ.b. 30%
lækkun húsnæðisverðs að raunvirði
gengur einnig eftir mun íbúðin, sem
kaupandinn í dæminu keypti nýlega
fyrir 25 milljónir króna, einungis
kosta um 17,5 milljónir í árslok
2010.
Ef gengið er út frá því að kaup-
andinn í dæminu okkar hafi átt þær
5 milljónir króna sem upp á vantaði
við íbúðakaupin, þ.e. mismuninn á
kaupverðinu og íbúðaláninu, þá
mun eignastaða hans í árslok 2010
verða neikvæð um 5,5 milljónir í
stað þess að vera jákvæð um 5
milljónir eins og hún var á kaup-
degi. Tap íbúðareigandans á tæp-
lega þriggja ára tímabili verður því
um 10,5 milljónir króna, samkvæmt
þessu einfalda dæmi, og samkvæmt
hinni mögulegu þróun sem spá
Seðlabankans gerir ráð fyrir.
Úr 5 milljónum í plús
í 5,5 milljónir í mínus
Morgunblaðið/ÞÖK
'&&
'&&
'&&
Verð 25 milljóna króna íbúðar lækkar um 7,5 milljónir gangi
spá Seðlabankans um 30% lækkun fasteignaverðs eftir
Í HNOTSKURN
»Seðlabankinn hækkaði ífyrradag stýrivexti sína um
0,5 prósentustig og eru þeir nú
15,5%. Stýrivaxtaspá bankans
gerir ráð fyrir að vextir muni
hækka um 0,25 prósentustig til
viðbótar.
» Bankinn spáir 9,3% verð-bólgu á þessu ári. Hámarki
nær verðbólgan á þriðja fjórð-
ungi ársins en síðan tekur hún að
hjaðna.
»Verðbólgumarkmiðið, 2,5%,næst síðla árs 2010.
Á FUNDI Félags
íslenskra at-
vinnuflugmanna í
fyrradag var
samþykkt ein-
róma stuðnings-
yfirlýsing við
samninganefnd
félagsins í samn-
ingaviðræðum við
Icelandair þar
sem lagt er til að
hafinn verði undirbúningur að boðun
verkfalls.
Jóhannes Bjarni Guðmundsson,
formaður félagsins, segist vona að
samningar náist og flugmenn beiti
ekki verkfallsvopninu nema þeir telji
sig nauðsynlega þurfa þess. Um leið
kveðst hann ekki vera bjartsýnn á
þær samningaviðræður sem fram-
undan eru við Icelandair.
Ef til verkfalls kæmi krefst það
nokkurs aðdraganda lögum sam-
kvæmt. Segir Jóhannes að fari allt á
versta veg geti verkfall orðið í fyrsta
lagi um næstu mánaðamót. Verkfall-
ið myndi aðeins ná til félagsmeðlima
sem starfa hjá Icelandair.
Flugmenn
undirbúa
verkfall
Jóhannes Bjarni
Guðmundsson
MYNDIRNAR og textarnir dular-
fullu sem varpað var á Hallgríms-
kirkju í gær voru hluti af mynd-
bandsinnsetningu austurríska
listamannsins Philipp Bergmeister
sem segist ekki hafa verið að deila á
kristna trú, eins og vegfarandi sem
sá myndirnar í fyrrakvöld taldi að
væri raunin.
Philipp hafði samband við Morg-
unblaðið í gær og vildi koma því að á
framfæri að hann hefði aðeins verið
að forvitnast um trú landsmanna á
álfa og huldufólk, og spurði hann
gangandi vegfarendur um upplifanir
þeirra á álfum, á meðan á sýningunni
stóð. Philipp er staddur hér á landi
til að vinna að myndbandsinnsetn-
ingu sem byggist á kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar Hringurinn.
Álfarýni, ekki
gagnrýni
♦♦♦