Morgunblaðið - 12.04.2008, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Ætli Vilhjálmur Egilsson, fram-kvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, trúi því að allt verði
gott á Íslandi ef við tökum upp evru í
viðskiptum okkar í milli þótt forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins hafi afgreitt allar slíkar
hugmyndir með afgerandi hætti í
samtali við forsætisráðherra Íslands
fyrir nokkru?
Í eina tíð var Vil-hjálmur al-
þingismaður
Sjálfstæðis-
flokksins á Norð-
vesturlandi. Ætli
Vilhjálmur mundi
tala fyrir evr-
uvæðingu og
ESB-aðild ef
hann væri enn
þingmaður fyrir það landsvæði?
Ætli Vilhjálmur Egilsson mundiganga um bryggjurnar í sjáv-
arplássunum í sínu gamla kjördæmi
og útskýra fyrir sjómönnum og út-
gerðarmönnum að það skipti engu
máli þótt ákvörðunarvaldið um nýt-
ingu auðlindanna í hafinu í kringum
Ísland yrði flutt til Brussel?
Kannski er þetta misskilningur.Kannski er Vilhjálmur Egilsson,
sem nú boðar að Íslendingar stundi
viðskipti sín í milli með evru, þótt
framkvæmdastjórn ESB vilji ekkert
með það hafa, ekki að lýsa eigin
skoðunum heldur vinnuveitenda
sinna. Er það svo?
Hverra skoðunum er hann að lýsa?
Vilhjálmur Egilsson var á sínumtíma af samþingsmönnum talinn
einn starfhæfasti og nýtasti þing-
maður í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins.
Sennilega er það sambýlið viðSamtök iðnaðarins sem er svona
smitandi!
STAKSTEINAR
Vilhjálmur
Egilsson
Smitandi sambýli
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!"
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#
$ $
$#
%
%
%
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
#
#
#
#
#
#
*$BC
! "#
$ #
*!
$$B *!
&'
(
' !
%
) * )
<2
<! <2
<! <2
&% (
+
" , - ).
C
$
62
%"
&&
'
(
$
#
B
! )" $ *)
$*
#
#
! )" * *
! )" $ +"
,
- *
! #
/0 )11 ) 2!) ) +
"
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Guðmundur Magnússon | 11. apríl
Áhrif bænda
í þéttbýli
Áhrif bænda á íslensk
þjóðfélagsmál í tímans
rás hafa síst verið of-
metin. Þeir hafa ekki
aðeins beitt sér á
heimavígstöðvunum, í
sveitum landsins, held-
ur einnig í þéttbýlinu. Það sýnir dæmi,
sem ég rakst á nýlega, um afskipti
þeirra af tungutaki Reykvíkinga. Þegar
strætisvagnar byrjuðu á sínum tíma
að ganga í höfuðborginni veltu menn
því fyrir sér hvað nefna ætti staðina
þar sem farþegar bíða eftir vögn-
unum. Urðu um þetta nokkur …
Meira: gudmundurmagnusson.blog.is
Arnþór Helgason | 11. apríl
Hausaskeljastaður
Þeir eru víðar en á Golgata, hausa-
skeljastaðirnir. Í Lhasa eru til sölu silf-
urskreyttar höfuðskeljar fólks. Algengt
er að menn hirði hluta af höfuðkúpum
látinna ættingja, skreyti þær og selji
síðan eða eigi til minja. Jamm, ætli
maður hefði lyst á að bergja á silfur-
skreyttri skál úr höfuðkúpu náins vinar
eða ættingja? Hver veit.
Kínverska sjónvarpið hefur að und-
anförnu sýnt ýmsar myndir frá Tíbet,
einkum Lhasa. Þar hefur margt athygl-
isvert borið fyrir eyru og augu.
... Vegna fáfræði og yfirborðs-
mennsku vinna nú Vesturlönd Tíbetum
meira tjón en vinir Tíbets geta ...
Meira: arnthorhelgason.blog.is
Hallur Magnússon | 11. apríl
Brýnt að tvöfalda Suð-
urlandsveg strax …
Nú veit ég ekki hvernig
áætlunum Vegagerð-
arinnar um tvöföldun
Suðurlandsvegar er
háttað, en það er brýnt
að tvöfalda Suðurlands-
veg strax á kaflanum milli Hvera-
gerðis og Selfoss. Ég hef alla tíð verið
smeykur við þennan kafla þar sem oft
myndast langar bílaraðir vegna slóða-
gangs einstakra bílstjóra sem aka allt
of hægt, þannig að ökumenn freistast
til framúraksturs við ekki allt of góðar
aðstæður. Í ljósi þess að þarna fer
ekki einungis …
Meira: hallurmagg.blog.is
Kári Harðarson | 11. apríl
Tölvuvæðing sem
mætti klára
Símaskráin var mikið
þarfaþing á árum áður
og náði að trosna á
hornunum áður en sú
næsta var gefin út. Ef
menn báðu fallega og
borguðu fyrir fengu
menn „götuskrána“ en það var síma-
skrá sem var raðað eftir heim-
ilisföngum. Hún var aðeins í eigu útval-
inna af því forráðamenn álitu að hana
væri hægt að misnota til að ónáða
fólk. Núna er hægt að fletta upp á
heilu íbúðargötunum, þökk sé
www.ja.is, en ég veit ekki til þess að
nein klögumál hafi komið upp út af
þeirri breytingu.
Fyrst óttinn reyndist ástæðulaus vil
ég leggja til að bifreiðaskráin verði líka
gefin frjáls. Í dag hafa aðeins bílaum-
boð og fleiri útvaldir aðgang að henni.
Hægt er að sækja um áskrift en hún
kostar formúu. Samt er hún í almanna-
eign. Rökin fyrir að hún er lokuð eru
sennilega þau sömu og vegna götu-
skrárinnar fyrir tuttugu árum.
Ef bílaskráin yrði opnuð gæti ég
hringt í manninn sem leggur ólöglega
uppi á gangstétt eða lokar innkeyrsl-
unni hjá mér, eða er ljóslaus í umferð-
inni, eða skellti hurðinni á frakkann
sinn og keyrir með lafið í drullunni.
Þegar einhver hringir í mig í gemsa
ætti nafn og heimili viðkomandi að birt-
ast, ekki bara númerið. Síminn er með
símaskrána svo af hverju sendir hann
mér ekki upplýsingar um þann sem
hringir?
Heimilissíminn er orðinn svo úreltur
að ég veit ekki af hverju hann fær að
vera í sambandi heima. Hann er að
vísu með númerabirtingu, en hann sýn-
ir ekki nöfn þeirra sem hringja og við-
mótið í honum er algerlega úrelt. Ég
spái heimilissímanum ekki langra líf-
daga úr þessu.
Eitt gæti bjargað heimilissímanum
og það væri ef hægt væri að fá ein-
hvers konar heimasíma sem gæti les-
ið og skrifað tölvupóst. Mamma mín er
orðin of gömul til að reka einkatölvu
enda er hún strandaglópur á upplýs-
ingahraðbrautinni. Hefur þú reynt að
senda áttræðri manneskju tölvupóst
nýlega? Ætti bærinn eða ríkið kannski
að gera eitthvað fyrir þetta fólk?
Ég þarf stundum að senda fólki
pappírspóst í umslagi en þá þarf ég
sjálfur að prenta hann, stinga honum í
umslag og fara á næsta …
Meira: kari-hardarson.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, flutti í gær aðalræðuna á
ráðstefnu í Andorra og fjallaði hún
um tækifæri smárra ríkja í hagkerfi
veraldarinnar. Á ráðstefnunni er
rætt um stöðu evrópskra smáríkja,
einkum Liechtenstein og Andorra,
með hliðsjón af tengslum þeirra við
ESB. Ráðstefnuna sækir fjöldi sér-
fræðinga, fjármálamanna og for-
ystumanna í þjóðmálum.
Í ræðu sinni lýsti forsetinn hvern-
ig hin breytta heimsmynd hefði
skapað smærri ríkjum ný sóknar-
færi. Þróun Evrópu undanfarna tvo
áratugi hefði sýnt styrkleika fjöl-
margra lítilla og miðlungsstórra
ríkja í álfunni, gagnstætt því sem
margir hefðu spáð þegar Berlínar-
múrinn féll og kalda stríðinu lauk.
Hin smærri ríki hefðu reynst hafa
sveigjanleika og sköpunarkraft til að
færa sér í nyt þau tækifæri sem upp-
lýsingabyltingin, alþjóðavæðingin og
heimsmarkaðurinn hefðu skapað. Ís-
land væri kjörið dæmi um þessa þró-
un. Árangur landsins á fjölmörgum
sviðum væri til vitnis um að 21. öldin
gæti orðið blómaskeið smárra ríkja.
Forsetinn tók dæmi af íslenskum
fyrirtækjum, t.d. á vettvangi orku-
nýtingar, lyfjaframleiðslu, í rekstri
banka og fjár-
málaþjónustu,
smásölu og mat-
vælaframleiðslu,
á sviði hugbúnað-
ar og upplýsinga-
tækni. Fyrirtæki
á öllum þessum
sviðum hefðu náð
ótrúlegum ár-
angri á alþjóðleg-
um markaði.
Ísland nyti ýmissa kosta Evrópu-
sambandsins án þess að vera form-
legur aðili að því vegna samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið. Ís-
lendingar gætu sjálfir gert samninga
við ríki í öðrum heimsálfum og væri
Ísland fyrsta landið í Evrópu sem
væri að undirbúa fríverslunarsamn-
ing við Kína.
Þá vék forseti að nauðsyn þess að
efla rannsóknir á stöðu og einkenn-
um smáríkja, bæði í Evrópu og á
heimsvísu. Hann lýsti starfsemi
Smáríkjaseturs sem stofnað var við
Háskóla Íslands fyrir fáeinum árum.
Hvatti hann til þess að smærri ríki í
Evrópu efldu samstarf sitt og sam-
vinnu og stuðluðu að öflugri fræði-
legri umræðu um þau tækifæri sem
21. öldin fæli í sér.
Breytt heimsmynd
hefur fært smáríkjum
ný tækifæri
Ólafur Ragnar
Grímsson