Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Árborg | Landbúnaðarháskóli Íslands er með
eina af sínum starfsstöðvum á Reykjum í Ölf-
usi þar sem Garðyrkjuskólinn var áður til
húsa. Bjart er yfir starfseminni á Reykjum
enda skólinn að fara að útskrifa um 35 nýja
garðyrkjufræðinga og starfsmenn skólans
verða með opið hús í skólanum á sumardaginn
fyrsta, 24. apríl.
Guðríður Helgadóttir er forstöðumaður
starfs- og endurmenntunardeildar Landbún-
aðarháskólans og staðarhaldari á Reykjum.
Hún er menntaður garðyrkjufræðingur frá
Garðyrkjuskóla ríkisins og líffræðingur frá
HÍ. Guðríður hef starfað í garðyrkju frá árinu
1986 eða þegar hún hóf störf í gróðrarstöðinni
Grænuhlíð við Bústaðaveg í Reykjavík og
flutti sig svo yfir í gróðrarstöðina Storð við
Dalveg í Kópavogi þegar hún var sett á lagg-
irnar. Í janúar 1997 hóf hún störf við Garð-
yrkjuskólann sem fagdeildarstjóri garð-
plöntubrautar og starfaði sem slíkur fram að
sameiningu stofnana undir hatti Landbún-
aðarháskóla Íslands þann 1. janúar 2005. Guð-
ríður er gift Finnbirni Aðalvíkingi Her-
mannssyni og eiga þau tvær dætur,
Ingibjörgu Brynju og Brynhildi Erlu.
Starfsmenntanám á
framhaldsskólastigi
„Á Reykjum fer fram nám á garð-
yrkjubrautum Landbúnaðarháskólans, með
svipuðu sniði og var áður hjá Garðyrkjuskól-
anum. Þetta er starfsmenntanám á framhalds-
skólastigi og við bjóðum upp á nám á nokkrum
námsbrautum; í blómaskreytingum, garð-
yrkjuframleiðslu, skógrækt og skrúðgarð-
yrkju. Námið tekur alls rúm þrjú ár, þar af
eru tveir vetur í bóklegu námi við skólann og
72 vikur í verknámi á verknámsstöðum. Jafn-
framt getur fólk stundað stóran hluta af bók-
lega náminu í fjarnámi“, sagði Guðríður þegar
hún var beðin um að segja frá náminu á
Reykjum.
Hún segir að aðsóknin að skólanum hafi
verið jöfn og stöðug í gegnum tíðina. Um 40
nemendur eru í hverjum árgangi og það er
fólk alls staðar að af landinu og á breiðu ald-
ursbili. Yfirleitt eru yngstu nemendurnir um
tvítugt og þeir elstu farnir að halla í sextugt.
Nemendur á Reykjum eru með mjög fjöl-
breyttan bakgrunn, menntun og reynslu sem
nýtist vel í náminu.
35 nýir garðyrkjufræðingar
Í vor útskrifast 35 nýir garðyrkjufræðingar
frá Reykjum. „Við erum nú þegar komin með
fjölmargar skráningar fyrir næsta árgang.
Reyndar má segja að við finnum fyrir því að
aðeins er farið að draga saman í þenslunni í
þjóðfélaginu því þá streyma nemendur inn í
skólana og jafnframt verður auðveldara að fá
kennara til starfa. Umsóknarfrestur um skóla-
vist er til 4. júní“, sagði Guðríður.
Landbúnaðarháskólinn fluttist um síðustu
áramót frá landbúnaðarráðuneytinu yfir til
menntamálaráðuneytisins. „Flutningur skól-
ans milli ráðuneyta hefur enn sem komið er
ekki haft neinar verulegar breytingar í för
með sér varðandi skólastarfið. Við væntum
hins vegar mikils af þessum flutningi og horf-
um meðal annars til jákvæðrar reynslu Dana
sem stóðu í svipuðum tilfæringum fyrir nokkr-
um árum. Skólinn finnur fyrir miklum áhuga
ráðuneytisins á starfsemi hans og það er mjög
jákvætt“, bætti Guðríður við.
Björt framtíð
En hvernig sér Guðríður framtíð garðyrkju-
menntunar í landinu? „Garðyrkjumenntun
stendur styrkum fótum í dag. Það er gríðarleg
eftirspurn eftir fólki með garðyrkjumenntun
og við náum ekki að anna þeirri eftirspurn
eins og staðan er í dag en við tökum einungis
inn nemendur á garðyrkjubrautir annað hvert
ár. Það er því á stefnuskrá skólans að taka inn
nemendur í garðyrkjunám árlega og væntum
við þess að við það muni nemendafjöldi í nám-
inu aukast“.
Sumardagurinn fyrsti
Starfsmenn á Reykjum verða með opið hús
fyrir landsmenn á sumardaginn fyrsta, 24.
apríl.
„Sumardagurinn fyrsti hefur verið haldinn
hátíðlegur hér á Reykjum um áratugaskeið.
Við höfum opið hús og allt áhugafólk um sum-
ar er hjartanlega velkomið til okkar. Hingað
kemur fólk til að upplifa sumarið í garðskál-
anum en nú eru plönturnar í skálanum að
springa út og allt að komast í blóma. Við höf-
um notað tækifærið og verið með hátíðardag-
skrá eftir hádegi þennan dag þar sem skólinn
afhendir garðyrkjuverðlaun sín og Hvera-
gerðisbær afhendir umhverfisverðlaun en
þess má geta að forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, afhendir verðlaunin í ár eins og
hann hefur nú gert nokkrum sinnum áður.
Í mötuneyti skólans er veitingasala og til-
valið að fá sér kaffi og heitar vöflur til að halda
upp á daginn. Jafnframt verður hægt að
kaupa íslenskt grænmeti á markaðstorginu í
garðskálanum. Íslandsmeistarakeppnin í
blómaskreytingum fer fram hér í skólanum
þennan dag og er það mjög glæsileg keppni,
gestir og gangandi geta fylgst með kepp-
endum galdra fram ótrúlegustu skreytingar.
Gróðurhúsin eru opin og hægt að skoða allt
sem þar ber fyrir augu, meðal annars kaffi-
plöntur og íslenska banana svo eitthvað sé
nefnt“, sagði Guðríður þegar hún var beðin
um að segja frá opna húsinu.
Þá kom fram hjá henni að ýmis fyrirtæki
tengd garðyrkju kynna vörur sínar og þjón-
ustu víðs vegar um skólasvæðið. Torfhleðslur
verða til sýnis en nemendur verða á námskeiði
um slík vinnubrögð vikuna fyrir sumardaginn
fyrsta og verður hleðslumeistarinn Guðjón
Kristinsson á staðnum. Skátar verða einnig
með leiktæki þannig að börnin geta fundið
sitthvað við sitt hæfi. „Það er alveg kjörið fyr-
ir fjölskylduna að líta við hér á Reykjum á
sumardaginn fyrsta og gleðjast með okkur yf-
ir sumarkomunni. Framtíðin er björt í garð-
yrkju á Íslandi og ótal tækifæri til að skapa
grænt og vænt umhverfi okkur og komandi
kynslóðum til handa,“ sagði staðarhaldarinn
að lokum.
Framtíðin er björt í garðyrkjunni
Landbúnaður Guðríður Helgadóttir, stað-
arhaldari á Reykjum í Ölfusi.
35 nýir garðyrkjufræð-
ingar að útskrifast frá
Reykjum í Ölfusi
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
LÝÐRÆÐISDAGUR er á Akureyri
í dag, á vegum bæjaryfirvalda. Til-
gangurinn er fyrst og fremst að efla
íbúalýðræðið og koma af stað frjóum
umræðum um það hvernig bæj-
arbúar sjái fyrir sér að gera megi
Akureyri að ennþá betri bæ.
Dagskráin verður í Brekkuskóla,
hefst kl. kl. 13 og er áætlað að henni
ljúki um klukkan 17. Fólk getur val-
ið um að ræða málin í átta ólíkum
málstofum þar sem fjallað verður
um ýmis áhugaverð málefni sem
varða hag bæjarbúa. Flestar mál-
stofurnar verða haldnar tvisvar og
því ætti jafnvel að vera hægt að taka
þátt í tveimur þeirra ef vilji er fyrir
hendi.
Á fundinum gefst bæjarbúum
tækifæri til að hafa áhrif á bæj-
arbraginn, deila skoðunum sínum og
sjónarmiðum með öðrum, og láta
gott af sér leiða í bæjarmálum al-
mennt.
„Hlutirnir þurfa að vera þannig að
sjaldan verði mjög mikil óánægja og
fólki finnist sem sjaldnast að gengið
sé fullkomlega framhjá því,“ segir
Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt við Há-
skólann á Akureyri, en hann hefur
framsögu í einni málstofunni – um
íbúalýðræði. „Það er þekkt frá öðr-
um löndum að til eru ýmsar leiðir til
að leita álits bæjarbúa og það er
sjálfsagt að gera það, en yfirvöld og
bæjarbúar þurfa líka að muna að
fólk hefur greitt atkvæði; menn hafa
kosið sér fulltrúa til þess að sinna
bæjarmálum að einhverju leyti og ég
myndi segja að íbúalýðræði væri í
sjálfu sér leið til að styrkja það sem
er verið að gera en geti ekki komið í
veg fyrir það,“ segir Ágúst Þór.
Auk málstofunnar þar sem Ágúst
Þór er framsögumaður eru þessar á
dagskrá:
Mengun, umferð og lýðheilsa;
Pétur Halldórsson.
Göngu- og hjólreiðastígar; Guð-
mundur Haukur Sigurðarson.
Lýðheilsa og skipulag; Matthildur
Elmarsdóttir.
Hæglætisbær eða heimsborg-
arbragur? Hólmkell Hreinsson.
Vistvernd í verki. Allra hagur;
Stella Árnadóttir.
Að eldast á Akureyri. Sigrún
Sveinbjörnsdóttir.
Akureyri – fjölskylduvænt sam-
félag; Jan Eric Jessen.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Framtíð Þessar ungu stúlkur biðu spenntar eftir skólabílnum utan við
Brekkuskóla í vetur. Framtíð þeirra verður í brennidepli í skólahúsinu í dag.
Lýðræðisdagur
fyrir Akureyringa
HLUTVERK forseta í vestrænum
lýðræðisríkjum er viðfangsefni ráð-
stefnu sem haldin verður í Háskól-
anum á Akureyri í dag, þar sem
fræðimenn víða að halda erindi.
Timothy Murphy, kennari við Há-
skólann á Akureyri, sem fjallar um
hlutverk forseta Írlands á ráðstefn-
unni, segir ástæðu þess að hún er
haldin þær deilur sem orðið hafa um
embætti forseta Íslands. „Okkur
fannst, af því tilefni, upplagt að bera
saman embætti forseta í nokkrum
vestrænum lýðræðisríkjum,“ segir
hann. Í erindi sínu fjallar Murphy
sérstaklega um grein 26 í íslensku
stjórnarskránni og ber hana saman
við 26. grein írsku stjórnarskrárinn-
ar. „Það er reyndar algjör tilviljun
að þessar greinar bera sama númer,
en í báðum er getið um þau áhrif sem
forseti getur haft við lagasetningu. Á
Íslandi er forseta heimilt að skjóta
málum til þjóðarinnar en á Írlandi er
annað upp á teningnum; ef forsetinn
er í vafa um að ný lög fái staðist get-
ur hann vísað þeim til hæstaréttar og
rétturinn metur hvort þau samræm-
ast stjórnarskránni eða ekki. Þetta
hefur oft verið gert.“
Timothy er gagnrýninn á íslensku
stjórnarskrána. „Eftir því sem ég
best veit var stjórnarskrá Íslands frá
1944 í raun hugsuð sem bráðabirgða-
plagg. Markmiðið var að landið fengi
sjálfstæði en eftir stríðið var stefnan
sú að búa til „íslenska“ stjórnarskrá
og hætta að nota danska módelið.“
Timothy segir 26. grein íslensku
stjórnarskrárinnar mjög óljósa.
„Þrátt fyrir allt er ekkert um þjóð-
aratkvæðagreiðslu í stjórnar-
skránni. Ef Íslendingar vilja geta
haldið slíka atkvæðagreiðslu verður
að setja í stjórnarskrána ákvæði um
hvernig henni skuli háttað.“
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, setur ráðstefn-
una kl. 10 í húsakynnum skólans við
Þingvallastræti.
Síðan fjallar Sigurður Líndal, pró-
fessor emeritus, um hlutverk forseta
Íslands, Veli-Pekka Viljanen, pró-
fessor við háskólann í Turku, fjallar
um hlut forseta Finnlands og Giorg-
io Baruchello, kennari við Háskólann
á Akureyri, um hlutverk ítalska for-
setans.
Eftir hádegi fjallar Timothy
Murphy, kennari við Háskólann á
Akureyri, um hlutverk forseta Ír-
lands og Günter Frankenberg, pró-
fessor við J.W. Goethe-háskólann í
Frankfurt am Main, um hlutverk
forseta Þýskalands.
Í pallborði að erindunum loknum
verða svo Cathterine Dupre frá há-
skólanum í Exeter, Garrett Barden
frá Háskólanum á Akureyri, Günter
Frankenberg, Sigurður Líndal, Tim-
othy Murphy, Veli-Pekka Viljanen
og Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt-
arlögmaður. Fundarstjórar eru
Margrét Heinreksdóttir og Ragnar
Aðalsteinsson.
Hvert er hlut-
verk forsetans?
Morgunblaðið/RAX
Ísland Sigurður Líndal fjallar um
hlutverk forseta Íslands.
Rætt um forseta-
embætti í vestræn-
um lýðræðisríkjum
HREINGJÖRNINGUR í lit nefnist
gjörningur sem fluttur verður í
kvöld af Önnu Richardsdóttur, dans-
ara og gjörningalistakonu, og fleir-
um. Sýningin hefst kl. 20.30 í bíla-
geymslu við Norðurorku að
Rangárvöllum.
Auk Önnu vinna að gjörningnum
myndlistakonurnar Brynhildur
Kristinsdóttir og Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir, tónlistarmennirnir Kristján
Edelstein og Wolfgang Sahr, og
Þorbjörg Halldórsdóttir leikmynda-
hönnuður. Verkið er samið af Önnu
Richardsdóttur en í náinni samvinnu
við hitt listafólkið. „Verkið fjallar
um hvernig lífið setur mismunandi
liti á hinar mismunandi persónur til-
verunnar,“ segir m.a. í tilkynningu.
Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur
verður með tónleika í Laug-
arborg í Eyjafjarðarsveit á morg-
un, sunnudag, kl. 15. Á efnisskrá
er frumsamið eftir meðlimi tríós-
ins en þeir eru, auk Sunnu,
trommuleikarinn Scott McLe-
more og Þorgrímur Jónsson á
kontrabassa. Miðaverð er 2.000
kr.
Fyrsti markaðsdagur Marínu
verður á morgun, sunnudag, á
milli kl. 12 og 17 í Strandgötu 53
þar sem skemmtistaðurinn Odd-
vitinn var áður til húsa. Þar munu
vel á þriðja tug manna koma með
nýjar og notaðar vörur og leggja
undir sig húsið sem telur yfir 700
fermetra.
Hlynur Hallsson verður með leið-
sögn og umræður um sýninguna
Bæ bæ Ísland í Listasafninu á Ak-
ureyri á morgun, sunnudag, kl.
14. Leiðsögnin ásamt umræðum
mun standa yfir í um 40 mínútur
og er öllum opin.
Félag umhverfisfræðinga á Ís-
landi heldur á mánudaginn mál-
þing um umferðarmengun og
loftgæði sem ber yfirskriftina.
Málþingið verður í húsnæði Ak-
ureyrarakademíunnar við Þór-
unnarstræti kl. 16.30 til 19.
Margt í boði
um helgina