Morgunblaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 21
SUÐURNES
Þorlákshöfn | 527 íbúar í Þorláks-
höfn, 18 ára og eldri, skrifuðu sig á
undirskriftalista þar sem öllum
hugmyndum um endurnýjun á
starfsleyfi til Lýsis hf. í þorpinu
vegna fiskþurrkunar er harðlega
mótmælt. Undirskriftalistinn var
afhentur Elsu Ingjaldsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands í gær.
„Ástandið er viðverandi skerðing
á lífsgæðum íbúa sem ekki geta not-
ið þess að verið úti við á góðum
dögum og andað að sér hreinu lofti.
Það er skerðing á lífsgæðum okkar
að geta ekki sofið við opinn glugga
eða loftað út. Ástandið er skerðing
á lífsgæðum barna okkar sem þurfa
að skammast sín fyrir ýldulyktina
gagnvart gestum sínum. Ástandið
er hamlandi á eflingu atvinnulífs og
atvinnuþróunar í Þorlákshöfn.
Starfsmenn fyrirtækjanna sem eru
í grennd við fiskþurrkunina anga af
ýldulykt eftir vinnudaginn sem og
bílar þeirra. Munum að það fyrsta
sem utanaðkomandi dettur í hug
þegar minnst er á Þorlákshöfn er
vond lykt“, segir í mótmælabréfinu.
Bréfið og undirskriftalistinn verð-
ur lagt fram á fundi Heilbrigðis-
nefndar Suðurlands 22. apríl nk.
Mótmæli Elsa Ingjaldsdóttir tekur hér á móti undirskriftalistunum úr
hendi Guðmundar Oddgeirssonar, íbúa í Þorlákshöfn, en hann og nokkrir
aðrir íbúar gengu í hús og söfnuðu undirskriftunum.
Vondri lykt mótmælt
SUMARDAGINN FYRSTA verða
100 ár liðin síðan Ungmennafélag
Reykdæla var stofnað í Borgarfirði.
Þrátt fyrir að félagið sé því eitt elsta
starfandi ungmennafélag landsins er
félagsstarf á vegum þess í miklum
blóma. Nýverið lauk t.d. sýningum á
leikritinu Þið munið hann Jörund og
fékk sýningin góða aðsókn og dóma. Í
tilefni aldarafmælis félagsins hefur
verið gefið út ritið UMFR – Í hundrað
ár. Jóhanna G Harðardóttir blaða-
maður ritstýrði verkinu sem er 120
síður og ríkulega myndskreytt. Í for-
mála afmælisritsins segir m.a. að í til-
efni tímamótanna hafi þótt við hæfi að
rifja upp sögu félagsins og ákveðið að
gefa út rit þar sem saga þess yrði rak-
in í máli og myndum. Ritið skyldi vera
í léttum stíl og sett fram á þann hátt
að sem flestir fyndu eitthvað sem
vekti áhuga. Ásamt því að rekja sögu
félagsins frá upphafi stofnunar þess í
Deildartungu vorið 1908 er rætt við
nokkra gamla ungmennafélaga um
starfið í áranna rás. Meðal efnisþátta
er ítarleg frásögn af starfsemi í kring-
um ungmennafélagshúsið Logaland
og byggingarsaga þess rakin. Þá er
m.a. leikstarfi lýst í máli og myndum,
sagt frá skógrækt við félagsheimilið,
dansleikjahaldi, bókasafni, íþróttum
og æskulýðsstarfi eru gerð góð skil.
Afmælisrit
komið út
LANDIÐ
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Þetta hefur verið
mjög skemmtilegur vetur. Við er-
um búin að æfa upplesturinn mik-
ið,“ sagði Lukas Serwatko, nem-
andi í Heiðarskóla sem sigraði í
Stóru upplestrarkeppninni í
Reykjanesbæ á miðvikudag. Lucas
er pólskur að uppruna en hefur
verið búsettur í Reykjanesbæ í 8
ár. Ekki er á máli hans að heyra,
né upplestri, að hann hafi annað
móðurmál en íslensku.
Stóra upplestrarkeppnin hófst á
Degi íslenskrar tungu hinn 16. nóv-
ember síðastliðinn og í allan vetur
hafa nemendur í 7. bekk grunn-
skólanna æft upplestur að kappi. 10
nemendur úr 5 grunnskólum í
Reykjanesbæ öttu kappi í úrslitum
keppninnar auk tveggja nemenda
úr Grunnskólanum í Sandgerði.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar sá
um tónlistarflutning á milli atriði
og eru flytjendurnir allir í 7. bekk
grunnskólanna.
Ingibjörg Einarsdóttir, formaður
dómnefndar, sagði á lokahátíðinni
að það væri ánægjuleg staðreynd
að börn í 7. bekk nemendur hefðu í
allan vetur verið að vanda sig við
flutning málsins. „En það má ekki
gleyma því að þau hafa fengið mjög
góða leiðsögn,“ sagði Ingibjörg.
Börnin lásu kafla úr sögunni Nonni
eftir Jón Sveinsson og ljóð eftir
Stein Steinarr. Einnig fengu börnin
sjálf að velja sér ljóð til lesa upp.
Lukas Serwatko valdi sér ljóðið
Haraldur kjúklingur eftir Davíð
Þór Jónsson en ljóðið er að finna í
bókinni „Vísur fyrir vonda krakka“.
„Ég var bara að leita á bókasafninu
og fann þessa bók. Mér finnst
þetta flott ljóð,“ sagði Lukas í sam-
tali við blaðamann.
– Lestu mikið? „Já, ég les mik-
ið,“ svaraði Lucas og nefndi að
Þórarinn Eldjárn væri í sérstöku
uppáhaldi hjá honum.
Lukas þótti standa sig best í
þeim þáttum sem dómnefndin vann
út frá, þ.e. upplestri, hvernig les-
arinn ber sig að við púltið og
hversu góð samskipti hann á við
salinn. „Þau eru hins vegar öll sig-
urvegarar vegna þess að þau hafa
náð hingað,“ sagði Ingibjörg og
hrósaði öllum upplesurum fyrir
vandaðan flutning. Í öðru sæti varð
Hera Ketilsdóttir í Myllubakka-
skóla og í þriðja sæti Ingibjörg Ýr
Smáradóttir, Njarðvíkurskóla. Þau
fengu peningaverðlaun frá Spari-
sjóðnum í Keflavík, auk þess sem
skólarnir fengu viðurkenning-
arskjöl. Sérstök verðlaun voru
einnig veitt Snorra Má Gunn-
arssyni, Myllubakkaskóla, fyrir
góða nærveru og hlýjan og vand-
aðan flutning.
Ekki að heyra á upplestri né máli
að uppruninn sé annar en íslenskur
Lucas Serwatko frá Póllandi sigraði í Stóru upplestrarkeppninni í Reykjanesbæ
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Lestrarhestar Sigurvegararnir í Stóru upplestrarkeppninni í Reykja-
nesbæ, f.v. Ingibjörg Ýr Smáradóttir, Njarðvíkurskóla, Hera Ketilsdóttir,
Myllubakkaskóla, og Lucas Serwatko.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Við værum ekki
þar sem við erum nema fyrir stuðn-
ing grasrótarinnar. Tilkoma þessa
tækis er mikið framfaraspor fyrir
stofnunina,“ sagði Konráð Lúðvíks-
son, framkvæmdastjóri lækninga á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
(HSS), þegar stofnunin tók á móti
ristilspeglunartæki sem Krabba-
meinsfélag Suðurnesja afhenti á
fimmtudag.
Á Alþingi eru nú í undirbúningi
lög um skimun einstaklinga til að
fyrirbyggja ristilkrabbamein. Þessi
tegund krabbameins er algerlega
fyrirbyggjanleg, að sögn læknis, sé
rétt að málum staðið. Með skimun
einstaklinga 55 ára og eldri aukast
líkur á því að krabbameinið finnist á
byrjunarstigi og hægt verði að
brenna burt seba. Til þess gerður
brennari fylgdi gjöf Krabbameins-
félagsins. Tækið verður auk þess
hægt að nota við berkjuspeglanir.
Það var Ómar Steindórsson, for-
maður stjórnar Krabbameinsfélags
Suðurnesja, sem afhenti Konráði
Lúðvíkssyni gjöfina að viðstöddum
Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigð-
isráðherra og Sigríði Snæbjörns-
dóttur forstjóra HSS. Ómar sagði að
félagið hefði ákveðið að nota tæki-
færið úr því að binda ætti ristilspegl-
un í lög. Andvirði beggja tækjanna
er 14 milljónir og hefur krabba-
meinsfélagið unnið við fjáröflun frá
áramótum, auk þess sem fé var tekið
úr sjóði félagsins. Fjöldi fyrirtækja,
félagasamtaka og einstaklinga lögðu
söfnuninni lið en stærstu peninga-
gjafirnar komu frá Kvenfélaginu í
Njarðvík, sem gaf 1½ milljón og
Kaupfélagi Suðurnesja, 1 milljón
króna.
„Við höfum verið heppin í gegnum
tíðina að eiga velvildarmenn og í dag
sannast það enn og aftur. Með þessu
tæki mun okkar takast enn betur að
gera vel við okkar sjúklinga og skjól-
stæðinga í heimabyggð. Það skiptir
máli,“ sagði Konráð þegar hann
veitti tækinu viðtöku. Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra tók í
sama streng og sagði hana vanmetna
þá auðlind sem slík félagasamtök
eru. „Það er mikilvægt að hafa þjón-
ustu sem þessa í heimabyggð,“ sagði
Guðlaugur.
Ristilspeglun
í heimabyggð
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Heilbrigðismál Ómar Steindórsson, formaður stjórnar Krabbameinsfélags
Suðurnesja, afhendir Konráði Lúðvíkssyni, framkvæmdastjóra lækninga á
HSS, gjafabréfið. Hjá standa Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri HSS, og
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
FJÖLMENNINGARNEFND
Reykjanesbæjar heldur kynningu
á pólskri menningu í máli, mat og
myndum í sal Heiðarskóla í dag,
laugardag. Það er hópur pólskra
íbúa Reykjanesbæjar sem tekið
hefur að sér að sjá um kynn-
inguna og hefur verslunin Jumbo,
Iðavöllum sem selur pólska mat-
vöru, veitt góðan styrk. Þetta er
sjötta kynningin á vegum Fjöl-
menningarnefndar Reykjanes-
bæjar og önnur kynningin á til-
teknu landi. Á síðasta ári var
haldin kynning á Indlandi í máli,
mat og myndum sem var vel sótt
af íbúum af öllum aldri. Fjöl-
menningarnefnd Reykjanesbæjar
heldur einnig reglulega kynn-
ingar á íslenskri menningu og
siðum fyrir erlenda íbúa bæj-
arins. Pólland hefur vakið athygli
fyrir fallegt land, ríka menningu
og spennandi matarhefð.
Gert er ráð fyrir að dagskráin
standi frá kl. 11-13 og eru allir
velkomnir á meðan húsrúm leyf-
ir.
Pólsk
kynning í
Reykja-
nesbæ