Morgunblaðið - 12.04.2008, Qupperneq 27
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Króatía
25. maí, 1. júní og 22. júní
frá kr. 39.990
Heimsferðir bjóða einstakt
tilboð til Króatíu í 1 eða 2
vikur 25.maí, 1. júní eða
22. júní. Króatía hefur svo
sannarlega slegið í gegn
hjá Íslendingum. Tryggðu
þér sæti og góða gistingu
á íbúðahótelinu Diamant
með góðri aðstöðu, s.s
spa, líkamsræktarstöð,
sundlaug og veitingastöð-
um. Góð aðstaða er fyrir
börnin svo sem skemmti-
dagskrá, barnaleiksvæði
og barnaklúbbur.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, í íbúð á Diamant í viku, 25.
maí. Brottfarir 1. og 22. júní kr. 10.000
aukalega.
Aukavika kr. 15.000 og aukagjald fyrir
einbýli kr. 15.000.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Diamant í
viku, 25. maí. Brottfarir 1. og 22. júní kr.
10.000 aukalega.
Aukagjald kr. 15.000 og aukagjald fyrir
einbýli kr. 15.000.
Mb
l
99
23
86
Síðustu sætin - aðeins örfáar íbúðir!
Sértilboð á Diamant
- góð gisting
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 27
HUGSIÐ ykkur tvö hundruð
manns í mjóum aflöngum álsívalningi
sem sitja mjög þétt saman með þús-
undir lítra af eldfimu flugvélaelds-
neyti umhverfis og einungis er um
örfáa og þrönga neyð-
arútganga að ræða.
Fráleit hugmynd, eða
hvað? Í meginatriðum
er farþegaflugvél eins
og troðfullur sam-
komustaður en ólíkt
samkomustaðnum þá
er fólkinu hrúgað í lok-
að rými þar sem jafn-
vel smáeldur í rýminu
getur sett alla í hættu
samstundis og troðn-
ingur myndast þegar
farþegar reyna að ná
til neyðarútganga sem
eru mun færri og mjórri en eru í sam-
komustaðnum.
Það er mjög útbreiddur misskiln-
ingur að örlög farþega sem lenda í
flugslysi séu þegar ráðin, í flestum
flugslysum við eða á flugbraut eru
miklar líkur á að farþegar og áhöfn
bjargist og ef flugvallarslökkvil-
iðsmenn geta náð til fórnarlamba
flugslyss innan fyrstu mínútna eru
möguleikar á björgun nálægt 100%
miðað við að nægilegur fjöldi slökkvi-
liðsmanna sé tilbúinn til slökkvi- og
björgunarstarfa tafarlaust. Til að
auka líkur á að lifa af flugslys þarf að-
gengi að þolendum flug-
slyss fyrir slökkviliðs-
menn að vera fyrir
hendi innan ákveðins
lágmarkstíma. Í flestum
flugslysum mæta þol-
endur strax hættunni af
eldi og innöndun heits
reyks, þeir sem ekki
sleppa út fljótt eru lík-
legir til að farast úr
reykeitrun.
Íslendingar eru aðilar
að ICAO (International
Civil Aviation Org-
anization) sem setur að-
ildarlöndum lágmarksskilyrði um
rekstur þ.m.t. slökkviliða. Reglur
ICAO kveða á um magn slökkviefnis
og viðbragðstíma slökkviliðs sem er 3
mínútur. ICAO mælir með að þessi
tími fari ekki yfir 2 mínútur. Ekki er
kveðið á um fjölda slökkviliðsmanna í
viðbragðsstöðu en mælt er með
mörgum atriðum þar sem flugvall-
aryfirvöldum í sjálfsvald sett hvort
farið sé eftir og eru nokkuð frjálsar
hendur settar með fjölda slökkviliðs-
manna á vakt í viðbragðsstöðu hverju
sinni svo framarlega sem nægilegt
magn slökkviefnis komist á slysstað
innann tilsetts tímaramma.
Flugslys er mjög alvarlegur at-
burður, sér í lagi ef farþegarými fyll-
ist af heitum eitruðum reyk á svip-
stundu og áfallið af slysinu breytist í
algjöra skelfingu. Það er óraunhæft
að ætla að flugáhafnir séu færar um
að sjá um björgun farþega í þeirri
ringulreið er skapast við flugslys.
Skylda slökkviliðsmanna er að
bjarga mannslífum. Sé flugvall-
arslökkvilið of fáliðað getur liðið of
langur tími frá flugslysi þar til hægt
er að hefja aðgerðir inni í flugvélinni
til björgunar þeirra sem þar eru.
Þegar að flugvél hlekkist á þá er
hætta á að eldsneytistankar rifni og
þúsundir lítrar af eldfimu flug-
vélaeldsneyti flæði úr tönkum vél-
arinnar Gífurleg hætta á íkviknun
myndast, hitastigið umhverfis flug-
vélina nær strax um 1.500°C. Ál-
klæðning vélarinnar getur brunnið í
gegn á einni til tveimur mínútum og
hitastigið inn í vélinni nær yfir
1.000°C. Heildartími frá því að eldur
kviknar og þar til ástandið í vélinni er
orðið banvænt er þrjár til fjórar mín-
útur. Til að tryggja sem best öryggi
farþega og áhafna er ekki eingöngu
hægt að reiða sig á viðbragðstíma,
einnig verður að horfa til fjölda
slökkviliðsmanna sem eru tilbúnir að
bregðast við til slökkvi- og björg-
unarstarfs á sama tíma innann sama
tímaramma.
Ef til alvarlegs atviks kemur á eða
við flugvöll er flugslysaáætlun gerð
virk. Þegar nágrannaslökkviliðin
mæta í flugslys er tímarammi til
slökkvistarfs löngu liðinn. Hlutverk
aðkomandi aðstoðar í flugslysi er
mismunandi, fjöldi hjálparaðila hefur
þekkingu, þjálfun og reynslu í með-
höndlun og flokkun slasaðra, fæstir
þeirra hafa fengið þjálfun um hvernig
á að umgangast vettvang eftir flug-
slys. Ýmis gerviefni eru notuð í aukn-
um mæli við byggingu flugvéla, að-
allega eru notuð trefjaefni eins og
koltrefjar og grafít, t.d. er Boing-787
Dreamliner að mestu byggð úr
trefjaefnum. Þegar þessi efni
splundrast við flugslys er öllum í
næsta nágrenni mikil hætta búin, ör-
fínar trefjanálar ferðast um loftið og
smjúga inn í öndunarfæri eða
stingast í gegnum húðina, límið sem
heldur þessu í föstum skorðum
brennur við 400°C og myndar mjög
eitraðan reyk. Ótaldar eru ýmsar
aðrar hættur á slysstað.
Flugvallaryfirvöldum eru gefnar
nokkuð frjálsar hendur er varðar
mönnun slökkviliða. Verulegur nið-
urskurður hefur átt sér stað í
mannafla slökkviliðs Keflavík-
urflugvallar og sýnist sitt hverjum
um þá framkvæmd sem ekki sér fyrir
endann á. Allar hugleiðingar um
mannafla, tæki, slökkviefni, þjálfun
slökkviliðsmanna og viðbragðstíma
flugvallarslökkviliðs ættu að miðast
við að slökkva eld fyrir utan flugvél
og verja flóttaleiðir á sama tíma og
hugað er að loftskiptum inni í vélinni,
inngöngu til slökkvistarfs og björg-
unar þeirra sem ekki komast út af
sjálfsdáðum. Mjög mikilvægt er að
stjórnvöld setji ákveðnar reglur um
starfsemi og mönnun flugvallarslökk-
viliða, að öðrum kosti eiga stjórn-
endur flugvalla þess kost að skera
niður í mannafla slökkviliða á kostnað
öryggis flugfarþega og áhafna.
Að lifa af flugslys
Ó. Ingi Tómasson skrifar um
öryggi flugfarþega
Ó. Ingi Tómasson
» Til að auka líkur á að
lifa af flugslys þarf
aðgengi að þolendum
flugslyss fyrir slökkvi-
liðsmenn að vera fyrir
hendi innan ákveðins
lágmarkstíma.
Höfundur er
flugvallarslökkviliðsmaður.
Meistaranám
og diplómanám
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ
Félags- og mannvísindadeild
Félagsráðgjafardeild
Stjórnmálafræðideild
www.felags.hi.is
H
2 h
ö
n
n
u
n
Félags- og mannvísindadeild
Félagsráðgjafardeild
Félagsráðgjöf
Félagsráðgjöf til starfsréttinda
Öldrunarfræði
Norrænt nám í öldrunarfræðum
Stjórnmálafræðideild
Alþjóðasamskipti
Opinber stjórnsýsla
Stjórnmálafræði
Doktorsnám í öllum greinum
Umsóknarfrestur í meistaranám og diplómanám í kennslu-
fræði og náms- og starfsráðgjöf er til og með 15. apríl nk.
Umsóknarfrestur um annað diplómanám er til og með
5. júní nk.
Fjölbreytni - Auknir starfsmöguleikar - Starfstengt rannsóknarnám
Blaða- og fréttamennska
Bókasafns- og upplýsingafræði
Félagsfræði
Fötlunarfræði
Hagnýt þjóðfræði
Kennslufræði
Kynjafræði
Mannfræði
Náms- og starfsráðgjöf
Norræn trú (kennt á ensku)
Uppeldis- og menntunarfræði
Þjóðfræði
Þróunarfræði