Morgunblaðið - 12.04.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 35
Með nokkrum orðum langar mig
að minnast nöfnu minnar, jafnöldru
og mágkonu Signýjar Vilhjálmsdótt-
ur sem lést síðastliðinn laugardag
langt um aldur fram. Kynni okkar
urðu því miður ekki nema um það bil
þrjú ár sem var allt of stutt. En strax
varð mér ljóst þegar ég hitti nöfnu
mína að þarf fór sterk og stolt kona.
Þegar ég var að kynnast Sílalækj-
arfjölskyldunni kveið ég örlítið fyrir
því að hitta þær systur Signýju og
Hörpu sem ég vissi að voru á mínum
aldri en sá kvíði reyndist óþarfur.
Strax var mér vel tekið af öllum og
fljótt varð mér ljós samheldni og
tryggð þessarar fjölskyldu. Stuttu
eftir að ég kynntist Signýju var hún
greind með krabbamein öðru sinni
og hófst þá vinna að því verkefni,
eins og hún orðaði það. Á ótrúlegan
hátt tókst Signý á við þennan erfiða
sjúkdóm og megum við sem hana
þekktum þakka henni margt, ekki
síst lærdóminn sem við fengum af
því að fylgjast með henni og það af
hve miklu æðruleysi og krafti þetta
verkefni hennar var innt af hendi.
Sumarið 2005 heimsóttum við Jón-
as Signýju og Jóa í sumarbústað
þeirra út í Flatey á Skjálfanda, þar
sem þau áttu dásamlegan sælureit á
æskustöðvum Jóa. Þar mátti sjá ein-
staklega smekklegt og vel fyrir kom-
ið heimili sem var svo greinilega
áhugamál þeirra beggja. Þar fór
saman áhugi þeirra beggja á náttúru
eyjarinnar, einstakt næmi fyrir um-
hverfi og að búa sér fallegt sumar-
heimili út í eyjunni. Áttum við þar
saman verslunarmannahelgi sem
okkur Jónasi er afar kær í minning-
unni. Þar skoðuðum við náttúru eyj-
arinnar, dönsuðum í gamla sam-
komuhúsinu, nutum varðelds í
næturhúminu og einstakrar gest-
risni þeirra Signýjar og Jóa.
Við sem þekktum Signýju vissum
öll að hún var mikill fagurkeri og
hverskonar hönnun lék í höndum
hennar. Þessi sameiginlegi vettvang-
ur sameinaði okkur nöfnurnar og var
ósjaldan spjallað um föt, útlit sum-
arbústaða, nýjar innréttingar og
fleira sem tengdist áhugamálum
okkar beggja.
Síðastliðið sumar heimsóttu Signý
og Jói okkur Jónas í Egilsstaði og
var og verður okkur sú heimsókn af-
ar dýrmæt. Þar fengum við loksins
tækifæri á því að vera gestgjafar og
eiga saman frábæra daga. Skoðuðum
við sýningar, tókum þátt í bæjarhá-
tíðinni Ormsteiti og nutum samveru-
stunda sem við minnumst með gleði.
Signý var sannkölluð hetja í bar-
áttu sinni við krabbameinið, var
henni mjög í mun að ættingjar henn-
ar og vinir þjáðust ekki með henni.
Hún var alltaf glæsileg og bar höf-
uðið hátt og á þann hátt tókst henni
að sannfæra okkur hin um að þetta
væri ekki svo alvarlegt sem raun
varð. Síðasta heimsókn okkar Jón-
asar föstudaginn langa til Signýjar
og Jóa á heimili þeirra á Húsavík
verður okkur ætíð kær. Þrátt fyrir
að við vissum að Signý væri alvar-
lega veik sat hún fallega til höfð og
glæsileg og spjallaði við okkur um
✝ Signý Vil-hjálmsdóttir
fæddist á Húsavík
8. september 1960.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Þingeyinga 5. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Sigrún Bald-
ursdóttir og Vil-
hjálmur Jónasson.
Systkini Signýjar
eru Jónas, Guðrún
Harpa, Eygló, d.
1985, Baldur og
Ágúst Elvar.
Sambýlismaður Signýjar er Jó-
hannes Jóhannesson. Börn henn-
ar eru Elísa Rún, Leifur Þór og
Hilmar Henning Heimisbörn.
Útför Signýjar fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
alla heima og geima og
nutum við stundarinn-
ar.
Virðing og óendan-
legur kraftur er efst í
huga mínum þegar ég
kveð þig,Signý, með
þakklæti fyrir að fá að
kynnast þér, elsku
nafna mín.
Megi guð geyma fjöl-
skyldu og vini.
Signý
Ormarsdóttir.
Elsku vinkona.
Nú er höggvið stórt skarð í sauma-
klúbbinn okkar, við ótímabært frá-
fall þitt.
Aldrei verður hann samur, þegar
þig vantar. Í 26 ár vorum við búnar
að vera saman og þótt þú hafir flutt
burt um nokkurra ára skeið voru
tengslin svo sterk að þegar þú komst
til baka var eins og þú hefðir aldrei
farið. Við ræddum það einmitt í vet-
ur að við gætum aldrei tekið nýja
meðlimi inn í klúbbinn okkar því við
værum orðnar sem ein heild og ekki
væri pláss fyrir neina aðra.
Það varð okkur, sem öllum öðrum
sem þekktu þig, mikið áfall þegar þú
greindist með þennan illvíga sjúk-
dóm sem svo margir hafa þurft að
lúta í lægra haldi fyrir.
En þú varst ákveðin í að berjast
gegn honum og eftir fyrstu aðgerð-
ina sem gekk svo vel voru allir svo
bjartsýnir. Í 9 ár barðist þú og það
var okkur hulin ráðgáta hvaðan þér
kom allur þessi kraftur, því oft
varstu mikið veik, en lést aldrei á
neinu bera og alltaf var stutt í glað-
værðina hjá þér. Það var alveg sama
hvenær við hittumst, alltaf gátum við
hlegið og gert að gamni okkar.
Við kveðjustund hrannast upp svo
ótal margar minningar.
Minnisstæð er Danmerkurferðin
sem við fórum í saman. Einnig ætl-
uðum við að fara með ykkur Jóa á
nýja bátnum í sumarbústaðinn ykk-
ar í Flatey sem þú varst svo stolt af,
en af því gat því miður ekki orðið.
Minningarnar um þig eru settar
saman í mörgum brotum og þegar
við röðum þeim saman kemur upp í
hugann hún Signý okkar sem alltaf
var svo glaðvær og kát.
Okkur er víst ekki alltaf ætlað að
skilja lífsins gang en við trúum því að
þér hafi verið ætlað annað hlutverk á
æðri stigum því fráfall þitt var ekki
tímabært.
Elsku Jói, Elísa Rún, Leifur,
Hilmar og aðrir aðstandendur,
Megi góður Guð veita ykkur styrk
og blessun.
Hvíl í friði, kæra vinkona,
Guðrún, Kristín,
Aðalbjörg og Olga.
Hryggðar hrærist strengur,
hröð er liðin vaka;
ekki lifir lengur
ljós á þínum stjaka.
Skarð er fyrir skildi,
skyggir veröldina;
eftir harða hildi
horfin ertu, vina.
Klukkur tímans tifa,
telja ævistundir,
ætíð lengi lifa
ljúfir vinafundir.
Drottinn veg þér vísi,
vel þig ætíð geymi;
ljósið bjart þér lýsi
leið í nýjum heimi.
Með þessum ljóðlínum Hákonar
Aðalsteinssonar kveð ég Signýju vin-
konu mína. Hún hafði barist fyrir líf-
inu í nokkur ár en stóð sig alltaf eins
og hetja. Alltaf jafn bjartsýn og kát.
Þannig ætla ég að minnast hennar,
fyrir óbilandi kjark og þor.
Fjölskyldu hennar sendi ég sam-
úðarkveðjur og bið guð að geyma
þau.
Guðrún Helga
Sigurðardóttir.
Signý
Vilhjálmsdóttir
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför okkar ástkæru,
EBBU JÓSAFATSDÓTTUR,
Brekkubyggð 16,
Blönduósi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Heilbrigðis-
stofnuninni á Blönduósi fyrir góða umönnun.
Aðstandendur.
✝
Okkar ástkæri,
FLOSI ÓLAFSSON
múrarameistari,
Jónsgeisla 1,
Reykjavík,
sem lést af slysförum miðvikudaginn 2. apríl,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 14. apríl kl. 13.00.
Sigríður Steinunn Jónasdóttir,
Hólmgeir Elías Flosason, Berta Björg Sæmundsdóttir,
Valgeir Ólafur Flosason,
Valgerður Guðmundsdóttir.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
INGU JENNÝJAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Gullsmára 11,
Kópavogi.
Gyða Vigfúsdóttir, Knútur Birgisson,
Gréta Vigfúsdóttir, Guðmundur Birgisson,
Árni Guðjón Vigfússon, Hrönn Hallgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÓLMAR FINNBOGASON,
Frostafold 44,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 6. apríl, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. apríl kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
hjúkrunarþjónustu Karitas, s. 551-5606, kl. 9-11.
Karitas Magný Guðmundsdóttir,
Íris Hildigunn Hólmarsdóttir, Gerald Leonard,
Rut Hólmarsdóttir, Morten Wenneberg,
Halla Björk Hólmarsdóttir, Ríkharður Örn Ríkharðsson,
Jóna Brynja Hólmarsdóttir,
Heimir Örn Hólmarsson, Þórunn Karólína Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT FINNBOGADÓTTIR,
Sævangi 26,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn
17. apríl kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélag Hafnarfjarðar og MND-félagið.
Gylfi Jónasson,
Finnbogi Gylfason, Svana Huld Linnet,
Jónas Gylfason, Ingibjörg Valgeirsdóttir,
Gylfi Örn Gylfason, Margrét Guðrúnardóttir,
Kristján Flóki og Ylfa Finnbogabörn,
Sölvi Þór og Hrafnhildur Kría Jónasbörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÁSGEIRS KRISTINSSONAR
frá Höfða,
Stórasvæði 4,
Grenivík,
sem lést fimmtudaginn 20. mars.
Elísa Friðrika Ingólfsdóttir,
Heimir Ásgeirsson, Ólöf Bryndís Hjartardóttir,
Ingólfur Kristinn Ásgeirsson, Álfheiður Karlsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður og afa,
ÚLFARS JÓNS ANDRÉSSONAR,
Borgarheiði 8v,
Hveragerði.
.
Andrés Úlfarsson, Steinunn M. Sigurðardóttir,
Elín Úlfarsdóttir, Pétur Vilhjálmsson,
Ólöf D. Úlfarsdóttir, Gunnar Th. Gunnarsson,
Jökull Úlfarsson, Inga L. Karlsdóttir,
Guðrún B. Úlfarsdóttir, Björn A. Magnússon
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR GÍSLADÓTTUR,
Árskógum 6.
Hrefna Eleonóra Leifsdóttir, Þorsteinn Árnason,
Heiða Kolbrún Leifsdóttir,
Auður Leifsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.