Morgunblaðið - 12.04.2008, Side 36

Morgunblaðið - 12.04.2008, Side 36
36 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Það var ekki minni dagur en dagur upp- risunnar sem var valinn fyrir þig, Árni, til að kveðja á. Ég trúi að það sé táknrænt, að það sé verið að láta okkur, sem eftir erum, vita, að öll munum við hittast í himnaríki að lokum. Síðasti dagurinn í lífi þínu var fæðingardagur elsta sonar þíns, Árna Stefáns, sem lést fyrir einu og hálfu ári síðan. Hann hefði orðið fimmtugur þennan dag. Þú kvaddir snemma að morgni næsta dags. Það var fyrir 28 árum að ég ákvað ásamt vinkonu minni Guð- rúnu að leggja land undir fót og fara að vinna úti á landi. Af ein- hverjum ástæðum lentum við á Hornafirði og hófum störf á Hótel Höfn. Vorum sem sé ráðnar í vinnu hjá þér, Árni, í fjölskyldufyrirtæk- inu, en það sem gerðist síðar, ekki svo löngu seinna, hafðir þú ekki mikið með að gera nema þá að eiga tvo syni á okkar aldri. Fljótlega fór- um við Árni Stefán að vera saman. Það byrjaði allt á hótelinu og bjugg- um við smátíma þar í einu herberg- inu niðri, þar sem nú er grillið. Litlu seinna fóru Gísli Sverrir og Guðrún að stinga saman nefjum. Ég er þakklát fyrir að hafa verið leidd þangað og hafa átt samleið með þér og Svövu, að hafa átt gott líf með Árna Stefáni, hafa kynnst öllum ykkar kostum og ótrúlegri elju, hlýju og velvilja í annarra garð. Ég er þakklát fyrir að börnin mín áttu þig fyrir afa og Svövu fyrir ömmu, sannarlega góðar fyrir- myndir. Þau, sem hafa misst svo mikið, eiga eftir að sakna þín. Það hafa verið erfið ár hjá okkur og erf- itt að sætta sig við að missa Árna Stefán. Hann hafði þennan ótrúlega eiginleika eins og þú að gefast aldr- ei upp, að taka þátt í lífinu meðan hann lifði. Nú eruð þið feðgar sam- einaðir, trúi ég. Ykkur þótti mikið vænt hvorum um annan. Við sem eftir erum eigum minninguna um ykkur, það verður ekki frá okkur tekið. Elsku Svava, megi góður guð styrkja þig og okkur öll. Þóra. Elsku afi, mig langar að þakka þér fyrir allan þinn stuðning við mig í sambandi við fótboltann. Mér þykir vænt um hvað þú hafðir mik- inn áhuga á mínum fótboltaferli og ég veit að þú fylgist áfram með. Það var svo gaman að spjalla við þig um enska boltann og horfa með þér á leiki, þú hélst með Liverpool og ég með Manchester United. Svo minn- ist ég alltaf stundanna uppi í Lóni, þær eru ómetanlegar og ég hafði alltaf gaman af því að hjálpa þér. Sérstaklega þegar við vorum að setja nýjar þökur uppi í brekkunni og þú stoppaðir alltaf við ástar- bekkinn til að hvíla þig en ég hélt áfram og þú varst svo montinn af mér. Þegar ég var lítill þá fannst þér svo gaman að greiða mér og þú varst ánægður með hvað ég var alltaf snyrtilegur enda varstu mikið snyrtimenni sjálfur, þú sagðir að ég væri greinilega skyldur þér. Ég er glaður að hafa farið með í afmæl- isferðina síðasta sumar, sú ferð á eftir að sitja eftir í minningarbank- anum sem er fullur af minningum um þig. Þú varst frábær afi og ég á eftir að sakna þín mikið. Kveðja, þinn Rafn Svan. Mig langar að minnast hans afa Árna með nokkrum fátæklegum Árni Stefánsson ✝ Árni Stefánssonfæddist á Felli í Breiðdal 10. júlí 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn í Hornafirði að morgni páskadags, 23. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafn- arkirkju 29. mars. orðum, en hann kvaddi þennan heim að morgni páskadags. Einnig vil ég óska ömmu Svövu og öllum nánum ættingjum dýpstu samúð mína á þessum erfiðu tímum. Þegar ég hugsa um þig, afi minn, þá kem- ur upp í hugann fjöldi minninga. Efst í huga mér er síðasta stund- in sem ég átti með þér og fyrir hana verð ég ævinlega þakklát- ur. Ekki datt mér í hug að þú myndir vera dáinn aðeins nokkrum dögum eftir þann fund. Þú leist svo vel út, varst hressari og kátari en ég hafði séð þig lengi. Við tókum létt biljardmót og krafturinn og út- sjónasemin í þér var engu minni en fyrst þegar ég man eftir að hafa barið þig augum. En það var líklega í fyrsta sinn sem ég kom á Höfn til að dveljast hjá þér og ömmu sum- arlangt. Aldrei mun ég gleyma því þegar ég kom þarna undir kvöldið á Höfn og leiðin lá beina leið á fót- boltavöllinn þar sem þú varst ennþá að spila með Sindra. Ekki er ég viss um í hvaða flokk eða hvaða deild þetta var því ég var mjög ungur að aldri þá. Hitt er annað mál að þú varst kominn eitt- hvað yfir fimmtugt þá og langelstur þeirra sem um gamla völlinn í mýr- inni hlupu. Ég var svo stoltur af því að þessi maður væri afi minn. Keppnisskapið og leikgleðin voru þér í blóð borin og það sá ég þarna. Þegar boltinn skoppaði yfir skurð- inn í mýrinni þá voru það ekki ungu strákarnir sem höfðu sig eftir hon- um heldur var það sá gamli sem skutlaði sér yfir og hafði lítið fyrir því. Eins var þessu farið í litla loka- mótinu okkar hér um daginn. Þú vannst mig 2:1 og það þó ég telji mig nú nokkuð lunkinn í þeirri grein. Það hvarflaði að mér að ég ætti nú að gefa þér, gamla mann- inum, forgjöf og spila ekki af 100% getu en ég sá strax og leikar hófust að ég kæmi til með að eiga í fullu fangi með að halda í við þig. Enda niðurstaðan sú að þú sigraðir án þess að ég gæfi eftir svo mikið sem einn þumlung. Ég vildi óska þess nú að við gæt- um endurtekið leikinn en það verð- ur víst ekki gert en sú staðreynd, að við skyldum hafa átt þennan stutta tíma – tveir saman – að gera það sem okkur þykir báðum svo gaman er mér mjög dýrmætt. Elsku afi minn, nú langar mig að ljúka þessu með því að þakka þér fyrir að hafa tekið á móti mér sum- ar eftir sumar og lofað mér að dvelja hjá ykkur ömmu á Höfn. Sá tími mun ætíð eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Um hann þarf ég ekki að segja frekar hér. Það er tími sem ég, þú og amma eigum fyrir okkur og hann var yndislegur. Eitt af því sem mér þótti ávallt skrítið sem barn var að þú skyldir kalla mig „gæskur“. Það var orð sem ég hafði aldrei heyrt og fannst fremur skrítið. En það fékk mig einnig til að líða eins og ég væri sérstakur, og ég vissi að þar sem það kom frá þér þá var það eitthvað gott. Það var gott að vera „gæsk- urinn“ hans afa. Ég kveð þig því með þessum orð- um, þinn „gæskur“ Þór Jóhannesson. Elsku afi, snemma á páskadag fengum við þær hrikalegu fréttir að þú hefðir kvatt þá um morguninn. Þetta er svo óraunverulegt að ég veit að þú trúir því ekki. Þú sem lést engan sjá að þér leið illa, varst alltaf sá hressasti. Þú varst okkur ávallt mikil fyrirmynd. Lífsþróttur þinn og gleði smitaði langt út frá sér. Þú varst æðislegur maður, þú skildir eftir þig slóð í hjörtum fólks hvert sem þú fórst. Nú ert þú búinn að kveðja okkur á þessari jörð og skilur eftir stórt tóm í tilvist okkar. Víst vorum við systkin komin hinum megin á land- ið en okkur fannst svo yndislegt að geta leitað til ykkar ömmu á Horna- firði. Þangað var svo gott að koma. Oftar en ekki sastu við eldhúsborðið að leggja kapal þegar við komum inn eftir ferðina og að njóta útsýn- isins úr eldhúsglugganum, á meðan amma gerði tilbúnar sínar frægu fiskibollur. Okkur fannst við svo hjartanlega velkomin! Þið amma eigið svo yndislegt skjól uppi í Lóni sem þið hafið hald- ið svo vel utan um. Fallegri garður en í Fellshamri höldum við að sé ekki til. Við skiljum vel hvers vegna þið amma leituðuð í Fellshamar sem mest þið máttuð, þar er svo mikil ró, svo mikil sæla að öll batterí end- urnýjast eftir nokkurra daga dvöl. Enda varstu alltaf hlaðinn orku. Sagan sem fylgir þessum sælureit er líka efni í bók. Fjölskyldubók. Sælureitur Árna og Svövu. Ást þín til ömmu fór ekki framhjá neinum. Þið áttuð hjónaband sem alla dreymir um. Fullt af ást, trausti og trúnaði.Við vonum að við fáum að njóta sömu blessunar og þið. Við munum alltaf muna eftir þér sem miklum íþróttaunnanda. Við fyrstu kynni dróstu ávallt út úr fólki hvaða íþrótt það stundaði eða hvort. Og þér líkaði alltaf betur við íþróttamennina. Þú varst skemmti- legasti maðurinn til að fara með á fótboltaleiki Sindra þar sem að þú gargaðir manna hæst og hvattir áfram. Mikið var það gaman! Þín verður sko sárt saknað, en við vitum samt að þú ert kominn á góðan stað og færð að hitta pabba okkar sem hefur tekið vel á móti þér. Þið eigið eftir að hugsa vel hvor um annan. Þið eruð svo góðir saman. Við munum alltaf sakna þín. Þín barnabörn Arna Þórdís, Svava Dagný og Óðinn Birgir. Elsku afi, ósköp er skrítið að þú skulir vera farinn frá okkur. Þú sem varst svo hress og kátur að vanda þegar við hittum þig fyrir nokkrum dögum. Við metum það mikils að hafa hitt þig og eytt með þér góðum stund- um, vikuna fyrir páska. Það var svo skrítið að þegar síminn hringdi kl. 9 á páskadagsmorgun þá héldum við að þú værir að hringja og athuga hvernig heimilisfólkið hefði það, því þú vildir jú fylgjast vel með öllum í fjölskyldunni. En þá var okkur sagt að þú hefðir dáið snemma um morguninn. Það er engu líkara en að þú hafir haft á tilfinningunni að það færi að styttast í þessari jarðvist hjá þér, búinn að ferðast um hálft landið að hitta fjölskylduna þína. Og búinn að fara fyrstu vorferðina í Lónið, sum- arbústaðinn ykkar ömmu, Fells- hamar, þar sem ykkur þótti svo gott að vera, og okkur þótti svo gott að koma þangað til ykkar. Við eigum eftir að sakna þín óskaplega mikið, elsku afi. Þú átt eftir að fylgja okkur í hjartanu alla ævi. Við munum hugsa voða vel um ömmu Svövu sem er sterkasta og duglegasta manneskja sem við þekkjum. Minnig þín er ljós í lífi okkar. Hvíl í friði. Þórey, Árni, Helga og Sævar. Við andlátsfregn Árna Stefáns- sonar hvarflar hugur minn heim í Breiðdal, á æskuslóðir okkar beggja. Þar var hans æskuheimili, fyrstu árin í hálfgildings torfbæ. Þó svo að lágt hafi verið undir loft þar, olbogarými lítið og gluggaskjáirnir flutt takmarkaða birtu inn í gam- aldags vistarverur, var ekki hægt að merkja að slíkt hefði mótað strákinn Árna í Felli á neikvæðan hátt. Snemma hóf hann afskipti af félagsmálum í byggðarlaginu. Sér- staklega kemur mér í huga starf hans í ungmennafélaginu. Þar sem annars staðar, þar sem hann lagði hönd á plóg, var stefnt hátt, hvort heldur sem það var kappleikur, framkvæmdir eða metnaðarfull dagskrá á mannamótum. Í gegnum huga minn renna óteljandi myndir af þessum frænda mínum í leik og starfi. Hann var virtur á heimaslóð- um og glæsilegur fulltrúi út á við. Ég minnist atviks frá löngu liðn- um árum, þegar ég, hrifnæmur unglingur, brá mér eitt sinn með öðrum sveitungum upp á Hérað til að njóta skógarsamkomu í góðu veðri í Hallormsstaðarskógi. Ég gæti ímyndað mér að við þau yngri í hópnum hafi ekki alveg verið laus við að vera heimóttarleg þegar stig- ið var út úr bílnum í fjölmenninu. En það var aðra sögu að segja af þrem systkinum sem birtust þarna við bílinn. Þau voru aldeilis laus við feimni og heimóttarskap. Þetta voru hin glæsilegu systkini frá Felli; Ragnar, Rósa og Árni. Öll höfðu þau klætt sig úr jakka eða blússu í góða veðrinu og hvítar skyrturnar klæddu þau eins og ein- kennisbúningur. Heilsað var kump- ánlega og brandarar látnir fjúka með föstum skotum inn á milli, þar sem það átti við. Þarna gat að líta þann brag á ungu fólki sem aðrir máttu taka til fyrirmyndar. Hér voru ungmenni á ferð sem tekið var eftir. Og það er einmitt þess vegna sem ég minnist einmitt hér á þetta löngu liðna atvik. Glæsileiki og frjálsleg framkoma Árna og systk- ina hans hafði mótandi áhrif á æsku byggðarlagsins. Af þessum systk- inum var Árni mér næstur í aldri og kynni mín af honum þar af leiðandi mest. Við vorum skólabræður úr barnaskóla og Kennaraskólanum. Samstarfsmenn í ungmennafélaginu til margra ára og kennslustörf okk- ar sköruðust bæði heima í Breiðdal og á Höfn. Ég tel mig því vera þess umkominn að bera um það vitni að alls staðar var sami myndarbrag- urinn á verkum hans, hvort heldur sem hann var æðsti foringi eða óbreyttur liðsmaður. Nú er jarðvistardögum Árna Stefánssonar lokið. Eftir stendur minningin um eftirminnilegan dreng sem skildi eftir sig mörg heillaspor þar sem hann átti leið um. Ég votta Svövu og öðrum að- standendum dýpstu samúð. Heimir Þór Gíslason. Það birti yfir Íslandi á árunum kringum 1970, bæði til sjávar og sveita. Mest munaði um sókn í sjáv- arútvegi með endurnýjun fiskveiði- flotans og útfærslu landhelginnar. Bændur lögðust einnig á árar, stækkuðu bú sín og í Austur- Skaftafellssýslu breyttu þeir sönd- um í græna akra. Höfn í Hornafirði tók stakkaskiptum og byggði á eig- in forsendum, um margt ólík sjáv- arplássunum í fjörðum eystra. Í Hornafirði lögðust margir á árar en einna drýgstan þátt í að breyta ásýnd byggðarlagsins til hins betra átti Árni Stefánsson. Með byggingu Hótels Hafnar á 7. áratugnum unnu fjölskyldur Árna Stefánssonar og Þórhalls Dan Kristjánssonar stór- virki sem eftir var tekið um land allt. Utan Reykjavíkur var það að- eins Akureyri sem á þessum tíma gat státað af svo glæsilegum gisti- stað sem rúmaði jafnframt fé- lagsstarfsemi í vistlegum sölum. Með þessu átaki varð ferðaþjónusta þriðja stoðin undir atvinnulífi í Hornafirði og áhrifanna gætti brátt langt út fyrir byggðarlagið. Kennsla og skólastjórn var kjöl- festan í störfum Árna í aldarfjórð- ung, 1951–1975, og á þeim vettvangi sem öðrum reyndist hann farsæll. Fyrst í stað virtist óráðið hvort fjöl- skyldan fyndi kröftum sínum stað í heimabyggð Árna í Breiðdal eða á slóðum Svövu á Höfn. Áður en ten- ingunum var kastað 1958 höfðu þau byggt upp fallegt nýbýli á Fellsási í Breiðdal og komu þar samhliða bú- skap upp vísi að heimavistarskóla á meðan skólinn á Staðarborg var í byggingu. Leiðir okkar Árna lágu fyrst saman sumarið 1966 þegar við Helgi Hallgrímsson vorum í eins- konar landkönnunarleiðangri á Suð- austurlandi og fengum inni í skól- anum á Höfn. Hótelbygging var þá á lokastigi og í mörg horn að líta hjá skólastjóranum. Samt hafði hann tíma til að fræða okkur um kauptúnið og umhverfi þess. Síðan liðu vart þau ár að fundum okkar Árna bæri ekki saman, fyrst á vett- vangi austfirskra kennara en eink- um þó á hótelinu hans þar sem ég kynntist vertinum í tíðum ferðum mínum um Suðausturland og lands- hluta á milli í þrjá áratugi. Sú alúð sem Árni lagði í starf sitt sem hót- elstjóri var í senn óvenjuleg og minnti á það besta sem ég hef kynnst á þróuðum ferðamannaslóð- um erlendis. Það var ekki einfalt að uppfylla í senn kröfurnar um næt- urró fyrir ferðalanga og samkomu- hald og tilbreytingu fyrir heima- menn. Með hógværð, myndugleik og stöðugri vakt leysti Árni þetta viðfangsefni með prýði eins og ann- að sem hann tók sér fyrir hendur. Stjórnmálaafskipti okkar voru á ólíkum vettvangi en gagnkvæmur áhugi á félags- og menningarmálum brúaði bilið. Ég minnist fjölda stunda þar sem vertinn tyllti sér niður hjá gestinum og farið var yfir sviðið nær og fjær. Um málefni Hafnar og nágrennis hafði Árni mörgu að miðla og samspil ferða- þjónustu og umhverfisverndar var nærtækt umræðuefni. Árni og Svava ræktuðu eigin garð og sveit- arfélagsins sem þau voru samgróin. Jafnframt gáfu þau börnum sínum veganesti sem þau hafa kunnað að nýta. Hornafjörður og samfélagið sunnan Vatnajökuls mun lengi fá notið verka frumkvöðulsins ötula frá Felli. Hjörleifur Guttormsson. Árni Stefánsson lagði víða gjörva hönd á plóg og það gustaði oft hressilega í kringum kempuna sem kunni því vel að sjá árangur og mikil afköst hvar sem hann kom við sögu. Afrekaskráin er löng sem ekki verður tíunduð hér en ég vil kveðja vin minn með nokkrum per- sónulegum minningarbrotum af samleið okkar. Árni var metnaðar- gjarn og einstakur keppnismaður eins og merkja mátti í flestum hans athöfnum og verkum. Það er ekki síst af þeim ástæðum sem ég tel að hann hafi komið jafn miklu í verk og raun ber vitni. Það var engin til- viljun að við áttum mikla samleið í leik og starfi. Þrátt fyrir að við værum ólíkir að mörgu leyti og ald- ursmunur á milli áttum við sameig- inleg áhugamál og hugsjónir. Strax sem nemandi í barnaskóla var auð- velt að hrífast með hressum og áhugasömum leiðtoga sem var tilbúinn að hamast í fótbolta með okkur. Undir handleiðslu Árna hóf ég kennsluferilinn og tók við skóla- stjórastarfinu fyrir hans áeggjan. Frumkvöðlastarf hans í ferðaþjón- ustunni, ásamt Svövu, Þórhalli Dan og Ólöfu, er afrek sem eitt og sér er nægilegt til halda nafni hans á lofti. Þegar við unglingarnir hófum fót- boltaiðkun stóð ekki á hvatningu og stuðningi Árna. Hann bauðst til að hýsa og fæða þjálfara ef við útveg- uðum góðan mann sem gekk eftir. Alla tíð síðan var hann einn öfl- ugasti stuðningsmaður fótboltans. Ánægjulegt var að finna að hann var bæði stoltur og þakklátur þegar KSÍ heiðraði hann á sjötíu ára af- mæli hans; heiðursmerki sem hann átti sannarlega skilið. Ég minnist frumkvæðis hans í tengslum við metnaðarfulla menn- ingarviðburði og Íslandsmeistara- móts í skák svo fátt eitt sé nefnt. Í þessu eins og öðru var hann vakinn og sofinn að leita áhugaverðra tæki- færi til að auðga samfélagið og var alltaf tilbúinn að ráðast í ný og krefjandi verkefni. Oftast áttum við samleið í stjórnmálum og hann sá til þess að ég gaf mig fyrr að sveit- arstjórnarmálum en ég ætlaði. Við vorum saman í forystu sjálfstæð- isfélagsins og sátum eitt kjörtímabil saman í gömlu hreppsnefndinni; skemmtilegur tími og ómetanlegur skóli fyrir ungan byrjanda. Hann hafði forystu um gerð höf- uðprýði kirkjugarðsins, kaup á veg- legu hljóðfæri í kirkjuna og lokafrá- gang á félagsaðstöðu aldraðra. Hornfirðingar standa í mikilli þakk- arskuld við manninn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.