Morgunblaðið - 12.04.2008, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku amma.
Það var óraunverulegt að vakna
upp við símtal á laugardagsmorgni
frá mömmu, þar sem hún tjáði mér
að þú værir farin. Ég var á leiðinni
til þín, en var víst aðeins of seinn.
Ég kom mér á fætur með erf-
iðismunum og lagði af stað norður.
Ég var ekki kominn langt þegar
minningarnar um stundir okkar
saman rifjuðust upp fyrir mér og
tárin streymdu fram. Þær eru
margar ómetanlegar.
Það var alltaf svo gott að koma
til þín, þú varst alltaf svo jákvæð
og góð. Ég var mikill þrjóskuhaus á
yngri árum og stundum fékkst þú
að finna fyrir því en þú áttir svar
við öllu. Þegar ég vildi ekki drekka
mjólk með neinu móti settir þú
dreitil af kaffi út í og við drukkum
kaffi saman. Þegar ég vildi ekkert
annað en Grímseyjaregg, og hænu-
egg voru það eina sem til var, strik-
aðir þú á eggin með tússpenna til
að láta þau líkjast Grímseyjareggj-
um. Ég gleymi því aldrei. Eftir
langvarandi en árangurslausar
sáttaumleitanir með blessuð hænu-
eggin, lokaðir þú að þér inni í búri
og komst skömmu síðar sigri hrós-
andi með nokkur grunsamlega lítil
og hvít „Grímseyjaregg“ með
svörtum strikum þvers og kruss.
Ég man að ég rannsakaði þau
vantrúaður, en hvernig gat ég mót-
mælt?
Ég minnist ferða okkar í kart-
öflugarðinn, þegar við settum niður
að vori og breiddum plastið yfir og
festum með steinum á jaðrinum, og
á haustin uppskárum við.
Í Háaskála kenndirðu mér
mannganginn í skák og að spila
blindtrú. Við tefldum og spiluðum
og þú sagðir mér sögur úr æsku
þinni, eða við bara þögðum saman,
Petrea Aðalheiður
Rögnvaldsdóttir
✝ Petrea Að-alheiður Rögn-
valdsdóttir fæddist í
Tungu í Fljótum 16.
nóvember 1908.
Hún lést á hjúkr-
unar- og dval-
arheimilinu Horn-
brekku í Ólafsfirði
15. mars síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Ólafsfjarðarkirkju
22. mars.
drukkum kaffi og
rýndum í næsta leik.
Ég gleymi aldrei
kleinubakstrinum
þínum og hákarls-
stöppunni. Happa-
þrennuáráttan var
skemmtileg, sérstak-
lega þegar þú tókst
þig til og saumaðir
fleiri tugi happa-
þrenna í kjól, happa-
þrennukjólinn. Háa-
loftið þitt var
ævintýraland fyrir
unga fólkið, því
gleymir enginn sem þangað kom.
Ég veit að ég mun aldrei kynnast
betri og heilsteyptari manneskju
en þér. Þú gerðir ekki upp á milli
manna, allir voru jafnir í þínum
augum og við alla varstu góð.
Það verður skrítið og tómlegt að
fagna næsta afmæli án þín. Þetta
var dagurinn okkar og verður allt-
af. Þú otaðir alltaf rauðum seðli að
mér með bros á vör og sagðir: „Hér
er svo smávegis handa þér. Þú get-
ur kíkt í bíó!“ Þetta voru og verða
alltaf bestu afmælisgjafirnar.
Það voru forréttindi að kynnast
þér og eiga þig að. Þú kenndir mér
svo margt um lífið sem ég ber með
mér alla ævi. Þó að þú sért farin
verður þú alltaf með mér, elsku
amma mín.
Kristján Ragnar.
Elsku fallega amma mín. Loks er
lífsklukkan þín hætt að tifa, lengi
máttirðu bíða. Liðið er lífsins and-
artak sem ég hef lengi kviðið, sökn-
uður sækir að. En þar sem ég græt
gleðst ég einnig þar sem ég veit að
þín var lengi beðið og þrá þín til
hvíldarinnar mikil.
Ég sótti ávallt mikið í þig, naut
samvistanna við þig og dáðist að
þér. Þú varst og ert hetja í mínum
augum enda var þín lífsins leið oft
erfið og sorgum vafin. Ég man eftir
mér lítilli ömmustelpu á leið til þín
í rútu fyrir múlann til að vera hjá
þér á páskum. Alltaf kallaði ég upp
stigann á þig og þú svaraðir um
hæl: „nafna mín, ertu þá komin til
mín“. Það var alltaf svo gaman,
mikið að gera og eru þær ófáar
tískusýningarnar sem ég hélt fyrir
þig og fleiri í fötum og skóm ofan af
háalofti. Ég var vanalega hvergi
ánægðari en í návist þinni.
Gestrisni þín var alkunnug enda
mátti enginn frá þér fara án þess
að raða í sig góðgæti sem þú gættir
vel að. Einnig eldaðirðu vel og mik-
ið í hvert mál ef einhver skyldi rek-
ast inn og vera svangur. Það varð
alltaf að vera nóg til.
Oft skreið ég til þín í kúru á
kvöldin enda ég myrkfælin með
eindæmum. Þá sagðirðu mér ótrú-
legustu sögur og ævintýri af sjálfri
þér er þú bjóst á Kvíabekk ásamt
stórfjölskyldunni. Sögur sem sitja í
mér enn í dag. Þú kenndir mér
hvað það væri að vera fátækur og
kvíða komandi stund. Hversu
þakklát ég ætti að vera fyrir að fá
að fara í skóla. Þú mundir meira að
segja fyrstu blaðsíðurnar í gömlu
skólabókunum þínum enda varstu
námshestur mikill og sjálfri þér til
mikils sóma. Þú kenndir mér að
njóta friðarins, halda honum og
njóta lífsins neista og ljóss. Ég
þakka þér það. Árin liðu, ég eltist
og fór að koma oftar er tími gafst
enda ferðir þínar suður búnar og
þú ætíð heima í Háaskála. Síðan
flutti Raggi frændi til þín og þið
gátuð veitt hvort öðru félagsskap.
Veturinn minn frægi hjá ykkur er
minn dýrmætasti, enda naut ég lið-
sinnis ykkar dag hvern, mér og
ykkur til skemmtunar. Þið voruð
með hlaðborð handa mér á hverjum
degi er kennslu lauk, sátum við þá
3 og nutum okkar í soðnu brauði,
reyktum rauðmaga og oftar en ekki
lumaðirðu á hákarlastöppu. Hvílík-
ar veislur! Svo vorum við oft með
partí um helgar þegar Raggi fór og
keypti handa okkur pitsu með öllu
og kók, þér fannst þetta svo gott.
Þú kenndir mér að elda bestu
baunir sem sögur fara af og hvað
væru bestu saltkjötsbitarnir.
Eftir að þú fórst inn á Horn-
brekku fann ég hvernig máttur
þinn fór dvínandi Þú varst aldrei
almennilega sátt, ég skildi það vel.
Síðan voru strákarnir þínir komnir
til þín og dagarnir urðu styttri. Síð-
an kvaddi Raggi og ég kom til þín,
sat við rúmið þitt hélt í hönd þína.
Tyllti höfðinu mínu hjá þínu á
koddann og strauk vangann þinn
blítt. Hvíslaði í eyra þitt hversu
mikið ég elskaði þig, kyssti þig á
ennið. Andartakið kom þar sem
hvíslað var að mér að þetta væri
okkar síðasta stund. Það reyndist
síðan rétt. Englum Guðs hefur bor-
ist mikill auður.
Strákarnir mínir senda gömlu
ömmu knús og kossa, nafna þín
kveður, en aðeins að sinni.
Valgerður, Vilhjálmur, Ólafur
Bjarni og Margrét Birna.
Enn ein stórbrotin kona í ís-
lensku þjóðlífi er fallin frá tæplega
100 ára gömul. Kona sem ég þekkti
ekki svo mikið en var búin að heyra
af lungann af minni ævi, mágkona
föður míns sem með sinni hörku og
dugnaði kom upp sínum barnahóp
eftir lát eiginmanns síns sem fórst
af slysförum á sjó langt fyrir aldur
fram. Fyrir um 30 árum vorum við
hjón á ferð um Ólafsfjörð og sögð-
um hvort við annað nú látum við
verða af því að heimsækja Petreu
og þvílíkar móttökur og elskuleg-
heit. En eins og gengur er maður
ekki alltaf á ferðinni, reyndar alltof
sjaldan eins og maður hefur rekið
sig alltof oft á, einhvern veginn
hugsar maður alltaf, nógur er tím-
inn. En svo fyrir nokkrum árum er-
um við hjón ein á ferð, og aftur um
Ólafsfjörð, ákveðið er að líta nú í
heimsókn til Petreu í höllina henn-
ar. Jú, jú, ekki stóð á móttökunum,
kleinur og fleira góðgæti drifið á
borð, við höfðum meðferðis nokkr-
ar myndir af afkomendum okkar til
að sýna henni, og aldrei höfum við
orðið eins hissa og bókstaflega
kjaftstopp. Hún horfði smástund á
mynd af hverjum og einum og lýsti
skapgerð og einkennum hvers og
eins fyrir sig, og spurði svo hvort
það væri ekki rétt með farið. Og jú,
mikið rétt, sú gamla var með svo
hárnákvæma lýsingu á hverjum og
einum að undrum sætti. Þessari
konu hefði ég gjarnan viljað kynn-
ast betur, trúi að hún hefði haft frá
mörgu og miklu að segja.
Ég kveð þig, sómakona, með
virðingu og þökk fyrir góð kynni.
Hvíldu í friði, kæra Petrea.
Sæunn Jónsdóttir.
Elsku amma, það var skrýtið að
heyra að þú værir farin, þú sem
alltaf varst svo hress, gerðir grín
og sagðir sögur. Ég fór að hugsa til
stundanna okkar saman, þær voru
æði margar því alltaf var hægt að
hlaupa úr Vesturgötunni upp í
Háaskála til ömmu. Hver er þar,
heyrðist ofan við stigann og amma
leit niður. Æ, ert þetta þú Krilla
mín, komdu nú upp og fáðu mjólk
og kleinu. Stundum fékk ég líka
heitt rúgbrauð sem þú bakaðir eftir
kúnstarinnar reglum og þegar ég
varð eldri fékk ég stundum há-
karlsstöppu ofan á sem þú bjóst
líka til og ég hef hvergi fengið ann-
ars staðar, alveg æði. Oft fengum
við frændsystkinin að gista hjá þér,
þá sagðir þú okkur söguna af Bú-
kollu með tilþrifum og hún var
aldrei eins í hvert skipti, þú lékst
þetta allt og við hlógum og skríkt-
um. Þegar ég var lítil hélt ég stund-
um að þú svæfir aldrei, því þú
komst svo miklu í verk, þú vakn-
aðir alltaf eldsnemma og horfðir út
um eldhúsgluggann og fylgdist
með bátaferðum og varst stundum
búin að baka kanilsnúða eða snælur
eins og þú kallaðir þá áður en þú
fórst í vinnu á frystihúsinu. Þar
vannst þú til 75 ára aldurs, oft
komum við og heimsóttum þig í
vinnuna og færðum við þér þá
bolsíur til að gefa konunum. Það
stytti vinnudaginn að fá eitthvað
gott í munn eins og þú sagðir
stundum. Sumarið 1973 var ég hjá
þér og leiddist svo ég sótti um
vinnu á frystihúsinu og vann þar
hálfan daginn og þú kenndir mér
handtökin 12 ára gamalli og varst
bara montin með þetta. Ég var
nokkur sumur og alltaf með þér á
borði og þar þýddi ekki að slæpast
neitt. Þú hafðir mjög gaman af
happdrætti og það voru ófáar
happaþrennurnar sem ég færði þér
þegar ég kom frá Akureyri og allt-
af varstu spennt eins og lítil stelpa
meðan þú skófst af þeim og við
Raggi hlógum að þér en þetta var í
lagi því þetta fór allt til góðs mál-
efnis. Svona hugsaðir þú alltaf og
máttir aldrei neitt aumt sjá. Það
var ósjaldan að ég kom út eftir og
það var eitthvert fólk hjá þér í mat
og gistingu sem ég hafði aldrei séð,
svona varstu ótrúleg. Þegar ég var
ytra hjá þér ræddirðu mikið við
mig um lífið, stjórnmál og málefni
Ólafsfjarðar sem þú unnir mikið.
Þú hafðir vit á þessu öllu og ég
lærði margt af þessu spjalli og þó
ég væri ekki alltaf sammála þér
reyndi ég ekki að breyta þínum
skoðunum því að þú barst nafn með
rentu, þú varst kletturinn sem
margt mæddi á, en stóð þó alltaf
fastur fyrir og lét ekkert hagga
sér, heiðarleg, kær, dugleg og
kappsöm og þoldir illa að tapa. Það
var gaman að sjá hvernig þú gast
látið smáa sem stóra snúst í kring-
um þig ef á þurfti að halda og lést
okkur halda að okkur hefði dottið
þetta sjálfum í hug. Þú varst leik-
stjórinn í þínu langa lífi og nú
fannst þér nóg komið og kvaddir
okkur á 100. aldursári. Við höfum
átt langa samferð og ég og fjöl-
skylda mín þökkum fyrir það.
Vertu blessuð, þín Krilla.
Kristjana Valgeirsdóttir
og fjölskylda.
Elsku fallega amma mín. Loks er
lífsklukkan þín hætt að tifa, lengi
máttirðu bíða. Liðið er lífsins and-
artak sem ég hef lengi kviðið, sökn-
uður sækir að. En þar sem ég græt
gleðst ég einnig þar sem ég veit að
þín var lengi beðið og þrá þín til
hvíldarinnar var mikil. Ég sótti
ávallt mikið í þig, naut samvistanna
við þig og dáðist að þér. Þú varst
og ert hetja í mínum augum enda
var þín lífsins leið oft erfið og sorg-
um vafin. Ég man eftir mér lítilli
ömmustelpu á leið til þín í rútu fyr-
ir múlann til að vera hjá þér á
páskum. Alltaf kallaði ég upp stig-
ann á þig og þú svaraðir um hæl:
„Nafna mín ertu þá komin til mín.“
Það var alltaf svo gaman, mikið að
gera og eru þær ófáar tískusýning-
arnar sem ég hélt fyrir þig og fleiri
í fötum og skóm ofan af háalofti.
Ég var vanalega hvergi ánægðari
en í návist þinni. Gestrisni þín var
alkunn enda mátti enginn frá þér
fara án þess að raða í sig góðgæti
sem þú gættir vel að. Einnig eld-
aðirðu vel og mikið í hvert mál ef
einhver skyldi rekast inn og vera
svangur. Það varð alltaf að vera
nóg til. Oft skreið ég til þín í kúru á
kvöldin enda myrkfælin með ein-
dæmum. Þá sagðirðu mér ótrúleg-
ustu sögur og ævintýri af sjálfri
þér er þú bjóst á Kvíabekk ásamt
stórfjölskyldunni. Sögur sem sitja í
mér enn í dag. Þú kenndir mér
hvað það væri að vera fátækur og
kvíða komandi stund. Hversu
þakklát ég ætti að vera fyrir að fá
að fara í skóla. Þú mundir meira að
segja fyrstu blaðsíðurnar í gömlu
skólabókunum þínum enda varstu
námshestur mikill og sjálfri þér til
mikils sóma. Þú kenndir mér að
njóta friðarins, halda honum og
njóta lífsins neista og ljóss. Ég
þakka þér það.
Árin liðu, ég eltist og fór að
koma oftar er tími gafst enda ferðir
þínar suður búnar og þú ætíð
heima í Háaskála. Síðan flutti
Raggi frændi til þín og þið gátuð
veitt hvort öðru félagsskap Vetur-
inn minn frægi hjá ykkur er minn
dýrmætasti enda naut ég liðsinnis
ykkar dag hvern, mér og ykkur til
skemmtunar. Þið voruð með hlað-
borð handa mér á hverjum degi er
kennslu lauk, sátum við þá 3 og
nutum okkar yfir soðnu brauði,
reyktum rauðmaga og oftar en ekki
lumaðirðu á hákarlastöppu. Þvílík-
ar veislur! Svo vorum við oft með
partí um helgar þegar Raggi fór og
keypti handa okkur pitsu með öllu
og kók, þér fannst þetta svo gott.
Þú kenndir mér að elda bestu
baunir sem sögur fara af og hverjir
væru bestu saltkjötsbitarnir. Eftir
að þú fórst inn á Hornbrekku fann
ég hvernig máttur þinn fór dvín-
andi. Þú varst aldrei almennilega
sátt og ég skildi það vel. Síðan voru
strákarnir þínir komnir til þín og
dagarnir urðu styttri. Síðan kvaddi
Raggi og ég kom til þín, sat við
rúmið þitt og hélt í höndina þína.
Tyllti höfðinu mínu hjá þínu á
koddann og strauk vangann þinn
blítt. Hvíslaði í eyra þitt hversu
mikið ég elskaði þig, kyssti þig á
ennið. Andartakið kom þar sem
hvíslað var að mér að þetta væri
okkar síðasta stund. Það reyndist
síðan rétt. Englum Guðs hefur bor-
ist mikill auður. Strákarnir mínir
senda gömlu ömmu knús og kossa,
nafna þín kveður, en aðeins að sinni
Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir.
Afi er látinn. Hann
sem var svo hraustur
og hress, mér finnst eins og hon-
um hafi verið stolið frá okkur. Mig
hefði langað að dóttir mín hefði
fengið að kynnast honum eins og
ég gerði, en nú er það mitt að
segja henni sögur af þeim ótelj-
andi ævintýrum sem ég lenti í með
afa og ömmu, þannig að hún geti
gert sér í hugarlund hvernig þau
voru.
Afi og amma ferðuðust mikið og
var ég það heppinn að fá að fara
margar ferðir með þeim bæði inn-
anlands sem utan. Ég á aldrei eftir
að gleyma ferðinni sem við fórum
til Þýskalands, en Þýskaland hefur
greinilega verið land sem afi var
mjög hrifinn af. Ég man þegar
verið var að skipuleggja þessa
ferð, þá vildi afi endilega hressa
upp á þýskuna sína og fór þar með
Bragi Guðmundsson
✝ Bragi Guð-mundsson fædd-
ist á Ísafirði 6. des-
ember 1932. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut miðvikudag-
inn 20. febrúar
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði 29.
febrúar.
í kvöldskóla, þar upp-
götvaði hann að hann
var ekki búinn að
tapa neinu úr þýsk-
unni og hætti fljót-
lega eftir það. Mér
fannst það nokkuð
flott hjá honum að
kunna enn þá
þýskuna sem hann
lærði í Menntaskól-
anum í Reykjavík
eftir öll þessi ár, ég
var svolítið montinn
af því.
Önnur ferð sem ég
man eftir var mín fyrsta ferð
hringinn í kringum landið, allt
landið. Ég trúði því ekki alveg, er
það hægt? Eftir þá ferð skildi ég
hversu lítið landið væri. En þá
kom upp önnur spurning af hverju
eru svona margar kirkjur á svona
litlu landi, því hann fór í allar þær
kirkjur sem voru á leið okkar. Ég
spurði hann einhvern tímann af
hverju við værum að skoða allar
þessar kirkjur, þá sagði hann að
margar hverjar væru mjög merki-
legar og svo flottar líka. Ég var
ekki alveg sammála því þá en núna
er ég að verða eins og hann, þær
eru dálítið flottar. Ég skil þetta
loksins.
Afi var með ólæknandi útilegu
bakteríu og amma líka. Afi keypti
sér „Van“ árið 1988, það var allt til
alls í Van-inum og fannst honum
bíllinn vera æðislegur svona eins
og sumarbústaður á hjólum, enda
var allt farið á honum, þar með
umrædd Evrópuferð. Ég er voða-
lega feginn að hafa smitast af úti-
legubakteríunni líka því nú get ég
farið allt það sem afi fór með mig
og sagt dóttur minni það sem
hann sagði mér og kenndi um
hvern þann stað sem við heimsótt-
um.
Afa var menntun mikilvæg og
vildi hann að ég stæði mig í nám-
inu, hann eyddi öllum kvöldum
með mér yfir náminu og þá helst
stærðfræði og íslensku, ég vildi
óska þess að það hefði borið ár-
angur en ég var of upptekinn með
vinum og í félagslífi þannig að ég
mátti ekki vera að þessu og sýndi
náminu lítinn sem engan áhuga.
Svona þegar maður hugsar til
baka sér maður hvað hann var
mér þolinmóður og vildi mér vel,
gerði allt sem í hans valdi stóð og
fyrir það er ég honum þakklátur.
Ég er líka þakklátur fyrir að fá
að alast upp hjá afa og ömmu því
betra fólk finnst ekki, þótt víða
væri leitað, og vil ég meina að ég
hafi fengið allt það góða sem er í
mér frá einmitt þeim. Afi var mjög
örlátur maður og sanngjarn og
vildi öllum vel og þannig ætla ég
að geyma hann í minningunni, þín
verður sárt saknað, elsku afi minn,
og ég ætla að kveðja þig með því
að segja: Góða nótt, takk, takk
sömuleiðis.
Bragi Þór og fjölskylda.