Morgunblaðið - 12.04.2008, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 45
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Bústaðakirkja | Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund mánudaginn 14.
apríl kl. 20 í safnaðarheimilinu. Kaffi-
veitingar og tónlist. Mætið með hatta
eða slæður og takið með ykkur gesti.
Rætt verður um sumarferðina.
Fella- og Hólakirkja | Árlegur kaffi-
dagur Dýrfirðingafélagsins í Reykja-
vík verður haldinn 13. apríl og hefst
með guðsþjónustu kl. 14 og kaffisölu
að lokinni messu. Dýrfirðingar og vel-
unnarar fjölmenni.
Ferðaklúbburinn Flækjufótur |
Flækjufótur í samvinnu við Bænda-
ferðir fer í vikuferð til Þýskalands í
september nk. Leiðsögumaður verð-
ur Steingrímur Gunnarsson. Uppl. í
síma 898 2468.
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú-ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Átakið 1,2
og Reykjavík verður með samráðs-
fund í Seljaskóla kl. 14-16 fyrir íbúa í
Breiðholti. M.a. verður borgarstjóri á
fundinum. Fjölbreytt dagskrá og veit-
ingar.
Grensáskirkja | Fundur verður í
Kvenfélagi Grensássóknar mánudag-
inn 14. apríl kl. 14 í safnaðarheimilinu.
Hraunbær 105 | Námskeið í þurr-
burstun á keramik hefst þriðjudaginn
15. apríl og stendur til 27. maí (7
skipti), kl. 13-16, kennari Hulda Guð-
mundsdóttir. Skráning og uppl. á
skrifstofu eða í síma 411 2730.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ-
landsskóla, Víðigrund, kl. 9.30. Uppl. í
síma 564 1490.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Jesú-
konur og Jesústelpur í kaffisal kirkj-
unnar kl. 10-12. Ræðukona Erdna
Varðardóttir. Lofgjörð og morg-
unmatur. Allar konur velkomnar.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Línudans kl. 15, hlát-
urhópur kl. 13. Opið kl. 9-16. Uppl. í s.
568 3132.
60ára afmæli. Í dag 12. apríler Erla B. Axelsdóttir
myndlistarmaður sextug. 20.
einkasýning Erlu stendur yfir í
Grafíksafni Íslands, Tryggvagötu
17 og lýkur henni á morgun kl. 18.
Hlutavelta | Þessar stúlkur Valgerður
Baldursdóttir og Eva Dögg Sæmunds-
dóttir, Staðhverfinu í Grafarvogi, föndr-
uðu kort og seldu og færðu Rauða kross-
inum ágóðann 6.319 kr. Með þeim á
myndinni er Ragna Baldursdóttir.
dagbók
Í dag er laugardagur 12. apríl, 103. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. (Mk 13, 27.)
Ráðstefna undir yfirskrift-inni Hinn grunaði er út-lendingur verður haldin íSalnum í Kópavogi 18
apríl næstkomandi. Að ráðstefnunni
stendur Alþjóðahús í samstarfi við
Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið, Fjölmenningarsetur, Lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins, Blaða-
mannafélag Íslands og
Kópavogsbæ.
Helga Ólafs er upplýsingafulltrúi
Alþjóðahúss: „Með ráðstefnunni
viljum við opna umræðu í samfélag-
inu og meðal hlutaðeigandi, um um-
fjöllun fjölmiðla um innflytjendur
og afbrot,“ segir hún. Nokkuð hefur
borið á fréttum síðustu misseri af
afbrotum innflytjenda og útlendinga
og sýnist sitt hverjum um þróunina
og vinnubrögð fjölmiðla.
„Fjölmiðlar hafa vissulega mikil
áhrif og getur fréttaflutningur
þeirra mótað almenningsálitið.
Neytendur fjölmiðla grípa fyr-
irsagnir á lofti, og sú hætta er til
staðar að fólk byrji að alhæfa um
hópa innflytjenda og ferðamanna út
frá einstökum tilvikum,“ segir
Helga. Dagskráin hefst kl. 13 með
setningu ráðstefnunnar og ávarpi
félagsmálaráðherra og í framhald-
inu verða fimm framsöguerindi:
„Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri
hjá LRH, skoðar hlutfallslega dreif-
ingu afbrota á íslandi eftir þjóðern-
isuppruna. Því næst mun Helgi
Gunnlaugsson, prófessor við HÍ,
fjalla um áhrif fjölmiðlaumræð-
unnar á staðalmyndir og fordóma
og Rúnar Pálmason blaðamaður
greinir frá sjónarhorni fjölmiðla,
vinnu- og siðareglum,“ segir Helga.
„Við fáum hingað til lands Arash
Mokhtari frá Quick Response í Sví-
þjóð en sú stofnun vinnur við að
greina fjölmiðlaumfjöllun um inn-
flytjendur og aðra minnihlutahópa.
Segir hann frá stöðunni þar í landi
og hvernig samstarfi þeirra er hátt-
að við fjölmiðla, og loks ætlar
Magnús Heimisson frá Fjölmiðla-
greiningu að kynna skýrslu þar sem
greind var umfjöllum fjölmiðla um
innflytjendur og erlent vinnuafl á
árinu 2007 með áherslu á afbrot.“
Að loknum erindum verða haldn-
ar tvær málstofur: önnur um um-
ræðu meðal almennings og á bloggi,
og um formlega upplýsingagjöf.
Í lok dagskrár verða svo pall-
borðsumræður með þátttöku Dane
Magnússon, formanns Félags anti-
rasista, Þorbjörns Broddasonar,
prófessors við HÍ, Stefáns Eiríks-
sonar lögreglustjóra og Jóns Kal-
dal, ritstjóra Fréttablaðsins.
Nánari upplýsingar eru á ahus.is.
Samfélag | Ráðstefna um umfjöllun fjölmiðla um afbrot innflytjenda
Hinn grunaði er útlendingur
Helga Ólafs
fæddist í
Reykjavík 1967.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá FÁ
1989, BA í sál-
arfræði frá HÍ
1996 og vinnur
nú að lokaverk-
efni í meist-
aranámi í blaða- og fréttamennsku
við sama skóla. Helga starfaði um
langt skeið við fjölmiðla og útgáfu
og hefur verið upplýsingafulltrúi
Alþjóðahúss frá 2006. Eiginmaður
Helgu er Helgi Björn Kristinsson
forstöðumaður og eiga þau þrjú
börn.
Tónlist
Dillon | Númer Núll og Múgsefjun halda
tónleika kl. 22. Númer Núll kynnir efni af
nýútkominni breiðskífu sinni, Lykli að skír-
lífisbelti.
Selfosskirkja | Kammerkór Mosfellsbæjar
heldur tónleika sunnudaginn 13. apríl kl. 14.
Kórinn syngur veraldleg og trúarleg verk
frá öllm helstu tímabilum tónlistarsögunar.
Verk m.a. eftir W.A. Mozart, G.F. Händel, E.
Elgar, Gunnar Reyni Sveinsson og Atla
Heimi Sveinsson. Aðagangur er ókeypis.
Leiklist
Hafnarfjarðarleikhúsið | Opið út sýnir
nýtt, íslenskt leikrit, „mammamamma“, og
er þar fjallað um samskipti mæðgna, það
að vera móðir og/eða dóttir á sama tíma
og tilfinningarótið sem því fylgir. Leikstjóri
er Charlotta Böving. Leikendur eru María
Ellingsen, Magnea Valdimars, Birgitta Birg-
is og Þórey Sigþórs.
Skemmtanir
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dansleikur
í Von, Efstaleiti 7. Vistin hefst kl. 20 og
dansinn að vistinni lokinni um kl. 22. Klass-
ík leikur fyrir dansi.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið-
firðingabúð sunnudaginn 13. apríl kl. 14. Sjá
heimasíðu Breiðfirðingafélagsins:
www.bf.is.
Garðheimar | Árleg Vorgleði Garðheima
verður helgina 12. og 13. apríl. Fræðsla,
kynning, afsláttur af vörum, léttar veit-
ingar o.fl.
Fyrirlestrar og fundir
Tæknigarður, Dunhaga 5 | Þröstur Ey-
steinsson flytur fyrirlestur á aðalfundi
Trjáklúbbsins kl. 20.
Fjallað verður um innflutning á fræi nokk-
urra birkitegunda og niðurstöður úr litlum
kvæmatilraunum með innflutt ilmbirki og
hengibirki. Þá verður fjallað um mögulegar
skýringar á því af hverju ræktun annarra
birkitegunda (t.d. næfurbirki frá Alaska og
steinbirki frá Síberíu) hefur ekki gengið
hérlends.
Þjóðarbókhlaðan | Félag um átjándu aldar
fræði heldur málþing kl. 13-16.30 um útrás
Íslendinga á 17. og 18. öld.
Fyrirlesarar eru Gunnar Örn Hannesson,
Einar Hreinsson, Hrafn Sveinbjarnarson,
Garðar Gíslason og Sigurður Pétursson.
Ókeypis aðgangur.
Frístundir og námskeið
Mímir símenntun ehf. | Spænskunámskeið
verða haldin í maí. Uppl. og skráning í síma
580 1808 og á www.mimir.is.
BÓNDAKONA hlúir að sólblómum á akri nærri þorpinu Bantabari í Terai-héraði í Nepal í gær.
Reuters
Sumarlegt í Nepal
FRÉTTIR
MÁLSTOFA um það hvernig stúd-
entar geti náð tökum á því að
skrifa fræðilega um sérgrein sína
verður haldin í stofu H001 í hús-
næði Kennaraháskólans v/
Stakkahlíð fimmtudaginn 17. apríl
kl. 15.10-17.
Frummælandi er Sofia Ask,
lektor í sænsku við háskólann í
Växjö.
Mun hún fjalla um þá erfiðleika
sem verða á vegi stúdenta og
hvaða möguleikar eru á að koma
þeim yfir erfiðustu hjallana. Hún
tengir ritreynslu þeirra af fyrri
skólastigum við þær kröfur sem
mæta þeim í háskóla.
Sofia Ask lauk doktorsprófi árið
2007 með ritgerðinni Vägar till ett
akademiskt skriftspråk. Í ritgerð-
inni rannsakaði hún kennaranema
sérstaklega, greindi texta þeirra á
ýmsum stigum námsins og tók við
þá viðtöl. Hún hefur sérhæft sig í
að rannsaka hvernig stúdentar ná
tökum á að skrifa á fræðilegan
hátt um sérgrein sína og hvaða
undirbúning þeir fá í skólum.
Einnig taka til máls kennarar
sem kennt hafa fræðilega ritun við
Kennaraháskólann.
Framsöguerindi og umræður
verða á sænsku eða ensku.
Umræðustjóri verður Baldur
Sigurðsson.
Leiðir til að
skrifa á fræði-
legan hátt RÚMLEGA 46 milljónum krónahefur verið úthlutað úr starfs-
menntasjóði félagsmálaráðu-
neytisins til 32 verkefna fyrir árið
2007. Að þessu sinni var lögð
áhersla á gæðaverkefni sem nýtast
þeim hópum sem höllum fæti
standa á vinnumarkaði, s.s. vegna
félagslegrar stöðu, uppruna, tungu-
málaerfiðleika, lítillar fyrri mennt-
unar, lestrarörðugleika, fötlunar
eða skorts á tölvuþekkingu.
Meðal þeirra sem hlutu styrk að
þessu sinni var Íslandspóstur, sem
hlaut styrk vegna verkefnisins
„Ekra – starfsþróun“, og Hróbjart-
ur Árnason, lektor við Kennarahá-
skólann, í rannsóknarflokki vegna
verkefnisins „Staða og menntun
starfsmenntakennara á Íslandi“.
46 milljónir til
gæðaverkefna
GUÐNI Gunnarsson, hönnuður
Rope Yoga kerfisins, stendur fyrir
helgarnámskeiði dagana 18.-20. apr-
íl í Rope Yoga setrinu í Laugardal,
sem kallast „Lífsfærni - Fully alive
coaching“. Guðni hefur undanfarin
ár reglulega haldið þetta námskeið
hér á landi og einnig í Bandaríkj-
unum þar sem Guðni bjó og starfaði
í mörg ár.
Helgarnámskeið kostar 34.900 kr.
Nánari upplýsingar og skráning
fer fram á vefsíðunni www.ro-
peyogasetrid.is.
Námskeið
í lífsfærni
RANNSÓKNASETUR í barna- og
fjölskylduvernd og félagsráðgjaf-
arskor Háskóla Íslands standa að
málstofu í Odda, stofu 101, þriðju-
daginn 15. apríl kl. 12-13.
Halldór Hauksson sálfræðingur
hjá Barnaverndarstofu fjallar um
fyrirhugaða innleiðingu fjölþátta-
meðferðar (Multisystemic Therapy,
MST). MST er 3-5 mánaða meðferð
fjölskyldna barna á aldrinum 12-18
ára sem stríða við alvarlegan hegð-
unarvanda. Málstofan er öllum opin
og aðgangur er ókeypis.
Innleiðing
fjölþátta-
meðferðar
UMSÓKNARFRESTUR um meist-
ara- og doktorsnám á mennta-
vísindasviði (HÍ/KHÍ) hefur verið
framlengdur til 15. apríl. Þetta er
gert vegna fjölda fyrirspurna um
námið eftir að umsóknarfrestur
rann út hinn 15. mars, segir í til-
kynningu.
Nánari upplýsingar um meist-
aranám í tómstunda- og félags-
málafræði má finna á vefslóðinni
https://ugla.khi.is
M.Ed nám
í tómstunda-
og félagsmála-
fræðum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi stuðningsyfirlýsing
frá stjórn Bíla og fólks ehf.:
„Stjórn Bíla og fólks ehf. lýsir
yfir fullum stuðningi við þá aðila
sem staðið hafa fyrir mótmælum
vegna óhóflegra olíuverðshækk-
ana og hækkana annars rekstr-
arkostnaðar þeirra sem stunda
bifreiðaakstur hér á landi.
Stjórn Bíla og fólks lítur svo á
að stjórnvöld verði að bregðast við
þessari óheillaþróun með lækk-
unum á olíugjaldi og öðrum op-
inberum gjöldum vegna þessarar
starfsemi. Það er okkar álit að ef
ekkert verður að gert muni ferða-
þjónustuaðilar skaðast stórlega,
jafnvel svo að þeir eigi ekki ann-
ars úrkosti en hætta starfsemi,
verði ekki brugðist við þegar í
stað.
Margir í okkar röðum hafa auk
þessa, til að bæta gráu ofan á
svart, selt þjónustu sína á allt öðru
gengi en raunin hefur orðið. Við
ítrekum því hér með stuðnings-
yfirlýsingu okkar með vörubíl-
stjórum og öðrum þeim sem staðið
hafa fyrir mótmælum vegna þess-
ara verðhækkana.“
Styðja aðgerð-
ir bílstjóra