Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í ársbyrjun 1995
skrifaði undirritaður
grein sem birtist í
Morgunblaðinu og var
með sama heiti og
valið hefur verið sem
titill á þessa. Tilefni
greinarskrifa þá var
að Verkfræðingafélag
Íslands og Tækni-
fræðingafélag Íslands
höfðu sameinast um stefnu í
menntunarmálum
tæknifræðinga og
verkfræðinga. Í þeirri
stefnu fólst m.a. að fé-
lögin viðurkenndu að
tæknifræðinám og
verkfræðinám væri af
sama meiði tækni-
menntunar. Undirrit-
aður starfaði þá sem
lektor við Tækniskóla
Íslands og voru í
greininni lagðar fram
hugmyndir um skipu-
lag tækni- og verk-
fræðináms, þ.e. námsleiða sem
leiddu til BS- og/eða MS-gráðu
ásamt tillögum um styttra starfs-
miðað tækninám á háskólastigi.
Tækniskólinn – skóli
atvinnulífsins
Tilefni greinarskrifa nú er nafn
iðn- og starfsmenntaskóla sem mun
starfa skv. lögum um framhalds-
skóla og varð til við sameiningu
Iðnskólans í Reykjavík og Fjöl-
tækniskóla Íslands, þ.e. Tækniskól-
inn – skóli atvinnulífsins. Skólinn,
sem er í eigu ýmissa samtaka at-
vinnulífsins og rekinn skv. samn-
ingi við menntamálaráðuneytið,
skiptist í fjölda undirskóla sem
bera ýmis heiti sem vísa til náms-
framboðs, t.d. Byggingatækniskól-
inn, Raftækniskólinn, Véltækniskól-
inn og Tæknimenntaskólinn o.s.frv.
Að menntamálayfirvöld sam-
þykkja þetta nafn á skólann verður
til þess að hugtakið ,,tækni-
menntun“ verður á komandi árum
tengt við hugtökin ,,iðn- og starfs-
menntun“ sem hefur í vitund al-
mennings verið tengt námi á fram-
haldsskólastigi en ekki háskólastigi.
Tækniskóli Íslands – Háskól-
inn í Reykjavík
Tækniskóli Íslands, sem var
stofnaður 1964 og oftast nefndur
Tækniskólinn, hafði þá stöðu í ís-
lenska skólakerfinu að innan hans
var boðið skv. sérlögum
frumgreinanám á framhalds-
skólastigi til undirbúnings námi á
háskólastigi. Þá bauð Tækniskólinn
til lokaprófs nám á háskólastigi í
iðnfræði, iðnrekstrarfræði og
tæknifræði. Þannig var og er al-
menningur meðvitaður um að nem-
endur sem hafa lokapróf frá
Tækniskólanum hafa að baki
tæknimenntun á háskólastigi. Með
nýjum lögum bæði um framhalds-
skóla og háskóla sem sett voru á tí-
unda áratug síðustu aldar ákváðu
menntamálayfirvöld að skólar með
námsframboð á háskólastigi skyldu
allir starfa skv. nýjum háskólalög-
um. Þetta varð til þess að stofn-
aður var nýr háskóli á grunni
Tækniskólans, þ.e. Tækniháskóli
Íslands. Það var vilji allra sem
komu að stofnun Tækniháskóla Ís-
lands að allri starfsemi Tækniskól-
ans yrði viðhaldið í nýjum skóla,
þ.e. frumgreinanám, iðnfræðinám
og tæknifræðinám. Við sameiningu
Háskólans í Reykjavík og
Tækniháskóla Íslands yfirfærðist
þetta nám til tækni- og verk-
fræðideildar HR.
Efling iðn- og starfsmenntunar
Menntamálayfirvöld, talsmenn
Samtaka atvinnulífsins og stjórn-
endur iðn- og starfsmenntaskóla
hafa árum saman talað um nauðsyn
þess að styrkja iðn- og starfs-
menntakerfið. Það veldur undrun
að við stofnun öflugs nýs skóla tak-
markast nýsköpun til eflingar iðn-
og starfsnáms við ferð á fornar
slóðir. Tekið upp nafn skóla sem
áratugum saman starfaði undir
nafninu Tækniskólinn og útskrifaði
nemendur með háskólagráðu sem
hafa verið og eru eftirsóttir sem
slíkir af fyrirtækjum og stofnunum
atvinnulífsins.
Menntun í þágu atvinnuveganna
Kristján Karlsson
skrifar um íslenska
tæknimenntun
» Það veldur undrun
að við stofnun öflugs
nýs skóla takmarkast
nýsköpun til eflingar
iðn- og starfsnáms við
ferð á fornar slóðir.
Kristján Karlsson
Höfundur er rafmagnstæknifræðn-
gur og frumgreinakennari við Há-
skólann í Reykjavík.
Lögg. fasteignasali
Hrafnhildur Bridde
Agnar Agnarsson
Sigurberg Guðjónsson hdl.
534 2000
www.storhus.is
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is
BYGGINGARVERKEFNI Í
KAUPMANNAHÖFN
FJÁRMÖGNUN TIL STAÐAR
Höfum til sölumeðferðar byggingarverkefni í hjarta
Kaupmannahafnar. Um er að ræða 10 íbúðir og
verslunarhæð. Fyrirliggjandi er sala á verslunarhæð-
inni nú þegar. Tilbúið til að hefja framkvæmdir nú
þegar við sökkulframkvæmdir.
Kostnaðaráætlun liggur frammi á skrifstofu okkar.
Fjármögnun fyrir 80% af byggingarkostnaði getur
verið í boði fyrir rétta aðila.
Upplýsingar veita Agnar í síma 820-1002
eða Ísak í síma 822-5588.
Ísak V. Jóhannsson,
sölustjóri
822 5588
Agnar Agnarsson,
lögg. fasteignasali
820 1002
Til sölu einbýli og eignarland á Kjalarnesi.
Einstakt tækifæri fyrir hestafólk og náttúrunnendur.
Sveitasæla og frábært útsýni steinsnar frá höfuðborginni.
Um er að ræða gott einbýlishús á rúmlega 1,6 ha eignarlandi. Húsið er hæð og ris og skiptist í þrjú
svefnherbergi, stofu, borðstofu ofl. Allt endurnýjað að innan. Athyglisverð eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigfús hdl. og lögg. FFS í símum 893-3003 og 868-4112.
jon@vidskiptahusid.is
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800 •
www.vidskiptahusid.is • Jón Sigfús Sigurjónsson Hdl & Löggiltur FFS
M
bl
1
00
07
39
Opið hús
Starrahólar 2, 111 Rvk.
Fasteignakaup kynnir 276 fm einbýlishús á frábærum útsýnisstað við Elliða-
árdalinn. Neðri hæð: Forstofa, snyrting og rúmgott hol, þvottahús og tvö
parketlögð herbergi þar sem gert er ráð fyrir íbúð, inn af stærra herberg-
inu er gert ráð fyrir baðherbergi, upp á efri hæð er gengið upp steyptan
stiga með parketi. Bílskúr: 48,2 fm tvöfaldur bílskúr er með sérlega mikilli
lofthæð. Efri hæð: Miðrými, tvær samliggjandi stofur, rúmgott eldhús, hol,
sjónvarpsstofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi, skjólgóð timburverönd
til suðurs. Garður er fallegur og í mikilli rækt. Inn af miðrými er sjónvarps-
stofa með útgengi út á norðursvalir. Baðherbergi. Í stofu er fallegur arin.
Verð: 65 millj.
Guðmundur Valtýsson sölufulltrúi Fasteignakaupa s. 865 3022
sýnir húsið milli kl.15-16 í dag.
Nánari upplýsingar www.fasteignakaup.is
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Svöluhöfði 9 – 270 Mosfellsbær
Opið hús milli kl. 14:00 og 16:00
Berg fasteignasala, Bolholt 4
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Glæsilegt 209 fm einbýlishús ásamt góðum bílskúr
á fallegri 890 fm lóð með verönd, trjám og skjól-
veggjum í einu eftirsóttasta hverfi Mosfellsbæjar.
Húsið er einstaklega vel skipulagt og skiptist í 5
góð svefnherbergi, glæsilegt eldhús, stofu og borð-
stofu með mikilli lofthæð og útgengi út í garð, tvö
baðherbergi, þvottahús, geymslu og 35 fm bílskúr.
Vandaðar innréttingar, gólfefni og tæki. Gólfhita-
kerfi er í húsinu. Stutt á glæsilegan golfvöll, nýja
sundlaug, skóla og alla helstu þjónustu.
Áhv.19 millj. frá Íbúðalánasjóði. V. 53,9 millj.
Halldór og Bryndís taka á móti áhugasömum
M
b
l 1
00
12
19
Grétar J. Stephensen löggiltur fasteignasali
Einstakt tækifæri – misstu ekki af þessu!
LÆK
KAÐ
VER
Ð
62,5
mill
jóni
r
53,9
mill
jóni
r
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
HRINGBRAUT 32 - HF. SÉRHÆÐ
Opið hús í dag frá kl.15.00 til 16.00
Nýkomin í einkasölu sérlega falleg ca 90 fm neðri sérhæð í góðu 2-býli, sérinng.
Tvö svefnh. Stofa og rúmgott eldhús, sér þv.herb ofl. góð staðsetning, m.a. stutt í
skóla og sundlaug. Þó nokkuð endurnýjuð eign á sl.árum. Laus strax. Myndir á
mbl.is. Verð 21,5 millj.
Guðbjörg tekur á móti áhugasömum væntanlegum kaupendum
í dag milli 15.00 og 16.00
Fréttir á SMS