Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HRUN kommúnismans varð öll-
um heiminum ljóst við fall Berl-
ínarmúrsins. Sjálf Sovétríkin lið-
uðust m.a.s. sundur. Tvíhyggja er
okkur nærtæk. Við notum andstæð
hugtök á borð við ljós
og myrkur, dyggðir
og lesti o.s.frv. um
það sem við teljum
gott eða illt. Ef við
þykjumst vita í
hverju hið illa felst
ályktum við sjálfkrafa
að hið góða felist í
andstæðunni. Um
þessar mundir eru
um 30 ár síðan ný-
frjálshyggjan tók að
ryðja sér til rúms.
Hugmyndin er að
stofni til gömul og
kemst öðru hvoru í
tísku. Hún fékk byr
undir báða vængi við
fall Berlínarmúrsins.
Frjálshyggjan varð
kærkomin andstæða
kommúnismans.
Við lánsfjárkrepp-
una hefur nú bæst ol-
íukreppa á borð við
þær sem við kynnt-
umst 1973 og 1980.
Kröpp efnahagslægð
fer í hönd. Ekkert er
séríslenskt við okkar aðstæður.
Við höfum elt tískustrauma í hag-
stjórn eins og aðrir og bætt gráu
ofan á svart. Hin 250 ára gamla
hugmynd Adams Smith um hina
ósýnilegu hönd hins frjálsa mark-
aðar var gerð að þungamiðju í
hagstjórn. Ófrávíkjanlegur áskiln-
aður gamla mannsins um að mark-
aðir skuli vera í senn frjálsir og
háðir góðu siðferði var ekki virtur.
Þar liggur vandinn.
Tvennt blasir við
Sé litið til þróunar markaða víða
um lönd er einkum tvennt sem
blasir við: Annars vegar að þeir
eru sífellt að verða ófrjálsari. Sam-
þjöppun, fákeppni og
markaðsráðandi staða
er áberandi. Yfirvöld
samþykkja samruna
með skilyrðum í stað
þess að synja. Reynsl-
an sýnir að þrátt fyrir
tilsjón hins opinbera
þróast markaðir í átt
til einokunar, því
stjórn á verðlagi er
ábatasöm. Með verald-
arvæðingunni hefur
vandamálið færst upp
á alþjóðlegt svið. Hins
vegar sjáum við að
spákaupmennska
hvers konar, sum sið-
ferðilega vafasöm, vex
ört, einkum fyrir milli-
göngu banka. Einnig á
því sviði eru helstu
markaðir alþjóðlega
tengdir. Síðustu árin
höfum við séð verðból-
ur, bæði á mörkuðum
með hlutabréf og fast-
eignir, víða um lönd.
Þær leiða til þess að
tiltölulega fáir fjár-
sterkir og í forréttindaaðstöðu ná
að raka til sín óheyrilegum gróða.
Fjöldinn, sem jafnan kaupir og sel-
ur of seint, tapar og situr eftir
með skertan fjárhag. Fólk er fé-
flett fyrir milligöngu bankans síns.
Afleiðingin er eignatilfærsla, sam-
þjöppun auðs og aukin misskipt-
ing. Fjölmargar fjölskyldur verða
fyrir barðinu á þessu. Stórir hópar
eignalítilla verða til. Sagan sýnir
að slíkt hefur orðið orsök fé-
lagslegs óróa, leitt til átaka og
jafnvel blóðugra byltinga. Af-
skiptaleysi leiðir ekki sjálfkrafa til
friðar og framfara. Frjálshyggjan
er hugsanlega að bregðast, frjáls-
hyggjumennirnir hafa a.m.k. ekki
tryggt frelsi markaða og gott sið-
ferði.
Samþjöppun auðs
Talið er að 1% af mannfjöld-
anum í Bandaríkjunum (BNA) ráði
yfir nærri 40% af auðnum. Í Bret-
landi er talið að 1% ráði yfir þriðj-
ungi auðsins. Tölur vantar fyrir Ís-
land. Bandarískir neytendur hafa
verið drifhjól hagkerfa heimsins.
Nú kann eftirspurn þessa hóps að
bresta. Hann berst við að greiða
vexti af gríðarlegum skuldum. Þeir
sem fá þær greiðslur tilheyra
þessum 1% hópi, sem ekki getur
með nokkru móti ráðstafað geysi-
háum tekjum sínum aftur út í hag-
kerfið. Vegna hækkandi mat-
vælaverðs sverfur nú hungur að
stórum hópum sem áður höfðu til
hnífs og skeiðar. Korn er samt
notað til að framleiða eldsneyti.
BNA, Evrópa og Japan eru ekki
einu stóru hagkerfin lengur. Bras-
ilía, Rússland, Indland og Kína,
eru farin að skipta miklu máli. Öll
eiga þau það sameiginlegt með
BNA að líta svo á að velferð náist
helst með sem mestum hagvexti.
Ekki sé unnt að tryggja velferð
einstakra þegna í samfélagi hundr-
aða milljóna manna, þeir verði að
bjarga sér sjálfir þegar sverfur að.
Síðustu árin höfum við keppt við
önnur lönd í skattalækkunum. Við
verðum að vera samkeppnisfær um
auðmennina, fyrst við bjuggum þá
til. Eignarskattur var afnuminn,
erfðafjárskattur næstum alveg, há-
tekjuskattur er úr sögunni og
skattur af fjármagnstekjum sá
lægsti sem þekkist á okkar slóð-
um. Auðmennirnir þakka fyrir sig
með því að innleysa söluhagnað
sinn í Lúxemborg, til að koma
honum undan tíund. Sjaldan launa
kálfar ofeldi. Enn er samt talað
um skattalækkanir sem kjarabót
handa kjósendum. Hafa menn tap-
að glórunni?
Frjálshyggjumenn telja sjálfum
sér trú um að efnahagsvandinn sé
,,lausafjárkrísa“ og að nóg sé að
prenta meiri peninga. Vandinn er
miklu víðtækari og alvarlegri. Þeg-
ar verðbólur tóku að myndast á
sama tíma víða um heim, 2003-4,
nokkuð sem ekki hefur gerst síðan
frjálshyggjan reið síðast húsum
fyrir 1930, vöruðu menn við. Bók-
stafstrú á afskiptaleysi í hagstjórn
varð til þess að ráðamenn skelltu
við skollaeyrum. Á næstu árum
mun óhjákvæmilega koma til upp-
gjörs við frjálshyggjuna. Hún er
ekki gallalaus frekar en aðrar
stefnur. Þó að ,,moðið á miðjunni“
sé leiðinlegt er líklega skásti kost-
urinn að rifja upp gamlar og þaul-
prófaðar hugmyndir um meðalveg
hins blandaða hagkerfis. Hér á
landi getum við ekki leyft okkur að
láta þá sem verða undir éta það
sem úti frýs. Við eigum ekki að
apa tísku í hagstjórn upp eftir
stórþjóðum heldur láta mannúð og
skynsemi ráða. Hagstjórn þarf að
miða við velferð fjöldans.
Er frjálshyggjan að bregðast?
Ragnar Önundarson
skrifar
um hagstjórn
» Fólk er fé-
flett fyrir
milligöngu
bankans síns.
Afleiðingin er
eignatilfærsla,
samþjöppun
auðs og aukin
misskipting.
Ragnar Önundarson
Höfundur er viðskiptafræðingur,
bankamaður og fjármálaráðgjafi.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Stórglæsileg 5 herb., 232 fm íbúð á 6. og efstu hæð í fallegu lyftuhúsi. Aðeins 2 íbúðir eru
á hæð. Eignin skiptist m.a. í 2 svefnherb., 3 stofur., eldhús, baðherb. og gestasn. Tvenn-
ar yfirbyggðar svalir með glæsilegu útsýni. Í bílag. fylgja 2 sérmerkt stæði. 7518
Kirkjusandur - glæsileg íbúð
Um er að ræða þrílyft, 185,4 fm parhús á hornlóð. Á miðhæð er forstofa, snyrting, lítið
fataherbergi, hol, stofa og eldhús. Á efri hæð eru þrjú herb., og baðherb. Í kjallara eru tvö
herb., geymsla, baðherb., og þvottahús. Búið er að endurnýja allar lagnir í húsinu þ.e.
nýtt rafmagn og rafmagnstafla, nýjar vatnslagnir og ofnar og nýtt skólp. Einnig er búið að
skipta um glugga og allt gler í húsinu og endurnýja útihurðir. Þakjárn og -pappi er endur-
nýjað sem og þakrennur og niðurföll. Innréttingar eru allar nýjar svo og hurðir, gólfefni og
tæki. V. 74,9 m. 7544
Hávallagata - glæsilega endurnýjað
Flétturimi - glæsileg íbúð Falleg og
nýstandsett, 5 herbergja, 124,1 fm íbúð á
1. hæð með um 50 fm sólpalli og sér-
stæði í bílskýli. Íbúðin skiptist m.a. í stofu
og fjögur svefnherbergi. Sérþvottahús í
íbúð. V. 32,5 m. 7530
Kambasel - endaraðhús í botn-
langa Glæsilegt og vel staðsett 180,3 fm
endaraðhús með innb bílskúr. Eignin
skiptist m.a. í 4 svefnh., baðherb., gest-
asn., 3 stofur, eldhús, þvottah. og fl. V.
47,0 m. 7528
Garðhús - hagstæð áhv. lán
Falleg og vel skipulögð, 138,3 fm, 4ra
herb. íbúð á 2. hæð m. fullbúnum bílskúr
í litlu fjölbýli. Glæsilegt útsýni. Eignin skipt-
ist m.a. í forstofu, 3 svefnh., eldhús, stóra
stofu, þvottah., og baðh. Nánari uppl veit-
ir Heiðar Birnir sölumaður í síma 824-
9092. V. 28,7 m. 7451
Bogahlíð - íbúðarherb. í kjallara
Falleg og virðuleg ca 160 fm íbúð á 3.
hæð í 6 íbúða húsi með fallegu útsýni. 2
íbúðir eru á hæð. Eignin skiptist í gang og
hol, þrjú svefnh., 2 stofur, gestasn., stórt
eldh., og baðh. Í kjallara er íbúðarh., með
glugga og aðgangi að snyrtingu og góðar
geymslur. 2 svalir. Örstutt er í leik-, grunn-,
framhalds- og háskóla. V. 31,0 m.
Kársnesbraut - með bílskúr Góð
83,6 fm, 3ja herb íbúð á 2. hæð í litlu fjöl-
býli. Auk þess fylgir 24,4 fm bílskúr. Sam-
tals 107 fm. Sérþvottahús í íbúð. Svalir til
vesturs út af stofu. Fallegt útsýni. V. 24,5
m. 7527
Birkiholt - Álftanes Falleg 76,3 fer-
metra, 2ja herbergja íbúð með sérinngang
á efstu hæð í nýju, viðhaldslitlu fjölbýli við
Birkiholti númer 5 á Álftanesi. Eignin skipt-
ist í forstofu, gang, hjónaherbergi, bað-
herbergi, eldhús, stofu, þvottahús og
geymslu. V. 19,5 m. 7456
Fremstir í atvinnufasteignum :: 590 7600
Þorlákur Ó. Einarsson Þórhildur Sandholt
lögg. fasteignasali lögfr. og lögg. fast.sali
storeign.is Fax 535 1009
Fasteignasala . Atvinnuhúsnæði . Lágmúli 7 . 108 Rvk.
Klapparstígur 38
– gott tækifæri
Nánari upplýsingar á skrifstofu Stóreignar – Lágmúla 7
Til leigu/sölu, er fasteignin
Klapparstígur 39,
101-Reykjavík.
Í húsinu hefur verið rekið
veitingahús um margra ára
bil með góðum árangri,
eigninni fylgir frábær útiað-
staða í yfirbyggðum garði og
íbúð/skrifstofur/starfsmannaaðstaða í risi hússins. Fasteignin
hefur öll verið endurnýjuð og tilbúin til rekstrar. Eignin afhendist
strax.
Fremstir í atvinnufasteignum :: 590 7600
Þorlákur Ó. Einarsson Þórhildur Sandholt
lögg. fasteignasali lögfr. og lögg. fast.sali
storeign.is Fax 535 1009
Fasteignasala . Atvinnuhúsnæði . Lágmúli 7 . 108 Rvk.
Funahöfði – Hvaleyrarbraut
Lager/Geymsluhúsnæði
Til leigu eru eftirtalin húsnæði á Funahöfða 19, kjallara.
200 fermetra húsnæði
110 fermetra húsnæði
95 fermetra húsnæði
Snyrtileg og góð fasteign með möguleika á að setja 40 fm gám á
lóðina.
Lengd leigutíma er samkvæmt nánara samkomulagi en til greina
kemur skammtíma leigusamningar.
Til leigu eftirtalin húsnæði við Hvaleyrarbraut 4-6
130 fermetra húsnæði
200 fermetra húsnæði
Húsið er nýuppgert og með góðri aðkomu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Stóreignar – Lágmúla 7