Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 39
KONURNAR okkar eru alltaf að
segja okkur eiginmönnunum frá
sjálfshjálparbókum sem þær hafa
lesið. Það virðist vera til ótrúlegur
fjöldi bóka á þessu
sviði sem fjalla um
samskipti kynjanna,
samskipti hjóna og
reyndar flest svið
daglegs lífs. Hvað
hjónabandið varðar
sýnist mér að lausn
sjálfshjálparbókanna
sé tiltölulega einföld:
Allra best er að leyfa
konunum að ráða sem
mestu. Þá verður
hjónabandið farsælt.
Engri sjálfshjálp-
arbók hef ég kynnst
þar sem konum er ráðlagt að leyfa
körlunum að ráða sem mestu og að
það muni tryggja góða endingu
hjónabandsins.
En þótt gera megi grín að sjálfs-
hjálparbókum þá er nú sannleik-
urinn sá að þær geta að mörgu
leyti verið gagnlegar og eflaust
komið ýmsum vel að kynna sér efni
þeirra. Þær bestu eru skrifaðar af
reynslumiklu og frjóu fólki sem
þekkir vel þau vandamál sem upp
koma og geta gefið góð ráð.
En hvernig skyldi nú fólk hafa
farið að áður fyrr, þegar engar
voru sjálfshjálparbækurnar? Ég
var að lesa skáldsöguna Önnu Kar-
eninu eftir rússneska rithöfundinn
Leo Tolstoi sem hann skrifaði á ár-
unum 1875–1877. Þar dett ég allt í
einu niður á stuttan
kafla (5. þáttur, XIV.
kafli) þar sem höf-
undur lýsir afstöðu að-
alpersónunnar Ljovins
til hjónabandsins, en
þá var hann búinn að
vera þrjá mánuði í
hjónabandi. Á fjórum
blaðsíðum lýsir höf-
undur reynslu karl-
manns af fyrstu þrem-
ur mánuðunum í
hjónabandi, árekstr-
unum við eiginkonuna,
sáttum þeirra og síðan
niðurstöðu eiginmannsins af öllu
saman. Þetta er snilldarlegur kafli
og gefur nýjustu sjálfshjálp-
arbókum ekkert eftir.
Þessi skáldsaga hefst reyndar á
þessum ógleymanlegu orðum: „All-
ar hamingjusamar fjölskyldur eru
hver annarri líkar, en óham-
ingjusöm fjölskylda er jafnan
ógæfusöm á sinn sérstaka hátt.“
Niðurstaða mín er sú að áður
fyrr hafi fólk lesið bókmenntir ekki
einungis sér til afþreyingar, heldur
einnig til að njóta þeirrar dýptar
og hollráða sem finna má í góðum
skáldskap. Kannski má líkja sjálfs-
hjálparbókum nútímans við vítam-
ín og önnur fjörefni og góðum
skáldskap við holla og bragðgóða
máltíð. Maður fær kannski öll
nauðsynleg efni með því að taka
pillur, en mikið er nú skemmti-
legra að neyta þeirra með því að
borða góðan mat. Á sama hátt má
segja að lesendur sjálfshjálp-
arbóka fái öll þau ráð sem þeir
þurfa á að halda með því að lesa
sjálfshjálparbókmenntir, en mikið
er nú skemmtilegra að fá þau við
lestur góðra bókmennta, hvort sem
lesinn er rússneskur rithöfundur
frá 19. öld eða einhver af samtíð-
armönnum okkar.
Einar Örn Thorlacius
Rússneskar bókmenntir
og sjálfshjálparbækur
Einar Örn Thorlacius fjallar
um sjálfshjálparbókmenntir og
aðrar bókmenntir
» „Allar hamingju-
samar fjölskyldur
eru hver annarri líkar,
en óhamingjusöm fjöl-
skylda er jafnan ógæfu-
söm á sinn sérstaka
hátt.“
Einar Örn Thorlacius
Höfundur er áhugamaður um bók-
menntir.
Bergstaðastræti 9A – 101 Rvk.
Opið hús í dag milli kl. 14:00 og 16:00
Berg fasteignasala, Bolholt 4
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Sjarmerandi 91 fm íbúð á neðstu hæð
með sérinngangi. Íbúðin skiptist í 2-3
svefnherbergi, endurnýjað baðherber-
gi, fallegt eldhús og rúmgóða stofu.
Stór garður í góðri rækt. Um er að
ræða bjarta og fallega íbúð sem er
laus við kaupsamning. V. 25,9
Áhugasamir velkomnir. M
b
l 1
00
00
40
6
Frá kl: 14:00 - 16:00
Háteigsvegur 3 - 105 Reykjavík
Glæsilegar, bjartar og vel skipulagðar nýjar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í
endurbyggðu 13 íbúða lyftuhúsi. Afhending við kaupsamning.
Verð frá 26,9 mkr.
Frá kl: 16:30 - 17:00
Hrauntunga 6 - 220 Hafnarfirði
Snyrtilegt, 303 fm. 6 herb. einbýlishús í Hrauntungunni. Húsið er vel
skipulagt með nýuppgerðu og glæsilegu eldhúsi. Verð: 63,7 mkr.
Fannafold 157
Opið hús í dag, sunnud.,
kl. 14:00-15:00
Fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja 154,7 fm par-
hús með innbyggðum bílskúr í grónu hverfi í Grafar-
vogi. Húsið er bjart og vel skipulagt. Forstofan er
flísalögð með skápum. Eldhús, stofa og borðstofa
sem eru í stóru og opnu rými með mikilli lofthæð eru
með eikar parketi á gólfum. Eldhúsinnrétting er hvít
sprautulökkuð með innfelldum tækjum, ásamt góðu
vinnuborði úr granít með háf yfir. Baðherbergi er
flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, baðkari og
góðri baðinnréttingu. 3 svefnherbergi innaf gangi eru
parketlögð og með góðum skápum í hjónaherbergi.
Þvottahús er rúmgott með hillum og þaðan er innan-
gengt í bílskúr þar sem búið er að útbúa sér herbergi.
Góður garður með verönd í suður. Lúmex lýsing í
húsinu. Mjög góð eign. Verð 51,9 millj.
Júlíus 823-2600 tekur á móti áhugasömum.
Sími 534 8300 • Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík • www.storborg.is • storborg@storborg.is
Traustir kaupendur óska eftir u.þ.b. 250 fm einbýlis-
eða raðhús á Seltjarnarnesi. Góðar greiðslur í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Einbýlis- eða raðhús
á Seltjarnarnesi óskast
M
bl
9
92
80
6
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Ég sendi Mbl. bréf sem ég skrifaði
til The Guardian vegna greinar
David Teather nýverið um al-
þjóðakælinguna og efnahags-
ástandið á Íslandi.
Þetta var nákvæm lýsing á efna-
hagsástandinu á eyjunni, um sama
kalda blæinn og nú veitir bönkum
Stóra-Bretlands möguleika á að
breyta skuldum sínum í rík-
isskuldabréf á lægri vöxtum.
Það er áhugavert að fylgjast með
því, hvernig víkingarnir mæta erf-
iðleikum á borð við hækkandi lána-
kostnað, gengislækkun, aukna verð-
bólgu og hrun á
verðbréfamörkuðum. Það verður
spennandi að sjá, hvaða aðgerðum
Íslendingar beita til úrlausnar, sem
aðrir gætu jafnvel lært af.
Umræðan á Íslandi dafnar um
það hvað Evrólandið býður eða
býður ekki upp á og hvort Íslend-
ingum sé betur borgið með evru í
stað íslensku krónunnar.
En ekkert er nýtt undir sólinni.
Árið 1984 var verðbólgan rúmlega
100% og ríkisstjórnin skar burtu
tvö núll af gjaldmiðlinum. (Ég man
eftir því, þegar konan mín og ég
keyptum húsgögn í IKEA sem
hafði nýlega verið opnað í Reykja-
vík. Við keyptum fyrir rúma eina
milljón króna og „sprengdum“
kassann sem einungis gat reiknað
upp að 999.999,00 krónum). Á sama
tíma fóru lánsvextir yfir 40%, skatt-
ur á fyrirtæki var yfir 50%, krónan
sökk eins og steinn og efnahag-
urinn byggði alfarið á fáeinum
vörum framleiddum af fátækum
bændum og fiskimönnum.
Eftir þetta hefur grundvöllur
efnahagslífsins stöðugt farið vax-
andi og við hafa bætst ál, ferðaiðn-
aður og alþjóðleg fjármála-
starfsemi. Í mörg ár hefur Ísland
verið númer eitt í samkeppnishæfni
í Evrópu, boðið upp á hæsta lífs-
standard í heimi (SÞ), fyrirtækja-
skattur er kominn niður í 15%,
arfs- og fasteignaskattar hafa verið
afnumdir og fjármagnsskattur er
niðri í 10%. Einföldun kerfisins hef-
ur aukið frjálsa hreyfingu fjár-
magns, fólks, vöru og þjónustu og
gert Ísland að alþjóðaþátttakanda á
fjármálamörkuðum. Ísland á í dag
tvo af tíu stærstu viðskiptabönkum
Norðurlanda, hefur safnað gríð-
arlegum fjármunum í ellilífeyr-
issjóði og sum af börnum fátæku
sjómannanna og bændanna eru nú
með á listum yfir ríkasta fólk í
heimi. Stundum enda tilraunir til að
útskýra þessa þróun fyrir útlend-
ingum með fullyrðingu um, að allir
Íslendingar eigi peningaprentvél í
kjallaranum!
Ísland hefur þegar uppskorið þau
markmið sem Evrópusambandið
setur fram í Lissabonáætluninni,
þ.e.a.s. að verða að samkeppnishæf-
asta svæði heims. Íslenska form-
úlan hefur sýnt, hvað lítið land með
einungis 300 000 íbúa getur afrek-
að, þegar fólki og fjármagni er gef-
ið frelsi til að vinna fyrir sig sjálft.
Davíð Oddsson, núverandi seðla-
bankastjóri á Íslandi, líkti ástand-
inu við það þegar kúm er sleppt
frjálsum á túnið á vorin eftir vetr-
arsetu innanhúss.
Frelsi heitir leyndarmálið, sem
leysir sköpunarmátt framfara úr
læðingi og hefur gefið fátækri þjóð
kraftinn að verða ein af auðugustu
þjóðum heims.
Og allt þetta gerðist án nokk-
urrar „aðstoðar“ Evrópusambands-
ins eða evrunnar.
Engin furða að ESB vilji fá Ís-
land sem meðlim!
GÚSTAF SKÚLASON,
Polhemsvägen 47, 191 34
Sollentuna,
Svíþjóð.
Evrópusambandið ætti að
nota íslensku formúluna
Frá Gústafi Skúlásyni