Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
HVORT MUNDIR ÞÚ VILJA VERA
GÁFAÐUR OG FÁTÆKUR EÐA
SNIÐUGUR OG RÍKUR
ÉG MUNDI VILJA VERA
SNIÐUGUR OG RÍKUR... SÍÐAN
MUNDI ÉG RÁÐA GÁFAÐAN
MANN Í VINNU HJÁ MÉR
HMM...
SNIÐUGT
BLÚP!
BLÚP!
BLÚP!
BLÚP!
VILTU GJÖRA SVO
VEL AÐ HÆTTA AÐ
LEIKA ÞÉR AÐ
MATNUM ÞÍNUM?!?
ÞETTA ERU
ÍÞRÓTTAMEIÐSL
ÉG DATT ÞEGAR ÉG STÓÐ
UPP TIL AÐ SKIPTA FRÁ
FÓTBOLTANUM YFIR
Á KÖRFUBOLTANN
EIN AF
ÁSTÆÐUNUM
FYRIR ÞVÍ AF
HVERJU ÞAÐ ER
BETRA AÐ EIGA
HUND EN KÖTT
ÉG GÆTI FARIÐ ÚT AÐ HJÓLA... ÉG MUNDI ÞJÓTA
UM GÖTURNAR OG FINNA VINDINN Í HÁRINU Á MÉR.
ÉG GÆTI FARIÐ Á FALLEGA STAÐI... JAFNVEL HJÓLAÐ
ALLA LEIÐ ÚT Í SKÓG...
Á HINN BÓGINN...
ER C.S.I. AÐ
BYRJA EFTIR
SMÁ STUND
ÞÆR LEIÐIR SEM
MAÐUR LÆRIR Á
„ANIMAL PLANET“
ERU EKKI ALLTAF
BESTU LEIÐIRNAR
TIL AÐ NÁ SÉR
Í MAKA
dagbók|velvakandi
Messías vorra tíma
FÆÐING sértrúarsafnaðarleiðtog-
ans séra Moons var upphafið að nýj-
um trúarbrögðum sem formlega
voru stofnuð 1960. Er það ártal
merkilegt fyrir það að það ár bar
Vatíkaninu að opinbera leynd-
ardóminn í Fatíma, sem kaþólska
kirkjan gerði aldrei í trássi við him-
neskan sendiboða sem birtist í
Fatíma. Kristin trúarbrögð voru
líka ný trúarbrögð á dögum Krists
og postulanna – gyðinglegur sér-
trúarflokkur.
Hin kristna kirkja spratt upp úr
mistökum gyðinga er þeir kross-
festu konung sinn, sem þeir höfðu
lengi beðið eftir en þekktu ekki er
hann kom. Í trú gyðinga er ekki
gert ráð fyrir aftöku Messíasar
heldur jarðneskum konungdómi
hans. Við þessi hörmulegu endalok
frelsarans sköpuðu kristnir menn
trúarbrögð byggð á fórnardauða
guðssonarins. Gyðingar bíða enn
komu Messíasar og hafa upp til
hópa ekki áttað sig á mistökum sín-
um og nú í dag bíða kristnir menn
endurkomu Krists. Hversu lengi
vilja þeir bíða? Hversu lengi vilja
þeir loka augunum fyrir því að
Messías sé líklega kominn?
Ef áætlun almættisins var sú að
Jesús yrði myrtur hvers vegna gekk
Júdas, sá sem sveik Jesú, út og
hengdi sig en var ekki fagnað sem
hetju heimsbyggðarinnar? Hvers
vegna varð myrkur um allt landið er
Jesús dó á krossinum en ekki sól,
birta og fögnuður með lúðrablæstri
og gleðilátum? Hvers vegna lifum
við enn í syndugum heimi ef Kristur
Jesús dó fyrir syndir heimsins og
fullkomnaði það verk með dauða
sínum? Hin gamla guðfræði krist-
indómsins er öll byggð á alvarleg-
asta glæp mannkynssögunnar og
mistökum manna sem tóku af lífi
son Guðs, sem kom til að frelsa
mannheim og byggja upp jarðneska
fjölskyldu himnaföðurins. Kristur
bað Guð að fyrirgefa þeim er drápu
hann. Hvers vegna ef krossfestingin
var sáluhjálparatriði fyrir allan
heiminn? Hann bað Guð að taka frá
sér bikar þjáninganna í Getsemane.
Hvers vegna ef hann kom í heiminn
í þeim tilgangi að deyja á krossi?
Föður Moon hefur verið hafnað af
kristnum mönnum eins og Jesú var
hafnað af gyðingum. Séra Moon og
söfnuður hans hefur verið upp-
nefndur sértrúarsöfnuður og skul-
um við ekki gleyma því að Jesús
Kristur var einnig leiðtogi sér-
trúarsafnaðar gyðinga sem seinna
urðu þekktir undir nafninu kristnir
menn. Þeir voru illa liðnir af leiðtog-
um gyðinga, sem voru þeir fyrstu til
að afneita Kristi, þótt þeir þættust
manna vitrastir í guðfræði. Eru
kristnir menn að endurtaka sömu
mistök í dag með því að afneita frið-
arhöfðingja og Messíasi vorra tíma?
Einar Ingvi Magnússon
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
AÐ lenda flugvél fullri af farþegum er mikið ábyrgðarhlutverk. Hér sést
flugvél við það að lenda, ekki svífur hún langt frá ljósmyndaranum og virð-
ist sem hún snerti trjátoppana.
Morgunblaðið/Ómar
Flugvél í lendingu
FRÉTTIR
STÓRSÝNINGIN Heilsa, húð og
hár stendur yfir í Vetrargarðinum
í Smáralind um helgina. Sýningin
spannar allt heilsusviðið og verður
einstaklega fjölbreytt og lifandi.
Fyrirtæki úr öllum heilsugeirum
kynna þar vörur sínar og þjónustu
fyrir sýningargestum. Það verður
frítt inn á sýninguna sem er opin
frá kl. 11 til 18.30 í dag, sunnu-
dag.
„Á sýningunni verður mikið um
tilboð á heilsuvörum og þjónustu
er tengist heilsu, húð og hári. Þá
verður vegleg fyrirlestraskrá með
fjölda fyrirlestra sem líka verður
frítt inn á. Sýningargestum gefst
þarna einstakt tækifæri til að
kynnast öllu því helsta og nýjasta
sem er á boðstólum á sviði heilsu
og fegurðar. Stórsýningin Heilsa,
húð og hár er nú haldin í fyrsta
sinn á Íslandi. Einkennisstef sýn-
ingarinnar er – Heilsan er okkar
dýrmætasta eign!“ segir í tilkynn-
ingu.
Heilsa, húð og hár 2008
í Vetrargarðinum
Ljósmynd/Gísli Sigurðsson