Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 68
SUNNUDAGUR 4. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2008 Heitast 12 °C | Kaldast 6 °C  A og NA, víða 10-18 m/s, hvassast f. norð- vestan. Skýjað og rign- ing eða súld, úrkomu- minna f. norðan. » 8 ÞETTA HELST» Fimm milljarðar á ári  Marel ver tæpum fimm millj- örðum í rannsóknir og þróun á ári. Árni Oddur Þórðarson stjórn- arformaður telur nauðsynlegt að efla hér nýsköpunar- og þróun- arstarf. Hann bendir á Noreg þar sem veittur er skattaafsláttur vegna rannsókna- og þróunar. »Forsíða Óttast bringuflóð  Tollur á ferskum kjúklingabring- um frá ESB er mun lægri en af öðr- um tegundum kjúklings. Fram- kvæmdastjóri Ísfugls telur að bringur muni flæða yfir markaðinn verði matvælalöggjöf ESB innleidd hér. »2 Aum ríkisstjórn  Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á mið- stjórnarfundi flokksins að rík- isstjórnin væri ekki vandanum vaxin og að hún væri sú aumasta sem setið hefði frá þjóðarsáttinni 1990. »2 Fjallakappi í klifurmynd  Fjallamaðurinn heimsþekkti, Sim- on Yates, er væntanlegur hingað til lands fljótlega vegna frumsýningar fyrstu íslensku fjallakvikmynd- arinnar í fullri lengd. »4 SKOÐANIR» Staksteinar: Já, já og nei, nei Forystugreinar: Umskipti hjá Íhaldsflokknum | Reykjavíkurbréf Ljósvakinn: Sunnudagsþunglyndi UMRÆÐAN» Stjórn SA hvetur til samstillingar ábyrgra aðila Alcan hjólar í vinnuna Fjölmennt á leikskólum Er frjálshyggjan að bregðast? Aðstandendur fanga Menntun í þágu atvinnuveganna Óskhyggja Jóns Sigurðssonar ATVINNA» TÓNLIST» Sólstafir á þunga- rokkshátíð. » 61 Mörg forrit eiga að gera það sama og Google Calender en skortir þægilegt not- endaviðmót og kosta líka peninga. » 64 VEFSÍÐA» Ókeypis og gott TÓNLIST» Winehouse syngur ekki fyrir Bond. » 63 TÓNLIST» Britney Spears hefur tapað miklu. » 67 Mark Chung var bassaleikari Ein- stürzende Neubaut- en en hefur síðustu árin verið baksviðs í tónlistinni. » 58 Af bassa í bransann TÓNLIST» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Kvartað yfir bænakalli 2. Brúðkaupsveislan endaði með … 3. Það sem gerðist var óumflýjanlegt 4. Einstök fósturmamma ÞAÐ er eins gott að telja vel í budd- unni áður en fjölskyldan leggur af stað með sundfötin í farteskinu á blíðum góðviðrisdegi. Á meðan það kostar nú fyrir16 ára og eldri heilar 1.800 krónur að dýfa tánum í Bláa lónið og 1.400 krónur fyrir sama ald- ursflokk að baða sig í Jarðböðunum við Mývatn, kostar stök heimsókn fullorðinna í sundlaugar Reykja- víkurborgar 360 kr. og 280 kr. í sundlaugar Kópavogsbæjar. Að- gangseyrir fyrir unglinga 12 til 15 ára er 900 kr. í Bláa lóninu og 700 kr. í Jarðböðunum við Mývatn. Ellefu ára og yngri fá hins vegar frían að- gang á báðum stöðum í fylgd fullorð- inna. Börn fá líka frítt í sundlaug- arnar upp að 6 ára aldri, en greiða 110-120 króna barnagjald eftir það. Einnig er frítt í laugarnar fyrir ör- yrkja og eldri borgara en Bláa lónið rukkar 1.200 krónur fyrir þennan hóp fólks og Jarðböðin 1.100 krónur. Í sumar kemur fullorðinsgjaldið í Bláa lóninu svo enn frekar til með að hækka því búið er að boða hækkun úr 1.800 kr. upp í 2.300 kr. fyrir fullorðna yfir sumarmánuðina þrjá. Þá verður heimsókn í lónið fyrir kjarnafjölskylduna farin að telja nokkra þúsundkalla og vel það séu veitingar og hækkandi bensín- dropar teknir með í reikninginn. | join@mbl.is Auratal Sundferðin Laugarferð fyrir fullorðinn einstakling Bláa lónið 1800 Jarðböðin Mývatni 1400 Sundlaugar Reykjavíkur 360 Sundlaugar Kópavogs 280 Konungs- steinarnir í hlíðinni fyrir ofan Geysi í Haukadal hafa fengið nýja og skarpari ásýnd. Ástæðan er heimsókn Friðriks Danaprins og Mary Elisa- beth, konu hans, til Íslands. Steinarnir bera ártöl þriggja kon- ungsheimsókna, 1874, 1907 og 1921 og fangamark þriggja konunga, Kristjáns IX., Friðriks VIII. og Kristjáns X. Áletranirnar voru orðn- ar nokkuð máðar. Fyrirtæki sem tengjast viðskiptum Danmerkur og Íslands styrktu viðgerðina. | 26, 8 Konungssteinn Áletranir skerptar. Konungs- steinar fá nýja ásýnd KRIKKETÍÞRÓTTIN hefur um langan aldur þótt eftir- læti þeirra sem unna bæði spretthörku og nákvæmni. Á Klambratúni hefur skapast vettvangur krikketáhuga- manna og er einbeitingin í fyrirrúmi. Sprettharka og nákvæmni Krikket leikinn í vorblíðunni á Klambratúninu Morgunblaðið/Frikki SIGURÐUR Friðriksson er þekkt aflakló og hafði sérstakt lag á að finna fisk þegar aðrir urðu ekki varir. Aflabrögð hans eru sögu- fræg, en fyrir tveimur árum opn- aði hann hótel á Laugavegi 101 og virðist hafa sama aðdráttarafl á ferðalanga og fisk. Sigurður byrjaði aðeins nokk- urra ára gamall að draga fisk úr sjó og segir að fjaran, beitinga- skúrarnir og braggarnir þar sem vertíðarfólkið bjó hafi verið sinn háskóli. 15 ára réð hann sig á togara og segist varla hafa komið í land eftir það nema til að fara í Sjómannaskólann. „Það var varla að maður kæmi í land í 40 ár,“ segir hann í viðtali við Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Tekur hattinn ofan Árið 2006 hætti Sigurður útgerð og opnaði hótel 4th Floor. Á heimasíðu Tripadvisor er að finna þrjár umsagnir um hótelið og fær það hæstu einkunn í þeim öllum. „Ég ferðast oft og iðulega og verð að segja að þetta er ein ánægjulegasta reynsla mín af hóteli,“ skrifar einn og annar segist taka „hatt- inn ofan fyrir vinalegu, vel reknu og sveigjanlegu hóteli“. „Ég er búinn að vera skipstjórnarmaður frá því ég var ungur en ég var kominn í land og rak útgerð og allt í einu fannst mér komið nóg af því og sneri mér að þessum rekstri,“ segir Sigurður sem hefur ýmislegt reynt, bæði á sjó og í landi. | 24 Fjölhæfur Sigurður Friðriksson Aflakló fer í hótelrekstur Kolaiðn- aður á krossgötum UM þessar mundir er háð hörð bar- átta um hina svokölluðu Future- Gen-áætlun í Bandaríkjunum sem miðar að því að nýta kol sem meng- unarlausan orkugjafa. Gert er ráð fyrir að 275 MW til- raunaorkuver verði reist í Mattoon í Illinois þar sem framleitt verði vetni úr kolum og það nýtt til fram- leiðslu rafmagns. Koltvísýringnum verði dælt í jarðlög þar sem hann gengur í efnasamband við bergið. Bandaríska orkumálaráðuneytið hefur nú kynnt breyttar áætlanir þar sem styrkir verði veittir til þess að reisa ný kolakynt orkuver og þróa tækni til þess að farga CO2. Framleiðsla vetnis verði hins vegar látin lönd og leið. Formaður stjórn- ar FutureGen, heldur því fram að þetta muni seinka þróun aðferða til þess að geyma CO2 í jörðu. Hann bendir á að FutureGen sé ekki starfrækt í hagnaðarskyni og þekk- ingin muni því nýtast kolaframleið- endum um allan heim. | 30 ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.