Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 53
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Mánud. 5. maí
kl. 13 verður formleg opnun á
handverkssýningu þátttakenda í
félagsstarfinu. Flott meðlæti til
sölu með kaffinu. Föstud. 9. maí
verður Vorfagnaður kl. 17 – hátíð-
armatur, skemmtiatriði og ball.
Verð kr. 3.500. Allir velkomnir.
Breiðfirðingabúð | Vorfundur Fé-
lags breiðfirskra kvenna verður
haldinn mánudaginn 5. maí kl. 20.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Stangarhyl 4. Dansleikur í kvöld
kl. 20. Caprí leikur fyrir dansi.
Skráning hafin í Austfjarðaferð
1.-4. júlí, nokkur sæti laus, uppl. og
skráning í síma 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Sýning
á handunnum skraut- og nytjam-
unum, sem unnir hafa verið í Gjá-
bakka í vetur, er í dag kl. 13-17.
Vöfflukaffi og smiðjur í gangi. Allir
velkomnir.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Létt ganga frá Gullsmára um
næsta nágrenni kl. 10. Vorsýning
kl. 13-17. Handunnir nytja- og
skrautmunir, vöfflukaffi og hand-
verkssmiðjur.
Félagsstarf Gerðubergs | Miðvi-
kud. 7. maí verður farið í ferðalag
austur fyrir fjall, m.a. í heimsókn á
Hótel Eldhesta þar sem snædd
verður fiskisúpa. Ekið í Hvera-
gerði, ísveisla í Eden o.fl. Lagt af
stað frá Gerðubergi kl. 12, áætluð
heimkoma kl. 17. Skráning á
staðnum og í s. 575-7720.
Hæðargarður 31 | Kaffisopi, tölv-
ur, Mülllers-æfingar, postulín, hlát-
urjóga, bókmenntir, myndlist, ljóð-
list, félagsvist, söngur, línudans,
gönuhlaup, samræðulist, Bör Bör-
son, sniglaganga o.fl., s. 568-
3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sport-
húsinu á mánu- og miðvikud. kl.
9.30-11.30. Hringdansar í Kópa-
vogsskóla kl. 14.20-15.20. Ringó í
Smáranum á miðvikud. kl. 12 og í
Snælandsskóla á laugard. kl. 9.30.
Línudans í Húnabúð á miðvikud.
kl. 17. Uppl. í síma 564-1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun
verður ganga frá Grafarvogskirkju
kl. 10.
Kvenfélag Garðabæjar | Vor-
fundur félagsins verður haldinn
þriðjud. 6. maí kl. 19.30 í Garða-
holti. Skrá þarf þátttöku í síðasta
lagi sunnud. 4. maí. Nánari uppl.
er að finna í fréttabréfi og á
heimasíðu félagsins. Skemmti-
atriði og fundasölunefnd verður
með varning til sölu. www.kveng-
b.is
Kvenfélag Kópavogs | Í tilefni af
Kópavogsdögum er opið hús í dag
frá kl. 11, í sal kvenfélagsins,
Hamraborg 10, 2. hæð. Kaffiveit-
ingar, kökubasar, innkaupapokar
o.fl. Málverkasýning. Vorferð fé-
lagsins verður 15. maí nk. Lagt
verður af stað frá Hamraborg 10
kl. 18. Þátttaka tilkynnist fyrir 10.
maí í síma: 553-5858, Elísabet,
eða 557-9707/847-7836, Bryn-
dís.
Lífeyrisþegadeild Lands-
sambands lögreglumanna | Fé-
lagar fjölmennið á fund deild-
arinnar í dag kl. 10 á Grettisgötu
89.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | Farið verður í
vorferð Safnaðarfélags Graf-
arvogskirkju mánudaginn 5. maí.
Farið verður frá kirkjunni kl. 19.30.
Alþingishúsið heimsótt, land-
námssýning í miðbænum skoðuð
með leiðsögn. Kvöldkaffi verður í
Iðnó, fróðleikur um húsið. Þátt-
tökugjald er 1.200 kr., kvöldkaffi
innifalið.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Hátúni 2. Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður Jón Þór Eyjólfsson.
International church – biblestudy
in the cafeteria kl. 12.30. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður:
Vörður Leví Traustason. Gosp-
elkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Ald-
ursskipt barnakirkja, öll börn 1-13
ára velkomin.
dagbók
Í dag er sunnudagur 4. maí, 125. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Dagur upplýsingatækninnar,UT-dagurinn, er 7. maí. Afþví tilefni verður haldin ráð-stefna á Hilton Nordica og
kynnt verður ný stefna ríkisstjórnar-
innar um hið íslenska upplýsinga-
samfélag. Hinn 9. maí kemur svo út UT-
blaðið, sem dreift verður með dag-
blaðinu 24 Stundum.
Guðbjörg Sigurðardóttir er skrif-
stofustjóri á skrifstofu upplýsinga-
samfélagsins í forsætisráðuneytinu og
einn skipuleggjenda UT-dagsins: „Dag-
ur upplýsingatækninnar er nú haldinn í
þriðja sinn. Í hvert skipti hefur dag-
urinn verið með ólíku sniði, en tilgang-
urinn alltaf verið sá sami: að skapa um-
ræðu um tækifæri Íslendinga á sviði
upplýsingatækni og upplýsingaiðn-
aðar,“ segir Guðbjörg. „Að þessu sinni
er megináherslan á nýja stefnu rík-
isstjórnarinnar sem nær til áranna frá
2008 til 20012 og er mjög metnaðarfull.
Unnið hefur verið að mótun þessarar
nýju stefnu sl. 6 mánuði og hefur stór
hópur fólks komið að þeirri vinnu, bæði
frá hagsmunaaðilum og stjórnsýslunni.“
Guðbjörg segir Íslendinga mælast
með þróuðustu þjóðum á ýmsum sviðum
upplýsingatækni, en það á ekki við þeg-
ar kemur að framboði á rafrænni þjón-
ustu: „Þetta er nokkuð sem tekið er á í
nýju stefnunni. Með því að gera t.d.
eyðublöð og umsóknir aðgengileg á net-
inu, og afgreiðslu þeirra sömuleiðis má
stórbæta þjónustu við almenning, spara
tíma og ná aukinni skilvirkni í rekstri,“
segir hún.
Ráðstefna miðvikudagsins hefst með
ávarpi Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra, umfjöllun um hina nýju stefnu og
framkvæmd hennar. „Meðal annarra
fyrirlesara má nefna Sigríði Lillý Bald-
ursdóttur og Braga L. Hauksson sem
segja frá áætlunum um breytingar í
þjónustu Tryggingastofnunar ríkisins.
Eins má nefna erindi Geirs Ragn-
arssonar sérfræðings í samgöngu-
ráðuneytinu um rafrænar sveitarstjórn-
arkosningar en fyrirhugað er að gera
tilraunir með slíka framkvæmd.“
Einnig má nefna af dagskrá ráðstefn-
unnar fyrirlestra um rafræn skilríki og
um verkefnið Ísland.is.
Finna má nánari upplýsingar um ráð-
stefnuna, skráningu og þátttökugjöld á
www.ut.is
Stjórnsýsla | Áhugaverð erindi og ný stefna kynnt á UT-deginum
Betra upplýsingasamfélag
Guðbjörg Sig-
urðardóttir fædd-
ist á Akureyri
1956. Hún lauk
kennaraprófi frá
KHÍ 1980 og BS-
prófi í tölvunar-
fræði frá HÍ 1983.
Guðbjörg var
starfsmaður tölvu-
deildar Ríkisspít-
ala 1985-1997, verkefnisstjóri í for-
sætisráðuneyti og formaður
verkefnisstjórnar um upplýsinga-
samfélagið 1997-2002, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra 2002-2003 og
skrifstofustjóri á skrifstofu upplýs-
ingasamfélagsins frá 2004. Guðbjörg
er gift Skúla Kristjánssyni tannlækni
og eiga þau tvo syni.
Tónlist
Iðnó | Í kvöld kl. 20 eru tónsmíða-
tónleikar. Þar verða flutt verkin Há-
vaðinn í sólinni og Túnfífill eftir Ragn-
hildi Gísladóttur sem er að ljúka
BA-námi í tónsmíðum frá LHÍ. Lydía
Grétarsdóttir frumflytur einnig raf-
verkið Bresti en hún er að ljúka BA-
námi í nýmiðlum frá LHÍ í vor.
Laugarneskirkja | Mánakórinn heldur
tónleika í dag kl. 16. Einsöngvarar eru:
Unnur Sigmarsdóttir, Sigurður Þeng-
ilsson og Þórir Georgsson. Stjórnandi
er Violeta Smid og undirleikari er Kry-
styna Cortes. Kórinn flytur létta dag-
skrá. Miðaverð er 1.500 kr.
Ráðhús Reykjavíkur | Í tilefni af 20
ára afmæli Suzukitónlistarskólans í
Reykjavík verða haldnir tvennir vor-
tónleikar í dag. Nemendur á aldrinum
3 til 17 ára munu koma fram. Fyrri tón-
leikarnir hefjast kl. 13.30 og þeir seinni
kl. 15. Allir velkomnir.
Salurinn, Kópavogi | Í dag kl. 16 held-
ur Helene Inga Stankiewicz tónleika
en hún er að ljúka diplómanámi á pí-
anó. Á efnisskrá eru verk eftir Beetho-
ven, Ravel og Brahms.
Uppákomur
Þingborg – Suðurlandi | Áhugafólk
um samfélags- og umhverfismál í
Flóahreppi halda Fræðaþing um Urr-
iðafossvirkjun í félagsheimilinu Þing-
borg mánudaginn 5. maí kl. 20. Hags-
munaaðilar og færustu sérfræðingar
þjóðarinnar fjalla um Urriðafoss-
virkjun og áhrif hennar á samfélagið
og umhverfið.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Kaffihlaðborð á
degi aldraðra í Breiðfirðingabúð í dag
kl. 14.30. Breiðfirðingakórinn syngur.
Sjá heimasíðu Breiðfirðingafélagsins,
www.bf.is.
Fréttir og tilkynningar
Kristniboðssambandið | Basarinn,
nytjamarkaður kristniboðsins er á
Grensásvegi 7, 2. hæð. Allur ágóði af
basarnum rennur til hjálpar- og þróun-
arstarfs. Nú er búðin full af nýjum og
nýlegum vörum; skrautmunir, húsbún-
aður, barnaleikföng, púsl, spil, barna-
föt, töskur, slæður o.fl. Opið virka daga
kl. 12-17. Verið velkomin.
ÞEIR hafa það fyrir sið í Japan að halda keppni um hvaða kornabarnið getur grenjað hæst. Hérna sést vígalegur súmó-
glímukappi hræða vart ársgamlan hvítvoðunginn til að veina svo um munar. Keppnin er haldin í Sensoji musterinu í Tok-
yo og er tækifærið notað til að biðja barninu heilsu og vaxtar.
Reuters
Ógn og skelfing
Frá og með 1. maí flyst
lækningastofa mín
úr Lækningu Lágmúla 5,
í Læknahúsið Domus Medica,
Egilsgötu 3 , 101 Reykjavík.
Flutningur á lækningastofu
Dr. Karl Logason sérgrein
æðaskurðlækningar
og almennar skurðlækningar
Tímapantanir daglega mil l i kl 9-18 í s íma: 563 1060
3ja ára nám
í náttúrulækningum
HEILSUMEISTARASKÓLINN
School of Natura l Medic ine á Ís landi
Heildrænt nám - ND, Naturopat Diploma.
Innritun stendur yfir til 15. júní
www.healthmastericeland.com
school@healthmastericeland.com
Upplýsingar í síma 892 6004
❁ ❁
FRÉTTIR
FYRSTU styrkir sem veittir eru úr
Styrktar- og verðlaunasjóði Bents
Scheving Thorsteinsson voru af-
hentir á ársfundi Landspítala í Saln-
um í Kópavogi 29. apríl. Sjóðurinn
var stofnaður í júlí 2007 með 30
milljóna króna gjafafé Bents Schev-
ing. Markmið og hlutverk sjóðsins
er að veita styrki og verðlaun fyrir
vísindaleg afrek, rannsóknir, rit-
gerðir og skylda starfsemi á sviði
hjartalækninga og hjarta- og
lungnaskurðlækninga. Úthlutað var
tveimur milljónum króna til fjög-
urra verkefna en alls bárust þrettán
umsóknir um styrk. Hvert verkefni
fékk 500 þúsund krónur. Tvö þeirra
falla undir lyflækningar en hin tvö
skurðlækningar.
Eftirtalin verkefni voru valin:
1. Davíð O. Arnar og samstarfs-
aðilar – Erfðafræði gáttatifs.
2. Þórarinn Guðnason og sam-
starfsaðilar – Samanburður á öllum
kransæðaþræðingum og krans-
æðavíkkunum sem framkvæmdar
voru í tveimur löndum, Íslandi og
Svíþjóð, árið 2007.
3. Steinn Jónsson og samstarfs-
aðilar – Lungnabrottnámsaðgerðir á
Íslandi 1986–2007.
4. Hannes Sigurjónsson og sam-
starfsaðilar – Árangur krans-
æðahjáveituaðgerða á Íslandi.
Styrkir Bent Scheving Thorsteinsson og eiginkona hans, Margaret Ritter
Ross Wolfe, ásamt styrkþegum og stjórnarmönnum í sjóðnum.
Fyrstu styrkir úr styrktarsjóði