Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ TJALDABAKI ÚTRÁSAR
Þ
egar formlegt samstarf
Marel við Stork Food
Systems um þróun og
markaðssetningu á
lausnum til kjúklinga-
vinnslu hófst árið 1998
óraði engan fyrir því að Marel ætti
eftir að taka yfir samstarfsaðilann.
Enda angi af Stork-samsteypunni
sem er sögufræg í hollensku við-
skiptalífi, hefur löngum verið valda-
mikil og var margfalt stærri.
Þegar Stork var stofnað árið 1868
þótti það nútímalegt, nýjungagjarnt
og velferðarsinnað. Það var einna
fyrst til að stofna lífeyrissjóð, auk
þess sem hugsað var vel um starfs-
menn, starfræktur skóli, bókasafn,
tónleikasalur og baðhús. Og þorpið
Het Lansink var reist fyrir starfs-
menn, sem er einstök heimild um
tíðarandann.
En kannski hefði mátt líta á yf-
irtöku Marel á Carnitech árið áður
sem vísbendingu um að þar væru
menn til alls vísir en það var á þeim
tíma stærsta yfirtaka Íslendinga er-
lendis. Og næsti áratugur var sam-
felld vaxtarsaga Marels, en félagið
óx um 26% á ári að meðaltali, 17-18%
ef undan er skilin yfirtakan á Carni-
tech.
Úttekt á 130 keppinautum
Kaflaskil urðu með aðkomu Eyris
Invest sem fjárfestis árið 2005.
„Marel bjó yfir gríðarlegri tækni-
þekkingu og okkur leist vel á stefn-
una sem fólst í að verða leiðandi á
markaðnum,“ segir Árni Oddur
Þórðarson, forstjóri Eyris og stjórn-
arformaður Marels. „Við teljum að
það þurfi stærðarhagkvæmni til að
þjóna viðskiptavinum vel og þá gef-
ist tækifæri til að vaxa með þeim inn
á nýmarkaði í Austur-Evrópu, Suð-
ur-Ameríku og Asíu. Þetta snýst
ekki bara um að selja vöru, því ekk-
ert má koma upp á í framleiðsluferli í
matvælaiðnaði og þjónusta eftir sölu
og varahlutasala skiptir því ekki síð-
ur máli. Og til þess að unnt sé að
veita góða þjónustu með arðbærum
hætti er stærðarhagkvæmni höfuð-
atriði.“
Markaðshlutdeild Marels var 4%
á heimsvísu, eins og Marel skil-
Morgunblaðið/Golli
Stórhuga Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel, stóð ásamt starfsmönnum sínum í þremur sameiningarviðræðum samtímis í apríl 2007.
SLAGURINN
UM STORK
Slagurinn um sam-
steypuna Stork vakti
mikla athygli í Hol-
landi, en þar mættust
gamli og nýi tíminn og
blönduðust inn í hann
þungavigtarmenn í hol-
lensku viðskiptalífi.
Hér er lýst viðburða-
ríkri atburðarás og tal-
að við Árna Odd Þórð-
arson sem kom að
kaupunum fyrir Marel
og Eyri Invest.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is