Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 21
Skilyrði var að syngja á íslensku
og Eyþór Ingi segir það hafa verið
mikla áskorun enda hafi hann ekki
verið sérlega vel að sér um íslenska
tónlist. Þá kom vefurinn tonlist.is í
góðar þarfir. „Við héngum þar tím-
unum saman.“
Hann segir hóp keppenda hafa
verið góðan og samheldinn. „Við vor-
um mikið saman og urðum snemma
eins og bekkur í skóla. Þetta eru upp
til hópa frábærir krakkar og ég eign-
aðist marga vini, ekki síst Arnar [Má
Friðriksson] sem var með mér í úr-
slitaþættinum. Það býr ótrúleg orka í
þeim dreng og hann er góður félagi.
Arnar ætlar að heimsækja mig fyrir
norðan á næstunni og við eigum
örugglega eftir að verða í góðu sam-
bandi.“
Gott að fá klapp á bakið
Varla er hægt að vonast eftir betri
dómum en Eyþór Ingi fékk í Bandinu
hans Bubba og þjóðin var greinilega
á sama máli og dómnefndin mælska.
„Það var í einu orði sagt stórkostlegt
að upplifa þessa dóma. Það féllu fal-
leg orð í minn garð í þættinum og ég
fór oft hjá mér. Allir hafa gott af því
að fá klapp á bakið og þetta styrkir
mann í þeirri trú að maður sé á réttri
hillu í lífinu.“
Sigurvegarar í fyrri söngvara-
keppnum á Stöð 2 hafa ekki náð þeim
hæðum sem sumir bjuggust við og
Bubbi Morthens hefur lýst því yfir að
rólega verði farið í sakirnar að þessu
sinni. Eyþóri Inga hugnast sú nálg-
un. „Það er mikill skilningur á mínum
þörfum, bæði hjá Bubba, umboðs-
manni mínum, Palla í Prime, og öðr-
um sem að þessu koma. Markmið
mitt er að sanna mig sem tónlist-
armaður og sýna að ég geti eitthvað
annað en tekið þátt í keppnum. Það
er ekki búið að setja upp eldfast mót
sem ég passa inn í enda er lykilatriði í
mínum huga að laga hlutina að mér
en ekki mig að hlutunum. Þannig á
það að vera.“
Plata með frumsömdu efni
Eyþór Ingi hefur sett stefnuna á
plötu en segir alltof snemmt er að
segja hvenær það verði. „Ég hef
miklu meiri áhuga á því að gefa út
plötu með frumsömdu efni en ein-
hverja „cover“-plötu. Ég hef samið
tónlist lengi og á fullt af efni. Samt er
það ekkert mottó að vera sjálfbær, ég
get vel hugsað mér að syngja efni eft-
ir aðra líka. Bubbi samdi til dæmis
fyrir mig mjög fínt lag, Hjartað þitt,
sem komið er í spilun í útvarpi.“
Keppnin hverfðist um söngv-
arastöðuna í Bandinu hans Bubba og
Eyþór Ingi mun koma fram með
hljómsveitinni í sumar. Engar dag-
setningar liggja þó fyrir ennþá.
„Þetta er stórkostlegt band, eins og
alþjóð varð vitni að í þáttunum, og
það verður heiður að syngja með því.
Eins og menn vita eru þessir strákar
hins vegar með mörg járn í eldinum
og það þarf því að raða þessu vand-
lega saman. En það er alveg ljóst að
við munum koma fram saman í sum-
ar. Ætli framhaldið verði ekki skoðað
betur í haust en ég gæti svo sann-
arlega hugsað mér að vinna meira
með þessu bandi.“
Enda þótt Eyþóri Inga liggi ekk-
ert á gerir hann sér líka grein fyrir
því að ekki er gott að bíða of lengi.
„Ég vil gefa mér tíma til að þróa
minn stíl en á sama tíma ætla ég að
gera allt sem í mínu valdi stendur til
að hverfa ekki af sjónarsviðinu. Ég
vil síður enda inni á einhverri skrif-
stofu eftir nokkur ár. Ég er kominn
með vandaða skóflu í hendurnar og
nú er bara að halda áfram að moka.“
Líkt við Jóa leikara
Eyþór Ingi fæddist á Dalvík 29.
maí 1989. Foreldrar hans eru hjónin
Gunnlaugur Antonsson sjómaður og
Guðbjörg Stefánsdóttir húsmóðir og
nemi. Hann á tvær yngri systur, Ell-
en Ýr, fimmtán ára, og Elísu Rún, tíu
ára. Eyþór Ingi hefur alið allan sinn
aldur á Dalvík og segir afskaplega
gott að vaxa þar úr grasi. „Það er ró-
legt og þægilegt á Dalvík og um-
hverfið heldur vel utan um bæj-
arbúa,“ segir hann.
Eyþór Ingi er af tónelsku fólki
kominn og nefnir afa sína sér-
staklega í því samhengi, Anton
Gunnlaugsson og Stefán Frið-
geirsson hestamann með meiru sem
er jafnvígur á söng, píanó og harm-
ónikku. Þá er leiklistin Eyþóri Inga í
blóð borin en langafi hans, sem aldrei
var kallaður annað en Jói leikari, var
á sinni tíð þekktur maður í mannlíf-
inu á Dalvík og frægur fyrir að „stela
senunni“. „Ég kynntist honum aldrei
en margir sem muna eftir Jóa leikara
hafa líkt mér við hann.“
Snemma beygist krókurinn og Ey-
þór Ingi kveðst ekki muna eftir sér
öðruvísi en syngjandi, leikandi og
„bullandi“. Hann var alltaf að búa
eitthvað til. Fyrsta átrúnaðargoð
hans í tónlist var kóngurinn sjálfur,
Elvis Presley. „Það var amma mín,
Anna Margrét Halldórsdóttir, sem
kenndi mér að hlusta á Elvis. Ég féll
strax fyrir honum og það eru til
myndir af mér pínulitlum glamrandi
á plastgítar syngjandi Elvis á mjög
slæmri ensku,“ segir hann hlæjandi.
Hinn listamaðurinn sem Eyþór
Ingi hafði mest álit á í æsku er Laddi.
„Leiklistin var mér ekki síður kær en
tónlistin á þessum árum og Laddi var
minn maður. Ég hlustaði aftur og aft-
ur á plöturnar hans og lá yfir mynd-
bandsupptökum af Heilsubælinu í
Gervahverfi. Þetta voru ekki ama-
legar fyrirmyndir, Elvis og Laddi.“
Heybaggi fyrsta sviðið
Eyþór Ingi stóð ekki út úr hnefa
þegar hann byrjaði að troða upp. „Ég
var mikið í hesthúsinu hjá Stefáni afa
mínum og sagan segir að í hvert sinn
sem við löbbuðum þar inn hafi ég
spurt hvað ég ætti að syngja. Þá setti
afi mig upp á heybagga og hlustaði á
mig. Þetta spurðist út og fleiri hesta-
menn fóru að láta sjá sig í því skyni
að heyra mig syngja. Í fyrstu var ég
svolítið feiminn við að syngja eftir
pöntun en þegar þeir gaukuðu að
mér klinki sló ég til. Ég byrjaði
sumsé ungur að þiggja greiðslu fyrir
að koma fram,“ rifjar Eyþór Ingi upp
og skellihlær.
Í kjölfarið fór hann að halda leik-
sýningar fyrir börnin í hverfinu
heima í stofu og um tíu ára aldur
byrjaði hann að taka þátt í leikritum í
skólanum og á vegum áhugaleik-
félagsins á Dalvík. „Júlli Júll, sem
m.a. sér um Fiskidaginn mikla, fékk
mig snemma til að leika í örleikritum.
Síðan var líka vinsælt að fá mig til að
herma eftir Ladda herma eftir öðr-
um. Allar götur síðan hef ég verið
viðriðinn leiksvið, lék m.a. í Oliver
Twist og Óvitum hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar.“
Börn eru gjarnan spurð hvað þau
ætli að verða þegar þau eru orðin
stór. Eyþór Ingi kveðst alltaf hafa
svarað þeirri spurningu með sama
hætti: Söngvari eða leikari. „Sumir
vinir mínir ætluðu að verða slökkvi-
liðsmenn en ég svaraði því þá til að ég
gæti bara leikið slökkviliðsmann ef
mér sýndist svo í framtíðinni. Annars
hef ég alltaf beðið eftir því að verða
fullorðinn svo ég gæti byrjað að hafa
lifibrauð af leik eða söng.“
Lesblinda og athyglisbrestur
Eyþór Ingi hóf sína skólagöngu í
Dalvíkurskóla en eftir 5. bekk var
hann fluttur í lítinn sveitaskóla í
grenndinni, Húsabakkaskóla.
„Ástæðan fyrir því var sú að ég er
bæði með athyglisbrest og lesblindu
og foreldrar mínir ákváðu að senda
mig í smærri skóla til að ég fengi
betri aðstoð við námið. Lesblindan
hefur alltaf háð mér í námi, sér-
staklega í tungumálunum, en þarna
fékk ég mjög góða aðstoð. Margir
halda að athyglisbrestur tengist of-
virkni en það þarf ekki að vera. Ég
hef til dæmis alltaf verið rólegur og
Morgunblaðið/Frikki
Gullbarki „Það var í einu orði sagt
stórkostlegt að upplifa þessa dóma.
Það féllu falleg orð í minn garð í
þættinum og ég fór oft hjá mér. All-
ir hafa gott af því að fá klapp á bak-
ið og þetta styrkir mann í þeirri trú
að maður sé á réttri hillu í lífinu,“
segir Eyþór Ingi Gunnlaugsson en
dómendur í Bandinu hans Bubba
fóru ítrekað fögrum orðum um
söngvarann unga frá Dalvík.
» Það var amma mín, Anna Margrét Halldórs-
dóttir, sem kenndi mér að hlusta á Elvis. Ég
féll strax fyrir honum og það eru til myndir af
mér pínulitlum glamrandi á plastgítar syngj-
andi Elvis á mjög slæmri ensku.
Inntökupróf í læknadeild HÍ
Sjúkraþjálfun og læknisfræði
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ www.hi.is
Læknadeild
» Nánari upplýsingar um prófið og dæmi um prófspurningar má finna á heimasíðu
læknadeildar Háskóla Íslands, www.laeknadeild.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
4
22
06
0
5/
08
Inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun verður
haldið í Reykjavík miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. júní 2008. Nánari upplýsingar
verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig sérstaklega í inntökuprófið fyrir 20. maí 2008. Sjá
eyðublað á heimasíðu læknadeildar, www.laeknadeild.hi.is. Umsókn um skrásetningu
ásamt staðfestu afriti af stúdentsprófsskírteini eða staðfestingu um að stúdentsprófi
verði lokið, skal skila eða senda í pósti til skrifstofu læknadeildar, Vatnsmýrarvegi 16, 101
Reykjavík. Skráning getur farið fram enda þótt nemandi hafi þá ekki lokið stúdentsprófi,
en þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi og skilað inn
staðfestingu því til sönnunar.
» Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo
daga, með þremur tveggja tíma próflotum
hvorn daginn, eða 12 klst. alls. Niðurstaða
prófsins birtist í einni einkunn sem verður
reiknuð með tveimur aukastöfum. Reiknað
er með að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar
en um miðjan júlí.
» Árið 2008 fá 48 nemendur í læknisfræði og 25
í sjúkraþjálfun rétt til náms í læknadeild Háskóla
Íslands og skulu þeir hafa skráð sig hjá Nemenda-
skrá fyrir 1. ágúst. Þeir sem ekki öðlast rétt til náms
í læknadeild, eiga þess kost að skrá sig, innan
sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu
skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands.