Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 121. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is SUNNUDAGUR BARNS- HAFANDI EINS OG 9 MÁNAÐA TANNRÓTARBÓLGA MEÐGÖNGUSTURLUN >> 31 MADONNA SELD NÝ MARKAÐSSETN- ING STJARNANNA PLÖTUR EKKI NÓG >> 60 Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is NAUÐSYNLEGT er að auka hvata til að efla ný- sköpunar- og þróunarstarf hér á Íslandi, að mati Árna Odds Þórðarsonar, stjórnarformanns Marels og forstjóra Eyris Invest, og segir hann að líta megi til Noregs, en þar er veittur skattaafsláttur á móti rannsóknar- og þróunarstarfi. Marel hf. setur 6-7% af veltu í rannsóknir og þró- un á hverju ári eða tæpa fimm milljarða, sem jafn- gildir um helmingi af öllum rekstrarkostnaði Há- skóla Íslands. Auk þess leggur Össur hf., sem Eyrir á. Ég tel að þetta muni skila auknum skatttekjum, þar sem það tryggir verðmætaskapandi hálauna- störf hér á landi.“ Árni Oddur segir koma sér vel fyrir útflutningsfyrirtæki að um hægist í atvinnulíf- inu. Tekjur hækki en kostnaður standi í stað og fjármálastofnanir „ryksugi“ ekki upp allt fólkið. „Í fyrra fóru um tveir þriðju af öllum útskrifuðum raf- magnsverkfræðingum til fjármálastofnana og þriðjungur til framhaldsnáms erlendis, en menntun þeirra nýtist best hjá hátæknifyrirtækjum. Það er ekki viðunandi – hjólin snerust alltof hratt.“ Hjólin snerust of hratt  Marel setur fimm milljarða árlega í rannsóknir og þróun  Þarf frekari hvata fyrir nýsköpun og þróunarstarf  Gott fyrir útflutningsfyrirtæki að hægist um í atvinnulífinu  Að tjaldabaki útrásar | 10 Invest er stór hluthafi í, 6-7% af heildarveltu í rann- sóknir og þróun eða um 1,6 milljarða á ári. „Öflugt rannsóknar- og þróunarstarf styður við uppbyggingu háskólasamfélags og hluti af því speglast í samstarfsverkefnum. Raunar var Marel upphaflega stofnað utan um rannsóknarverkefni í verkfræðideild HÍ.“ Nýleg skattalækkun ríkisstjórnarinnar til fyrir- tækja gerir umhverfið hagstætt til að reka fyrir- tæki á Íslandi, að sögn Árna Odds. „Hvatinn felst í því að koma hagnaðinum fyrir hér, en á móti er hættan sú að fyrirtæki komi kostnaði annað, þ. á m. við rannsóknir og þróun, eins og Írar hafa rekið sig Hvati Árni Oddur vill efla nýsköp- unar- og þróunarstarf hérlendis. Uppreisnarmenn í Norður-Úganda neita að undirrita friðarsamninga nema þeim verði gefnar upp sakir. Stríðsglæpir þeirra eru hins vegar svo hrottalegir að erfitt er að kyngja að þeir komist upp með þá. Er réttlætið mikil- vægara en friður? Tímabilið var vel á veg komið og körfuboltalið Los Angeles Lakers virtist ekki líklegt til stórræða þeg- ar því bættist liðsauki í Spánverj- anum Pau Gasol og allt snerist við. Veldi Los Angeles Lakers endurreist? Ný staða er komin upp í Mið- Austurlöndum og þungamiðjan hef- ur flust frá Ísrael, Palestínu og Líb- anon til Persaflóa. Pólitískt íslam leysir arfleifð Evrópu af hólmi. Umskipti í Mið- Austurlöndum „ÞAÐ er mikill skilningur á mínum þörfum, bæði hjá Bubba Morthens, umboðsmanni mínum, Palla í Prime, og öðrum sem að þessu koma. Markmið mitt er að sanna mig sem tónlistarmaður og sýna að ég geti eitthvað annað en tekið þátt í keppnum. Það er ekki búið að setja upp eldfast mót sem ég passa inn í enda er lykilatriði í mínum huga að laga hlutina að mér en ekki mig að hlutunum. Þannig á það að vera.“ Þetta segir Eyþór Ingi Gunn- laugsson, átján ára Dalvíkingur, sem sigraði með glæsibrag í Band- inu hans Bubba á Stöð 2 fyrir skemmstu. Enda þótt Eyþóri Inga liggi ekk- ert á gerir hann sér líka grein fyrir því að ekki er gott að bíða of lengi. „Ég vil gefa mér tíma til að þróa minn stíl en á sama tíma ætla ég að gera allt sem í mínu valdi stendur til að hverfa ekki af sjónarsviðinu. Ég vil síður enda inni á einhverri skrifstofu eftir nokkur ár. Ég er kominn með vandaða skóflu í hend- urnar og nú er bara að halda áfram að moka.“ Líf Eyþórs Inga hefur alla tíð hverfst um söng og leiklist og þeg- ar hann er spurður um önnur áhugamál vefst honum tunga um tönn. „Það er ekkert annað. Ég hef engan áhuga á íþróttum og veit ekkert um bíla. Tónlistin er mínar ær og kýr. Ég hugsa um hana öllum stundum,“ segir hann eftir nokkra umhugsun. | 20 Eyþór Ingi Gunnlaugsson, rokksöngvari frá Dalvík, á framtíðina fyrir sér Kominn með góða skóflu „Lykilatriði í mínum huga að laga hlut- ina að mér en ekki mig að hlutunum“ Morgunblaðið/Frikki Eyþór Ingi Lífið er tónlist, tónlist og aftur tónlist hjá söngvaranum unga. VIKUSPEGILL Gítarleikararnir >> 59 Öll leikhúsin á einum stað Leikhúsin í landinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.