Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
REUTERS
Frá Istanbúl: „Nei, við fátækt og óréttlæti“.
Víða um heim voru kröfu-göngur gengnar í
tilefni af 1. maí, baráttu-degi verka-lýðsins.
Í Istanbúl í Tyrk-landi voru 530
mót-mælendur hand-teknir, og 38 slösuðust,
þegar kom til átaka á milli mót-mælenda og
óeirða-lögreglu-manna. Mót-mælendurnir
reyndu að fara í kröfu-göngu að Taksim-torgi,
en fjölda-samkomur hafa verið bannaðar á
torginu á 1. maí frá árinu 1977, þegar hópur
vopnaðra manna skaut tugi manna til bana á
torginu.
Í Moskvu er talið að um 30 þúsund manns,
aðal-lega stuðnings-menn
Kommúnista-flokksins, hafi farið í göngu.
Gennadí Zjúganov, leið-togi kommúnista, fór
fyrir göngu undir merkjum hamarsins og
sigðarinnar og myndum af Lenín og Stalín.
Á Kúbu fylgdist Raúl Castro með
hátíðar-samkomu í mið-borg Havana. Talið er
að hundruð þúsunda manna hafi sótt
fundinn.
Kröfu-göngur
1. maí
Í vikunni stóðu yfir miklar
deilur milli skurð- og
svæfingar-hjúkrunar-
fræðinga og stjórn-enda
Land-spítalans, vegna
vakta-fyrirkomulags, sem
stóð til að breyta. Á níunda
tímanum á miðviku-dag
náðist loks samkomu-lag um
að nú-verandi fyrirkomu-lag
gildi til 1. maí á næsta ári.
Það var ekki seinna vænna
því þá á mið-nætti ætluðu 96
hjúkrunar-fræðingar að
hætta störfum. Flestir drógu
upp-sagnir sínar til baka, en
um 10 manns höfðu þegar
fengið aðra vinnu.
Geisla-fræðingar á
Land-spítalanum ákváðu hins
vegar að fresta upp-sögnum
sínum um einn mánuð.
Fjörutíu af 52
geisla-fræðingum á
myndgreiningar-sviði LSH
höfðu sagt upp störfum frá
miðnætti á miðviku-dag
vegna fyrir-hugaðra breytinga
á vakta-fyrirkomulagi. Ekki
var ljóst hvort niður-fellingin á
því næði til geisla-fræðinga.
Þeir áttu síðan fund með
yfir-mönnum á föstu-daginn.
Breytingar felldar niður
Morgunblaðið/Frikki
Hjúkrunar-fræðingarnir glöddust yfir samkomu-laginu.
Josef Fritzl,
73 ára
gamall
maður frá
bænum
Amstetten í
Austur-ríki,
hefur játað
að hafa haldið
dóttur sinni,
Elisabeth, fanginni í
glugga-lausum kjallara
íbúðar-húss síns í 24 ár.
Allan þann tíma mis-notaði
hann dóttur sína
kynferðis-lega og ól hún
honum sjö börn, en eitt þeirra
lést stuttu eftir fæðingu.
Börnin eru nú á aldrinum 5 til
19 ára. Þrjú barnanna bjuggu
með móðurinni í kjallaranum
en þrjú þeirra ásamt afa
sínum [föður] og ömmu á efri
hæðum hússins. Talið er að
hvorki börnin né amma þeirra
hafi vitað af Elisabeth og
börnunum í kjallaranum.
Upp komst um fanga-vist
Elisabeth, sem nú er 42 ára
gömul, þegar 19 ára dóttir
hennar sem bjó með henni í
kjallaranum, þurfti að
leggjast inn á sjúkra-hús.
Læknarnir hófu þá leit að
móðurinni sem leiddi til
hand-töku Josefs. Elisabeth
og börnin eru í um-sjón
sál-fræðinga. Íbúar
Amstetten sýndu þeim
sam-úð með því að tendra
kerta-ljós á þriðjudags-kvöld.
Fangi í
kjallara
í 24 ár
Josef Fritzl
Laun kennara hækka
Nýr kjara-samningur milli
Félags grunnskóla-kennara og
launa-nefndar sveitar-félaga
var undir-ritaður á
mánu-daginn. 1. janúar á
næsta ári verða meðal-launin
rúmar 300 þúsund krónur á
mánuði, en hækkunin er
15-23 %.
Eldur á Dal-braut
Á sunnu-daginn var kom
upp eldur í þjónustu-íbúðum
aldraðra við Dalbraut í
Reykjavík. Sjö manns voru
fluttir á slysa-deild vegna
reyk-eitrunar. Einn íbúi, 84 ára
gömul kona lést á sjúkra-húsi
af bruna-sárum sínum.
Sigur-sælt Duggholu-fólk
Barna- og fjölskyldumyndin
Duggholu-fólkið í leik-stjórn
Ara Kristinssonar, fékk
aðal-verðlaunin á Alþjóð-legu
barnamynda-hátíðinni í
Kristiansand um síðustu
helgi. Duggholu-fólkið vann
einnig aðal-verðlaunin á
Sprockets-hátíðinni í Toronto
fyrir stuttu.
Stutt
„Verðbólgu-tölurnar sem
birtust í gær eru slæmar og
verri en við bjuggumst við og
flestir voru búnir að spá,“
sagði Geir H. Haarde
forsætis-ráðherra í
fyrirspurnar-tíma á Alþingi í
mánu-dag. Hann svaraði
fyrir-spurn Guðna
Ágústssonar, for-manns
Framsóknar-flokksins. Guðni
sagði að margt gengi illa í
íslensku sam-félagi.
Verð-bólgan væri nú 12% og
„engin ríkis-stjórn hefur í
tuttugu ár verið jafn-máttvana
frammi fyrir
efnahags-vandanum sem
blasir við“. Ríkis-stjórnin ber
þar meiri ábyrgð en nokkur
annar, sagði Guðni sem telur
að hún eigi að segja af sér.
Verð-bólgan
orðin 12%
Árni Beinteinn Árnason, leik-stjóri og leikari með meiru,
frum-sýndi fyrstu „alvöru“myndina sína, að eigin sögn,
stutt-myndina Auga fyrir auga, í Háskóla-bíói á fimmtu-daginn.
Árni segir að myndin sé spennu-mynd en þó fyrir alla
fjöl-skylduna, en hún fjallar um vandræða-unglinginn Gumma
sem strýkur af upptöku-heimili. Salurinn var fullur af
áhorfendum sem tóku myndinni mjög vel.
Frum-sýndi fyrstu
„alvöru“myndina
Morgunblaðið/Valdís Thor
Aðal-leikarar: Egill Ploder Ottósson, Árni Beinteinn Árnason
og Lilja Björk Jónsdóttir.
Stefán Gíslason varð á
fimmtu-daginn danskur
bikar-meistari í knatt-spyrnu
þegar Bröndby vann Esbjerg,
3:2, í afar spennandi leik í
Parken í Kaupmanna-höfn.
Stefán lék allan tímann á
miðjunni og átti góðan leik en
Martin Retov inn-siglaði sigur
Bröndby þegar hann skoraði
sigur-markið sex mínútum
fyrir leiks-lok.
Stefán er fyrir-liði Bröndby
og lyfti því bikarnum.
,,Það var frábær til-finning
sem fór um mig þegar ég lyfti
bikarnum upp í loftið,“ sagði
Stefán. ,,Þetta var ekta
bikar-úrslitaleikur.
Stemningin var frá-bær og
sigurinn sann-gjarn. Við
vorum allan tímann sterkari
og ég var eigin-lega aldrei
hræddur um að við myndum
tapa þessum leik.“
Bikar-meistari
Danmörku
Stefán, til vinstri, fagnar
ásamt félögum sínum.
Netfang: auefni@mbl.is