Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 55
• Rótgróin bílaleiga með 21 bíl. Auðveld kaup.
• Þekktur tölvuskóli. Ársvelta 80 mkr.
• Heildverslun með bílavörur. EBITDA 25 mkr.
• Sérverslun og heildverslun með tölvurekstrarvörur. Ársvelta 100 mkr.
EBITDA 10 mkr.
• Þekkt verslun með húsgögn og gjafavörur.
• Sérverslun með sportvörur. Ársvelta 120 mkr.
• Lítil heildverslun með hársnyrtivörur. Hentugt til sameiningar.
• Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli) sem selur í verslanir
um allt land. Ársvelta 160 mkr. EBITDA 15 mkr.
• Rótgróið þjónustufyrirtæki í ferðamannaiðnaði. Ársvelta 120 mkr.
EBITDA 25 mkr.
• Framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 300 mkr.
Góður rekstur í stöðugum vexti.
• Innflutningsfyrirtæki, að hluta með eigin framleiðslu erlendis.
Ársvelta 450 mkr.
• Réttingaverkstæði-sprautun í nágrenni Reykjavíkur. Gott húsnæði og
vel tækjum búið. Ársvelta 50 mkr. Góð afkoma.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að hugbúnaðarfyrirtæki sem
sérhæfir í veflægum lausnum. Ársvelta 180 mkr. EBITDA 35 mkr.
FRÉTTIR
LANDSSAMBANDSFUNDUR Sor-
optimistasambands Íslands var
haldinn 19. apríl sl. í Gullhömrum í
Grafarvogi í umsjá Soroptim-
istaklúbbs Árbæjar. Alls sátu tæp-
lega 200 félagar fundinn alls staðar
að af landinu.
Starfsemi samtakanna hefur ver-
ið með blóma síðastliðið starfsár og
mikið sjálfboðaliðastarf farið fram í
klúbbunum. Þar má m.a. nefna að
síðastliðið haust dreifðu Soroptim-
istar 20.000 lyklakippum til öku-
manna með hvatningu um að sýna
tillitsemi í umferðinni og aka var-
lega. Að auki voru veittir styrkir til
margvíslegra málefna bæði innan-
lands og utan.
Soroptimistar hafa frá upphafi
starfað að alþjóðlegum verkefnum
og nú er unnið að verkefninu „Pro-
ject Sierra“ sem gengur út á það að
styðja ungar einstæðar mæður og
götubörn í Sierra Leone í Vestur-
Afríku, veita þeim menntun og
heilsugæsluþjónustu. Íslenskir Sor-
optimistar hafa einnig styrkt upp-
byggingarstarf í Kigali í Rúanda og
eru 12 einstaklingar, þar af átta
Soroptimistar, á leið til Kigali til
þess að vera viðstaddir árlegt frið-
armaraþon þann 11. maí nk. Þar
verða þeir einnig viðstaddir vígslu á
miðstöð, þ.e. skóla og húsum fyrir
munaðarlaus börn og ekkjur sem ís-
lenskir Soroptimistar hafa á þátt í
að fjármagna.
Í fundarlok flutti Guðrún Jóns-
dóttir, talskona Stígamóta, áhrifa-
mikið fræðsluerindi um mansal.
Íslenskir Soroptimistar eru að
undirbúa fræðslu og vitundarvakn-
ingu til þess að vinna gegn mansali
og er ætlunin að vinna það í sam-
starfi við Zonta á Íslandi. Einnig er
ætlunin að standa að sameiginlegri
baráttu gegn mansali í samstarfi við
öll hin Norðurlöndin.
Norrænir vinadagar Soroptim-
ista verða haldnir í Reykjavík í
byrjun júní nk. Þetta er í fjórða sinn
sem slík ráðstefna er haldin á Ís-
landi og er hún ætluð norrænum
Soroptimistum. Vegna þátttöku
gesta frá Eistlandi, Lettlandi og
Litháen verða allir fyrirlestrar á
ensku undir yfirskriftinni „Trans-
forming lives – Empowering
women and girls.“ Reiknað er með
góðri þátttöku enda hefur verið
fengið einvala lið fyrirlesara á
fundinn. Forseti Evrópusambands
Soroptimista, Mariet Verhoef-
Choen, hefur boðað komu sína
ásamt fleirum úr stjórn Evr-
ópusambands Soroptimista.
Nýjum upplýsingabæklingi um
starsemi Soroptimista var dreift á
fundinum en Soroptimistar eru al-
þjóðasamtök fyrir konur í stjórnun
og öðrum sérhæfðum störfum.
Þessar upplýsingar eru einnig að-
gengilegar á nýjum vef samtak-
anna, www.soroptimist.is.
Ásgerður Kjartansdóttir bóka-
safns- og upplýsingafræðingur er
að ljúka tveggja ára starfstíma sem
forseti Soroptimistasambands Ís-
lands og við tekur Guðrún Erla
Björgvinsdóttir aðstoðarskóla-
stjóri.
Fjölbreytt starf Soroptimista
Sjálfboðaliðar Til vinstri er Guðrún Erla Björgvinsdóttir, verðandi for-
seti, og t.h. er Ásgerður Kjartansdóttir, núverandi forseti Soroptimista.
MIÐSTJÓRN Samiðnar hefur sent
frá sér eftirfarandi samþykkt um
stöðu efnahagsmála:
„Kjarasamningarnir sem undirrit-
aðir voru 17. febrúar sl. voru ekki
síst hugsaðir til að leggja grunn að
efnahagslegum stöðugleika og til að
tryggja kaupmátt til lengri tíma. Síð-
ustu vikur hafa einkennst af miklum
efnahagslegum óstöðugleika, hækk-
andi verði á nauðsynjavörum og
spáð er vaxandi atvinnuleysi þegar
kemur fram á haustið. Miðstjórn
Samiðnar lýsir yfir miklum áhyggj-
um af þessari þróun og varar við af-
leiðingum hennar ef ekkert verður
að gert.
Miðstjórnin kallar eftir víðtæku
samstarfi stjórnvalda og aðila vinnu-
markaðarins til að koma á styrkri
efnahagsstjórn sem tryggi stöðug-
leika og gott rekstrarumhverfi at-
vinnulífsins. Einnig krefst miðstjórn-
in þess að stjórnvöld grípi nú þegar
til aðgerða og beiti öllum þeim tækj-
um sem þau ráða yfir til að koma í
veg fyrir að hér skelli á atvinnuleysi
með öllum þeim hörmungum sem því
fylgir. Miðstjórnin bendir á að Ísland
er ríkt samfélag sem á að geta staðið
af sér skammvinna niðursveiflu, en
aukið atvinnuleysi og hækkandi
verðlag á nauðsynjavörum kemur
verst niður á þeim sem lakast
standa.“Kalla eftir víð-
tæku samstarfi
STEFÁN Pálsson, formaður Sam-
taka hernaðarandstæðinga, hefur
ákveðið að sækja um starf forstjóra
nýrrar Varnarmálastofnunar.
Í yfirlýsingu frá Stefáni segir m.a.:
„Í mínum huga eru engir hagsmuna-
árekstrar fólgnir í því að gegna sam-
tímis stöðu forstjóra Varnar-
málastofnunar og formennsku í
Samtökum hernaðarandstæðinga.
Kunni utanríkisráðuneytið að vera á
annarri skoðun er ég til umræðu um
að láta af þeim félagsstörfum.“
Vill stýra Varn-
armálastofnun
SÉRA Sigfús Jón Árnason, fyrr-
verandi sóknarprestur og prófast-
ur á Hofi í Hofsárdal í Vopnafirði,
predikar við guðsþjónustu í Graf-
arvogskirkju kl. 11. í dag, sunnu-
dag.
Sigfús er Skagfirðingur og vígð-
ist til Miklabæjar í Skagafirði
1965. Hann þjónaði síðan að Hofi í
aldarfjórðung en er nú sestur í
helgan stein í Grafarvogi í Reykja-
vík.
Sr. Sigfús predik-
ar í Grafarvogi